Morgunblaðið - 06.10.1998, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 B 7
Morgunblaðið/Kristinn
góðan sóknarleik með Fram og gerði sjö mörk en Valur Arnarson var helsta skrautfjöður FH með sex mörk.
kt hlutskipti
ram og FH
að aðlagast breyttum aðstæðum,“ segir Guðmundur Guðmundsson
væri ekki bjart í hléi: „Leikurinn er 60
mínútur og ég sagði strákunum í hálf-
leik að þótt þeir hefðu spilað mjög illa
gætu þeir jafnað og sigrað. Það gekk
eftir.“
Varnirnar voru ekki upp á marga
fiska. „Varnarleikurinn hjá okkur var
ekki eins sterkur og hann var í tveimur
fyrstu leikjunum, en þá var hann með
ágætum. Við höfum lagt mikla rækt
við varnarleikinn og hann var skárri
hjá okkur í seinni hálfleik. Fyrir vikið
náðum við hraðaupphlaupum en í raun
var sóknarleikurinn í góðu lagi hjá
okkur.“
Guðmundur sagði að gefa yrði And-
rei Astzfejv tíma til að aðlagast breytt-
nm aðstæðum og fjarvera Olegs Titovs
Wefði þó nokkuð að segja. „Það tekur
tíma að aðlagast nýju umhverfí og við
verðum að gefa Andrei nauðsynlegan
tíma. Hins vegar hefur hann staðið sig
vel, gert 15 mörk f tveimur leikjum og
að þessu sinni gerði hann mikilvæg
mörk undir lokin. Ég er sáttur við
hann.“
Sumir hafa afsakað frammistöðuna í
byrjun móts, haft á orði að eðlilega sé
haustbragur á liðunum, þau þurfi meiri
tíma til að springa út. „Eg er ekki sam-
þykkur þessu því þótt við þurfum að
laga margt höfum við æft vel síðan í
júlíbyrjun, verið í lyftingum og farið í
æfíngaferð til Þýskalands auk þess að
hafa leikið marga æfíngaleiki. Hins
vegar getur verið að breytingar á lið-
unum hafí sitt að segja - sumir séu
ekki búnir að fínna rétta taktinn."
Góðir í 45 mínútur
Kristján Arason, þjálfari FH, furðaði
sig á ýmsum dómum dómaranna en var
að sumu leyti ánægður með leikinn. „Við
lékum mjög góðan handbolta í 45 mínút-
ur en vorum slakir síðasta stundarfjórð-
unginn," sagði hann við Morgunblaðið.
„Við hleyptum þeim inn í leikinn og
þetta var hálfgerð vitleysa það sem eftir
var en sigur Fi’am var verðskuldaður."
FH-ingar gerðu mörg sóknarmistök.
„Við vorum óöruggir í sókninni, fórum
að spila til hliðar þar sem engin ógnun
var af mönnum. Úrslitin í fyrstu tveimur
leikjunum hafa áhiif og við þurfum að
reyna að komast yfir slæmu kaflana."
FH-ingar era ekki vanir að vera í fall-
sæti. „Við erum að ganga í gegnum
ákveðið tímabil án þess að styrkja hóp-
inn með erlendum leikmönnum. Við
misstum mikið þegar markvörðurinn
Lee fór en Elvar Guðmundsson hefur
varið vel og liðið er að slípast. Ég sá
miklar framfaiir frá síðustu tveimur
leikjum og ég trúi því að við eigum eftir
að bæta okkur mikið. Veturinn er lang-
ur, við eigum nóg eftir því þetta er rétt
að byi’ja. Það er engin örvænting í hópn-
um en markmiðið er að komast í úrslita-
keppnina.“
■ Úrslit / B10
■ Staðan / BIO
Framarar
standa
undir
væntingum
FRÖMURUM var spáð fyrsta
sæti í 1. deild karla t handbolt-
anum í vetur og þeir standa
undir væntingum, hafa sigrað í
þremur fyrstu leikjum sínum. í
fyrrakvöld unnu þeir FH-inga
33:29 eftir að hafa verið þrem-
ur mörkum undir í hléi, 16:13.
Fram er á toppnum með sex
stig en FH er í fallsæti með
eitt stig úr fyrstu umferð.
Hafnfírðingar komu á óvart í
Framhúsinu, byrjuðu með lát-
um og náðu fljótlega þriggja marka
■BHBBBB forystu, 5:2. Þeir
Steinþór fengu gott tækifæri
Guðbjartsson til að komast í 11:7
skriíar gn klúðruðu því>
Framarar minnkuðu
muninn og jöfnuðu, 10:10, þegar níu
mínútur voru til leikhlés. FH-ingar
misstu ekki móðinn og náðu aftur
þriggja marka forystu en Framarar
jöfnuðu fljótlega eftir hlé. Heima-
menn náðu fyrst forystunni, 20:19,
þegar tæplega 12 mínútur voru eftir
af seinni hálfleik, en FH-ingar jöfn-
uðu upp úr miðjum hálfleiknum,
23:23.
Dómararnir gerðu afdrifarík mis-
tök í stöðunni 25:23, ráku FH-ing-
inn Guðjón Árnason af velli fyrir
mótmæli áður en FH-ingar náðu að
byrja á miðju eftir að Framarar
höfðu skorað og dæmdu Frömurum
boltann, sem var þó ekki kominn í
leik á ný! Framarar nýttu sér liðs-
muninn, sex á móti fjórum, og
Gunnar Berg Viktorsson, sem und-
irritaður hefur aldrei séð leika eins
vel, innsiglaði sigunnn fímm mínút-
um fyrir leikslok. í sókninni á und-
an eyðilögðu dómararnir möguleika
FH-inga á að komast inn í leikinn á
ný, dæmdu aukakast eftir að Hálf-
dán Þórðarson hafði brotist í gegn
og skorað. Hálfdán mótmælti, vildi
fá mark eða að minnsta kosti víti, en
uppskar tvær mínútur.
FH-ingar voru betri framan af,
voru með 42% sóknamýtingu í fyrri
hálfleik en Framarar 42% nýtingu.
I seinni hálfleik snerust tölurnar
við, nýting Framara var þá 62% en
FH-inga 42%. Hins vegar voru -
Framarar yfirvegaðri í leik sínum,
gerðu fæmi mistök og voru klókari
að refsa mótherjunum fyrir mistök.
Sóknarleikur Fram var fjöl-
breyttur. Gunnar Berg fór á kostum
fyi’ir utan og skoraði nánast að vild,
Björgvin Björgvinsson sýndi að
hann ætlar sér í landsliðshópinn á
ný og Njörður Árnason var frábær í
hægra horninu. Hins vegar fór lítið
fyrir Rússanum Andrei Astafejv, en
hann gerði mikilvæg mörk undir
Iokin.
Valur Arnarson var helsti ógn-
valdur FH og mörk hans voru
glæsileg, sum hver eftir mikil
þrumuskot. „Gömlu“ mennirnir,
Guðjón Árnason, Gunnar Beinteins-
son og Hálfdán Þórðarson, voru líka
ákveðnir í sókninni en engu að síður
urðu sóknarmistök gestanna þeim
dýrkeypt.
Rauður
vamarmúr
að Varmá
Gífurlega sterkm- varnarleikm-
Aftureldingar færði liðinu tvö
auðveld stig gegn Stjörnunni í leik
liðanna að Varmá.
Fros(j Lokatölur urðu 22:15 í
Eiðsson sem aldrei varð
skrifar spennandi.
Það segh’ sína sögu
um varnarleik Aftureldingar að
Stjörnumenn áttu aðeins þrjú skot á
markið í fyi’stu tíu mínútum leiksins.
Yfírleitt lauk sóknum Stjörnunnar
með því að varnai-menn Afturelding-
ar, sem mynduðu háan rauðan múr,
unnu af þeim boltann og brunuðu í
hraðaupphlaup og staðan eftir tíu
mínútur var 6:1. Gestirnir komust
inn í leikinn með því að skora þrjú
mörk í röð, en náðu aldrei að ógna
forystu heimamanna, sem höfðu
fímm marka forskot í leikhléi, 12:7.
Síðari hálfleikur vai’ afskaplega
lítið fyrir augað. Sóknarleikur
beggja liða var slakur og það segh’
sitt um mikilvægi Bjarka Sigurðs-
sonar fyrh’ Aftureldingu að þegar
hann hvíldist í tíu mínútur um mið-
bik hálfleiksins vegna smávægilegra
meiðslna, þá skoraði liðið ekki mark.
Það skipti ekki sköpum, Stjörnu-
menn sem voru seinir í öllum sínum
aðgerðum, skoruðu aðeins einu sinni
á þessum kafla og forráðamenn
Garðabæjai’liðsins voru svo vondauf-
ir í síðari hálfleiknum, að þeir höfðu
ekki einu sinni fyrir því að taka leik-
hlé, þó lítið gengi hjá þeim blá-
klæddu.
Markvarsla Bergsveins Berg-
sveinssonar og Ingvars Ragnarsson-
ar stóð uppúr hjá liðunum í síðari
hálfleik og rétt er að geta frammi-
stöðu Magnúsai’ Más Þórðarsonar,
hins sterka línumanns Afturelding-
ar, sem vann geysivel fyi’ir liðið,
bæði í vörn og sókn. Ekki var óal-
gengt að sjá leikmenn Stjörnunnar
hjálpast að til að stöðva Magnús, en
oftast með litlum ái’angri.
Valsmenn byrjuðu vel
Valsmenn gerðu út um leik sinn
gegn Gróttu-KR strax í byrjun, þeg-
ar þeir unnu 24:20 á Seltjarnarnesi.
Leikmenn Gróttu-KR áttu í erfíð-
leikum að rjúfa sterkan varnarmúr
Vals og koma knettinum fram hjá
Guðmundi Hrafnkelssyni, sem varði
mjög vel. Þeir náðu aðeins að skora
eitt mark á fyrstu nítján mín. leiks-
ins, en Valsmenn voru komnir með
afgerandi forustu fyrir leikhlé, 12:5.
Valsmenn slökuðu á í seinni hálfleik
og náðu leikmenn Gróttu-KR þá að
minnka muninn í tvö mörk, en sigur
Valsmanna var aldrei í hættu.