Morgunblaðið - 08.12.1998, Side 7

Morgunblaðið - 08.12.1998, Side 7
Hugmynd*- rfkur Kðfunáur Höfundur bókarinnar um Ram- ses, Christian Jacq, er helsti sér- fræðingur Frakka um menningu og sögu Egyptalands til forna - en um leið afkastamikill rithöf- undur. Hann beitir þekkingu sinni og líflegu ímyndunarafli við að sviðsetja dramatíska og spennandi sögu í framandlegu umhverfi og þrjú þúsund ára gamlar persónur öðlast nýtt líf á síðum bóka hans. Ævisaga Steingríms Hermannssonar hef- ur hlotið mikið lof gagnrýnenda, jafnt leikra sem lœrðra, samherja og and- stæðinga í póli- tík, enda þykir Steingrímur leggja spilin á borðið og engum hlífa, hvorki sjálfum sér né öðrum. Steingrímur talar í œvisögu sinni opinskátt um einkalíf sitt og afskipti af opinberum málum. •Fyrsttt prcutnu *tf StgIttgriinKt Seldist upp á tíu dögum Mikla eftirtekt hefur vakið hversu ein- lægur og opinskár Steingrímur Her- mannsson cr í nýútkominni ævisögu sinni þar sem hann hiífir sér hvorki við að tala um sviptingar í einkalífi sínu né viðkvæm pólitísk mál. Bókin þykir í senn skemmti- leg og fróðleg og varpa nýju Ijósi jafnt á umdeilda persónu Steingríms og á ís- landssögu síðustu áratuga. Rauk út! Pó svo að ævisögu Steingríms hafi verið beðið með mikilli eftirvæntingu kom það jafnt útgefanda sem öðrum aðstandend- um bókarinnar á óvart að fyrsta prentun hennar seldist upp á aðeins tíu dögum nú í nóvember. Ný prentun kom fljótlega í verslanir en miðað við þá athygli sem bókin hefur vakið er ekki ólíklegt að prentarar og bókbindarar megi hafa sig alla við að út- vega nægar birgðir af sögu Steingríms fram til jóla. Mikil heimildavinna Höfundur bókarinnar, Dagur B. Eggerts- son, byggir á samtölum við Steingrím og ýmsa samferðamenn hans, dagbókum Steingríms, einkabréfum og minnisblöð- um, ásamt öðrum heimildum úr ýmsum áttum, þar á meðal leyniskjölum úr bandarískum skjalasöfnum. I bókinni kemur Steingrímur víða við; hann greinir frá bernsku sinni og æskuár- um, skólavist í Bandaríkjunum, svipting- um í einkalífi, þátttöku í fyrirtækjum og framkvæmdum hér heima að námi loknu og aðdraganda þess að hann fór að hafa afskipti af stjórnmálum og varð einhver þekktasti og áhrifamesti stjórnmálamað- ur síðari ára á íslandi. og örlagarílc „Dagur Eggertsson fjötrar karakt- er stjórnmálamannsins Steingríms Hermannssonar svo vel í texta ævi- sögu hans að stundum er engu lík- ara en hann stígi sjálfur af blöðun- um fram á stofugólfið ... Dagur og Steingrímur færa lesandanum mikla skemmtan. Bókin heldur spennu og flugi út í gegn ..." - Össur Skarphéðinsson, DV „Ég hafði mjög gaman af þessari bók ... Petta er ekki einungis bók fyrir þá sem hafa gaman af pólitík. Þetta er opinská ævisaga en hún er líka mjög skemmtileg ... Drama- tísk og átakanleg hjónabandssaga ... hún er sterk og má dást að Steingrími fyrir að þora að segja þessa sögu. Skemmtileg ævisaga og áhugaverð." - Kolbrún Bergþórsdóttir, Bylgjunni „... góð og skemmtileg bók og mikilvæg samtímaheimild ... Sá sem byijar að lesa bókina um Steingrím hættir því ekki; hún er svo lipur í framvindu sögunnar og á köflum spennandi. Og hún lýsir Steingrími vel. Hann er lifandi kominn í bókinni.'' - Svavar Gestsson, Degi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.