Morgunblaðið - 02.02.1999, Síða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
OLIVER Bierhoff gerði tvö mörk fyrir AC Milan sem vann Salernitana 3:2. Hér fagnar hann fyrra markinu.
Sjotti sigur
Barcelona í röð
BARCELONA hefur sigrað í sex leikjum í röð í spænsku deild-
inni en liðið vann Racing Santander 3:2 um helgina og er með
eins stigs forystu á Valencia sem vann Atletico Madrid 2:1.
Mallorka er í þriðja sæti eftir 1:0 sigur á Salamanca en Celta
Vigo, sem tapaði 2:1 fyrir Deportivo Coruna, er í fjórða sæti
þremur stigum á eftir Barcelona.
Barcelona byrjaði illa á Nou
Camp og áður en hálftími var
liðinn hafði Victor Sanehez skorað
fyrir gestina. Tveimur mínútum síð-
ar var Olaf Mellberg vikið af velli og
skömmu síðar jafnaði Jesus Merino,
fyrirliði Racing, með sjálfsmarki.
Frank de Boer gerði fyrsta mark
sitt fyrir Barcelona áður en hálfleik-
urinn var úti en fékk gult spjald
öðru sinni í seinni hálfleik og var
vikið af velli. Áður hafði Petro
Munitis jafnað en Philip Cocu gerði
sigurmark Barca átta mínútum fyrir
leikslok.
Markvörðurinn Richard Dutruel
gerði afdrifarík mistök, ýtti boltan-
um í netið eftir skot frá Paulete
Recende, og Celta Vigo náði sér
ekki á strik eftir það. Turu Flores
bætti öðru marki við en þegar
Deportivo missti Garbriel Schurrer
útaf með rautt spjald 12 mínútum
fyrir leikslok náði Juan Sanches að
minnka muninn.
Sigur Valencia var sannfærandi.
Claudio Lopez og Miguel Angel
Angulo skoruðu í fyrri hálfleik og
gestimir voru oft nálægt því að
bæta við eftir hlé. Jose Mari
Romero jafnaði 1:1 áður en fyrri
hálfleikur var hálfnaður. Valencia er
ekki vant því að vera í fremstu röð
en liðið varð síðast Spánarmeistari
1971. „Atletico átti í vandræðum
vegna meiðsla og við nýttum okkur
það,“ sagði Claudio Rainieri, þjálfari
Valencia. „Við skoruðum snemma
og þeir urðu taugaóstyrkir fyrir vik-
ið en ég trúi að þetta geti orðið tíma-
bil Valencia."
Arrigo Sacchi, þjálfari Atletico,
sagði að vamarleikur Valencia væri
erfíður við að eiga. „Valencia verst
vel og í seinni hálfleik var liðið með
átta í vöm, níu með markverðinum.
Við lékum vel en nýttum ekki færin.“
Dani Garcia tryggði Mallorka sig-
ur á Salamanca með skallamarki
skömmu eftir hlé. „Þetta var ekki
góður leikur," sagði Hector Cuper,
þjálfari Malloi-ka. „Við lékum ekki
vel, gerðum mörg mistök og
verðskulduðum ekki mikið en mikil-
vægast var að fá þrjú stig.“
Real Madrid vann Viilameal 2:0 en
lék ekki vel. Femando Morientes
gerði bæði mörkin eins og í bikarleik
liðanna á dögunum. Það fyrra með
glæsilegri bakfallsspymu og síðan
skoraði hann með skalla.
Dómara-
■ ■ JT
por i
knatt-
spyrnu
KNATTSPYRNUSAMBAND
Evrópu, UEFA, kynnti í gær
hugmyndir um tvo dómara á
knattspyrnuleikjum og er
tilbúið að prófa fyrirkomu-
lagið í æfíngaleikjum sam-
þykki laganefnd Alþjóða-
knattspyrnusambandsins
það á fundi sínum í næsta
mánuði.
í yfirlýsingu frá fundi
UEFA í Höfðaborg í S-Af-
ríku í gær sagði að hug-
myndirnar yrðu lagðar fyrir
laganefndina á fundi hennar
20. febrúar nk., og færu til-
raunir strax af stað ef nefnd-
in samþykkti málið fyrir sitt
leyti.
„Án þess að fara um of út í
tæknileg smáatriði, ganga
hugmyndir UEFA út á full-
nýta mannlega krafta áður
en hugað er að því að beita
nýjustu tækni við dóingæsl-
una,“ sagði í yfirlýsingunni.
Starf knattspyrnudómar-
ans hefur að margra mati
orðið æ erfiðara á undan-
förnum árum með tilkomu
íjölda inyndavéla á hverjum
leik og sífelldra endursýn-
inga af vafasömum atvikum
í leikjuin. Fyrir vikið hefur
gagnrýni vaxið nyög í garð
dómara og þeir oft sakaðir
um að eyðileggja leiki ineð
slakri frammistöðu.
Tilraunir með dómarapar
í knattspyrnu hafa verið
gerðar áður, Iíklega fyrst í
Englandi 1935, en fyrir-
komulagið hefur þó aldrei
náð að festast í sessi.
Sex stiga vika hjá Genk
ÞÓRÐUR Guðjónsson og sam-
herjar í Genk unnu Ghent 1:0 um
helgina og eru áfram í efsta sæti
belgísku deildarinnar með 47 stig
eftir 22 leiki en meistarar Club
Brugge eru stigi á eftir. Þetta var
annar sigur Genk á fjórum dög-
um en sl. miðvikudag vann liðið
Standard 4:2 og gerði Þórður þá
eitt mark.
Völlurinn var harður en í
hálfleik skiptu heimamenn um
skó og þótt þeir misstu mann útaf
um miðjan seinni hálfleik tókst
þeim að skora undir lokin gegn
gangi leiksins. „Það er oft þannig
að liðum er refsað fyrir að nýta
ekki færin og það var það sem við
gerðum, refsuðum Ghent sem
vissulega átti fleiri
marktækifæri," sagði Þórður við
Morgunblaðið en honum var
skipt útaf um stundarfjórðungi
fyrir leikslok. „Mér gekk mjög
vel á miðvikudag en var ekki sér-
stakur að þessu sinni,“ sagði
hann um skiptinguna. Bjarni,
bróðir hans, var varamaður en
fékk ekki tækifæri og Jóhannes
Karl, þriðji bróðirinn, var 16.
maður.
„Þetta var mjög góð vika hjá
okkur, sex stiga vika,“ sagði
Þórður. „Mótherjar okkar voru í
fímmta sæti þegar við spiluðum
við þá en nú hefur bilið aukist og
við reynum að halda fengnum
hlut. Hins vegar getur margt
gerst því 12 umferðir eru eftir en
við erum í baráttunni á öllum
vigstöðvum, erum líka í átta liða
úrslitum í bikar og deildabikar."
Lazio
jafnaði
26 ára
félags-
met
ATTILIO Lombardo skoraði í
fyrsta leik sínum í ítölsku deild-
inni og Christian Vieri gerði tvö
mörk þegar Lazio vann Bari 3:1
á útivelli. Lazio er þremur stig-
um á eftir Fiorentina sem vann
Vicenza 3:0 en þar var
Argentínumaðurinn Gabriel
Batistuta á meðal skorara og er
hann kominn með 18 mörk í
deildinni.
Lazio jafnaði 26 ára gamalt
, félagsmet með því að sigra í' átt-
unda leiknum í röð en Eugenio
Fascetti, þjálfari Bari, var ekki
uppveðraður. „Með svona spila-
mennsku verður liðið aldrei
meistari," sagði hann.
Lombardo gerði heppnismark
eftir mistök markvarðar Bari.
Vieri bætti öðru marki við fyrir
hlé, fjórða mark hans í fimm
leikjum, en Daninn Peter Knud-
sen minnkaði muninn úr auka-
spyrnu 18 mínútum fyrir leiks-
_ lok. Davide Olivares fékk gullið
tækifæri til að jafna sex mínút-
um fyrir leikslok en missti
marks og mínútu síðar innsiglaði
Vieri sigur Lazio. „Þetta lið get-
ur orðið meistari," sagði
Lombardo og var greinilega
ekki á sama máli og þjálfari
Bari.
Giovanni Trapattoni, þjálfari
Fiorentina, viðhafði sömu orð og
Lombardo en vísaði til Fiorent-
ina í því efni. Liðið vann Vicenza
í fyrsta sinn á heimavelli í 26 ár
og skoruðu Giulio Falcone og
Moreno Torricelli í fyrri hálfleik
en Batistuta eftir hlé.
Þýski miðherjinn Oliver Bier-
hoff gerði tvö mörk fyrir AC Mil-
an sem vann Salernitana 3:2 en
staðan var 2:1 fyrir Salernitana
eftir stundarfjórðung. Bierhoff
gerði fyrsta mark heimamanna,
lagði síðan upp mark fyrir Geor-
ge Weah um miðjan fyrri
hálfleik og gerði svo sigur-
markið með skalla eftir
klukutíma leik. Gestirnir fengu
tækifæri til að jafna, skutu m.a. í
stöng og slá á lokamínútunum en
AC Milan hélt sínu og er fimm
stigum á eftir Fiorentina.
Enrico Chiesa tryggði Parma
2:2 jafntefli við Venezia en hann
jafnaði flmm mínútum fyrir
leikslok.
Angelo Peruzzi varði víta-
spyrnu frá Roberto Muzzi í
seinni hálfleik en gat ekki komið
í veg fyrir 1:0 sigur Cagliari á
meisturum Juventus. Þetta var
annað tap Juve í Cagliari í 19 ár
en liðið byrjaði illa. Daniele
Berretta skoraði eftir auka-
spyrnu frá Fabian O’Neill á 17.
mínútu og það réð úrslitum.
Piacenza og Inter gerðu
markalaust jafntefli. Inter, sem
gerði 10 mörk í tveimur síðustu
leikjum á undan, var án þriggja
lykilmanna en Ronaldo, Ivan
Zamorano og Nicola Ventola
voru meiddir.
Roma og Empoli gerðu 1:1 jafn-
tefli og jöfnuðu gestirnir á síð-
ustu mínútu.
David Platt hefur stjórnað
Sampdoria í sex leikjum og ekki
enn fagnað sigri en Perugia
, vann Sampdoria 2:0.