Morgunblaðið - 23.02.1999, Síða 3

Morgunblaðið - 23.02.1999, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 B 3 KNATTSPYRNA M iH ■ i W ■ |S| O Sf ~ .. ‘ - ) gg ] -ffiL v. I Tveir nýir í stjórn TVEIR nýir menn voru kosnir í stjórn Knattspyrnusambands ís- lands á ársþingi þess um helgina. Þeir Elías Hergeirsson og Stefán Gunnlaugsson gáfu ekki kost á sér til endurkjörs og í þeirra stað voru kjörnir Eggert Steingríms- son og Björn Friðþjófsson. Tekur Eggert við störfum gjaldkera, en Elías hafði sinnt því starfi í áraraðir. I stjórn KSI eru nú, efsta röð frá vinstri: Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri, Jakob Skúla- son, Einar Friðþjófsson, Þórar- inn Dúi Gunnarsson, Guðmundur Ingvason. Miðröð: Jón Gunn- laugsson, Rafn Hjaltalín, Gunn- laugur Hreinsson, Björn Frið- þjófsson, Ástráður Gunnarsson og Lúðvík S. Georgsson. Fremstra röð: Eggert Stein- grímsson, Halldór B. Jónsson, varaformaður, Eggert Magnús- son, formaður, Anna Vignir og Ágúst Ingi Jónsson. Fjarverandi var Jóhann Ólafsson. Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusambands íslands, um rekstur sambandsins Gætum þurft að skera niður Þótt hagnaður hafí orðið af rekstri Knatt- spyrnusambands íslands (KSÍ) á síðasta ári eru ýmsar blikur á lofti og líklegt að samningar um sjónvarpsrétt af landsleikj- um taki breytingum í náinni framtíð. Björn Ingi Hrafnsson ræddi við Eggert Magnússon, formann KSI, en 53. ársþing sambandsins fór fram um helgina. 53. ÁRSÞING Knattspyrnusam- bandsins var haldið um helgina á Hótel Loftleiðum og lauk á sunnu- dag. Að venju lágu fyrir þinginu fjöldi mála, lagabreytingatillögur, kosningar og umræður um stöðu knattspyrnunnar í landinu. Fjárhagur sambandsins var rétt- um megin við strikið á síðasta ári, þó ekki fyrr en tekið hafði verið tillit til fjármunatekna. Benti Eggert fund- armönnum á þessa staðreynd í máli sínu og sagði að lítið mætti út af bregða í rekstri sambandsins. Eggert minnti á að Knattspyrnu- samband íslands og þýska sjón- varpsfyrirtækið UFA hefðu gert nýjan 4 ára samning um sjónvarps- réttindi seinni hluta árs 1997. Þessi samningur sé KSÍ hagstæður og tryggi sambandinu fastar og örugg- ar tekjur á þessu fjögurra ára tíma- bili. „Undanfarin ár hafa þessir sjón- varpssamningar verið að skila milli 25-30% af tekjum sambandsins á hverju ári þannig að augljóst er að starfsemi KSI er mjög háð því að vel takist til í þessum samningum," sagði Eggert. Undirbúa þarf næsta samning Hann sagði ljóst að KSI myndi strax á þessu ári hefjast handa við undirbúning næsta samnings, því slíkar viðræður tækju venjulega langan tíma og væru afar viðkvæm- ar. „Ég tel ýmsar blikur á lofti í þessu sambandi á næstu árum. Staðreyndin í sjónvarpsréttarmál- um er sú að 80-85% af tekjum vegna sölu sjónvarpsréttar í Evrópu koma frá fimm löndum, Þýskalandi, Frakklandi, Spáni, Italíu og Englandi. Þetta er mjög athyglis- verð staðreynd í ljósi þess að 51 þjóð á aðild að Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA. Ekki síður er merkilegt að tekjur af fótboltanum á heimsvísu verða úm 90% til í Evr- ópu.“ Eggert benti á að umræðan færi vaxandi meðal stærri þjóða að und- ankeppni vegna Evrópukeppni og heimsmeistarakeppni landsliða verði skipt niður eftir styrkleika og lakari þjóðirnar spili fyrst um rétt til að fá að taka þátt í riðlum sem veita rétt til úrslitakeppni HM og EM. „Þessi hætta er til staðar og kem- ur ekki síst frá stóru ríku félögunum í þessum fimm löndum, sem vilja fækka leikjum hjá viðkomandi landsliði til að þurfa ekki að lána sína dýru leikmenn í of marga leiki. Þessi umræða er í gangi og ég er hræddur við hana, okkur smærri þjóðunum tekst að standa á móti þessu enn um stund en spurningin er hversu lengi,“ sagði hann. Mikið í húfi Nýr samningur um sölu á sjón- varpsrétti tæki gildi eftir þrjú ár og Eggert telur alls ekki sjálfgefið að þá náist jafn góður samningur og gerður var 1997. „Það er mikið í húfi, alls um 25% af tekjum sam- bandsins árlega. Ég tel því nauðsyn- legt fyrir Knattspyrnusambandið að huga að því á næstu árum að leggja árlega fyrir í sérstakan sjóð, sem nemi allt að 25 milljónum króna í árslok 2001, vegna óvissu um tekjur vegna sjónvarpsréttar í framtíðinni. Ef síðan kæmi í ljós að KSI næði aftur hagstæðum sjónvarpssamn- ingi yrði þessi sjóður notaður í eitt- hvert sameiginlegt átak innan knattspyrnuhreyfingarinnar og yrði það þá ákvörðun þeirra sem verða við stjórnvölinn á þeim tímapunkti,“ sagði Eggert ennfremur. Formaðurinn telur rétt að staldra aðeins við fjármálin og horfa til næstu framtíðar. „Ég tel að tekju- rammi KSI sé að vissu leyti sprung- inn, ég sé ekki að tekjur aukist neitt að ráði næstu fjögur ár. Eina sem hugsanlega gæti bæst við þar eru auknar tekjur vegna heimalands- leikja á Laugardalsvelli, þ.e. betri árangur skili sér í fleiri áhorfendum og þar með auknum tekjum. En þetta eru vonarpeningar og gengið er fallvalt í þessum efnum eins og við þekkjum. Nú erum við í þeirri stöðu að tekjur og gjöld 1998 og samkvæmt áætlun 1999 eru nánast í jafnvægi. Þetta þýðir að fjárhagur sambandsins þolir engin skakkaföll, því þá væri KSI komið í verulegt tap.“ Verkefnin of mörg En telur hann þá líklegt að skorið verði niður í rekstri sambandsins? „Þetta þýðir einfaldlega að verk- efnin eru orðin of mörg fyrir tekjur sambandsins að standa undir. Það er ekkert leyndarmál að við sem stöndum í þessari daglegu fjármála- baráttu í KSÍ var vandi á höndum þegar áætlun 1999 var gerð. Við okkur blasti hreinlega að þurfa að skera niður hið nýja landslið, þ.e. þátttöku U-18 kvenna í Evrópu- keppni sem kostar KSI væntanlega rúmlega 4 milljónir. Málið var komið of langt og það blasti við okkur að eiga á hættu að fá verulega sekt frá UEFA ef við hefðum dregið okkur út úr keppni. En ég sé fyrir mér að strax á þessu ári stöndum við frammi fyrir erfiðum ákvörðunum um hugsanlegan niðurskurð á verk- efnum ef ekki koma til auknax tekj- ur á heimalandsleikjum. Ábyrgð okkar sem fylgjumst með fjárreið- um KSÍ er að meta þessa stöðu kalt og skynsamlega og láta ekki vonar- peninga og órökstudda gagnrýni hindra okkur í réttum ákvörðunum sem varða framtíðarrekstur KSÍ.“ Íþróttapólitík Athygli vakti á dögunum er Egg- ert skrifaði grein til stuðnings Al- berti Eymundssyni, stjórnarmanni í KSÍ, sem var í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins á Austurlandi. „Jú, ég lýsti yfir stuðningi við Al- bert og fékk fyrir vikið á mig mikla skammargrein í blaði á Austurlandi. í framhaldi af því fór ég að hugsa þessi mál aðeins betur og þá ekki síst í íþróttapólitískum tilgangi. Ég hef haldið því fram oft áður, bæði í ræðu og riti, að íþróttahreyfingin á Islandi njóti allt of lítils stuðnings frá ríki og sveitarfélögum í starfi sínu. Sem dæmi nefni ég að sá stuðn- ingur sem KSI fær beint frá hinu opinbera er um 1% af umsvifum sambandsins. Þetta er auðvitað frá- leitt miðað við knattspyrnusambönd í nágrannalöndum okkar, þar sem um mun meiri stuðning er að ræða frá hinu opinbera. Mér finnst furðu- legt að stjórnmálamenn á Islandi skuli ekki hafa gert sér grein fyrir því hvað knattspyrnufélögin, já og reyndar íþróttahreyfingin í heild, eru með mikið barna- og æskulýðs- starf í gangi og láti ekki meira fjár- magn af hendi rakna til þessara mála. Ég er stoltur yfir því að hafa stutt Albert Eymundsson í prófkjöri og vonast til að hann komist á þing. Á sama hátt er ég tilbúinn að lýsa yftr stuðningi við hvern þann sem vill komast á þing og hefur heilbrigðar skoðanir almennt og sér í lagi skynj- ar starfsemi og þarfir íþróttahreyf- ingarinnar. Ég er nefnilega á þeirri skoðun að íþróttahreyfingin verði nú að sýna af sér mun meiri pólitíska hörku, sem um leið er hafin yfir flokka. Við þurfum með skipulögðum hætti að aðstoða það fólk að komast á þing sem skynjar starfsemi og þarfir íþróttahreyfingarinnar. Ég fagna því þarfa átaki sem margir þrýsti- hópar hafa náð fram í þjóðfélaginu með markvissum vinnubrögðum. Nú síðast t.d. áhugafólk um byggingu tónleikahúss og nýtt fjármagn í ís- lenska kvikmyndagerð. Ef við ætl- um að fylgjast með verðum við að taka þátt í þessum leik af fullri hörku og beita þeim meðulum sem þarf, annars verður aldrei hlustað á okkur af alvöru. Okkar rödd og okk- ar skoðanir þurfa að hljóma margi-adda í sölum Alþingis. Við verðum að koma okkar skoðunum beint inn í ákvörðunartökuna um skiptingu fjármagnsins." Vonir og væntingar hafa ræst EGGERT Magnússon, for- maður KSÍ, riljaði upp í setn- ingarræðu ársþings KSÍ nokkuð af því sem hann hefði sagt um A-landslið karla á síðasta þingi á Akureyri. Hann sagðist þá hafa sagt að undanfarin ár hefðum við átt á brattann að sækja í A-liði karla. Árangurinn hefði einfaldlega ekki verið nógu góður. Svo hafi hann rætt um brottvikningu þjálf- ara og ráðningu Guðjóns Þórðarsonar og sagt síðan orðrétt: „Nú þarf að snúa þessari neikvæðu ímynd við og nota tímann vel til að skapa frið og ró í kringum landsliðið og byrja nýtt keppnistímabil á rólegum nótum. Tíminn er nú runninn upp að snúa döprum árangri landsliðsins hægt og bítandi við og um leið auka áhuga almennings á liðinu. Þær kröfur gerum við á næsta ári. Við getum betur, það er ekki spurning." Eggert sagðist rilja þetta upp nú, ári seinna, því vonir hans og væntingar á síðasta ársþingi varðandi A-landslið karla hafi ræst. „Árangurinn í nýhafinni Evrópukeppni hefur verið framar öllum vonum og að mörgu leyti ævintýri líkastur. Jafnteflið við heimsmeist- ara Frakka á fullskipuðum Laugardalsvelli með tveimur lánsstúkum sem sköpuðu ein- staka umgjörð um þennan leik er nokkuð sem enginn gleymir sem upplifði þvflíka stemmningu, þvflík upplifun, þvflíkur árangur," sagði Eggert.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.