Morgunblaðið - 06.10.1998, Side 12
KNATTSPYRNA
Sjötta
markið
i roð
hjá
Arnari
ARNAR Guunlaugsson heldur
uppteknum hætti hjá Bolton og
um helgina skoraði hann annað
mark Bolton í 2:2 jafntefli á
Oakwell, gegn heimamönnum í
Barnsley. Var þetta sjötta mark
Arnars í röð fyrir Bolton en alls
hefur hann gert átta mörk fyrir
félagið í deildarkeppninni auk
eins í deildarbikarnum. Var Arn-
ar talinn vera besti leikmaður
Bolton í leiknum og af honum
hafi vörn Barnsley staðið stöðug
ógn. Jafnteflið nægði Bolton til
þess að halda sér í þriðja sætinu,
einu stigi á eftir Sunderland sem
er í öðru sæti og fjórum stigum á
eftir Huddersfield sem er efst
með 24 stig, en Bolton á reyndar
leik til góða. Sunderland gerði
markalaust jafntefli við Bradford
á sama tíma og Huddersfield
vann Oxford, 2:0.
Arnar skoraði fyrra mark
Bolton á 21. mínútu og lagði síð-
an upp annað markið sem Dan-
inn Michael Johansen gerði á 42.
mínútu. Leikmenn Barnsley náðu
að jafna metin fimm mínútum
fyrir leikslok eftir að hafa brotið
ísinn á 9. mínútu. „Boltonliðið er
það besta sem við höfum mætt á
þessari leiktíð," sagði John
Hendrie, knattspyrnustjóri
Barnsley, í leikslok.
Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson
ARNAR Gunnlaugsson í baráttu við Lilian Thuram í landsleik íslands og Frakklands.
Genk verðleggur
Þórð á hálfan
milljarð króna
í góðri
samn-
ingsað-
slöðu
Þórður Guðjónsson knatt-
spyrnumaður hefur staðið sig
frábærlega með liði sínu Genk að
undanförnu og sagði forseti félags-
ins að hann og framherjarnir
Oulare og Strupar væru verðlagðir
á hálfan milljarð króna. „Eg held
að félagið vilji með þessum yfirlýs-
ingum fæla önnur lið frá því að
kaupa okkur. Genk hefur lagt
mikla áherslu á að ég skrifi undir
nýjan samning til ársins 2003. Pað
hefur þegar gert mér tilboð, en ég
hef aftur svarað því með gagntil-
boði. Ég á fund með forráðamönn-
um félagsins aftur annað kvöld (í
kvöld) um samninginn,“ sagði
Þórður í viðtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Þórður, sem verður 25 ára síðar í
mánuðinum, á eftir rúmlega eitt ár
af samningi sínum, en segir klásúlu
í samningnum um að hann geti far-
ið eftir þetta tímabil óski hann
þess. Hann sér alfarið sjálfur um
samninga og hefur því ekki um-
boðsmann eins og margir hafa.
„Ég kem til með að pína félagið
eins og ég get enda ástæða til þar
sem það verðleggur mig svona
hátt. Ég er því í góðri aðstöðu til að
semja og það er um að gera að
nýta sér það. Þeir eru hræddir um
að ég semji við annað lið og ég hef í
sjálfu sér heimild tii þess. Ég gæti
þess vegna skrifað undir hjá öðru
félagi á morgun.“
Hann segir að nokkur lið hafi
sýnt sér áhuga, en vildi ekki nefna
þau á nafn. „Það er ekki tímabært
á þessu stigi að segja frá því, en
þau eru m.a. frá Þýskalandi,
Hollandi og Englandi. Éf ég næ
ekki hagstæðum samningum við
Genk hef ég ekki áhuga á að fara
til annars liðs í Belgíu. Ég færi þá
eitthvað annað,“ sagði Þórður.
Hann segist ekki hafa ráðið sér
umboðsmann, taldi það ekki þjóna
tilgangi. „Umboðsmenn eru oft að
rugla í leikmönnum og þeir ráða þá
oftast litlu sjálfir um það hvert þeir
fara. Það er betra að fá þetta beint
í æð, án milliliða."
Þórður kemur til Islands á
morgun til móts við landsliðið sem
fer til Armeníu á föstudag.
Ríkharður lykilmaður
í uppbyggingu Vikings
Ríkharður Daðason átti stórleik
er lið hans Viking sigraði Moss
á heimavelli 5:2 í norsku úrvals-
■■■■■ deildinni í knatt-
Einar spyrnu um helgina.
Guðmundsson Ríkharður skoraði
skrifar með skalla strax á
frá Noregi annarri mín. og var
allt í öUu í öflugum sókanarleik
Viking-liðsins. Brynjar Gunnarson
lék sinn fyrsta leik í langan tíma,
en hann kom inn á í hálfleik hjá
Moss. Brynjar gerði sér lítið fyrir
og skoraði með skalla eftir hom-
spymu og skömmu síðar var hann
aftur í sviðsljósinu er hann braut á
fyrrum félaga sínum úr KR - Rík-
harði Daðasyni - innan vítateigs.
Viking skoraði síðan úr vítaspyrn-
unni og vann auðveldan sigur 5:2
og tryggði sér þar með sæti í Evr-
ópukeppni á næsta ári. Viking hef-
ur miklar áætlanir um að gera fé-
lagið að stórveldi og styrkja liðið
enn frekar næsta ár og er Ríkharð-
ur Daðason lykilmaður í uppbygg-
ingu liðsins.
Helgi Siguðsson gerði tvö mörk
fyrir Stabæk er liðið sigraði Lil-
lestöm 3:2. Fyima markið gerði
hann af stuttu færi en það síðara
með glæsilegum skalla. Heiðar
Helguson kom inn á sem varamað-
ur og skoraði fyrra mark Lil-
leström eftir fallega sendingu Rún-
ars Kiástinssonar. Skömmu fyrir
leikslok var Heiðar óheppinn að
tryggja ekki Lilleström jafntefli,
en gott skot hans fór rétt framhjá.
Arnar Viðarsson lék allan tímann
hjá Lilleström.
Gunnlaugur Jónsson lék allan
tímann fyrir Kongsvinger er liðið
tapaði 1:0 fyrir Strömsgodset og er
liðið komið í bullandi fallhættu.
Tryggvi Guðmundsson var tek-
inn útaf í hálfleik hjá Ti-omsö er lið-
ið tapaði 2:5 fyrir Molde.
Enginn af íslendingunum hjá
Brann lék með liðinu er Brann
sigraði Sogndal 4:0 og þar með er
Sogndal endanlega fallið í 1. deild.
Onnur úrslit urðu að Rosenborg
vann Válerengen 1:0 og Haugesund
vann Bodö/Glimt 5:4. Rosenborg
heldur þar með 5 stiga forustu í
deildinni og hefur unnið þrjá topp-
leiki í deildinni og gert jafntefli við
Junvetus í meistaradeild Evrópu á
síðustu tveimur vikum.
Sigurliði
Dundee Utd.
ekki breytt
SIGURÐUR Jónsson, fyrirliði
íslenska landsliðsins í knatt-
spyrnu, lék ekki með Dundee
United þegar liðið vann Aber-
deen 1:0 í skosku úrvalsdeild-
inni ura heigina.
„Það var einfaldlega ekki
pláss fyrir mig í iiðnu og það
kom mér ekki á óvart,“ sagði
Sigurður við Morgunblaðið, en
liann er loks búinn að ná sér af
meiðslum sem hafa angrað
hann sfðan um miðjan ágúst.
„Liðinu hefur ekki gengið vel
undanfarna mánuði en svo
vannst mikilvægur leikur og
því var eðlilegt að sama lið léki
næsta Ieik. Menn breyta yfir-
leitt ekki sigurliði."
Sigurður kemur til landsins í
dag vegna landsleikjanna við
Armeníu ytra á laugardag og
Rússland heima á miðvikudag í'
næstu viku.