Morgunblaðið - 02.02.1999, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUND
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999 B 3
Enn bætir Örn Arnarson sundmet frænda sinna, nú í 50 metra skriðsundi
Örn var
öryggið
uppmálað
TVEIR sigrar Arnar Arnarsonar í baksundi, íslandsmet hans í 50
m skriðsundi auk þriðja sætis í þeirri grein og tvö íslandsmet
Láru Hrundar Bjargardóttur voru hápunktur þátttöku tíu ís-
lenskra sundmanna á alþjóðlegu sundmóti í Lúxemborg um
helgina. Enn einu sinni undirstrikaði Örn styrk sinn í baksunds-
greinum og þurfti ekki að ógna íslandsmetum sínum til þess að
vinna greinar sínar, 100 og 200 metra baksund af öryggi. Lára
Hrund sýndi að hún er í mikill framför undir handleiðsiu Brians
Marshalls hjá Sundfélagi Hafnarfjarðar, varð í þriðja sæti í
tveimur greinum og hársbreidd frá þriðja sæti í 400 metra fjór-
sundi. Þá varð Ómar Snævar Friðriksson annar í tveimur grein-
um, þótt Ijóst megi vera af framgöngu hans að hann á töluvert
inni enn og hefði að ósekju getað synt betur.
ívar
Benediktsson
skrífar
frá Lúxemborg
Þessir sundmenn voru þeir einu
sem komust á verðlaunapall af
íslensku sundmönunum, en nokkrir
þeirra komust einnig
í úrslit og sýndu að
þeir eru í framfór.
Meðal þeirra er Elín
Sigurðardóttir sem
hafnaði í 6. sæti í 100 metra
flugsundi á 1.07,17, eftir að hafa
náð öðrum besta tíma ferilsins í
undanrásum, 1.05,61. Auk hennar
komst Ómar Snævar í úrslit í 200 m
Töskurnar
gefnar
MEÐAL þeirra gjafa sem
sundmennirnir í þreinur
efstu sætunum fengu auk
peningaverölauna voru
íliróttatöskur. Örn vann
tvær töskur og gaf þær báð-
ar sonum formanns Sundfé-
lags Hafnarfjarðar, Hrafn-
kels Marinóssonar, þeim
Konráði og Kolbeini. Önnur
taskan sem Lára Hrund
Bjargardóttir vann sér inn
var hins vegar gefin Brian
Marshali, þjálfara SH, en
hann ætlar ekki að haida
henni lengi, heldur gefa föð-
ur sínum hana við fyrsta
tækifæri.
Miklu betra
heima
ÞEIR sundmenn úr íslenska
hópnum sem ekki voru að
synda hverju sinni hvöttu fé-
laga sína óspart til dáða með
söng og hvatningarópum af
ýmsu tagi. Auk þessa
reyndu piltar úr hópnum að
fá alla keppendur á síðari
degi tii að taka þátt í sam-
eiginlegri upphitun. Sú til-
raun fór i' vaskinn, en menn
létu það ekki slá sig út af
laginu við hvatninguna þeg-
ar að að keppninni kom.
Hins vegar þótti ýmsum úr
íslenska hópnum dauft yfir
öðrum sundmönnum sem
fyigdust með, ólíkt því sem
er heima á sundmótum þar
sem liöin leggja metnað i að
livelja félaga sína. „Það er
injög lítil stemmning hérna,
þetta er miklu betra heima,“
sagði einn úr íslenska liðinu,
vonsvikinn með stemmning-
skriðsundi, varð áttundi á 1.59,77
og synti vegalengdina í fyrsta skipti
undir tveimur mínútum í 50 metra
laug. Davíð Freyr Þórunnarson var
£ úrslitum í 100 m skriðsundi og 100
m flugsundi, en hafnaði í 8. sæti í
báðum greinum. Davíð er hins veg-
ar nýkominn á fulla ferð á ný í
sundinu eftir að hafa látið námið
hafa forgang um tíma. Ungar sund-
konur, Kolbrún Hrafnkelsdóttir og
Sunna Björg Helgadóttir, fengu
góða keppnisreynslu, stóðu undir
vonum og komust í úrslit í nokkrum
greinum í unglingaflokki.
Flestra augu beindust hins vegar
að Erni Arnarsyni, enda var hann
einn þeirra sundmanna sem skipu-
leggjendur mótsins buðu til þess og
notuðu sem tromp til þess að kynna
mótið og lokka að áhorfendur.
Óhætt er að segja að það hafi tekist
og Örn hafi ekki valdið vonbrigðum
þrátt fyrir að hann næði ekki að
bæta Islandsmetin í baksundunum.
Hann keppti einnig í 50 og 100
metra skriðsundi, bætti íslands-
metið í styttra sundinu, 23,84 sek.,
og náð næstbesta árangri íslend-
ings í síðasttöldu greininni og sýndi
að margra mati að hann á mikla
möguleika í skriðsundi hafi hann
tök á að einbeita sér frekar að
þeirri tegund sunds. Þá reyndi
hann fyrir sér í 200 metra flugsundi
í fyrsta sinn í 50 metra laug og náði
athyglisverðum árangri, 2.10,71
mín., og var aðeins rúmlega sek-
úndu frá Islandsmeti Arnars Freys
Ólafssonar.
Sem kóngui- í ríki sínu gekk Örn
til leiks í 100 m baksundi og meðal
andstæðinga hans var Thomas
Rupprath, Þýskalandi, Evrópu-
meistari í 50 metra baksundi í 25
metra laug. Örn tók forystu strax
óg lét hana aldrei af hendi. Synti
fyrstu 50 metrana á 28,34 sekúnd-
um og samtals á 57,34. Þetta er
annar besti árangur hans, en fs-
landsmetið er 56,94. Þar með synti
hann í annað sinn undir fyn-verandi
meti Eðvarðs Þórs Eðvarðssonar,
57,75 sem stóð ekki nema í 11 ár.
Rupprath og landi hans Mitja Za-
strov voru í humátt á eftir en náðu
aldrei að ógna Erni, Rupprath á
58,6 og Zastrov á 58,22.
Ekki leið nema innan við klukku-
stund þar til Örn var kominn í eld-
línuna á ný, í þetta sinn í 100 metra
skriðsundi. Örn varð snemma íjórði
í sundinu og hélt því til loka, tím-
inn, 51,81, aðeins 19 hundraðshlut-
um frá íslandsmeti Magnúsar Más
Ólafssonar.
Örn virtist taka lífinu með nokk-
urri ró í 200 metra baksundinu, og
lét Úkraínumanninn, Vladislav Ga-
ydmaka um að hafa forystuna
fyrstu 150 metrana, en Örn lét
hann aldrei hafa þægilega forystu.
Fyrstu 50 metrana fór hann á 29,53
ÖRN Arnarson varð sigurvegari í 100 og 200 m baksundi og setti
íslandsmet í 50 m skriðsundi.
sek., eftir 100 metra var tíminn
1.01,61 og þegar hann lét til skarar
skríða á 150 metnim var tíminn
1.33,22. Við síðasta snúninginn
sigldi Örn fram úr Úkraínumanin-
um sem gerði tilraunir til að bæta í
seglin en hafði ekki erindi sem erf-
iði. Örn synti af festu og öryggi í
mark og fékk tímann 2.04,34 mín.
Gaydamaka varð annar á 2.04,87 og
Þjóðverjinn Mitja Zastrov hafnaði í
þriðja sæti á 2.09,37.
Mótinu lauk Örn síðan á því að
verða í þriðja sæti í 50 metra
baksundi á íslandsmeti, 23,84, var 2
hundraðshlutum úr sekúndu frá
fyn-a meti. Örn hafði ekki synt
þessa grein í 50 metra laug frá því á
Smáþjóðaleikunum 1997, og reynd-
ist þá synda þessa metra á 24,95
sek.
Lára Hrund var einnig á mikill
siglingu, varð í þriðja sæti í 200_ m
skriðsundi og 200 m fjórsundi. Að-
ur hefur verið tíundaður árangur
hennai- í 400 metra skriðsundi, en á
öðrum keppnisdegi komst hún í úr-
slit í 200 metra fjórsundi og var
staðráðin í að ná verðlaunum þar
eftir 4. sæti í lengra íjórsundinu
daginn áður. Bryjunin var þó ekki
góð því eftir fyrstu 50 metrana á
flugsundi var hún í 5. sæti á tíman-
um 31,48 sek. Þá færði hún sig upp
í þriðja sætið þegar kom að
baksundinu, tíminn eftir 100 metra
1.09,10. Þessu sæti hélt hún til loka,
andstæðingarnir tveir sem á undan
voru reyndust of sterkir að þessu
sinni, tíminn 2.23,62 mín., millitím-
inn eftir 150 metra, 1.51,22. ís-
landsmetið á Ragnheiður Runólfs-
dóttir, 2.22,65, sett á Ólympíuleik-
unum í Seoul. Það stóð óhaggað að
þessu sinni.
Áður en Lára sló 12 ára gamalt
met Bryndísar Ólafsdóttur í 200
metra skriðsundi synti hún í undan-
rásum 50 metra skriðsundsins,
bætti sinn fyrri árangur um 5
hundraðshluta úr sekúndu, synti á
28,3 sek., en komst ekki í úrslit.
Þegar að úrslitum 200 metra skrið-
sundsins kom var ekkert annað
sem kom til gi'eina en slá íslands-
metið og það tókst heldur betur,
tíminn, 2.05,49, en gamla metið var
2.06,23 mín. Fyrstu 50 metrana fór
Lára á 29,60, eftir 100 metra var
tíminn 1.01,43, að loknum 150 metr-
um var tíminn 1.33,50. Langþráðui'
áfangi var £ höfn.
Örn var
hausnum
lægri
ÖRN Arnarson sundmaður
er 192 cm á hæð en eigi að
síður virkaði hann stuttur
við verðlaunaafiiendinguna
fyrir 100 metrá baksundið
þar sem hann stóð á efsta
palli. Astæðan var sú að
Þjóðverjinn Mitja Zastrov
sem varð í öðru sæti er vel
yfir tvo metra hæð og
gnæfði yfir Örn á verðlauna-
pallinum, þrátt fyrir að Örn
stæði hærra. Félagar Arnar í
ferðinni kölluðu hann Ödda
litla á eftir, nokkuð sem pilt-
ur á alls ekki að venjast.
Lára Hrund
í ÓL-hópinn
LÁRA Hrund Bjargardóttir
komst inn £ Ólympiuhóp
Sundsambands Islands þegar
hún synti 200 m skriðsund á
2.05,49 m£n., en lágmarkið
inn í hópinn í þessari grein
er 2.07,19. Þetta þýðir hins
vegar ekki að Lára hafi náð
lágmarki fyrir Ólympíuleik-
ana í Sydney, lágmörk fyrir
leikana hafa enn ekki verið
gefin út af SSÍ. Þessi liópur
gefur hins vegar ákveðnar
vísbendingar um það hvaða
sundmenn eiga mesta mögu-
leika á að ná væntanlegum
lágmörkum haldi þeir áfram
sama striki. Auk Láru eru í
hópnum Eyd)s Konráðsdótt-
ir, Kolbrún Yr Kristjánsdótt-
ir og Örn Arnarson. Lára
var einnig nærri lágmarki
hópsins í 200 m fjórsundi.
Fjórir á EM
LÁRA Hrund var einnig
fjórði sundmaðurinn sem
náði lágmarki til þátttöku í
Evrópumeistaramótinu £ 50
metra laug sem fram fer í Ist-
anbúl í sumar. Lára náði lág-
markinu £ metsundi sínu í 200
m skriðsundi. Ásamt Lám
hafa Elín Sigurðardóttir, Kol-
brún Yr Krisljánsdóttir og
Öm tryggt sér keppnisrétt á
EM.
nilar pizzur ð aðeins
Skiptir þá engu hversu stór pizzan er, hvort
áleggstegundirnar eru I eða 10, hvort þú
sækir uppáhalds pizzuna þína eða snæðir
hana einfaldlega í góðu yfirlæti hjá okkur.
...fín sending
Hlíðarsmára 8 - Kópavogi
Austurströnd 8 ~ Sekjamamesi
ÍftfiBOO
Kynntu þér hin frábæru
heimsendingartilboð okkar!
Beinn sími á
Austurströnd:
561 0070