Morgunblaðið - 23.02.1999, Síða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999
FIMLEIKAR
MORGUNBLAÐIÐ
Gerpla hefur orðið bikarmeistari síðan Rúnar Alexandersson gekk í raðir félagsins
líÍrvltei!§S
BIKARMÓT Fimleikasambands
íslands í frjálsum æfingum fór
fram í Laugardalshöll á laugar-
dag í umsjón Fimleikadeildar
Keflavíkur. Um liðakeppni var
að ræða og flest sterkasta
fimleikafólk landsins mætt til
keppni.
Lengi vel leit þó út fyrir talsverð
affoll, þvi meiðsli og flensa herj-
uðu á marga keppendur, einkum frá
^^1 Gerplu og Kefiavík.
Björn Ingi Varð því úr að nokkr-
Hrafnsson ir keppendur þeirra
skrifar töldust því gestir á
mótinu.
Keppnin í karlaflokki var lengst
af jöfn og spennandi og reyndist lið
Ármanns sterkara en margir höfðu
gert ráð fyrir í upphafí. Reynsla
Gerpludrengja vó þó þungt á met-
unum undir lokin og þeir tryggðu
sér sigur í bikarkeppninni fjórða ár-
ið í röð, fengu alls 186,725 stig.
Rúnar varð stigahæstur karla á
mótinu, hlaut alls 52,9 stig, og hefur
Gerpla unnið bikai-mótið öll árin
fjögur síðan hann flutti til landsins
og gekk í raðir félagsins. Aðrir í
bikarmeistaraliðinu voru þeir Dýri
Kristjánsson, Viktor Kristmanns-
son, Jón T. Sæmundsson og Axel Ó.
Þórhannesson. Þjálfari liðsins er
Heimir Jón Gunnarsson.
Ármenningar fengu alls 177,025
stig og gáfu aðeins eftir undir lokin
eftir frækilega framgöngu. Þar fór
fremstur í flokki Þórir Arnar Garð-
arsson, en hann hlaut alls 45,5 stig.
Með honum í liðinu voru tvíbura-
bræðurnir Björn og Birgir Björns-
synir og yngri bróðir þeirra, Amar,
sem þó keppti aðeins í einni grein á
mótinu. Að auki var Jóhannes Níels
Sigurðsson í liðinu, en þjálfarar
voru þeir Björn Magnús Tómasson
og Jan Cerven.
Fimleikafélagið Björk hafði
nokkra yfírburði í kvennaflokki og
engin var betri en Islandsmeistar-
inn Elva Rut Jónsdóttir. Elva Rut
hlaut alls 34,55 stig, fékk 8,75 fyrir
stökk, 8,5 fyrir tvíslá, 8,8 fyrir slá
og 8,5 fyrir gólfæfingar.
Þetta var áttundi bikarsigur
Bjarkar í röð og liðið hafði nokkuð
örugga forystu strax eftir fyrstu
grein. Alls hlaut liðið 95,222 stig í
keppninni, Grótta af Seltjarnarnesi
varð í öðru sæti og Armenningar í
því þriðja.
Bikarmeistarar í Björk eru, auk
Elvu Rutar, þær Tanja B.. Jónsdótt-
ir, Tinna Þórðardóttir og Eva
Þrastardóttir. Lengi vel leit raunar
ekki út fyrir að Eva gæti tekið þátt
vegna meiðsla, en hún beit á jaxlinn,
keppti á tvíslá, slá og í gólfæfíngum
og innbyrti mikilvæg stig liði sínu til
handa.
Systumai- Ema og Jóhanna Sig-
mundsdætur vora sterkar í liði
Gróttu en auk þeirra vora í liðinu
þær Kristín Einarsdóttir, Harpa
Braeður og systur
ALGENGT er að heilu fjölskyldurnar sam-
einist um áhuga á íþróttum og fimleikar eru
þar ekki undanskildir. í karlaliði Ármanns
eru þrennir bræður, tvíburarnir Birgir og
Bjöm og yngri bróðir þeirra Arnar, Björns-
synir.
I kvennaliði Gróttu eru sterkar systurnar
Jóhanna og Ema Sigmundsdætur og í liði
Bjarkar keppti Eva Þrastardóttir. Hún er
yngri systir Nínu Bjargar, sem varð marg-
faldur Islandsmeistari fyrir nokkrum árum.
Hlíf Bárðardóttir og Sigríður Harð-
ardóttir. Grótta hlaut alls 90,037 stig.
Þær Erna og Jóhanna kepptu
undir merkjum Armanns þar til í
fyrra að þær skipti yfir í fimleika-
deild Gróttu. Fyrir vikið er Gróttu-
liðið sterkara og Ármannsliðið að
sama skapi veikara. I Armannslið-
inu, sem hlaut alls 85,498 stig,
kepptu þær Bergþóra Einarsóttir,
Hrefna Þ. Hákonardóttir, Ásdís
Morgunblaðið/Kristinn
RÚNAR Alexandersson, íslandsmeistari í fimleikum, varð
stigahæstur einstaklinga á laugardag, en lið hans, Gerpla,
tryggði sér þá bikarmeistaratitilinn.
Guðmundsdóttir, Sif Pálsdóttir og
Vala Védís Guðmundsdóttir.
Gerpla og Fimleikadeild Kefla-
víkur náðu ekki að manna full lið á
mótinu vegna veikinda og meiðsla.
Tvær stúlkur frá hvoru liði kepptu
þó sem gestir í því skyni að afla sér
stiga. Þetta voru þær Lilja Er-
lendsdóttir og Inga Rós Gunnars-
dóttir úr Gerplu og Freyja Sigurð-
ardóttir og Ásta S. Tryggvadóttir
frá Keflavík.
mmm.
Morgunblaðið/Kristinn
ÍSLANDSMEISTARINN Elva Rut Jónsdóttir hafði nokkra yfirburði á bikarmótinu í frjálsum æfingum á
laugardag. Elva Rut og félagar í Fimleikafélaginu Björk urðu bikarmeistarar kvenna áttunda árið
í röð. Elva Rut sést hér í gólfæfingum.
Rúnar fer
víða
þessar
vikurnar
RUNAR Alexandersson,
íslandsmeistari í fimleik-
um, varð stigahæstur í
einstaklingskeppninni á
bikarmótinu, hiaut 52,9 í
heildareinkunn. Hann
fékk 8,6 fyrir stökk, 9,8
fyrir æfingar á boga-
hesti, 8,55 fyrir hringi,
8,4 fyrir gólf, 8,9 fyrir
æfingar á tvíslá og 8,65 á
svifrá.
Rúnar kvaðst þokka-
lega sáttur við frammi-
stöðu sína á mótinu.
„Þetta var ágætt, því það
hefur verið mikið að gera
hjá mér að undanförnu
og mörg mót framundan.
Þess vegna var mikilvægt
að komast klakklaust í
gegnum þetta og vinna
bikarinn fyrir Gerplu, því
Ármenningar komu mér
nokkuð á óvart - voru
sterkari en ég átti von á.“
Rúnar mun taka þátt í
sterku móti í Los Angeles
á laugardag, boðsmóti
sem kennt er við Peter
Vidmar. Þar mun félagi
hans úr Gerplu, Dýri
Kristjánsson, einnig taka
þátt.
Helgina eftir, eða 5. og
6. mars nk., tekur Rúnar
síðan þátt í London Open,
hann keppir svo á Is-
landsmótinu í fimleikum
19.-21. mars og næstu
helgi á eftir á sterku fim-
leikamóti í Þýskalandi.
„Ég stefni vissulega á
góðan árangur á öllum
þessum mótum,“ sagði
Rúnar eftir verðlaunaaf-
hendinguna í Laugardals-
höll á laugardag. „Ég hef
náð að byggja mig vel
upp að undanförnu og
mun svo sannarlega gera
mitt besta,“ sagði Rúnar.
Guðjón
dæmdi
GUÐJÓN Guðmundsson, sem
vann margoft til íslands- og
bikarmeistaratitla í fimleik
um, er nú tckinn til við að
dæma í greininni fyrir hönd
Ái-manns.
Dómarar auk hans á mót-
inu voru þeir Ye Yiiijan,
Björn Magnús Tómasson og
Guðmundur Þór Brynjólfs-
son.
Björk bikar-
meistarí
kvenna
áttunda
w ■ $c w
and i roð