Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 15
Innsýn f útgájpu Völcu-Helgafells © Leiðsögn mtm Áhugi á Njálu hefur farið mjög vaxandi und- anfarið, ekki síst í kjölfar námskeiða Jóns Böðvarssonar. Nú er komin út ný bók sem ætlað er að koma til móts við þennan áhuga. í bókinni Lykillinn að Njálu eftir Kristján Jóhann Jónsson er nútímalesendum opnuð sýn að efni og söguhetjum Brennu-Njáls sögu á sérlega aðgengilegan hátt. Markmið bókarinnar er að kynna Njálu og kenna fólki að njóta þess sem í henni er að finna. Lesandinn fær hér fróðlega og skemmtilega leiðsögn um þessa merku bók sem íslendingar hafa lesið og sótt í visku, skemmtun og styrk kynslóð fram af kynslóð. Fav Weldon utn S]álfstaett fóík: „Besia bók al darmnar" Bandarísk útgáfa skáldsög- unnar Sjálfstœðs fólks. Breska skáldkonan Fay Weldon telur Sjálf- stœtt fólk eftir Halldór Laxness vera bestu bókina sem skrifuð hefur verið á þessari öld. Þetta kom fram í breska blaðinu Inde- pendent á dögunum er blaðið bað máls- metandi fólk að velja bækur aldarinnar. „Það verður ekki hjá því komist að heill- ast,“ segir Weldon. í bókum Laxness sam- einist hið magnþrungna, hið skelfilega og hið ljóðræna. Nýjar kiljuútgáfur Sjálfstœtt fólk er meðal þekktustu skáld- sagna Halldórs Laxness. Nú er hún komin út í nýrri kiljuútgáfu ásamt fimm öðrum skáldsögum hans. Hinar eru Kristnihald undir Jökli, Salka Valka, íslandsklukkan, Vefarinn mikli frá Kasmír og Brekkukotsannáll. Að auki hefur verið gefin út í kilju Lykilbók að fjórum þessara sagna með skýringum á yfir 5000 orðum, orðasam- böndum, tilvitnunum, persónum og kveð- skap í skáldsögunum. Náttúrul egar leídiT til betra lífs Nútímafólk vill draga úr notkun lyfja og bæta heilsuna með náttúrulegum og hættulausum aðferðum. Heilsubók fjölskyldunnar er að- gengilegt alfræðirit með fjölbreyttum upplýs- ingum um óhefðbundnar lækningar og áhrifa- ríkar, náttúrulegar leiðir til betra lífs. Bókin bætir úr brýnni þörf fyrir traust rit af þessu tagi og hefur selst eins og heitar lumm- ur frá því að hún kom út síðastliðið sumar. Frá Svörtum fjödrum tíl Sídustuljóda Láttu Davíð lesa fyrir jiíg! Smásögur Davíðs Oddssonar, Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar, slógu svo sannarlega í gegn og hlutu frábæra dóma fyrir stfl, frásagnargleði og auðugt skopskyn, en þær komu út fyrir síðustu jól. Nú hafa þær verið gefnar út á hljóðbók þar sem höfundur les. Davíð er alkunnur fyrir leikhæfileika sína og hér njóta þeir sín til hins ýtrasta, persónurnar spretta fram ljóslifandi og hlustandanum finnst nán- ast sem hann sé þátttakandi í samtölunum. Nú geta allir látið Davíð lesa fyrir sig! Bókmeimtasaga jjessarar aldar Tuttugasta öldin er stormasamt en um leið frjósamt skeið í íslenskri bókmenntasögu. Sög- ur, Ijóð og lifeiÚT Heimi Pálsson fjallar á að- gengilegan hátt um þetta tímabil, allt frá ný- rómantík til póstmódernisma, og er ómissandi öllum áhugamönnum um bókmenntir. Fjöl- mörg verk einstakra höfunda koma við sögu og sjónum er beint að þjóðfélagsþróun á öld- inni og hvernig hún speglast í bókmenntum. Bókin er ríkulega myndskreytt og í henni er að finna skáldatal þar sem gerð er grein fyrir yfir 100 rithöfundum. mswóF* Lykíll að sögunní fslandssaga a-ö eftir Einar Laxness er nauðsynlegt rit öllum þeim sem leita skilnings á fortíð sinni og sögu þjóðar- innar. Verkið er í þremur bindum og er skrifað sem uppflettirit í stfl alfræði- orðabóka. Það veitir því skjót svör við hvers kyns spurningum sem kvikna um söguna. ítarlegar skrár, fjöldi mynda og skýr framsetning auðveldar skilning á merkustu atburðum íslandssögunnar frá landnámi fram á okkar daga. Verkið nýtur stöðugra vinsælda og var ófáanlegt um skeið en er nú komið út í nýrri útgáfu. Ljóð skáldsins frá Fagraskógi komu út í tíu bókum á tæplega hálfri öld. Nú eru þau öll samankomin í glæsilegu fjögurra binda safni sem gefið var út á aldarafmæli skáldsins, seld- ist upp og var endurprentað á þessu ári. Ljóðasafnið hefst á inngangi um skáldið eftir Gunnar Stefánsson. Davíð heillaði þjóð sína strax með Svörtum fjöðrum og varð þjóðskáld þegar ljóð hans var flutt á Alþingishátíðinni 1930. Kveðskapur Davíðs hefur hrifið ólíkar kynslóðir íslendinga sem sótt hafa í ljóð skáldsins visku, gleði og huggun. Þetta ljóðasafn er kjörgripur fyrir alla þá sem unna góðum skáldskap.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.