Morgunblaðið - 25.10.1998, Síða 9

Morgunblaðið - 25.10.1998, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1998 B sælasta hljómsveit sjöunda áratug- arins. Þá var sýning sem hét „Ur söngbók Gunnars Þórðarsonar", sem var viðamikil sýning og þótti takast vel. Þetta hefur verið mjög ánægjuleg vinna. Ég þekki þessi tímabil sem eru tekin fyrir. Ég hef - útsett lög fyrir sýningarnar og ver- ið svo heppinn að hafa yfirleitt gott fólk með mér.“ Og nú eruð þið að rifja upp lög úr söngbók hljómsveitarinnar ABBA. Sú sýning hefur fengið góða um- fjöllun og þykir vönduð og vel heppnuð. Áttir þú hugmyndina að þeirri sýningu? „Ólafur Laufdal átti hugmynd- ina. Og þannig er það að Öli fær hugmyndirnar. Það hefur verið mikil aðsókn á sýningarnar og þarna eru ólíkir aldurshópar, eldra fólk og yngra og á sýningarnar hef* ur komið fólk frá Norðurlöndum. Við rifjum upp þessi ár og förum yfír feril hljómsveitarinnar ABBA. Við höfum öll mjög gaman af því að taka þátt í þessari sýningu. Hljóð- færaleikararnir hafa gaman af að spila þessi góðu lög og söngvararn- ir hafa gaman af að syngja lögin og þetta er frábær hópur. Söngvararn- ir standa sig mjög vel. Þetta er allt nýtt fólk og óþekkt, Rúna G. Stef- ánsdóttir, Hulda Gestsdóttir, Krist- ján Gíslason, Birgitta Haukdal, Jón Jósep Snæbjörnsson, og Erna Þór- arinsdóttir sem hefur auðvitað komið fram með ýmsum hljóm- sveitum og sönghópum eins og t.d.„ Snörunum." Nú verður ABBA-sýningin á dagskrá að öllum líkindum í allan vetur. Er ætlunin að að rifja upp ferli fleiri þekktra hljómsveita? „Já, við ætlum að taka fyrir sögu hljómsveitarinnar Bee Gees eftir áramótin. Það má gjai-nan koma fram að ég er einmitt að leita að söngvuram í sýninguna þessa dag- ana og hæfíleikafólk má gjarnan hafa samband við mig. Bee Gees bræðurnir voru þrír, en við verðum með fleiri söngvara og þeir verða*' líklega fimm eða sex. Lög þeirra bræðra hafa náð miklum vinsæld- um og hafa lifað og þau era mjög grípandi og góðar melódíur. Að koma upp svona stórsýningum eins og ABBA-sýningunni og sýningu byggðri á ferli Bee Gees er heilmik- il áskoran og það skiptir máli að allt gangi upp.“ Það sem þú ert að fást við þessa dagana er þá undirbúningur fyrir Bee Gees sýninguna á Broadway? „Já. Ég er að koma upp hammer. Þá gerðum við fímmtán mínútna kvikmynd, Umbarum- bamba, sem var tekin á sveitaballi einhvers staðar fyrir austan fjall. Innisenurnar voru teknar í Ungó í Keflavík. Við riðum í hlaðið á hest- um. Myndin var sýnd sem auka- mynd í Austurbæjarbíói. Reynir Oddsson tók myndina. Ætli hug- myndin hafi ekki verið sú að koma myndinni á markað erlendis. Á þessum árum hugsuðu menn stórt og vildu gjarnan sigra heiminn." Og þú heldur áfram að semja tónlist. Komu ekki út fleiri plötur með Hljómum á sjöunda áratugn- um? „Það komu út tvær tólf laga plöt- ur á vegum hljómplötuútgáfu Svavars Gests. Þær náðu báðar ágætri sölu. Á síðari plötunni sem kom út árið 1967 er Shady Owens með Hljómum. Shady var með Hljómar komu fyrst fram opinber- lega. Það kom út tveggja laga plata sem Svavar Gests gaf út snemma á árinu 1964 og þar er lag mitt Bláu augu þín. Á safndiskinum Bítlabær- inn í Keflavík era tvö lög frá árinu 1964. Húmið er hljótt og Fleygðu ekki neinu í flýti frá þér. Þessi lög komu fyrst fram í útvarpsþætti þar sem Hljómar komu fram og era meðal fyrstu laga sem ég samdi. Ég var nánast búinn að gleyma þessum lögum. Það var einhver náungi sem átti þessar upptökur á bandi og lét Rúnar vita af því.“ Atvinnutónlistarmaður Það era um það bil 35 ár síðan Gunnar Þórðai'son gerðist atvinnu- tónlistarmaður. Hann var átján ára þegar Hljómar slógu rækilega í gegn og af og til er þessa tímabils minnst með því að Hljómar koma fram og rifja upp einstakt tímabil í sögu dægurtónlistar á Islandi. Hógværð hefur löngum verið ein- kennandi í fari Gunnars Þórðarson- ar. Þegar litið er til liðinna ára og sagan rifjuð upp er auðvitað margt sem vert er að minnast á. Það er ekki meira en svo að hann vilji kannast við að vera eitt helsta átrúnaðargoð unnenda íslenskrar dægurtónlistar. Afköst hans sem tónskálds era með ólíkindum. Hann hefur samið 440 lög á hljómplötur og geisladiska og tónlist við ótal tækifæri fyrir útvarpsþætti, sjón- varpsþætti, kvikmjmdir og nú hin síðari ár hefur hann samið klass- íska tónlist sem hann leggur sífellt meiri rækt við og ekki kæmi mér á óvart að hann ætti eftir að leyfa okkur að heyra ný klassísk verk á næstu áram. „Mjög snemma byrjuðum við sem atvinnutónlistarmenn. Við fór- um um landið og á sumrin í þriggja mánaða útilegu. Þá þræddum við vegakerfi landsins og spiluðum í þorpum og bæjum. Það urðu mannabreytingar í hljómsveitinni. Kalli Hermanns hætti tiltölulega snemma og einnig Eggert Kristins- son. Engilbert Jensen varð trommuleikari og söngvari. Síðan hætti Engilbert og Pétur Östlund leysti hann af. Meðan Pétur var með okkur tókum við upp plötu í Ríkisútvarpinu og úti í Englandi. Við breyttum nafninu á hljómsveit- inni og hún hét um tíma Thors- Hljómum í tvö ár, til 1969 þegar við hættum." Og var þá hljómsveitin Trúbrot stofnuð sama ár og Hljómar hættu? „Já. Við Rúnar komum úr Hljóm- um og Karl heitinn Sighvatsson og Gunnar Jökull Hákonarson úr Flowers. Þetta var skemmtilegt tímabil og sérstaklega á meðan við vorum að taka upp plötuna Lifun. Það var mikil hreyfing á mönnum. Kalli hætti, Gunnar Jökull hætti og Magnús Kjartansson kom inn í bandið og var með þegar við tókum upp Lifun. Ólafur Garðarsson kom svo inn í hljómsveitina í staðinn fyr- ir Gunnar Jökul. Trúbrot starfaði í fjögur ár, til ársins 1973. Árin með Hljómum voru þó skemmtilegri en tímabilið með Trúbroti. Þetta var allt svo nýtt þarna í upphafi og margt að gerast. Tímabilið með Trúbroti var ekki alltaf beinlíns skemmtilegt. Á þessum árum voru fíkniefni orðin nokkuð útbreidd og eins og margir þá vorum við í Trú- broti að fikta við þessi efni um tíma, aðallega þó hass. Ég ákvað að hætta í Trúbroti 1973 þegar strákarnir í Ríótríóinu fengu boð um þriggja vikna ferð til Bandaríkjanna og þá komum við fram í bandarískum háskólum og fluttum íslenska þjóðlagamúsík og lög eftir okkur. Þetta var mjög skemmtileg ferð og við fórum t.d. til íslendingabyggðanna og spilum í fjórtán ríkjum í Bandaríkjunum. Ég var með Ríótríóinu alltaf af og til í mörg ár og við gerðum fjórtán eða fímmtán tólf laga plötur. Ríótríóið fór til írlands fyrir tveim áram og þar gerðum við plötu sem heitir Ungir menn á uppleið." Og jafnframt því sem þú varst með Ríótríóinu hér fyrr á árum þá var eitt og annað að gerast. Fluttir þú ekki til London um miðjan átt- unda áratuginn? „Jú, ég flutti út árið 1975 og var þar í tvö ár að taka upp plötur með íslenskum tónlistarmönnum og vann þar í mörgum stúdíóum. Ég vann t.d. með Björgvini Halldórs- syni. Við unnum að Vísnaplötunum Einu sinni var, 1976 og Út um græna grundu, 1977, sem Iðunn gaf út og seldust í stórum upplögum, sú fyrri í tuttugu þúsund eintökum. Við gerðum plötu með Lónlí Blú Bojs. Þá vann ég að plötu sem heit- inn og jörð og svo kom tvöfalt albúm sem heitir Gunnar Þórðar- son og síðar plötur sem heita í loft- inu og Borgarbragur. Himin og. jörð gerði ég hér heima árið 1981. Við fórum til London 1980 og þar var ég í eitt ár og vann við laga- smíðar.“ Samstarf ykkar Ólafs Hauks Símonarsonar er orðið langt og far- sælt. Hvenær og hvernig hófst það? „Það byrjaði þegar ég útsetti og stjórnaði upptökum úti í London á plötu hans Eniga Meniga fyrir um að bil tuttugu árum. Samstarf okk- ar Óla hefur verið ánægjulegt og einstaklega gott. Við gerðum sam- an söngleik, Á köldum klaka, sem var sýndur í Borgarleikhúsinu og gekk ágætlega. Þá unnum við Óli saman að gerð plötunnar Borgar- brags og einnig plötunnar í loft- inu.“ Þú hefur gert töluvert af því á síðari áram að semja tónlist fyrir kvikmyndir, sjónvarpsleikrit og sjónvarpsþætti. Hvenær byrjaðir þú að semja tónlist fyrir kvikmynd- ir og sjónvarp? „Ég samdi fyrst slíka tónlist fyrir mynd Hrafns Gunnlaugssonar, Blóðrautt sólarlag, sem var sýnd í Ríkissjónvarpinu 1977. Árið eftir samdi ég tónlist við mynd Hrafns, Lilju, mynd sem gerð var eftir smá- sögu eftir Halldór Laxness og var einnig sýnd í Ríkissjónvarpinu. að mikið á klassíska músík undan- farin sex, sjö ár og er mikill aðdá- andi tónskáldsins Gústavs Ma- hlers.“ Og Sinfóníuhljómsveit íslands flutti eftir þig tónverk fyrir örfáum áram? „Já, hljómsveitin flutti verk eftir mig á tónleikum í Háskólabíói. Ég byrjaði sem lagahöfundur fyrir dægurlagamúsík og kann kannski mest fyrir mér í því. Það er heil- mikil áskoran að fara yfir í nýja músík. í klassíkinni er fallegasta og besta músíkin. Ég sæki reglulega tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar og hef mikla ánægju af því.“ Hljómsveitarstjórinn á Broadway Gunnar Þórðarson hefur verið hljómsveitarstjóri með eigin hljóm- sveit á Broadway á fjölmörgum stórsýningum á liðnum árum og stjórnar nú stórsveit sem kemur fram á sýningu þar sem rifjaður er upp tónlistarferill sænsku hljóm- sveitarinnar ABBA sem varð heimsfræg á áttunda áratugnum og sló í gegn í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 1974 með lag- inu Waterloo, einnig með laginu Dancing Queen. „Ég byrjaði að vinna við hljóm- sveitarstjóm hjá Óla Laufdal á Broadway í Mjóddinni árið 1982 og hef verið þar við hljómsveitarstjóm á hverju ári síðan. Það hefur alltaf Tónlistin sem ég samdi við þessar myndir var svona framraun og ég hef haft mikla ánægju af að semja tónlist fyrir kvikmyndir og sjón- varp. Við Magnús Eiríksson sömd- um tónlist fyrir mynd Hrafns Gunnlaugssonar, Óðal feðranna. Þá samdi ég tónlist fyrir mynd sem heitir Reykjavík, Reykjavík og nú fyrir örfáum árum tónlist fyrir myndina Agnesi og ég var að klára að semja tónlist fyrir Ómar Ragn- arsson í þætti hans Út vil ek og sýndir hafa verið í Ríkissjónvarp- inu undanfarið. Ég hef samið mikið af tónlist fyrir sjónvarpsmyndir og sjónvarpsleikrit." Og ertu ekki nýlega farinn að fást við að semja klassíska músík? „Jú, ég renni mér svona upp og niður tónstigann og ég á svona ým- islegt í pokahorninu. Ég er ekkert að flýta mér að koma því frá mér. Það er erfiðara dæmi. Ég hef hlust- riQa upp gömlu góðu dagana. Myndin er frá því um miðjan ní- unda áratuginn og ásamt Shady eru á sviðinu Rúnar Júlíusson, Egilbert Jensen, Erlingur Björnsson og Gunnar. ir íslensk alþýðulög og kom út á vegum Fálkans og er enn söluhærri en vísnaplöturnar. Erlendir ferða- menn hafa keypt mikið af henni og hún hefur selst í 35 þúsund eintök- um. Ég bjó úti í New York í eitt ár eftir að ég hafði verið í London og þar hitti ég mína ágætu eiginkonu. Ég var í New York árin 1978 og 1979 og var þar að vinna að tónlist jafnframt því sem ég var að skemmta mér og að njóta þess að vera til.“ Hvað eru sólóplötur þínar marg- ar? „Þær eru fjórar. Sú fyrsta heitir Gunnar Þórðarson, síðan kom Him- GUNNAR með Ríó-tríóinu, þeim Ágústi Atlasyni, Magnúsi Einarssyni, Ólafi Þórðarsyni og Heiga Péturssyni. verið gott samstarf á milli okkar Óla og ég er afskaplega þakklátur fyrir það að hafa fengið að starfa fyrir hann við fjölmargar sýningar, fyrst á Broadway við Alfabakka og síðar á Hótel Islandi og nú á Broad- way við Ármúlann. Fyrsta sýningin var „Innrás bresku Bítlanna" sem var upprifjun á Bítlaámum og gekk heilan vetur. Síðan kom hver sýn- ingin af annarri t.d. sýning sem var byggð á lögum Ríótríósins og hét „Best af öllu“, 25 ára afmæli Ríótríósins og fékk mikla aðsókn og góðar undirtektir. Eitt árið var tímabilið með Hljómum rifjað upp. Sú sýning hét „Hljómar“, vin- prógrammi og er að velja fólkið og er að hlusta á tónlist þeirra bræðra. Ég þekki þessa músík og hlustaði töluvert á hana hér áður. Egill Eð- valdsson vinnur þessa sýningu með mér.“ Ertu að vinna að nýjum diski eða plötu? „Já. Ég er safna nýjum lögum á disk og mig langar til að gefa hann út sem fyrst. Ég er orðinn svö"* krítískur á sjálfan mig og geri meiri kröfur til mín og lögin eru lengur í vinnslu en áður var þannig að það tekur nokkurn tíma að koma þessu frá sér. Það er ekki sami þeytingur- inn á mér og var og ég er orðinn mun rólegri maður með árunum. Ég hugsa fyrst og fremst um fjöl- skylduna mína sem er mér mes^k virði af öllu.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.