Morgunblaðið - 26.11.1998, Page 8
8 C FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Upplýsingakerfí
handa markaðsfólki
HÓPVINNUKERFI ehf. kynntu í
síðustu viku nýja tegund af upplýs-
ingakerfí, sem nefnt hefur verið
Focal Markaðskerfí og er ætlað til
markaðsstjórnunar.
Samkvæmt upplýsingum Krist-
ínar Björnsdóttur hjá Hópvinnu-
kerfum hefur kerfi af þessu tagi
. ekki verið til á íslenska markaðn-
um og ekki er vitað til að annað
sambærilegt kerfi sé til erlendis.
Segir hún að sumir sem hafi
skoðað kei-fið telji breytinguna
áþekka því og þegar bókhald fyrir-
tækja breyttist úr handfærðu bók-
haldi yfir í tölvubókhald.
Kristín Bjömsdóttir, sem er
markaðsstjóri Hópvinnukerfa ehf.
og kennari í markaðsfræðum við
HÍ, hafði alið með sér þann draum
allt frá því að hún kom úr námi í
markaðsfræðum frá Bandaríkjun-
um árið 1985 að búa til markaðs-
kerfi til þess að auðvelda markaðs-
fólki að vinna á einfaldan og fag-
legan hátt að markaðsmálum. Hóp-
vinnukerfi ehf. byrjaði að leggja
drög að kerfinu 1995, en 1996 lagði
fyrirtækið inn umsókn til átaksins
Vöruþróun ‘96 og var svo heppið að
hugmyndin var ein af 14 hugmynd-
um sem vora valdar til átaksins, en
um 45 hugmyndir bárust. Að átak-
inu standa viðskipta- og iðnað-
arráðuneytið, Iðntæknistofnun og
Nýsköpunarsjóður.
Margir komu
að vöruþróuninni
’ Þá tók við eins og hálfs árs
vöruþróunartími og hálfs árs próf-
unartími sem margir aðilar komu
að. I vöraþróunarhópnum sátu
Kristín Björnsdóttir rekstrar-
fræðingur, Hörður Olavson tölvun-
arfræðingur, Kristrún Viðarsdóttir
kerfisfræðingur, öll starfsmenn
Hópvinnukerfa, Sævar Kristinsson
viðskiptafræðingur og verkefnis-
stjóri frá Iðntæknistofnun fyrir
hönd átaksins og Halldór Bach-
mann, markaðsfræðingur og
starfsmaður markaðsdeildar
Morgunblaðsins. Markaðsdeild
Morgunblaðsins styi’kti gerð kerf-
isins með því að koma inn í
vöraþróun hugbúnaðarins sem full-
trúi neytenda.
A kynningarfundi var öllum
þeim aðilum sem höfðu styrkt
verkefnið, þ.e.a.s. iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytinu, Iðntæknistofn-
un, Nýsköpunarsjóði og Morgun-
blaðinu færður hugbúnaðurinn að
gjöf í þakklætisskyni fyrir veitta
aðstoð.
Markaðsfólk
vantaði tölvukeril
Snemma í vöraþróunarferlinum
tók Hagvangur, fyrir hönd Hóp-
vinnukerfa, persónuleg viðtöl við
yfirmenn markaðsmála í nokkram
íyrirtækjum og síðar í ferlinum var
send út póstkönnun, fyrir utan að
nokkram sinnum var markaðsfólk
kallað inn til umræðna um kerfið.
Niðurstöðurnar vora skýrar,
markaðsfólk taldi sig ekki hafa
nægjanlegan tíma til þess að sinna
markaðsmálunum eins faglega og
það vildi, og það vildi fá tölvukerfi
sem gæti haldið utan um allar
kostnaðartölur og markaðsupplýs-
ingar.
Focal Markaðskerfið var því
hannað til þess að uppfylla þær
þarfir sem fram komu í þessum
könnunum, þ.e.a.s. að gera notand-
anum kleift að vinna á faglegan og
einfaldan hátt í kerfi sem heldur
utan um allar kostnaðartölur og
markaðsupplýsingar, og miðar að
því að breyta markaðsupplýsingum
yfir í þekkingu, þannig að fjár-
magnið nýtist betur.
Athyglinni beint
að heildai niyndinni
Kerílð beinir athyglinni að heild-
armyndinni, eins og heildar-
kostnaði og heildarframlegð fyrir
t.d. herferð eða deild á sama tíma
og hægt er að fara dýpra í gögnin
og skoða til að mynda hvað einstök
birting kostaði.
Hægt er að fara í „Hvað ef“
leiki: Hver verður hagnaðurinn ef
varan lifír í 4 ár á markaðnum en
ekki 3 ár? Hver verður heildar-
markaðskostnaðurinn ef farin er
leið A en ekki B eins og í fyrra?
Hver verður framlegðin ef boðinn
er 10% afsláttur?
Þá er hægt að framkvæma
greiningu á vörakörfu, þannig að
hægt er að sjá hvaða vörar era á
vaxandi, mettum eða deyjandi
markaði. Jafnframt er hægt að
framkvæma samkeppnisgreiningu
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Á KYNNINGUNNI fengu Gísli Benediktsson, sérfræðingur hjá
Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, Margrét Sigurðardóttir, markaðs-
stjóri Morgunblaðsins, Árni Magnússon, aðstoðarmaður viðskipta- og
iðnaðarráðherra og Hallgrímur Jónasson, forstjóri Iðntæknistofnun-
ar, eintak af hugbúnaðinum. Með þeim á myndinni er Kristín Björns-
dóttir, markaðsstjóri Hópvinnukerfa.
(SWOT) og því hægt að skoða
hvernig fyrirtæki getur náð syllu
sem gefur yfirburðastöðu á
markaði.
Kerfið gerir notandanum kleift
að búa til á örskömmum tíma
markaðs- og kynningaráætlanir
með mörgum aðgerðum, sem síðan
fara sjálfkrafa inn í markaðsdaga-
tal, þannig að auðvelt er fyrir alla
að sjá hvað er framundan í
markaðsmálunum.
Markaðskerfið var hannað í
því umhverfi sem talið var best
fyrir markaðsfólk. Nauðsynlegt
þótti að hanna kerfið þannig að
margir gætu unnið saman og var
Lotus Notes því talið besta verk-
færið til þess. Kerfið er útfært
þannig að það á að henta öllum
þeim sem eru að markaðssetja
hvort sem það eru vörur,
þjónusta eða hugmyndir, að sögn
Kristínar.
Jöfur kaup-
ir Concorde
JÖFUR hf. hefur undirritað
samning við Hug - forritaþróun
um kaup á viðskiptahug-
búnaðinum Concorde XAL fyr-
ir fyrirtækið. Samkvæmt
fréttatilkynningu mun nýja
upplýsingakerfið taka á öllum
helstu þáttum í rekstri fyrir-
tækisins. M.a. verður unnt að
auka þjónustu við viðskiptavini,
einfalda verklag starfsmanna
og veita stjórnendum betri og
skilvirkari aðgang að upplýs-
ingum.
Með fjárfestingunni hefur
félagið nú yfir að ráða heildar-
lausn sem samanstendur af
öflugum alhliða viðskiptáhug-
búnaði og verðbréfakerfi.
TIL VINSTRI
Er vinnusvæði þitt tölvan á skrifborðinu á þriðju hæð, gengið um aðaldyr
inn til vinstri, fram ganginn, inn um dyr á hægri hönd og svo þrjá metra
áfram? Og um leið og tölvan er utan seilingar, þá ertu í raun víðsfjarri
öllum þeim upplýsingum og verkefnum sem þú vilt vinna með, senda frá þér
og taka á móti?
Með öfluga fartölvu í höndunum skapar þú þér nýjar aðstæður. Þú vinnur
ekki aðeins tíma, heldur vinnur þú þar sem þér hentar og þegar þér hentar.
Fartölva veitir þér frið til að hugsa og frelsi til að framkvæma.
Aukin framleiðni og ánægja koma síðan af sjálfu sér.
Einn af hornsteinum gæðakerfis EJS er að velja aðeins til samstarfs
birgja sem uppfylla þarfir kröfuhörðustu notenda upplýsingatækninnar.
EJS býður þér upp á fartölvur frá DELL og AST sem allar eru framúrskarandi
á sínu sviði. EJS býður öllum viðskiptavinum sínum upp á fyrsta flokks
þjónustu; leiðbeiningar við val á tölvu og fylgihlutum, sveigjanlega
greiðsluskiimála og örugga og hraða viðhaldsþjónustu.
• Intel 266MHz Pentium MMX örgjörvj
• 32 MB vinnsluminni
• 3,2 GB harður diskur
• 2MB skjáminni
• Móöurborð með Intel 430TX kubbasetti
• 24X geisladrif
• 16 bita hljóðkort og hátalarar
• 12,1" TFT skjár
• Innbyggður spennubreytir,
disklingadrif og geisladrif
• 3ja ára ábyrgð
Tilboð þetta gildir til ársloka 1998 og miðast við „AST Ascentia VL 5260
GRENSÁSVEGI 10 • SlMI 563 3050 • BRÉFSÍMI 568 711 5
^BMTRADA^ V UIBUl KOBBATM ■coimiBi UKS