Morgunblaðið - 26.11.1998, Side 1
TOLVUPOSTUR
Einkamál starfs-
manna? /4
ADFÖNG
Stærsta matvöru-
geymsla iandsins /6
VEFURINN
Bókanir á heima-
síðu Flugleiða /2
VIDSmFn AIVINNULtF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER1998 BLAÐ
NETSCAPE SAMRUNI
America Online beiniínurisinn ætlar að kaupa vefskoðunarfrumherjann Netscape
Communications fyrir 4,2 milljarða dollara með samningi, sem nær einnig til
Sun Microsystems. Þar með verður komið á fót risa, sem mun rísa gegn öllum
tilraunum hugbúnaðarrisans Microsofts til að ráða lögum og lofum netinu.
Internet Explorer leitarbúnaðurinn frá Microsoft verður sem fyrr aðalleitarbúnaðar AOL.
Netscape vefskoðunarbúnaðinum er þó ætlað stórt hlutverk þar sem hann verður hluti af
nýjum gagnvirkum búnaði sem mun sameina aðgang að netinu, leit, spjall og fleira.
Velta
(milljarðar dollara á ári)
Microsoft
Hugbúnaðarisi búinn
Windows & Internet Explorer
14,484 6,414
millj. dollara £ millj. dollara
Rekstrarhagnaður
(milljarðar dollara á ári)
Netþjónusta
2.600
millj. dollara
78
millj. dollara
taxteiytlean
Tðlvuvélbúnaður,
netþjónusta,
Java-forritunarmál
millj. dollara
m
9,79
millj. dollara
NETSCAPE
Tölvuhugbúnaður, vefskoðunar-
búnaður, aðgangsþjónusta
533 -132
- millj. dollara millj. dollara •
Risafyrirtæki verður
til í Netheimum
Brontec og Brunnar sameinast
*
Utflutningur
á ísþykkni-
vélum hafinn
Landssíminn
STEFNA ber að sölu Landssímans í
framtíðinni fyrir hæsta hugsanlega
markaðsverð. Til að ná því mark-
miði yrði árangursríkast að bjóða
út 51% hlutafjár til að byrja með
bæði hér og erlendis. Þetta kom
m.a. fram í máli Þórarins V. Þórar-
inssonar, stjórnarformanns Lands-
simans, á fundi sem málanefndir
Sjáifstæðisflokksins héldu nýlega
undir yfirskriftinni „Framtíð fjar-
skipta á íslandi". /2
Tæknival
Nokkrir Islendingar hafa stundað
framhaldsnám fyrir stjórnendur og
eigendur fyrirtælga við Harvard.
Meðal þeirra er Rúnar Sigurðsson,
forsfjóri Tæknivals. Að hans sögn
hefur námið verið afar gagnlegt og
hann öðlast nýja sýn á ýmislegt í
rekstri Tæknivals og innviðum
þess. /2
Upplýsingakerfi
HÓPVINNUKERFI ehf. kynntu í
síðustu viku nýja tegund af upplýs-
ingakerfi, sem nefnt hefur verið
Focal Markaðskerfí og er ætlað til
markaðsstjórnunar.
Samkvæmt upplýsingum Kristín-
ar Björnsdóttur hjá Hópvinnukerf-
um hefur kerfi af þessu tagi ekki
verið til á íslenska markaðnum og
ekki er vitað til að annað sambæri-
legt kerfi sé til erlendis. /9
SÖLUGENGIDOLLARS
AMERICA Online beinlínurisinn
hyggst kaupa frumherja vefskoð-
unartækni, Netscape Commun-
ications Corp., fyrir 4,2 milljarða
dollara með samningi, sem Sun
Mierosystems Inc. verður einnig
aðili að. Þar með verður komið á
fót stórveldi, sem mun breyta því
hvemig fólk verzlar á Netinu og
notar það.
Með samningnum sameinast þrír
af hörðustu keppinautum
Microsoft Corp. Við áskiifenda-
fjölda AOL í Dulles, Virginíu, bæt-
ist leitarbúnaður og tölvuviðskipta-
hugbúnaður Netscapes, auk vefað-
gangsins Netcenter (http://home,-
netscape.com).
■ C3/AOL kaupir Netscape
FYRIRTÆKIN Brunnar hf., sem
sérhæfir sig í búnaði fyrir sjávarút-
veg, og Brontec ehf., sem framleiðir
ísþykknivélar, hafa sameinast. Hið
sameinaða félag verður að 70% í
eigu Islendinga en 30% verða í eigu
bandarískra fjárfesta sem áður voru
hluthafar í Brontec. Framleiðsla á
ísþykknivélum nýja fyrirtækisins er
hafin og er búið að afhenda fyrstu
vélarnar hér innanlands og tvær
vélar til Hollands. Þá verða sex vél-
ar afhentar til Spánar í desember.
Frainkvæmdir á lokastigi
Lokafrágangur á 2.400 fm verk-
smiðjuhúsnæði fyrirtækisins í
Skútahrauni 2 er á lokastigi og er
gert ráð fyrir að full framleiðsla á
ísþykknivélum hefjist um áramót.
Gunnar Beinteinsson, sem hefur
gegnt starfi framkvæmdastjóra
Brontec, tekur við framkvæmda-
stjórastöðu hins sameinaða fyrir-
tækis. Hann segir að jafnhliða sam-
einingu fyrirtækjanna verði unnið
að fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu. Hann sagði að það hefði verið
mat hluthafa beggja félaga að sam-
eina fyrirtækin nú enda búið að
binda endahnút á yfirtöku Brontec
á öllum einkaleyfum og framleiðslu-
rétti frá Ontec í Israel, en Brunnar
hf. og Ontec stofnuðu ísvélaverk-
smiðju undir heitinu Brontec hér á
landi í byrjun árs. „Segja má að
þarna sé um lokaskref að ræða í því
ferli sem hófst þegar Brontec ehf.
var stofnað um framleiðslu og sölu á
ísþykknivélum," sagði Gunnar.
Þróunarvinna skilar árangri
Gunnar segir að tekin hafi verið
ákvörðun um að leggja út í þróunar-
vinnu sem hafi seinkað því að fram-
leiðsla gæti hafist af fullum krafti.
„Sú þróunarvinna sem lagt var út í
hefur nú skilað þeim árangri að
framleiðsla á vélum til ísþykkni-
framleiðslu er nú hafin í húsakynn-
um félagsins og er þegar búið að af-
henda fyrstu vélarnar. Hver vél
kostar á bilinu 2-6 milljónir króna
og þær hafa flestar selst til fyrir-
tækja í fiskvinnslu, en þegar fram-
leiðsla hefst af fullum krafti gerum
við okkur vonir um að ná til fyrir-
tækja í öðrum greinum."
Um 50 starfsmenn vinna hjá sam-
einuðu fyrirtæki og sagði Gunnar að
starfsemi Brunna yrði áfram með
hefðbundnum hætti.
Upphaflega stofnað fyrir
rússneska gyðinga
Ontec var stofnað af bandarísk-
um fjárfestum árið 1991 en hug-
myndin að baki þeirri verksmiðju
var að styðja við bakið á þeim rúss-
nesku gyðingum sem fluttu til lands-
ins eftir hrun Sovétríkjanna og nýta
þá þekkingu sem þeir báru með sér.
A næstu sjö árum var unnið að út-
færslu á þessari framleiðslutækni en
ljóst þótti til að framleiða og mark-
aðssetja vélarnar, þurfti fyrirtækið
að fá til liðs við sig aðila með víð-
tæka reynslu og þekkingu á því
sviði, og þar komu Brunnar til sög-
unnar.
VERÐBREFASJOÐIR LANDSBREFA
- þú velur þann sem gefur þér mest
Peningabréf eru kjörin leið fyrir þá sem vilja festa fé til skamms tíma,
s.s. fyrirtæki, sjóði, sveitarfélög, tryggingarfélög og einstaklinga.
Peningabréf eru laus til útborgunar án kostnaðar þegar 3 dagar eru liðnir frá kaupum.
Yfir þrír milljarðar í öruggum höndum.
Nafnávöxtun sl. 3 daga 7,15%
Nafnávöxtun sl. 20 daga 6,90%
Nafnávöxtun sl. 60 daga 6,93%
Láttu lausaféð vinna fyrir þig.
Aðeins eitt símtal...nýttu þér ráðgjafaþjónustu okkar
og umboðsmanna okkarí öllum útibúum Landsbanka íslands.
LANDSBREF HF.
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
I01f VEFSÍÐA www.landsbref.is