Morgunblaðið - 06.10.1998, Side 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
DAVID Ginola faðmar Sol Campbell, fyrirliða Tottenham, eftir að Sol var búinn að skora sigurmark gegn Derby.
Aston Villa með
vænlegt forskot
Tottenham náði dýrmætum
sigri á útivelli gegn Derby
Gullit vill
peninga til
leikmanna-
kaupa
NÝRÁÐINN knattspyrnu-
stjóri Newcastle, Ruud
Guliit, hefur óskað eftir því
að hann fái aðgang að
auknum peningum til þess
að styrkja lið sitt. Þetta
sagði hann í framhaldi af
3:0 ósigri Newcastle fyrir
Arsenal á Highbury á
sunnudaginn. í liðinni viku
féll Newcastle úr leik í
Evrópukeppni félagsliða
fyrir Partizan frá Belgrad
og segir Gullit að hann
verði að styrkja lið sitt til
þess að möguleiki sé á að
hann geti bætt árangur
þess. Þrátt fyrir þetta hef-
ur Gullit úr Qölmennasta
leikmannahópi að spila
sem knattspyrnustjóri hef-
ur þar í landi, alls 54 Ieik-
menn. Þegar hann tók við
Newcastle liðinu sagðist
hann ætla að byggja liðið á
yngri leikmönnum og þeim
sem fyrir eru hjá því en
hefur greinilega lagt þau
áform til hliðar.
„Ef við eigum að fylgja
eftir liðum eins og Chelsea,
Liverpool, Manchester
United og Arsenal verð ég
að kaupa sterka leikmenn.
Það er hins vegar stjórnar-
innar að taka akvörðun um
aukin útgjöld. Núverandi
staða er hins vegar óþol-
andi og stjórninni er kunn-
ugt um það. Við verðum að
gera eitthvað,“ sagði
Gullit.
Newcastle leikur ekki í
deildinni fyrr en eftir tvær
vikur þar sem hlé verður á
deildarkeppninni f
Englandi um næstu helgi
vegpna landsleikja.
Rangers
aftur á
toppinn
JÓÐVERJTNN Jörg Alberts
var hetja Glasgow Rangers,
sem komst aftur í toppsæti skosku
úrvalsdeildarinnar um helgina með
l:0-sigri á botnliði Dundee. Mark
Þjóðverjans kom skömmu fyrir
leikslok, en fram að því höfðu liðs-
menn Dundee varist af miklum
þrótti og vonbrigði þeirra voru gíf-
urleg í leikslok. Sigurinn var þó
fyllilega verðskuldaður og eftir lok
venjulegs leiktíma lét Alberts verja
frá sér vítaspyrnu.
Kilmamock reyndist ekki búa yf-
ir sömu lukku og stórlið Rangers,
þvi þrátt fyrir ákafar sóknartil-
raunir tókst leikmönnum liðsins
ekki að finna gat á sterkri vöm
Dunfermline og úrslitin urðu því
markalaust jafntefli. Fyrir vikið
missti Kilmarnock efsta sætið til
Rangers, sem nú hafa átján stig að
loknum níu umferðum í deildinni.
Á sama tíma létu Sigurður Jóns-
son og félagar í Dundee United
ekki happ úr hendi sleppa og
komust úr mestri fallhættu með
naumum sigri á Aberdeen, 1:0.
Gary McSwegan gerði eina mark
leiksins á 22. mínútu, en Sigurður
- lék ekki með liði Dundee - er
meiddur.
Meistaramir í Celtic virðast
einnig vera að ná sér á strik og á
laugardag bám þeir sigurorð af
Motherwell, 1:2 á útivelli. Meistar-
amir vom mun sterkari aðilinn í
leiknum og komust í 0:2 áður en
heimamenn minnkuðu muninn
örfáum sekúndum fyrir leikslok.
ASTON Villa frá Birmingham
virðist ekkert ætla að gefa eft-
ir í toppbaráttu ensku knatt-
spyrnunnar. Villa lagði
Coventry á laugardag og hefur
því vænlegt forskot á næstu
lið. Manchester United tókst
að vinna örlagadísirnar á sitt
band og náði öruggum sigri á
Dell-leikvanginum í Sout-
hampton og hefur útlitið hjá
heimamönnum sjaldan verið
eins dökkt. Tottenham náði
dýrmætum sigri á útivelli gegn
Derby en i tveimur toppleikjum
sunnudagsins burstuðu meist-
arar Arsenal Newcastle og
Liverpool og Chelsea skildu
jöfn á Anfield Road, þar sem
Jamie Redknapp jafnaði fyrir
Liverpool skömmu fyrir ieiks-
lok.
Aston Villa situr enn eitt á toppi
úrvalsdeildarinnar eftir l:2-sig-
ur á Coventry á útivelli og að þessu
sinni kom það í hlut miðvallarleik-
mannsins Ians Taylors að sjá um
markaskorun. Bæði mörk Taylors
komu í fyrri hálfleik, en í þeim
seinni minnkaði Norðmaðurinn
Trond Egil Soltvedt muninn fyrir
heimamenn. Lengra komust þeir
ekki gegn vel skipulögðu liði Villa,
sem geislar af sjálfstrausti þessi
misserin.
Á sama tíma tókst Tottenham að
halda hreinu aldrei þessu vant og
vinna góðan sigur á útivelli gegn
Derby, 0:1. Þetta var síðasti leikur
liðsins undir stjórn Davids Pleats,
sem nú mun aftur snúa sér að
stjómunarstörfum fyrir liðið, en í
stúkunni sat nýi stjórinn, George
Graham. Hann hefur löngum verið
þekktur fyrir snjallan varnarleik og
árangursríkan og er ekki ólíklegt að
sumir hafi séð fingraför hans á leik-
skipulagi Tottenham-liðsins í leikn-
um. Aftasta vömin þótti eldtraust
með miðverðina Colin Calderwood
og Sol Campbell sem bestu menn og
kom það í hlut þess síðarnefnda að
gera eina mark leiksins. í þann tíð
er Graham ríkti á Highbury með
Arsenal fékk hann þann stimpil á
sig að vera „konungur" l:0-sigranna
og gera nú margir því skóna að hið
sama verði upp á teningnum með
Tottenham. Derby tapaði þar með
öðmm leik sínum í röð, en er þó
áfram í hópi efstu liða.
Bergkamp hrökk í gang
Liverpool tók á móti stjömuher
Chelsea á sunnudag og enn sem
fyrr hafði Gianluca Vialli, stjóri
Chelsea, gert umtalsverðar breyt-
ingar á liði sínu frá síðasta leik.
Italski framherjinn Pierluigi
Casiraghi kom gestunum yfir
snemma leiks og lengi vel leit út
fyrir aðeins annan sigur Lundúna-
liðsins á Liverpool á 38 ámm. Vörn
Chelsea virtist í litlum vandræðum
með þá Robbie Fowler og Michael
Owen í framlínu heimamanna, en
glæsileg aukaspyma Jamies Red-
knapps undir lokin tryggði jafn-
teflið. Hætt er þó við að Vialli muni
telja hinn hollenska markvörð sinn,
Ed de Goey, ábyrgan fyrir jöfnun-
armarkinu, enda virtist hann illa
staðsettur er skotið reið af.
Hinn sunnudagsleikurinn fór fram
á Highbury, heimavelli Arsenal og
þar vom Ruud Gullit og lærisveinar í
Newcastle í heimsókn. Newcastle
hefur verið á sigurgöngu undanfarið,
en hún endaði snarlega í leiknum þar
sem leikmenn meistaranna höfðu
tögl og hagldir frá upphafi. Hollend-
ingurinn Dennis Bergkamp, sem
hafði ekki skorað mark í tíu síðustu
leikjum, komst loks á blað, gerði
fyrsta mark leiksins, lagði svo upp
annað markið fyrir franska táning-
inn Nicolas Anelka og gerði síðan
þriðja marldð úr vítaspymu. Aukin-
heldur misnotaði hann urmul góðra
tækifæra og lét markvörðinn Shay
Given svo veija frá sér víti undir lok-
in. Sigur meistaranna frá Lundúnum
var þó aldrei í hættu og Newcastle
sá aldrei til sólar - m.a. var hinum
gríska varnarmanni þeirra, Nikos
Dabizas, vildð af leikvelli fyrii- að
fella Marc Overmars innan teigs.
Óstöðugleiki West Ham
Greinilegt er að óstöðugleiki
hrjáir lið West Ham. Liðið leikur
oft skemmtilega knattspvrnu, en
þess á milli dettur allur botn úr leik
þess og stjórinn Harry Redknapp
hefur sagst ætla að vinna bug á
þessu. Á laugardag sótti West Ham
lið Blackburn heim á Ewood Park
og mátti sætta sig við stórtap, 0:3.
Heimamenn fóru á kostum í leikn-
um og Garry Flitcroft gerði tvö
mörk, hvort í sínum hálfleiknum.
Callum Davidson skoraði þriðja
markið um miðjan seinni hálfleik.
Leeds beið lægri hlut á heima-
velli gegn Leicester. Heimamenn
hafa enn ekki ráðið stjóra í stað Ge-
orges Grahams og einn þeirra, sem
nefndir hafa verið til sögunnar sem
líklegur arftaki, er Martin O’Neill,
stjóri Leicester. Hans menn voru
sterkari í leiknum og miðherjinn
Emile Heskey fór illa með gnótt
góðra færa, áður en gamli marka-
hrókurinn Tony Cottee gerði eina
mark leiksins fyrir gestina fjórtán
mínútum fyrir leikslok.
Middlesbrough klífur óðíluga upp
töfluna og vann 4:0-stórsigur á
Sheffield Wednesday á laugardag.
Daninn Mikkel Beck skoraði tvíveg-
is og Kólumbíumaðurinn Hamilton
Ricard og Paul Gascoigne gerðu sitt
maridð hvor í leik þar sem heima-
menn höfðu algjöra yfirburði. Þetta
var fyrsti sigur Middlesbrough á
heimavelli á þessari leiktíð og mark
dagsins átti Gascoigne úr fallegri
aukaspymu undir lokin. Andy
Hinchcliffe var vísað af velli einni
mínútu fyrir leikslok fyrir að brjóta
á Beck, sem var við það að komast
einn í gegn.
United í fullu fjöri
Dell, heimavöllur Southampton,
hefur löngum þótt vígi hið mesta og
einkum hefur Manchester United
gengið illa þar á umliðnum árum.
Breyting varð þó á því um helgina,
enda United í fullu fjöri og heima-
menn í Southampton að sama skapi
í miklu mótlæti, einir í botnsæti
deildarinnar. Lyktir leiksins urðu
0:3-sigur gestanna frá Manchester
og skerpti mikið framlínuna að
Andy Cole tók sæti Teddys Sher-
ingham. Cole lagði upp fyrsta
markið fyrir Dwight Yorke, skoraði
svo annað markið sjálfur eftir lag-
legan einleik Svíans Jespers
Blomquist og þriðja markið gerði
svo varamaðurinn Jordi Cryuff und-
ir lokin. Staða Southampton er nú
orðin afar slæm, liðið virðist ná illa
saman og hefur aðeins eitt stig að
loloium fyrstu átta umferðunum.
I öðrum leikjum umferðarinnar
bar helst til tíðinda, að Duncan
Ferguson gerði sigurmark Everton
í l:2-sigri liðsins á Wimbledon.
Andy Roberts hafði komið
Wimbledon yfir í leiknum en Danny
Cadamarteri jafnað metin skömmu
fyrir leikhlé. Þá unnu nýliðar
Charlton 0:l-sigur á Nottingham
Forest á heimavelli Forest og kom í
hlut Eddies Youds að skora eina
mark leiksins, strax á 5. mínútu.
■ Úrslit/BIO
■ Staðan / B10