Morgunblaðið - 26.11.1998, Blaðsíða 7
MORGUNB LA3DIÐ
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 C 7
VIÐSKIPTI
Sífellt fleiri bókanir á heimasíðu Flugleiða
Salan stefnir í 300
milljónir á vefnum í ár
GERT er ráð fyrir að heildarsala
Flugleiða af bókunum flugferða í
gegnum heimasíðu fyrirtækisins
verði um 300 milljónir ki’óna á þessu
ári. Sigmundur Halldórsson for-
stöðumaður beinnar sölu hjá fyrir-
tækinu segir að starfsemi vefjarins
feli í sér hagræðingu og stefna fé-
lagsins sé að auka söluna í gegnum
hann.
Sigmundur segir að Flugleiðir hafi
verið eitt af fyrstu flugfélögum í
heiminum til þess að nýta sér mögu-
leika Netsins. „í fyi-stu var heima-
síðan fremur óskilgi’eint fyrirbæri,
enda var ekki vitað hvort Netið yrði
eins útbreitt og það er í dag. I lok
árs 1996 var ákveðið að taka vef fyr-
irtækisins til endurskoðunar og
marka nýja framtíðarstefnu. Nú eru
starfræktir 13 Flugleiðavefir á átta
tungumálum á markaðssvæði fyrir-
tækisins og bjóða þeh' upp á mis-
munandi tilboð á ferðum og upplýs-
ingar og kort um áætlunarstaði."
Sölu- og markaðstæki
Að sögn Sigmundar er vefurinn
fyrst og fremst sölu- og mark-
aðstæki, en fyrirtækið lítur á Netið
sem enn einn möguleikann til þess
að dreifa þeirri þjónustu sem það
hefur upp á að bjóða. „Markmið
Flugleiða með markaðssetningu á
Netinu er að ná um 1% af heildar-
sölu í millilandaflugi fyrh'tækisins í
gegnum Netið á þessu ári, en það er
um 300 milljónir ki’óna. Á næsta ári
er stefnt að því að auka söluna enn
frekar og vonast forsvarsmenn fyrir-
tækisins til þess að hún verði um 3%
af heildarsölu. Á næstu árum er
stefnt að því að auka söluna í gegn-
um Netið um 2% á ári.“
Kostnaðurinn skilar sér
Sigmundur segir að Flugleiðavef-
urinn sé þriðji mest sótti vefurinn
hér á landi, á eftir Fréttavef Morg-
unblaðsins og Vísi, en umferð um vef
Flugleiða hafí fjórfaldast á þessu ári.
„Við fáum um þrjú þúsund heim-
sóknh' daglega, sem þýðir að skoðað-
ar eru 10-12 þúsund síður. Flestar
heimsóknir eru erlendis frá, eða um
80%. 360-400 manns heimsækja vef-
inn á íslandi dag hvern. Við höfum
ekki kynnt vefmn sérstaklega hér á
landi, en vonumst til þess að geta
fjölgað þeim sem sækja vefinn á ís-
landi heim á næstu misserum."
Sala Flugleiða í gegnum Netið fel-
ur í sér talsverða hagræðingu fyrir
starfsemi fyi-irtækisins. „Sá kostnað-
ur sem lagður hefur verið í verkefnið
er fljótur að skila sér og hefur náðst
á einu ári. Hagræðingu viljum við ná
með því að auka beina sölu, en
þannig tekst okkur að lækka kostn-
að.“
Sigmundur segir að erlend flugfé-
lög geri ráð fyrir að geta náð 10% af
heildarsölu á Netinu á næstu árum.
„Við gerum okkur vonir um að gera
betur, ekki síst hér á landi, enda
margir íslendingar tengdir Netinu.
Hins vegai' eru takmörk fyrir því
hve sala á Netinu getur orðið stór
hluti af heildarsölu. Enn sem komið
er eru sjálfvirku bókunarkerfm á
Flugleiðavefnum ófullkomin að því
leyti að þau geta ekki bókað ferð
með mörgum hoppum. Fullkomn-
ustu kerfin geta bókað sex hopp í
einni ferð og það er ekki fyrirséð í
náinni framtíð að fram komi sjálf-
virkt sölukerfi á markaðinn sem ráði
við fleiri bókanir í eina ferð.“
Trygg viðskipti á Netinu
Helsti ótti viðskiptavina Flugleiða
og annarra flugfélaga á Netinu er að
gefa upp greiðslukortanúmer af ótta
við að númerin komist í hendur
tölvuþrjóta og að kort þeirra verði
misnotuð. „Pað eru fjölmargir sem
telja að viðskipti á Netinu séu var-
hugaverð. Viðskiptin eru örugg, en
okkur hefur reynst erfítt að berjast
gegn hugmyndum fólks um ótrygg
viðskipti á Netinu. Á vef Flugleiða er
notaður SSL-staðall, sem tryggir ör-
ugg viðskipti á Netinu, og ég veit
ekki um eitt einasta tilfelli um að
kortanúmer hafí verið misnotað frá
því að þessi staðall var tekinn í notk-
un.“
Sigmundur segir að fólk óttist
einnig að að gefa upp persónulegar
upplýsingar á Netinu. „Umræðan
um notkun persónulegra upplýsinga
á Netinu hefur einkum tengst
bandarískum fyrirtækjum sem eru á
Netinu, en slík umræða hefur einnig
átt sér stað hér á landi. Við höfum
fengið nokkrar fyrirspurnir frá við-
skiptavinum sem vilja vita hvað gert
sé við upplýsingar sem þeir veita
okkur. Við fylgjum reglum Evrópu-
sambandsins um notkun persónu-
legra upplýsinga og þær eru mjög
skýrar og afdráttarlausar. Það er
með öllu óheimilt að nota persónu-
legar upplýsingar nema með leyfi
viðkomandi. Við höfum hins vegar
leyfi til þess að safna persónulegum
upplýsingum um þá sem skrá sig í
sértilboðsklúbba Flugleiða á Netinu.
Að öðru leyti er upplýsingasöfnun
óheimil.“
Auglýsingar á Netinu
skila árangri
Sigmundur segir að fólk þuifí tíma
til þess að kynnast miðli eins og Net-
inu. Þjónustan sem þar sé veitt sé
ólík því sem fólk eigi að venjast og
það treysti ekki alltaf sjálfvirku bók-
unarkerfí Flugleiðavefjarins eða
kerfum á vefjum annarra flugfélaga.
„Það kemur meira að segja fyrir að
þeir sem hafa bókað ferð á Netinu
hafi samband við Flugleiðh' og spyrj-
ist fyrir um hvort bókunin hafí kom-
ist til skila.“
Flugleiðavefurinn er, að sögn Sig-
mundar, í stöðugri endurskoðun, en
hann segir að næstu verkefni felist í
kynningu á vefnum bæði hér heima
og í Evrópu. Reyndar er fyrirtækið
byrjað að auglýsa vefinn í Banda-
ríkjunum og hefur keypt auglýsinga-
rými á CNN-fréttavefnum,
Discovery-vefnum og er að koma sér
fyi'ir á Yahoo-leitarvefnum.
„Auglýsingarnar hafa skilað mikl-
um árangri og Ijóst að máttur þeirra
á Netinu er mildll. Eg geri ráð fyrir
að við höldum auglýsingaherferðinni
á Netinu áfram þegar kemur að því
að kynna vef Flugleiða á öðrum
markaðssvæðum en því bandaríska."
Aðalfundur
Aðalfundur Skinnaiðnaðar hf. verður haldinn á Fosshótel
KEA, Akureyri, föstudaginn 4. desember 1998 og hefst fund-
urinn kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt gr. 4.04 í samþykktum
félagsins.
2. Tillaga til breytingar á gr. 2.02 í samþykktum félagsins um
aukna heimild til útgáfu nýrra hluta.
2. mgr. breytist og verði: „Stjórn félagsins er heimilt fyrir
1. desember árið 2003, að auka hlutafé félagsins með útgáfu
nýrra hluta i allt að kr. 150.000.000,-. -eitthundrað og
fimmtíu milljón krónur-.
Stjórninni er heimilt að taka skuldabréfalán að fjárhæð allt að
kr. 35.000.000,- -þrjátíu og fimm milljón krónur- er veiti lánar-
drottni heimild til að breyta kröfu sinni á hendur félaginu í hlut
í því í síðasta lagi 30. nóvember 2003. Hluthafar skulu ekki
eiga forgangsrétt til áskriftar þeirra hluta í félaginu sem kunna
að verða gefnir út sem endurgjald fyrir skuldabréfalán þetta.“
3. Heimild til stjórnar um kaup á eigin hlutum.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðal-
fund. Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Stjórn Skinnaiðnaðar hf.
r
Nýtt frá HERMA #
Fyrirtœkjaþjcnu&ta
Sími 540 2050 • Fax 568 3909 • Netfang pontun@penninn.is
Hallarmúla • Austurstræti • Kringlunni • Hafnarfirði
H£RMA kynnir nýja tegund. límmiða - SUPCRPRINT.
Límmiðamir eru tjölnota og henta þar aþ leiðandi
þyrir allar gerðir Ijó&ritunarvéla og prentara
(gei&laprentara, blek&prautuprentara). Hafrðu
&amband við tyrirtœkjaþjónu&tu Pennans og tdðu
nánari upplý&ingar.
Imh
mm&m
Þvi miður er þetta of gott til að vera satt, en það er aldréi að vita hvað vísindamenn framtíðarinnar
eiga eftir að afreka. Eitt er þó víst: Fjárfestingarsérfræðingar ACM eru bjartsýnir, því þeir þekkja af eigin
reynslu hverju nýjar hugmyndir og framfarir víðs vegar í atvinnulífinu geta komið til leiðar.
Leitaðu nánari upplýsinga um erlenda hlutabréfasjóði ACM hjá ráðgjöfum Landsbréfa.
. __________________________ H
ACM^Offshore Funds LANDSBRÉF HF.
www.laxidsbref.is