Morgunblaðið - 04.10.1998, Síða 50

Morgunblaðið - 04.10.1998, Síða 50
50 SUNNUÐAGUR 4. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ í- KIRKJUSTARF í DAG Safnaðastarf Kvöldmessa í Hallgrímskirkju FJÖLBREYTT dagskrá verður í Hallgrímskirkju í dag. Um morgun- inn kl. 10 verður fyrirlestur um efn- ið: Siðfræði erfðavísindanna. Jón Kalmansson, heimspekingur, fjallar um þetta efni. Kl. 11 er messa og bamastarf. Prestur sr. Sigurður Pálsson. Kl. 20.30 verður fyrsta kvöld- messa vetrarins, en þær verða framvegis einu sinni í mánuði. Bisk- up Islands, hr. Karl Sigurbjömsson, * mun predika og Mótettukór Hall- grimskirkju syngja. Báðir prestar kirkjunnar þjóna fyrir altari. Þá munu fleiri prestar koma að þjónustunni ásamt tveimur djákna- nemurn og starfsfólki kirkjunnar. Kvöldmessan verður með nokkuð öðra sniði en hámessa sunnudags- ins. Sungnir verða einfaldir söngvar og sálmar og lögð áhersla á til- beiðsluna og íhugunina. Leikþáttur hjá Oháða söfnuðinum t LEIKÞÁTTURINN „Þá mun eng- inn skuggi vera til“ verður sýndur mánudagskvöldið 5. október í Óháðu kirkjunni, Háteigsvegi 56. Er þetta 30 mínútna einleikur, leik- inn af Kolbrúnu E. Pétursdóttur, og fjallar hann um sifjaspell og af- leiðingar þess, þar sem kona, stödd í kirkju, stendur frammi fyrir sárs- aukafullu og tilfmningaríku upp- gjöri við fóður sinn, sem misnotaði hana í æsku. í upphafi verða lesin ljóð eftir þo- lendur kynferðislegrar misnotkunar og eftir leikþáttinn verða fyrir- spumir og umræður við höfunda verksins, þær Björgu Gísladóttur og Kolbrúnu leikara. Leikstjóri einþáttungsins er Hlín Agnarsdótt- ir. Allir era velkomnir á sýninguna og aðgangur er ókeypis. Bústaðakirkja. Starf TTT mánudag kl. 17. Digraneskirkja. Opið hús þriðju- daginn 6. október frá kl. 11. Sr. Iris Kristjánsdóttir hefur hugleiðingu. Sýndar verða myndir frá starfinu á þessu ári. Friðrikskapella. Kyrrðarstund í hádegi á morgun, mánúdag. Léttur málsverður í gamla félagsheimilinu að stundinni lokinni. Grensáskirkja. Mæðramorgunn mánudag kl. 10-12. Gestur samver- unnar er Sigrún Sigurðardóttir hjúkranarfræðingur. Allar mæður velkomnar með lítil böm sín. Hallgrúnskirkja. Æskulýðsfélagið Örk (eldri deild) mánudag kl. 20 í kórkjallara. Langholtskirkja. Fundur Kven- félagsins í Langholtskirkju þriðjud. 6. okt. kl. 20. Venjuleg fundarstörf. Erindi Guðrún K. Þórsdóttir, fram- kv.stj. Alzheimersamtakanna. Félagar taki með sér gesti. Neskirkja. Hjónastarf Neskirkju í kvöld kl. 20.30. Farsælt hjónaband. Nokkrir lyklar. Benedikt Jóhanns- son sálfræðingur ræðir málið. Fótsnyrting á vegum Kvenfélags Neskirkju mánudag kl. 13-16. Upp- lýsingar í síma 551 1079. TTT, 10-12 ára starf, kl. 16.30. Æskulýðs- félag Neskirkju kl. 20. Mömmumorgunn miðvikudag kl. 10-12. Ungar mæður og feður vel- komin. Kaffi og spjall. Óháði söfnuðurinn. Fræðslukvöld mánudag kl. 20.30. Sifjaspell. Leikþátturinn „Skugginn" sýndur. Umræður eftir leiksýningu. Reykjavíkurprófastsdæmin. Hádegisverðarfundur presta í Bústaðakirkju mánudag kl. 12. Árbæjarkirkja. Æskulýðsfundur yngri deildar, 8. bekkur, kl. 20-22 í kvöld. Starf fyrir 7-9 ára (STN) mánudag kl. 16-17. TTT starf fyrir 10-12 ára mánudag kl. 17-18. Æskulýðsfundur eldri deildar, 9. bekkur, kl. 20-22 mánudag. Digraneskirkja. TTT-starf 10-12 ára kl. 17 á mánudögum. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9-10 ára drengi á mánudögum kl. 17.30. Bænastund og fyrirbænir mánudaga kl. 18. Tekið á móti bæn- arefnum í kirkjunni. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum í kirkj- unni alla daga frá kl. 9-17 í síma 587 9070. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir unglinga 13-15 ára kl. 20.30 á mánudögum. Predikunarklúbbur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er á þriðjudögum kl. 9.15-10.30. Umsjón Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Kópavogskirkja. Samvera Æskulýðsfélagsins kl. 20 í safnaðar- heimilinu Borgum. Seljakirkja. Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10-12. HafnarQarðarkirkja. Æskulýðs- starf, yngri deild, kl. 20.30-22 í Hásölum. Njarðvíkurkirkja. Foreldramorg- unn miðvikudaginn 7. október kl. 10.30. Fyrsta skipti á þessu starfsári. Keflavíkurkirkja. Á morgun, mánu- dag: Sorgarhópur í efri salnum í Kirkjulundi (1. sldpti af 5). Fjallað verður m.a. um bók Viktors Frankl: Leitin að tilgangi lífsins. Hópurinn er einungis ætlaður þeim sem era að takast á við missi og sorg. Grindavfkurkirkja. For- eldramorgnar hefjast þriðjudaginn 6. okt. kl. 10. Landakirkja Vestmannaeyjum. Vetrardagskráin í helgihaldi Landa- kirkju hefst kl. 11. Fyrsta samveran í sunnudagaskólanum. Nýtt og spennandi efni. Allir fá eitthvað við sitt hæfi. Böm og foreldrar era hvött til að njóta sameiginlegrar helgistundar í kirkjunni. Kl. 14 Al- menn guðsþjónusta. Samvera fyrir bömin yfir í safnaðarheimili meðan á guðsþjónustu stendur. Kl. 16 guðsþjónustu dagsins útvarpað á UV FM104. Kl. 20 æskulýðsfundur í Landakirkju. Efni vetrarins verður kynnt. Mánudagur: Kl. 20 sauma- fundur kvenfélagsins í safnaðar- heimilinu. Akraneskirkja. Kirkjuskóli eldri bama, 7-9 ára, mánudag kl. 17.30. Æskulýðsfélag kirkjunnar í sam- starfi við KFUM og K kl. 20. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Brauðsbrotning kl. 11. Hreinn Bemharðsson prédikar. Almenn samkoma kl. 16.30. Útlendingar bú- settir á íslandi taka þátt í samkom- unni með söng og vitnisburðum. All- ir hjartanlega velkomnir. YOGASTÖÐ VESTURBÆJAR íHÚSI SUNPLAUGAR SELTJARNARNESS YOGA YOGA YOGA Þriðjudaga og fimmtudaga ki. 10:15 Þriðjudaga kl. 18:00 og föstudaga kl.17:30 Leiðbeinandi: ANNA BJÖRNSDÓTTIR, yogakennari Innritun og upplýsingar í síma 561 0207 Barnavagnar Rauðarárstíg 16, sími 561 0120. PCI lím og fúguefni - iu iHl Stórböföa li, vlð Gollinbrú, sími 567 4844 VELVAKAMII Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hver kannast við þessar myndir? KANADÍSK kona, Yvonne Josephson, bað Velvakanda að birta þessar myndir fyrir sig. Telur hún líklegt að myndirnar séu af ættingjum hennar. Hún biður þá sem kannast við fólkið á myndunum að hringja í Sólveigu í síma 554 2884 eða hafa samband við sig: Yvonne Josephson, Box 663 Lundar, Manitoba, Canada. Altarisgöngur í SUNNUDAGSBLAÐI Morgunblaðsins í dálkum Velvakanda er hinni nýju aðferð sem viðhöfð er við altarisgöngur, að dýfa oblátunni niður í vínið, fagnað og því haldið fram að betri aðsókn sé við alt- arisgöngur eftir að þessi siður var tekinn upp. Jesús rétti lærisveinum sínum bikarinn og sagði: „Drekkið allir hér af.“ Vilji menn ekki drekka af kaleikum, þá verður að notast við litla bikara, eins og margir gerðu og gera kannski enn. Það er ekki tilgangurinn að safna bara einhverju fólki að altarinu, því að þessi athöfn er ein- göngu ætluð hinum trúuðu. í fyrsta Korintubréfi, 11. kap. 23.-31. versi, segir Páll postuli um þessa heilögu athöfn: „Því að ég hefi meðtekið frá Drottni það sem ég hefi kennt yður. Nóttina, sem Drottinn var svikinn tók hann brauð, gjörði þakkir, braut það og sagði, þetta er minn Ukami, sem er fyr- ir yður. Gjörið þetta í mína minningu. Sömuleiðis tók hann bikarinn eftir kvöld- máltíðina og sagði: „Þessi bikar er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði. Gjörið þetta svo oft sem þið drekkið í mína minningu." Svo oft sem þið etið þetta brauð og drekkið af bikamum, boðið þið dauða Drottins, þangað til hann kemur. Hver sem etur brauðið, eða drekkur bikar Drottins óverðuglega, verður þess vegna sekur við líkama og blóð Drott- ins. Hver maður prófi sjálfan sig og eti síðan af brauðinu og drekki af bik- amum, því að sá, sem etur og drekkur án þess að dæma rétt um líkamann, hann etur og drekkur sjálfum sér til dóms. Fyrir því eru svo margir sjúkir og krankir á meðal yðar og allmargir deyja.“ Eggert E. Laxdal, Hveragerði. Hver þekkir vísurnar? VELVAKANDA barst eft- irfarandi: „Þegar ég var innan við fermingu dvaldi hjá móður minni öldruð kona, Agnes Hannesdóttir, indæl og vel að sér til handanna. Af henni lærði ég og systir mín, Anna, eftirfarandi er- indi: Hver gengur hér og grætur, uw grafarhúsið mitt? Það er ég, elsku mamma, einmana bamið þitt. Og: Hver færir mig í fötin, og fléttar hár mitt nú og segir Sigga litla með sama rómi ogþú? Ef einhver kannast við höfundinn eða vlsumar þá vinsamlega hafið samband við Ingibjörgu (95 ára) í síma 434 7965. Tapað/fundið Veiðistöng týnd UM mánaðamótin ágúst- sept. komu hjón með flugi frá Bandaríkjunum og tóku flugrútuna að Loft- leiðahótelinu. Með í far- angrinum var ný veiðistöng í dökkbláum nælonhólk. Stöngin var af- mælisgjöf. Þessi ágæta stöng varð svo viðskila við eigendur og hefur ekki fundist þrátt fyrir mikla leit. Stöngin var merkt með visa-merki, nafn og heimilisfang. Ef einhver veit hvar stöngin er niður- komin þá vinsamlegast hafið samband í síma 553 6239 eða GSM 8918912. Þá getur af- mælisbarnið tekið aftur gleði sína. Svart seðlaveski týndist SVART seðlaveski með skilríkjum o.þ.h. týndist 12. september á Glaumbar. Þeir sem hafa orðið þess varir skili því á næstu lög- reglustöð. Tapað/fundið Páfagaukur týndist í Fossvogi BLÁGRÁR páfgaukur týndist sl. miðvikudag frá Goðalandi. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi sam- band í síma 5681792. Týnd kanína HVIT kanina með rauð augu, svarbrún eyru, trýni og gráan dindil týndist frá Skógarhh'ð 12 fyrir nokkrum dögum. Hafi ein- hver orðið var við kanin- una er hann beðinn að hringja í síma 562 9232. Víkverji skrifar... MENNING og listir setja mark sitt á íslenzkt samfélag þessa dagana, góðu heilli. Októbermánuð- ur hefur á sér svipbragð menningar, máski öðram mánuðum fremur. Þá hefst gjaman margs konar listastarf (eftir sumarhlé): leikhús, ópera, sin- fónía, listsýningar o.fl. Margir íslenzkir listamenn vora og í heiminn bomir í þessum mán- uði: Benedikt Gröndal rithöfundur (6. okt. 1907), séra Bjarni Þorsteins- son tónskáld og þjóðlagasafnari (14. okt. 1861), Guðmundur Daníelsson rithöfundur (4. okt. 1910), Guð- mundur Hagalín rithöfundur (10. okt. 1898), Jakob Smári skáld (9. okt. 1889), Jón Thoroddsen rit- höfundur (5. okt. 1818), Stefán frá Hvítadal (11. okt. 1887), Stephan G. Stephansson skáld (3. okt. 1853), Steinn Steinarr skáld (13. okt. 1908). Fleiri mætti eflaust til tína. I þessum mánuði er 100 ára fæðingarafmæli Guðmundar rit- höfundar Hagalín og 90 ára fæðing- arafmæli Steins skálds Steinar. xxx RÁTT FYRIR góðærið í þjóðar- búskapnum síðustu árin, nánast ekkert atvinnuleysi, töluvert aukinn kaupmátt og stöðugt verðlag áram saman, jafnvel lækkað verðlag/vísitölu undanfarið, hafa skuldir heimilanna vaxið hrikalega. Talað er um 43 milijarða króna vöxt á einu ári. Ríkið hefur á hinn bóginn lækkað sínar skuldir. Þessi eyðslumáti þjóðarinnar minnir á gríðarmikinn stríðsgróðann, sem hér hlóðst upp á árunum 1939 til 1945, þegar fjaraði undan efnahag flestra Evrópuþjóða. Þrátt fyrir hátt verð á útflutningsafurðum okkar fyrstu eftirstríðsárm var stríðs- gróðinn upp urinn þegar árið 1947. Þá kom Faxaflóasíldin til bjargar og síðan Marshall-aðstoðin. Ef við beram okkur saman við Norðmenn, sem nýttu olíugróðann til að borga niður allar erlendar skuldir og safna að auki í drjúga varasjóði til að mæta efnahagslegum niðursveiflum, vaknar sú spurning, hvort þessar tvær frændþjóðir, Is- lendingar og Norðmenn, hafi vera- lega ólíkan „þjóðarkarakter“. Þegar tekjur okkar aukast þá herðum við eyðsluróðurinn, stofnun jafnvel til stóraukinna skulda í trausti þess að batinn vari, og stöndum síðan jafnvel enn ver að vígi eftir en áður. Þegar Norðmönnum bætast viðbótartekjur borga þeir niður skuldir og setja fúlgur fjár á vexti til framtíðar. Norðmenn eru að vísu ekki í háum metum hér á landi um þessar mund- ir, en við getum þó sitt hvað af þeim lært, m.a. fyrirhyggju og framsýni! xxx FRAMBOÐ verða trúlega fleiri í komandi alþingiskosningum að vori en áður, þrátt fyrir mikinn sam- einingarfyrirgang. Ekki eykur það stöðugleikann í stjómmálunum. Til stuðnings stöðugleika er víða lög- bundin sú smáflokkahindran að framboð þurfi ákveðið lágmarkskjör- fylgi á landsvísu, t.d. fimm af hund- raði, til að fá þingmann/þingmenn kjörna. Misvægi atkvæða er og alvarlegt mál hér. Landsmenn eiga að vera jafnir fyrir lögum landsins, ekki sízt kosningalögum, þ.e. í áhrifum á skip- an Alþingis. Að mati Víkverja er það ekki lausnin að landið verði eitt kjör- dæmi. Það fyrirkomulag er bein ávísun á stóraukið flokksræði á kostnað raunverulegs lýðræðis. Á stóram landslistum, sem flokkar röðuðu upp, eru baráttusæti neðar- lega á hverjum lista og allir þar fyrir ofan nánast sjálfkjömir! Öðru máli gegnir með einmenn- ingskjördæmi. Þar er hver og einn þingmaður kjörinn persónulega og verður að standa og falla með frammistöðu sinni. Þar er samband þingmanns og kjósenda náið og skilvirkt. Einmenningskjördæmi stuðla og annarri skipan fremur að 2ja eða 3ja flokka kerfi. Nánast jafnfjölmenn eimenningskjördæmi tryggja að auki jafnt vægi atkvæða. (Sú millileið kann að vera skoðun- arverð að kjósa hluta þingmanna í einmenningskjördæmum og hluta af landslistum).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.