Morgunblaðið - 23.02.1999, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 B 9
BÖRN OG UNGLINGAR
Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
ÖRTRÖÐ var í stangarstökki kvenna enda greinin ný og spennandi.
Galdurinn við gull
í stangarstökki
„MÉR finnst nyög gaman á
mótinu, það er gaman að hitta
alla, allir eru góðir vinir og
maður heilsar næstum öllum,“
sagði Anna Margrét Ólafsdóttir
frá Akureyri en það er ekki þar
með sagt að hún hafi haft allan
hugann við félagsskapinn því
hún stökk allra liæst af stúlkum /
stangarstökki, lengst í þrístökki
og var fljótust í grindahlaupinu
en hún er á fyrra árinu í flokki
sínum.
Þó er aðeins rúmt ár síðan
Anna Margrét, sem er 16 ára, hóf
að æfa frjálsar íþróttir því áður
lagði hún fimleika fyrir sig og
hefur reyndar ekki alveg sagt
skilið við þann lilut því hún
þjálfar ennþá á þeim vígstöðvum.
„Mér finnst. gaman að geta verið
í hvoru tveggja og fiinleikarnir
hafa komið sér mjög vel og
hjálpað mér mikið í dag. Mér
finnst skemmtilegast í
grindahlaupi ,og stangarstökki en
aðstaðan mætti vera betri á
Akureyri fyrir stangarstökk og
ég verð eflaust að fara eitthvað
ef ég ætla mér lengra í
stönginni.“
En hver er galdurinn að vinna
stangarstökk ef hún getur ekki
æft það að ráði? „Ja, ég kem
bara og geri mitt besta,“ sagði
Anna Margrét og brosti.
ANNA Margrét Ólafsdóttir frá Akureyri sigraði í sínum flokki
stangarstökksins en hún hefur stokkið yfir 3 metra á þeim
vettvangi.
Eltum rollur
og stökkvum
yfir skurði
Lengst að komnir keppenda voru
unglingar frá Norðurhéraði,
sem eru sameinaðir hreppar Jök-
uldals, Hlíðahrepps og Tungu-
hrepps. Það voru Margrét Dögg
Guðgeirsdóttir, Berglind Ósk Gutt-
ormsdóttir, Elsa Guðný Björgvins-
dóttir, Eiríkur Þoití Einarsson og
Agúst Snær Hjartarson, sem öll eru
í kringum fimmtán ára aldur.
Þau voru sum að fara í sína fyrstu
keppnisferð og skemmtu sér hið
besta enda ekki á hverjum degi sem
þau hitta íyrir 2S0 unglinga á líku
reki. „Því fleiri, því skemmtilegra,"
sögðu Margrét Dögg, Berglind Ósk
og Elsa Guðný einum rómi. Flest
eru þau í Brúarásskóla og í fyrra
fengu þau íþróttahús en það hefur
ekki dregið úr íþróttaáhuganum.
„Við erum í þrístökki, langstökki og
hástökki en ekki í stangarstökki því
það getum við ekki æft, íþróttahúsið
reis á síðasta ári en þá vantaði
mestallt í það. Það er auðvitað mik-
ill munur því áður gátum við bara
æft úti við eða í litlum sal og þetta
þýðir að við munum æfa enn meira
því áhuginn er til staðar - við erum
bara að byrja. Við höfum mest æft
okkur á sumrin, sérstaklega fyrir
sumarhátíðina en ef við vitum um
keppni í grenndinni förum við að
æfa fyrir það.“
Ekki stóð á svari hjá þessum
hressu stúlkum þegar þær voru
spurðar hverju þær vildu þakka
ágætis árangur þrátt fyrir að lítið
hafí verið um aðstöðu í sveitinni:
„Það er mjög gaman í frjálsum, við
erum vanar að elta rollur og
stökkva yfir skurði, það getum við
og er eflaust ágætis undirstaða og
góð æfing,“ var hressilegt svar
þeirra og á eftir fylgdi hvellur hlát-
ur.
NORÐURHÉRAD átti skemmtilega fulltrúa á mótinu um helgina.
í efri röð eru Margrét Dögg Guðgeirsdóttir, Berglind Ósk Gutt-
ormsdóttir og Elsa Guðný Björgvinsdóttir en fyrir framan sifja
Eiríkur Þorri Einarsson og Ágúst Snær Hjartarson.
Ágústa
með flest
gull
MÉR hefur gengið svona allt í
lagi,“ sagði Ágústa Tryggva-
dóttir úr HSK og dró heldur úr af-
reki sínu því hún sigraði í sex af
þeim átta greinum sem hún keppti í
- í tveimur fékk hún silfur. Hún fékk
silfur í langstökki með atrennu og
kúluvai-pi en hampaði gulli í há-
stökki, langstökki og þrístökki án at-
rennu, þrístökki með atrennu, grind-
arhlaupi og stangarstökki en þar
sveif hún yfir 2,50 metra, sem er
besti árangur hennar. „Ég er ánægð
með það því ég hef ekki æft stangar-
stökk að ráði, það er ekki aðstaða á
Selfossi þar sem ég bý en ég hef
komist að á Hvolsvelli og á Laugar-
vatni,“ sagði Ágústa, sem er 15 ára.
„Ég æfði fimm til sex sinnum í viku
en minna núna því það er mikið af
mótum og því meira um hvfld á milli.
Ég byrjaði í frjálsum fyrir um fjór-
um árum og það er mjög gaman -
eins að koma á svona mót. Reyndar
vil ég helst vera í öllu og hef gaman
af sjöþrautinni,“ bætti Ágústa við.
ÁGÚSTA Tryggvadóttir gerði
það gott á Unglingameistara-
mótinu um helgina.