Morgunblaðið - 26.11.1998, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 C 3
VIÐSKIPTI
Risafyrirtæki sem breytir verzlunarháttum á Netinu
AOL kaupir Netscape fyrir
4,2 milljarða dollara
New York. Reuters.
AMERICA Online beinlínurisinn hyggst kaupa
frumherja vefskoðunartækni, Netscape Comm-
unications Corp., fyrir 4,2 milljarða dollara með
samningi, sem Sun Microsystems Inc. verður
einnig aðili að. Par með verður komið á fót stór-
veldi, sem mun breyta því hvemig fólk verzlar á
Netinu og notar það.
Með samningnum sameinast þrír af hörðustu
keppinautum Microsoft Corp. Við áskrifenda-
fjölda AOL í Dulles, Virginíu, bætist leitarbúnað-
ur og tölvuviðskiptahugbúnaður Netscapes, auk
vefaðgangsins Netcenter (http://home,-
netscape.com).
Samningurinn mun gerbreyta viðskiptaum-
hverfi Netsins og náðist hann á einum degi eftir
að AOL, fremsta beinlínuþjónusta heims, og
Netscape í Mountain View í Kaliforníu, sem
gerði Netið aðgengilegt öllum venjulegum net-
notendum, staðfestu að fyrirtækin ættu í viðræð-
um.
Samkvæmt skyldum samningi til þriggja ára
mun Sun í Palo Alto í Kaliforníu þróa og mark-
aðssetja rafeindaviðskiptahugbúnað, sem mun
auðvelda að koma á fót verzlun á Netinu. Svokall-
að Java forritunannál Suns er nú talið mesta
ógnunin við hugbúnaðaryfirburði Microsofts.
Nota enn
Internet Explorer
Forráðamenn America Online hafa í hyggju að
halda Internet Explorer leitarvél Microsofts í
AOL þjónustu sinni, þótt þeir komist yfir
Netscape, framleiðanda Navigator vefskoðunar-
búnaðarins.
Hægt verður að ná til rúmlega 60% notenda
Netsins á vefsíðum hinna sameiginlegu fyrir-
NETSCAPE
tækja, AOL og Netscapes, að mati forráðamanna
þeirra. Sun framleiðir einnig vefsíðutölvur og
kröftugar tölvuvinnustöðvar og AOL samþykkti
að kaupa hlut í vélbúnaði Sun fyrir 500 milljónir
dollara til ársins 2002. Fyrir sitt leyti skuldbind-
ur Sun sig til að greiða AOL rámlega 350 milljón-
ir dollara í markaðs-, auglýsinga- og önnur gjöld
á næstu þremur árum.
I tilefni samrunans skoraði aðallögmaður
Microsofts, Bill Neukom, á bandarísk stjómvöld
að hætta málaferlum gegn Microsoft í ljósi samn-
ingsins, en kvaðst ekki hafa í hyggju að fara fram
á að málið yrði látið niður falla. „Samningurinn
sýnir glöggt að markaðurinn er miklu færari um
að gæta hagsmuna neytenda en stjórnvöld,“
sagði Neukom í yfirlýsingu.
Case sagði að netþjónusta AOL hefði notið
góðs af þeiri auglýsingu sem hún hefði fengið á
einkatölvum með Windows stýrikerfum
Microsofts. „Við getum unnið með Microsoft á
nokkrum sviðum og við fögnum því,“ sagði hann.
Case sagði að Internet Explorer yi'ði sem fyrr
aðalskoðunarbúnaður AOL og benti á að mörg-
um venjulegum viðskiptavinum þjónustunnar
stæði á sama um hvaða skoðunarbúnaði væri
komið fyrir. Áskrifendur geta einnig tengt
Netscape vefleitarbúnað við AOL.
Stórt hlutverk
Netscapes
Case sagði að AOL hygðist tengja Netscape
nýrri útgáfu af svokölluðum ICQ netspjallbúnaði
sem nýtur aukinna vinsælda. Með tímanum verð-
ur ICÖ ef til vill aðalbúnaður AOL til gagnvirkra
samskipta notenda og netsins, þannig að hugbún-
aður eins og Windows getur orðið óþarfur.
Pó þjóna samningarnir því meginmarkmiði að
tryggja samningsaðilum drjúgan hluta vaxandi
viðskipta á Netinu. Netscape hefur einbeitt sér
að því sviði síðan samkepnnin við Microsoft olli
því að hagnaður fyrirtækisins á vefskoðunar-
markaði varð nánast að engu.
Hluthafar Netscapes fá 0,45 AOL hlutabréf
fyrir hvert Netscape hlutabréf. Talið er að samn-
ingsgerð ljúki næsta vor. Bréf í AOL hafa selzt á
89,25 dollara og samkvæmt því eru bréf í
Netscape 40,1625 dollara virði, en þau seldust á
41,94 dollara. Síðan hafa bréf í Netscape lækkað
um ráma 2 dollara og bréf í AOL hækkað um
rúma 2 dollara. Bréf í Sun hækkuðu um 1,625
dollara í 72,94 dollara. Bréf í Microsoft hækkuðu
um 2,50 dollara í 121,69 dollara.
Jafnframt hefur Netscape skýrt frá 2,7 millj-
óna dollara hagnaði á þremur mánuðum til októ-
berloka miðað við 10,2 milljóna dollara hagnað á
sama tíma í fyrra.
Viag og Alusuisse
Auknar
líkur á
samruna
ÞÝSKA fyrirtækjasamsteyp-
an Viag og svissneska alþjóða-
fyrirtækið Alusuisse hafa
gengið frá drögum að sam-
komulagi um samruna fyrir-
tækjanna. Fallist eigendur
þeirra á samkomulagið er
miðað við að af sameiningunni
geti orðið fyrir næsta sumar
en enn er eftir að ganga frá
ýmsum tæknilegum atriðum.
Með samrunanum yrði til fyr-
irtæki með 1.245 milljarða
króna ársveltu og um 62 millj-
arða ki-óna árlegan hagnað að
því er fram kemur í Financial
Times.
Sameiningarviðræður Viag
og Alusuiesse eru hluti af
viðamikilli endurskipulagn-
ingu þýsks iðnaðar og kemur í
framhaldi af töluverðum
breytingum á eignarhaldi
þýskra iðníyrirtækja að und-
anförnu. Segir blaðið að Viag
yrði ráðandi aðilinn í hinu
nýja fyrirtæki ef af samein-
ingunni verður og færi með
a.m.k. 60% hlutafjárins.
Helstu eigendur Viag eru
þýska sambandslandið Bæj-
araland, tryggingasamsteyp-
an Allianz og HypoVereins-
bank. Höfuðstöðvar nýja fyr-
irtækisins yrðu væntanlega í
Munchen.
Nýjung á fjármálamarkaði
FBA býður gjaldeyr-
isviðskipti á Netinu
FJÁRFESTINGARBANKI at-
vinnulífsins (FBA) mun bjóða við-
skiptavinum sínum að eiga gjald-
eyrisviðskipti á heimasíðu bank-
ans frá og með nk. mánudegi.
Þessi viðskipti verða ódýrari en
hefðbundin gjaldeyrisviðskipti
hafa verið hérlendis hingað til, að
sögn Agnars Hanssonar, stað-
gengils forstjóra FBA. Hann tel-
ur að þessi þjónusta muni jafn-
framt gera fyrirtækjum kleift að
fylgjast betur með því sem er að
gerast á gjaldeyrismarkaði og
bæta þannig gjaldeyrisstýringu
þeirra.
Enginn kostnaður fylgir við-
ÍMARK
Þróun í smá-
söluverslun
ÍMARK - félag íslensks markaðs-
fólks mun halda hádegisverðarfund
í dag, fimmtudag, kl. 12 í Ársal
Hótel Sögu um þróun í smásölu-
verslun.
Að undanförnu hefur mikið verið
að gerast á smásölumarkaðinum og
þá sérstaklega matvörumarkaðin-
um. Stórir aðilar hafa tekið höndum
saman og stofnað innkaupafyrir-
tæki, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu.
Jón Bjömsson, framkvæmda-
stjóri Hagkaups, Sigurður Jónsson,
framkvæmdastjóri Kaupmanna-
samtakanna, og fulltrúi frá Félagi
íslenskra stórkaupmanna munu
ræða stöðu heildsala í nútíð og
framtíð? Hver verða áhrif erlendra
verslunarkeðja? Hvað munu breyt-
ingar á markaðinum hafa í för með
sér fyrir neytendur?
skiptunum og er munur á kaup-
og sölugengi minni en í hefð-
bundnum gjaldeyrisviðskiptum
fyrirtækja, að sögn Agnars.
„Verðlagning tekur mið af verði á
alþjóðlegum millibankamarkaði
með gjaldeyri. Sem dæmi um hag-
ræði, sem af þessum viðskiptum
hlýst, má nefna að fyrirtæki með
um 100 milljóna króna gjaldeyris-
viðskipti á mánuði, getur sparað
sér um hálfa milljón króna í
kostnað á ári. Til viðbótar má
reikna ávinning vegna rafrænna
viðskipta og þess að geta fylgst
náið með breytingum á gjaldeyr-
ismörkuðum."
EftíTlitskerfin
iærðii fna oHur
tr
Heimilistæki hf
TÆKNI-OG TÖLVUDEILD
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500