Morgunblaðið - 02.02.1999, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Glenn Hoddle
reitir Breta til reiði
GLENN Hoddle, þjálfari
enska landsliðsins í knatt-
spyrnu, hefur enn á ný valdið
uppnámi í' heimalandinu. Nú
með ummæium sínum um fati-
að fólk, sem hann segir hafa
fæðst vanskapað vegna synda
sem það hafi framið í fyrra
lífi. Fatlaðir íþróttamenn iýstu
forundran sinni á ummæiun-
um og íþróttaleiðtogar jafnt
sem ráðherrar sögðu að refsa
bæri Hoddle fyrir þau.
David Blunkett mennta-
málaráðherra, sem er blind-
ur, sagði að fólki hefði verið
fyrirgefin fáviska sín á mið-
öldum en búist væri við ein-
hverju meiru af mönnum á of-
anverðri 20. öldinni. „Við
fæðumst með tvær hendur,
tvo fætur og sæmilega
þroskaðan heila. Ekki á það
við um alla og það ekki að
ástæðulausu. Karma manna
ræðst af hegðan á næsta til-
verustigi og menn uppskera
eins og þeir sá,“ sagði
Hoddle.
Ummælin eru rakin til sam-
bands hans við umdeildan
græðara, Eileen Drewery,
sem hefur verið nokkurs kon-
ar andlegur leiðtogi Hoddles
frá því á unglingsárum hans.
Aðstoð sú sem hann þáði hjá
henni meðan á HM í knatt-
spyrnu stóð sl. sumar leiddi
til gífurlegrar gagnrýni á
Hoddle i Bretlandi.
IÞROTTIR
Bikarkeppnin í handknattleik
Liðin sem leika í úrsiitunum iaugardaginn 13. feb
KONUR:
Fram-Haukar
9 $
Fram hefur oftast orðið bikarmeistari kvenna * 1
Fram, 11 sinnum
Stjarnan og Valur, 2 sinnum
Ármann, KR, FH, ÍR, Víkingur og Haukar, 1 sinni
lr j
Afturelding-FH
Víkingur oftast orðið bikarmeistari karla
Víkingur, 6 sinnum
FH, 5 sinnum
r, 4 sinnum Einu sinni:
Stjarnan, 3 sinnum Þróttur,
Haukar og KA, 2 sinnum KR og ÍBV
Hvert stefnir LÁRA HRUNP BJARGARPÓTTIR í íbrótt sinni?
Á verðlaunasæti
í Aþenu 2004
LÁRA Hrund Bjargardóttir sló tvö íslandsmet og komst í úrslit i
þremur greinum á alþjóðlega sundmótinu í Lúxemborg um
liðna helgi. Lára bætti eigið met í 400 m fjórsundi, synti á
5.06,30 sem nægði henni í fjórða sætið, þá varð hún í þriðja
sæti í 200 m fjórsundi á 2.23,95 og var skammt frá íslands-
meti Ragnheiðar Runólfsdóttur. Athyglisverðasti árangurinn
var í 200 m skriðsundi þar sem hún sló 12 ára gamalt met
Bryndísar Ólafsdóttur um 74 hundraðshluta, synti á 2.05,49
mínútum, varð í þriðja sæti og komst um leið í Ólympíuhóp
Sundsambandsins, sem hugsanlegur keppandi á næstu
Ólympíuleikum. Var þetta langþráður áfangi hjá Láru og segir
að með hann að baki verði hægt að æfa og keppa með af-
slappaðra hugfari en áður þótt vissulega sé farseðillinn ekki í
hendienn.
Morgunblaðið/ívar Benediktason
LÁRA Hrund Bjargardóttir setti tvö íslandsmet á alþjóðlegu
sundmóti i Lúxemborg.
Lára er fædd 15. júlí 1981 og
bjó lengi í Mosfellsbæ þar
sem hú hóf að æfa sund með Aft-
ureldingu 7 ára
Rr gömul, en skipti
Ivar fljótlega yfir í raðir
Benediktsson Ægis. Lára býr nú í
i Lúxembo Hafnarfirði ásamt
móður sinni,
Björgu Jónsdóttur, stundar nám
á fjórðu önn á náttúrufræðibraut
Flensbogarskólans og hefur verið
félagsmaður í Sundfélagi Hafnar-
fjarðar í nærri því tvö ár.
Únnusti Láru er Örn Arnarson,
íþóttamaður ársins 1998 og
margfaldur íslandsmethafi og
Evrópumeistari í sundi. Lára
segist hafa verið í fjölmörgum
greinum sem barn enda hafi hún
alltaf haft ríka þörf fyrir að
hreyfa sig, m.a. hafi hún verið í
frjálsíþróttum, hestamennsku,
dansi og síðast en ekki síst sundi.
„Mér líkaði vel að vera í vatni,
þar fékk ég útrás fyrir mikla
hreyfiþörf og því fannst móður
minni það ágæt hugmynd að ég
stundaði sund,“ segir Lára þegar
hún rifjar upp af hverju sundið
varð fyrir valinu, frekar en aðrar
íþróttir. Lára skipti 8 ára yfir í
raðir Sundfélagsins Ægis og var
þar í nærri sjö ár, en fór þá til
Þórs í Þorlákshöfn þar sem hún
æfði undir handleiðslu Hrafnhild-
ar Guðmundsdóttur og hún að-
stoðaði Láru við að komast inn á
rétta braut á nýjan leik í sundinu
eftir erfið veikindi sem fylgdu of-
þjálfun. Fór Lára m.a. í sjaldgæfa
aðgerð til þess að hreinsa slím úr
öndunarfærum, sem kom til vegna
ofþjálfunar, en áður en þessi sjúk-
dómur var uppgötvaður var haldið
að Lára væri með asma og höfðu
þessi veikindi mikil áhrif á hana
sem ungling og um tíma leit út
fyrir að hún yrði að hætta sund-
iðkun.
Þú lentir í því að verða eins
konar barnastjama í sundinu,
kepptir snemma við fullorðna og
settir fjölda meta?
„Því miður þá er það rétt og ég
vildi svo sannarlega hafa orðið af
þeirri reynslu. Mér gekk vel í
sundinu lengi vel og var látin
keppa í flestum greinum og æfði
mikið og rangt og því varð ég fyr-
ir þessum veikindum. Þess í stað
hefði ég átt að æfa tækni af meiri
krafti, en það er mikilvægsti
þátturinn við æfingar barna og
unglinga, ekki að láta þau erfiða
við langar æfmgar."
Eftir veikindin fórstu að æfa
undir handleiðsiu Hrafnhildar hjá
Þór í Þorldkshöfn?
„Rétt er það, ég æfði hjá
Hrafnhildi í tvö ár og hún aðstoð-
aði mig við að komast inn á beina
braut á nýjan leik og kenndi mér
margt. Þrátt fyrir að það væri
erfitt að sækja æfingar austur og
búa í Reykjavík var það þess virði
og ég á Hrafnhildi margt að
þakka.“
Síðan fórst þú í raðir SH sum-
arið 1997?
„Það var mikil breyting af
flytja í Hafnarfjörð og hafa laug-
arnar og skólann inn seilingar.
Nú æfi ég sex til níu sinnum í
viku. Eg syndi ekki mikið og
lengi en gæði æfinganna eru mik-
il, en þetta tvennt fer ekki alltaf
saman.“
Hverjar eru þínar eftirlætis-
greinar?
„Ég legg mesta áherslu á
skriðsund og fjórsund, en hef
mjög gaman af því að synda flest-
ar greinar og skriðsundið verður
líklega ofan á, en fjórsundið er
gott með, þar fær maður að
spreyta sig í öllum sundgreinun-
um fjórum."
„EM-lágmarkið var
mikilvægast“
Var það mikili léttir að komast
inn í Olympíuhópinn?
„Það var það, en mér fannst
samt meiri léttir í því að ná lág-
marki fyrir þátttöku á Evrópu-
meistaramótið í sumar, hitt vissi
ég að myndi koma fyrr en síðar,
en EM-lágmarkið var mikilvæg-
ast þótt ég hafi reyndar ekki
reiknað með því að sá áfangi yrði
í höfn um helgina. Lágmarkið í
200 m skriðsundi var 2.05,98 og
ég synti á 2.05,49. Fyrirfram
hafði ég ætlað að láta nægja að
sauma að Islandsmetinu, en það
var ekki verra og hvorttveggja
náðist.
Hver er stefnan hjá þér varð-
andi sundíþróttina?
„Að sjálfsögðu ætla ég að halda
mínu striki og bæta mig stig af
stigi og keppa á Ólympíuieikun-
um í Sydney og safna þar inn á
reynslureikninginn. Fjórum ár-
um síðar verður stefnan sett á
verðlaunasæti á Ólympíuleikun-
um í Aþenu.“
Er það raunhæft markmið?
„Hvers vegna ekki, ef áætlanir
mínar ganga eftir er það alls ekki
óraunhæft markmið."
■ SIGURÐUR Jónsson lék fyrsta
leik sinn í tvo mánuði með skoska
liðinu Dundee United á laugardag-
inn. Dundee mætti þá Dunferm-
line og gerði jafntefli, 1:1. Sigurður
fékk áminningu í leiknum.
■ ÓLAFUR Gottskdlksson, mark- i,
vörður og félagar hans í skoska 1.
deildarliðinu Hibernian unnu Air- j
drieonians 4:1 og eru nú komnir P
með 14 stiga forskot á næsta lið,
Falkirk.
■ ARNAR Gunniaugsson kom inn
á sem varamaður hjá Bolton á 75.
mínútu er liðið vann Norwich 2:0 á
heimavelli.
■ BJARNÓLFUR Lárusson lék
með Walsall á laugardaginn í
ensku 2. deildinni, en liðið tapaði j
heima fyrir Wigan, 1:2.
■ LÁRUS Sigurðsson fékk að líta
gula spjaldið í leik Stoke og
Manchester City í 2. deildinni á
föstudagskvöld. Manchesterliðið
vann 1:0.
■ HERMANN Hrciðarsson og fé-
lagar hans í enska 3. deildarliðinu
Brentford máttu sætta sig við 4:1
tap á útivelli fyrir Cardiff. Her-
mann lék allan leikinn.
■ WUPPERTAL tapaði sínum
sjötta deildarleik í röð, þegar liðið 1
lék í Schutterwald, 23:19. Dagur j
Sigurðsson og Valdimar Grímsson
skoruðu sín fjögur mörkin hvor og
Geir Sveinsson tvö.
■ SIGURÐUR Bjarnason skoraði
eitt mark þegar Bad Schwartau
tapaði fyrir Minden, 23:20.
■ MICHAEL Biegler var leystur
frá störfum sem þjálfari Minden og
var hann þriðji þjálfarinn sem fékk ,
að taka pola sinn á rúmri viku. Að-
ur höfðu þjálfarar hætt hjá Mag-
deburg og Wuppertal, Viggó Sig- |
urðsson.
■ KRISTINN Björnsson keppti í
sterku alþjóðlegu svigmóti (FIS-
móti) sem fram fór í Noreljell í
Noregi á laugardaginn. Hann náði
ágætum tíma í fyrri umferð og var
þá í fjórða sæti, næstur á eftir
norsku landsliðsmönnunum, Hans-
Petter Buraas, Finn Christian i
Jagge og Tom Stiansen.
■ I SIÐARI umferðinni krækti
hann fyrir hlið eins og Buraas og
hætti keppni. Sigurvegari í sviginu
var Jagge á 1.23,86 mín., Stiansen
varð annar á 1.24,51 og Svíinn
Daniel Sjögren þriðji á 1.25,62 mín.
■ ARNÓR Gunnarsson keppti
einnig á mótinu og féll í fyrri um-
ferð.
■ HELDER Rodrigues Cristovao,
vamarmaður spænska liðsins
Deportivo Coruna, leikur ekki
meira með félaginu á tímabilinu
vegna hnémeiðsla. Hann er 27 ára
portúgalskur landsliðsmaður.