Morgunblaðið - 23.02.1999, Síða 12
SKÍÐI / HM I NORRÆNUM GREINUM
PO$r0tsstMnl^í
wmmmmtammmmmmmmmm
skugga
Myllyla
FOLK
■ GUSTAF Bjarnason skoraði 3
mörk fyrir Willstatt, sem tapaði
26:20 á heimavelli fyrir Erlangen í
suðurhluta 2. deOdar þýska hand-
knattleiksins. Þetta þóttu nokkuð
óvænt úrslit þar sem Erlangen er í
hópi neðstu liða en Willstatt er í
efsta sæti. Erlangen byrjaði leikinn
af miklum krafti og komst í 5:0 og
10:3. í hálfleik var staðan 14:10,
gestunum í vil.
■ ÞRÁTT fyrii' tapið heldur Will-
statt efsta sætinu því aðalkeppinaut-
urinn, Bayer Dormagen, náði ein-
ungis jafnteíli við Friesenheim,
19:19.
■ DAÐI Hafþórsson var með 3
mörk fyrir Dormagen í leiknum og
Róbert Sighvatsson og Héðinn Gils-
son skoruðu eitt mark hvor. Leik-
menn Dormagen fóru illa að ráði
sínu því 6 mínútum fyrir leikslök
voru þeir með 3 marka forystu,
19:16.
■ DORMAGEN er í öðru sæti með
43 stig, en Willstatt er með 44 stig,
en bæði hafa liðin leikið 26 leiki.
Leutershausen er í 3. sæti með 39
stig.
■ ALFREÐ Gíslason og lærisveinar
hans hjá Hameln eru enn taplausir í
efsta sæti norðurhluta 2. deildar
þýska handknattleiksins, hafa 51 stig
að loknum 26 leikjum. Nordrhon er í
öðru sæti með 50 stig úr 26 leikjum.
Bæði liðin unnu um helgina.
■ GUNNAR Andrésson skoraði 10/2
í sjöunda tapleik Amicitia Ziirich í
úrslitakeppni svissneska handknatt-
leiksins um helgina, lokatölur 23:19
en andstæðingurinn var lið End-
ingen. Gunnar hefur verið að leika
vel og er í þriðja sæti yfir marka-
hæstu menn deildarinnar, hefur skor-
að 51/10 mark í leikjunum átta. Lið
Gunnars er í neðsta sæti með 2 stig.
■ JULÍUS Jónasson og samherjar
hans eru hins vegar í efsta sæti með
15 stig úr 8 leikjum. Um helgina
gerði St. Otmar jafntefli við Suhr,
25:25. Á sama tíma tapaði aðalkeppi-
nauturinn, meistaralið Pfadi
Winterthur, fyrir Kadetten, 24:23.
■ MILOMIR Mijatovic þjálfari Bad
Schwartau, liðs Sigurðar Bjarna-
sonar, var á laugardaginn látinn
taka poka sinn eftir að hafa stýrt lið-
inu í hálft fjórða ár. Ástæðan fyrir
brottrekstrinum er slakur árangur
liðsins og steininn tók úr eftir tap
fyrir Eisenach á heimavelli, 29:26, sl.
miðvikudag.
Alexandra Meissnitzer frá Aust-
urríki, nýkrýndur heimsmeist-
ari í stórsvigi og bruni, sigraði í
stórsvigi heimsbikarsins í Áre í
Svíþjóð í gærkvöldi. Þar með er
hún nánast örugg með heimsbikar-
titilinn í stórsvigi og fátt virðist
geta komið í veg fyrir sigur hennar
í heildarstigakeppninni.
Meissnitzer var með besta
brautartímann í báðum umferðum
stórsvigsins. Landa hennar, Anita
Wachter, varð önnur rúmri hálfri
sekúndu á eftir og Andrine
Flemmen frá Noregi þriðja. Þetta
voru stúlkurnar sem voru á verð-
launapallinum í stórsviginu á HM í
Vail fyiT í þessum mánuði, nema
þá var Flemme í öðru sæti og
Wachter í þriðja. Þetta var 10. sig-
ur Meissnitzer í heimsbikarnum og
sá fjórði í stórsvigi í vetur.
„Það er mjög ei-fitt að sigra
Anitu [Wachter] og því varð ég að
gefa allt í botn,“ sagði Meissnitzer.
„Mér gekk vel og ég vissi að ég var
á góðri ferð í síðari umferðinni, en
sigurinn er aldrei í höfn fyrr en
komið er í gegnum markið. Ég er
svolítið þreytt, en það eru allir hin-
ir keppendurnir líka eftir HM í
Bandaríkjunum. Mai'kmiðið er
auðvitað að sigra í stigakeppninni,"
sagði sigurvegarinn. Hún hefur nú
620 stig þegar tvö stórsvigsmót eru
eftir. Wachter kemur næst með
436 stig og er sú eina sem getur
tölfræðilega náð henni að stigum,
en 100 stig eru gefin fyrir fyrsta
sætið. En það er óraunhæft að
hugsa sér að Wachter nái henni því
til þess þarf hún að vinna bæði
mótin sem eftir eni og Meissnitzer
að fara út úr.
Meissnitzer hefur 1.430 stig í
samanlagðri stigakeppni, en Hilde
Gerg frá Þýskalandi er önnur með
980 stig og Martina Ertl þriðja
með 944 stig. Nú eru aðeins tvö
stórsvig eftir og eitt brun og því
mikilvægt fyrir Meissnitzer að ná
góðum árangri í þeim því hún
keppir ekki í svigi, en það gera hin-
ar tvær sem á eftir henni koma í
stigakeppninni.
■ Úrslit / B11
FINNINN Mika Myllyla vann í gær önnur gullverðlaun sín í jafn
mörgum greinum á heimsmeistaramótinu í norrænum greinum
sem nú stendur yfir í Ramsau í Austurríki. Myllyla varð heims-
meistari í fyrstu grein mótsins, 30 km göngu á föstudag, og í
gær bætti hann öðrum heimsmeistaratitli við er hann sigraði í
10 km göngu. Gulldrengurinn, Björn Dæhlie frá Noregi, varð
þriðji í 30 km göngunni á föstudag en náði aðeins fimmta sæti í
gær.
Gangan fór fram við frekar erf-
iðar aðstæður í Ramsau í gær
enda strekkingsvindur og snjó-
koma. Myllyla lét slæmar aðstæður
ekki hafa áhrif á sig og var 15 sek-
úndum á undan heimamanninum
Alois Stadlober, sem varð annar.
Norðmaðurinn Oddbjorn Hjelmes-
et varð þriðji.
„I gær var ég hálfslappur og átti
erfitt með að ná mér upp eftir sig-
urinn í 30 km göngunni á fóstudag.
Ég vaknaði hins vegar mjög hress í
morgun og var ánægður þegar ég
sá að úti var snjókoma," sagði
Myllyla, sem varð Olympíumeistari
í 30 km göngu á leikunum í Nagano
í fyrra. „Ég er ánægður að það
voru þrír dagar á milli gi'eina og
fékk því tíma til að jafna mig. Ég
átti erfitt með svefn eftir að hafa
unnið á föstudag. Ég bjóst við að 10
km yrðu lélegasta gangan hjá mér
hér í Ramsau. Ég átti ekki von á
því að geta unnið Dæhlie, enda
hann ávallt verið bestur í stuttu
göngunni," sagði Finninn sem er 29
ára.
Dæhlie og félagar hans í norska
landsliðinu áttu í erfiðleikum með
skíðaáburðinn og það setti mark
sitt á frammistöðu þeiira. Dæhlie
var 26,4 sekúndum á eftir sigur-
vegaranum. Ái-angur Austurríkis-
mannsins Aiois Stadlober kom
mest á óvart. Þessi 36 ára gamli
göngumaður hefur aldrei náð á
verðlaunapall á stórmóti áður og
aldrei unnið heimsbikarmót. Hann
hefur tekið þátt í níu heimsmeist-
aramótum og fimm Olympíuleik-
um.
Martinsen bjargaði
heiðri Norðmanna
Bente Martinsen bjargaði heiðri
Norðmanna á HM í gær með því
að verða heimsmeistari í 5 km
göngu kvenna. Hún var þar með
fyrst norskra kvenna til að næla
sér í gull á HM í átta ár, eða síðan
Trude Dybendahl sigraði í 5 km
göngu á HM í Val di Fiemme á
Italíu 1991.
Olga Danilova frá Rússlandi,
Ólympíumeistari í 15 km göngu,
varð önnur og var á 13 sekúndna
lakari tíma en Martinsen. Tékk-
neska stúlkan Katerina Neu-
mannova varð þriðja. „Eftir fyrstu
Reuters
MIKA Myllyla vann önnur gullverðlaun sín á heimsmeistaramótinu
í göngu í Ramsau í Austurríki í gær er hann sigraði í 10 km göngu.
tvo kílómetrana var . ég ekki að
ganga eins og ég á að geta. En síð-
an náði ég að skipta um gír og átti
mjög góðan endasprett,“ sagði
Martinsen.
Engen Vik
Norðmaðurinn Bjarte Engen Vik
varð heimsmeistari í norrænni tvík-
eppni, þ.e.a.s. í samanlögðum ár-
angri í stökki og göngu. Hann hefur
haft mikla yfirburði í þessari grein
og var m.a. Ólympíumeistari í
Nagano fyrir ári síðan. Hann er
heimsbikarmeistari frá síðasta ári
og það bendir allt til þess að hann
verji titil í ár.
„Ég er ekkert á leiðinni að
hætta,“ sagði Engen Vik, sem er
frá Bardufoss sem er rétt norðan
við Þrándheim. „Það getur stund-
um verið erfitt að vera bestur. Ekki
gleyma því að ég er orðinn 27 ára,
en þetta er það sem ég hef alltaf
þráð og ég hef áhuga á að halda
áfram á sigurbraut."
HeimsbikarlHillinn
í stórsvigi frátekinn
Þjóðverjar
í sjöunda
himni
ÞJÓÐVERJAR eru í sjöunda
himni yfir skíðastökkvurun-
uin ungu, Martin Schmitt og
Sven Hannawald. Scmitt
sem er aðeins tvítugur að
aldri sigraði á heimsbikar-
móti í Bischofshofen um
helgina og vann þar með
samanlagt í heimsbikarmót-
inu. Sven Hannawald varð
annar, aðeins 1,7 stigum á
eftir Scmitt, sem er í raun
aðeins 1 metri. Þetta er í
fyrsta skipti í níu ár sem
Þjóðverji sigrar samanlagt í
keppni af stórum palli, eða
siðan þáverandi Austur-
Þjóðverji Jens Weissflog
stóð í sömu sporum. Austur-
Þjóðveijar áttu marga
snjalla stökkvara á sínum
tíma og voru Þjóðverjar
orðnir langeygir eftir að sjá
landa sinn á efsta verðlauna-
palli á ný.
A hjóli
fram af
stökkpalli
Bæjarinn Toni Rossberger
sigraði í sérkennilegu veðmáli
um helgina. Hann veðjaði við
grínistann Harald Schniidt að
hann gæti farið á rallycross
mótorlyóli sínu upp brekkuna
að skíðastökkpalliiium í
Garmisch-Partenkirchen, það-
an áfram upp pallinu í efstu
stöðu, snúið við, keyrt á fullu
niður og stokkið fram af pall-
inum. Harald Schmidt tók
veðmálinu, Rossberger gerði
sér lítið fyrir keyrði upp og
fullkomnaði veðmálið þegar
hann flaug tignarlega á mót-
orhjóli sínu litla 83 inetra
fram af pallinum við geysileg-
an lognuð fjölmargra áhorf-
enda í Garmisch-Par-
tenkirchen. Þetta mun vera
heimsmet í mótorhjólastökki.
Dæhlie í