Morgunblaðið - 23.02.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.02.1999, Blaðsíða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ Fjártiagsstaöa Mönchenglad- bach ekki góð BORUSSIA Mönchengladbach á í miklum íjárliagserfiðleikum og hefur þýska knattspyrnusam- bandið gert alvarlegar athuga- semdir við rekstur félagsins. Blöð í Þýskalandi - DIE WELT og fleiri segja að í aprfl muni fé- lagið lenda í greiðslustöðvun ef ekki verði gripið til mjög rót- tækra aðgerða. Þá mun félagið sjálfkrafa missa starfsréttindi en öll félög í deildinni verða að sýna fram á, að eiga fyrir laun- um þeim sem leikmennirnir hafa samið um. Skuldir „Gladbach“ nálgast milljarð króna og verður stjóm félagsins að selja leikmenn f'yrir að minnsta kosti 500 milljónir króna nú þegar. Félagið hefur rekið hvem þjálfarann af öðram og bara á þessu ári hefiir sfjórn- in þurft að borga 100 milljónir króna fyrir þjálfarana Friedel Rausch og Ignas Godd. Auk þess rak stjómin framkvæmda- sfjórann Rolf Russmann. Það kom því mörgum í opna skjöldu þegar félagið boðaði til blaðamannafundar ekki fyrir löngu, þar sem stjóm félagsins kynnti nýjar áætlanir um bygg- ingu nýs leikvallar sem kostar hundrað milljóna króna. Edgar Walterscheid tók við af Rolf Russmann í nóvember þeg- ar sauð upp úr milli Russmann og sfjómar félagsins. Walt- erscheid sagði siðan af sér í jan- úar og sagðist ekki koma ná- lægt þessari vitleysu meir. Hann er sagður hafa liaft tvær millj- ónir króna á mánuði í laun auk alls konar auka þæginda eins og flottustu tegund af Benz. Mörg- um blöskar því óráðsían hjá fé- laginu, en sfjómin blæs á ailt svartnættiskjaftæði og segir að Frankfurter Bfg Bank ætli að koma félaginu á réttan kjöl með stórláni á næstunni. Bæjarar eru að stinga af Bayem Miinchen er að stinga af í þýsku knattspymunni. Öraggur sigur Bæjara á útivelli gegn Duis- burg, 0:3, staðfestir að þeir hafa æft vel í vetrarpásunni og vora með yfir- burði á vellinum. Helstu keppinautai- Bæjara, Leverkusen, gerðu aðeins jafntefli á heimavelli og það gegn ekki sterkara liði en Freiburg, sem er í 11. sæti deildarinnar. Christoph Daum, þjálfari Leverkusen, gat ekki leynt vonbrigðum sínum með leik sinna manna og viðurkenndi að lið sitt væri einfaldlega ekki nógu sterkt til að verða meistari. Mattháus nálgast leikjamet LOTHAR Matthaus á aðeins eftir 12 landsleiki til að slá landsleikjamet þeirra Thomas Ravelli frá Svíþjóð, sem hefur leikið 143 leiki og Majcd Abdullah, Saudi-Arabíu, sem á 140 leiki. Á leikjaplani þýska landsliðsins era 6 EM leikir og einn vináftulandsleikur við Skota auk hinnar mjög svo umdeildu æfingaferðar til Mexfkó sem áætluð er í sumar. Ef Matthaus nær að leika alla þessa leiki, sem er mjög ósennilegt vegna þrálátra meiðsla hans, slær hann heimsmetið. Jiirgen Klins- mann erkióvinur Mattháus er næstur Þjóðverja með 108 leiki. Júrgen Kohler, varnar- maðurinn sterki hjá Dort- mund, sem Erick Ribbeck hef- ur nýlega biðlað til um að koma aftur í landsliðið, er í þriðja sæti með 105 leiki og þá keisarinn Franz Beckenbauer með 103 leiki. Nokki-ir þjálfarar í deildinni era undir mikilli pressu og þurfa að ótt- ast um stöðu sína. Einn þeirra er Hollendingurinn Huub Stevens, þjálfari Schalke 04. Stevens, sem náði frábæram árangri með lið sitt í fyrra, hefur verið afar óheppinn með meiðsli leikmanna í vetur og geta liðsins verið eftir því. Ekki brá liðið út af venju sinni á útivelli að þessu sinni og tapaði fyrii- Stuttgart, 2:1, í þokkalegum leik. Nýr þjálfari Stutt- gart, Rainer Adrion, var að sjálf- sögðu afar ánægður með fyrsta leik sinn í deildinni og sigur strax. Góður sigur hjá Herthu Annar þjálfari, sem ekki er alltof öraggur með stöðu sína er hinn komungi 32 ára þjálfari Borassia Dortmund, Michael Skibbe, sem reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni við spútniklið deildarinnar, Hertha Berlin. Eftir 0:0 í hálfleik tóku hinir sterku leikmenn Berlín öll völd á vellinum og sigraðu 3:0. Eyjólfur Sverrisson, sem loksins er orðinn góður af meiðslum sínum, er óðum að ná sínu fyrra formi. Aracic, Króatinn sem Hertha Berlin keypti frá erkifjendum sínum TB Berlin skoraði í sínum fyrsta leik með Eyjólfí og félögum tvö mörk. Dortmundarliðið olli verulegum vonbrigðum og ekki minnkar gagn- rýnin á hinn unga þjálfara liðsins, sem hefur ekki síst verið gagnrýnd- ur fyrir að nota sáralítið landsliðs- manninn Thomas Hassler. Það bar annars til tíðinda í þessum leik að dómari leiksins sýndi 11 gul spjöld og tvö rauð, leikurinn var mjög harður. Berlínarliðið hefur aðeins tapað einum leik á Ólympíuleikvang- inum í Berlín og ættu hinir frægu leikmenn Dortmund þess vegna kannski frekar auðveldara með að sætta sig við tapið. Mönchengladbach náði ekki að sigra meistara Kaiserslautem í miklum baráttuleik. „Gladbach" á í miklum erfiðleikum, og blasir ekk- ert annað en fall við þessu fræga fé- lagi. Berti Vogts er kominn í svo- kallaða framtíðarnefnd hjá félaginu og ætlar að reyna sem hann getur að hjálpa sínu gamla félagi. Sem kunnugt er tók Rainer Bohnhof við þjálfarastarfinu og er hann fjórði þjálfári „Gladbach" á minna en tveimur áram. Leiknum lauk með öruggum sigri Kaiserslautern, 2:0. Staða Hiddinks ótrygg hjá Madrid eelta Vigo stöðvaði átta leikja sigurgöngu Barcelona er liðin gerðu markalaust jafntefli á sunnu- dag. Börsungar léku einum færri síðustu 19 mínútur leiksins þegar Luis Figo fyrirliða var vikið af velli. Louis van Gaal, þjálfari Barcelona, var ánægður með eitt stig úr viður- eigninni og sagði að liðið hefði varist vel. Mallorca styrkti stöðu sína í 2. sæti deildarinnar er liðið lagði Oviedo 3:1. Dani Garcia, gerði tvö mörk fyrir Mallorca. Fyrra mark Garcia kom eftir aðeins 23 sekúndur. Ekkert gengur hjá Evrópumeist- urum Real Madrid og nú tapaði liðið fyrir Athletic Bilbao 1:0. Stuðnings- menn Real Madrid voru óánægðir með frammistöðu liðsins og kölluðu „burt, burt, burt“ um leið og Guus Hiddink, þjálfari þess, gekk til bún- ingsklefa í leikslok. Svo virðist sem Hiddink njóti ekki stuðnings stjórn- ar Madridar-liðsins lengur en Lor- enzo Sanz, forseti þess, hefur gefið í skyn að Hiddink verði látinn fara frá félaginu. LEIKMENN Chelsea fagna marki Bjarna Goldbæk, fyrir miðju - Mikael Fi is, þegar Chelsea lagði Nott. Forest Stuðningsn Lazio fagna LAZIO hefur tveggja stiga for- ystu á Fiorentina og AC Milan að loknum leikjum helgarinnar í ítölsku 1. deildinni. Lazio lagði Inter Milan með marki Portúgal- ans Sergio Conceicao, 1:0. Áhan- gendur Lazio fögnuðu sigri síns liðs ákaft og þökkuðu erkifjend- um sínum, AS Roma, fyrir að taka stig gegn Fiorentina. Til marks um þakklæti sitt sungu stuðnings- menn Lazio „Grazie Roma“, sem var samið er Roma vann deildina árið 1983. Leikmenn Roma vora nær sigri gegn Fiorentina, en lionum lauk með markalausu jafntefli. Paolo Sergio, leikmaður Roma, átti skot í tréverkið og Francesco Toldo, markvörður Fiorentina, sem lék sinn 300. leik í ítölsku 1. deildinni, varði eitt sinn meistaralega. Fior- entina, hefur nú ekki skorað í 277 mínútur, saknar greinilega Ga- briel Batistuta, fyrirliða, en hann er frá vegna meiðsla. Batistuta hafði skorað 18 mörk í 20 leikjum fyrir Fiorentina á þessu tímabili. AC Milan hafði sigur á Cagliari á San Siro, 1:0. Cagliari átti góð tækifæri í leiknum en tókst ekki MARCELO Salas, leikmaður Lazio, i skiptast á peysum ef að nýta þau. AC Milan getur þakkað Matteo Villa, varnarmannni Cagliari, fyrir stigin. Oliver Bierhoff, Ieikmaður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.