Morgunblaðið - 11.05.1999, Page 10
10 C ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
£
FASTEIGNASALA
Hafnarfirði
Fjarðargata 17
Sími 520 2600
Fax 520 2601
netfang as@as.is
Heimasíða
http://www.as.is
Myndir í gluggum
Opið virka daga kl. 9-18
og laugard. kl. 11-14.
Eigendur
fasteigna athugið:
Lífleg sala
Skoðum og verðmetum
samdægurs
Landið
VALHOLL - GRINDAVIK Vorum
að fá gott 193 fm einbýli á tveimur hæðum,
ásamt útihúsi á lóð. Húsið er klætt og ein-
angraö að utan á allar hliöar. Róleg og góð
staðsetning. Verð 5,7 millj.
Illil 1IPI
.^MSl jjj^
KLETTABYGGÐ - PARHUS A
EINNI HÆÐ Vorum að fá 162 fm parhús
á einni hæð, með millilofti, ásamt 28 fm inn-
byggðum bílskúr. Húsin skilast fullbúin að ut-
an og máluð, fokheld að innan eða lengra
komin. TEIKNINGAR Á SKRIFSTOFU. (1657)
.„.Ui, ~1 f
VESTURGATA - AKRANESI Faiiegt
endurnýjað 122 fm EINBÝLI, kjallari, hæð og
ris. Húsið er nánast allt endurnýjað að utan
sem innan. Sjón er sögu ríkari. Skipti mögu-
leg. Verð „TILBOГ. (1587)
I smíðum
FJÓLUHLÍÐ - Á EINNI HÆÐ Vor
um að fá fallegt vel skipulagt 130 fm EINBÝLI
á einni hæð, ásamt 33 fm bílskúr. 4 svefnher-
bergi, möguleg 5. Húsið skilast fullbúið að ut-
an fokhelt að innan. Teikningar á skrifstofu.
Verö 10,8 millj. (1803)
HÓLABRAUT - NÝJAR ÍBÚÐIR
Vorum að fá í sölu fallegar nýjar 3ja og 4ra
herbergja íbúðir í fallegu 7 íbúða húsi. 3
bíiskúrar eru í húsinu. íbúðirnar skilast full-
búnar, án gólfefna. Hús og lóð fullfrágengin.
Verð á 3ja frá 9,3 millj. og á 4ra 11,0 millj.
Teikningar á skrifstofu. (1724)
LÆKJARKINN - MEÐ BIL-
SKUR Vorum að fá í einkasölu þetta fal-
lega og reisulega 125 fm einbýlishús, sem
er kjallari, hæð og ris, ásamt 33 fm frístand-
andi bílskúr. 3 svefnherberg ásamt auka
herb. í kjallara. Fallegur garður með
GRÓÐURHÚSI við verðlaunagötu. Mjög
góð staösetning. SJÓN ER SÖGU RlKARI.
TEIGABYGGÐ - A EINNI HÆÐ
Fallegt 161 fm einbýli á einni hæð, ásamt 26
fm innbyggðum bílskúr. Húsið skilast fullbúið
að utan og rúmlega fokhelt að innan eða
lengra komið eftir vilja kaupenda. Falleg
hraunlóð í suður. Verð frá 11,5 millj. (1745)
Einbýli
AUSTURGATA - LITIÐ EINÐYLI I
HJARTA HAFNARFJARÐAR Nett
53 fm einbvli á einni hæð á besta stað í
miöbænum. Nýlegt báð, þak Qffl. Verð 6,5
millj.
BREKKUHLIÐ - GLÆSILEGT í
einkasölu. Vorum að fá fallegt 157 fm PAR-
HÚS á tveimur hæðum, ásamt 38 fm inn-
byggðum bílskúr. Vandaðar innréttingar
og tæki. ARINN í stofu. 4 góð svefnher-
bergi. Verð 16,5 millj.
Landakot - Bessastaðahr. v0r-
um að fá í einkasölu sérhæð og kjallara, alls
ca 145 fm, í eldra tvíbýli. Eignin er mikiö
endumýjuð. Auk þess fylgir 50% eignar-
hlutur í útihúsum sem eru alls ca 300 fm
Verð 12,5 millj.
HAABARÐ - 2JA IBUÐA HUS Vor-
um að fá í sölu NÝLEGT gott 243 fm EINBÝL-
ISHÚS með góðri 2ja herbergja (BÚP A
JARÐHÆÐ. ásamt bílskúr. Húsið er innst í
botnlanga og í SÉRLEGA góðu ástandi. Verð
19,5 millj. (1742)
HÁIHVAMMUR FRÁBÆRT
ÚTSÝNI Fallegt 366 fm einbýli á þremur
hæðum með innbyggðum bílskúr. Möguleg
AUKAÍBÚÐ á jaröhæð. 5 til 6 svefnher-
bergi. Frábært útsýni. Áhv. góð lán. Verð
19,5 millj.
LINDARBERG - MEÐ
TVÖFÖLDUM BÍLSKÚR Nýieg
222 fm EFRI. jiÉRHÆP með innbyggðum
49 fm tvöföldum bílskúr á FRÁBÆRUM
ÚTSÝNISSTAÐ. Eignin er ekki fullbúin.
Verð 14,4 millj.
HNOTUBERG - FALLEGT A
EINNI HÆÐ Vorum að fá í sölu fallegt 165
fm EINBÝLI á einni hæð ásamt 26 fm bílskúr.
Frágengin lóð með hita í plani. RÓLEGUR OG
GÓÐUR STAÐUR. Verð 16,7 millj. (1771)
NÖNNUSTÍGUR - FALLEGT
ENDURNÝJAÐ Vorum að fá í einkasölu
mjög vandað og fallegt 144 fm einbýli á
tveimur hæðum. Húsið er allt endurnýjað ut-
an sem innan. Áhv. góð lán. Verð 14,0 millj.
Laufvangur Vorum að fá góða 4ra
herbergja íbúö á 3. hæð í nýlega viðgeröu
og máluðu fjölbýli. Endurnýjuð sameign.
Nýtt gler. Verð 8,5 millj.
OLDUGATA - MEÐ BILSKUR Gott
148 fm eldra einbýli á 3 hæðum, ásamt 50 fm
bílskúr. 5 svefnherbergi. Útsýni yfir Lækinn.
Áhv. Húsbréf 5,7 millj. Verð 13,5 millj.
Rað- og parhús
SUÐURGATA - PARHUS MEÐ
BÍLSKÚR Nýlegt 137 fm parhús á 3 hæð-
um ásamt 26 fm innb. bílskúr. 5 svefnher-
bergi. GOTT ÚTSÝNI. Verð 13,2 millj. (1767)
SUÐURVANGUR - NÝLEGT
PARHÚS Vorum að fá í sölu fallegt nýlegt
135 fm PARHÚS á þessum vinsæla stað í
HRAUNINU. Allt sér. Vandaðar innréttingar.
Tvær verandir. Áhv. Byggsj, r.íkis,_5,2.mjllj.
Verð 13,5 millj.
Hæðir
DOFRABERG - SERHÆÐ Ný
falleg 80 fm NEÐRI SÉRHÆÐ I fallegu
tvíbýli. Sérinngangur. Sér rafmagn og hiti.
Góð staðsetning. Verð 8,7 millj.
Reykjavíkurvegur Rúmgóð 130 fm 6
herbergja EFRI SÉRHÆÐ í góðu þríbýli. 5
svefnherbergi. Búið er að klæða húsið að ut-
an á þrjár hliðar. Stór og góð lóð. Verð 10,3
millj.
Suðurgata - Sérinngangur stór og
góð neðri sérhæð og bílskúr ásamt aukaher-
bergi í kjallara, samtals 187 fm 4 rúmgóð
svefnherbergi, stór stofa, sérþvottahús.
Áhv. hagst. lán. Verð 13,3 millj.
4ra tii 7 herb.
Breiðvangur -
Nýtt í einkasölu 4ra herbergja íbúð á
efstu hæð í klæddu húsi, ásamt bílskúr á lóð.
Góö sameign. Snyrtileg íbúð. Verð 9,2 millj.
Háholt - Nýleg - Útsýni Faiieg 118
fm 4ra herbergja íbúð á 1. hæð ofan jarðhæðar
í fallegu fjölbýli. Góðar innréttingar. Parket og
flísar. Stórar suðursvalir. Mikið útsýni. Verð
9,2 millj.
HVAMMABRAUT - FALLEGT
ÚTSÝNI Góð 104 fm 4ra herbergja íbúð á
2. hæð í 4ra íbúða stigagangi. Góðar innrétt-
ingar. Parket. Stórar svalir. Áhv. góð lán.
Verð 8,8 millj.
2ja herb.
Reykjavíkurvegur Góð 4ra herb. íbúð á
jarðhæð í þríbýlishúsi. Nýlegt parket. Endur-
nýjaðir gluggar og gler. Snyrtileg íbúð. Góð
lóðaraðstaða. Verð 7,9 millj.
Álfaheiði - Kópv. Vorum að fá I
einkasölu fallega 2ja herb. íbúð á 1. hæð í
litlu fjölbýli. Aðeins 2ja íbúða stigagangur.
Parket á gólfi. Frábær staðsetning. Verð
7,4 millj.
HRÍSMÓAR - GBÆ. - LAUS
FLJÓTLEGA Góð 4ra herb. á 2. hæð í
góðu LYFTUHÚSI. Húsvörður. 3 svefnher-
bergi. Húsið nýmálað og viðgert. Sterkt hús-
félag. Verð 9,2 millj. (1669)
3ja herb.
ÁLFASKEIÐ Nýkomin falleg 2ja herbergja
á 2. hæð í fjölbýli, ásamt bílskúrssökklum.
Parket. Góð sameign. Suður/vestur svalir.
Verð 6,4 millj.
Holtsgata - Jarðhæð Góð 2ja her-
bergja íbúð á jarðhæð í góðu nýlega máluðu
þríbýli. Björt og falleg eign. Áhv. góð lán 3,0
millj. Verð 5,8 millj.
REYKJAVÍKURVEGUR Góð 2ja her-
bergja íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli. Parket.
Nýtt gler og fl. Áhv. góð lán 2,5 millj. Verð 5,1
millj.
Suðurbraut Góð 59 fm 2ja herbergja íbúð
í góðu fjölbýli. Húsið er klætt að utan á tvær
hliðar með Steni-klæðningu. Hluti í sameig-
inlegri íbúð á jarðhæð fylgir. Verð 5,5 millj.
Atvinnuhúsnæði
HJALLABRAUT - FALLEG Vorum
að fá fallega 3ja herbergja íbúð í góðu
viðhaldsfríu fjölbýli. Yfirbyggðar suðursvalir.
Parket og flísar á gólfum. Falleg og björt eign.
Áhv. 40 ára húsbréf 4,2 millj. Verð 7,9 millj.
HRINGBRAUT - FRÁBÆRT
ÚTSÝNI Björt og falleg 93 fm rishæð í
tvíbýli með góðu geymslulofti. Mikið
endumýjuð, s.s. rafmagn, gólfefni ofl.
Verð 8,3 millj.
MEftKUftGAYÁ - NEBRI SER'
HÆÐ Vorum að fá fallega taisvert endur-
nýjaða 3ja herbergja NEÐRI SÉRHÆÐ í góðu
tvíbýli á góðum stað. Sökklar undir 14,7 fm
sólstofu. Endurnýjuð: Eldhúsinnrétting, allt á
baði, rafmagnstafla, gólfefni, yfirfarnir
gluggar og gler og fl. Verð 7,6 millj.
SUÐURBRAUT - MEÐ BILSKUR
Falleg talsvert endumýjuð 68 fm 3ja her-
bergja íbúð í góðu fjölbýli, ásamt 28 fm bílskúr.
Nýleg eldhúsinnrétting, allt á baði, raf-
magnstafla o.fl. Áhv. góð lán 4,6 millj. Verð
7,6 millj. (1323)
SUÐURBRAUT - FALLEG
ENDAÍBÚÐ Vorum að fá fallega talsvert
endumýjaða 92 fm 3ja herbergja ENDAÍBÚÐ í
góðu fjölbýli. Parket og flísar. Þvottahús og
búr í íbúð. Suðursvalir. Gott útsýni. Verð 8,1
millj.
Eyrartröð - Tveir eignarhlutar
Fremra hús sem er 242 fm m. innkeyrslu-
dymm, verð 12,0 millj. Aftara hús 354 fm
með innkeyrsludyrum. Verð 14,0 millj. Selst
saman eða hvort í sínu lagi. Hagstætt verð.
(1735)
Fjarðargata - Fyrsta flokks
skrifstofuhúsnæði - Til leigu tíi
afhendingar nú þegar í lyftuhúsi 374 fm skrif-
stofuhúsnæði á 4. hæð. Afhendist tilbúið und-
ir tréverk eða innréttað eftir samkomulagi. Öll
þjónusta í nágrenninu, t.d. bankar, veitinga-
og kaffihús, dómshús, pósthús o.fi.
Flatahraun - 200 fm Sknfstofuhæð á
góðum stað við Kaplakrikann. Húsnæðið er
tilbúið nú þegar til afhendingar. Verð 7,5
millj.
Melabraut, til kaups eða leigu.
Atvinnuhúsnæði á jarðhæð með góðum inn-
keyrsludyrum, skrifstofu- og starfsmanna-
aðstaða, alls 550 fm Verð 22 millj.
Melabraut - Nýbygging vorum að fá
í sölu tvö 800 fm hús sem skipta má niður í
100 fm og upp í 400 fm einingar. Frábær
staðsetning. Teikningar á skrifstofu.
Strandgata 50 við Hamarinn vor-
um að fá í einkasölu gott 702 fm húsnæði á
tveimur hæöum við syðri Hamarinn í Hafnar-
firði. Húsið er í góðu ástandi. Miklir mögu-
leikar.
(f“ Ingvar Guðmundsson löggiltur fasteignasali, Jónas Hólmgeirsson og Kári Halldórsson.
Frumvarp til laga
um fasteignakaup
Flest ágreiningsmál vegna fasteignakaupa
eru tilkomin vegna þeirrar réttaróvissu,
sem leiðir af skorti á skráðum laga-
reglum, segir Sandra Baldvinsdóttir,
lögfræðingur hjá Húseigendafélaginu.
Eftirmál og ágreiningsefni eru því
mjög tíð í fasteignaviðskiptum.
ÍGEGNUM tíðina hefur það verið
þýðingarmikill þáttur í hags-
munabaráttu Húseigendafélagsins,
að stuðla að réttarbótum á þeim
réttarsviðum, sem snerta fasteign-
ir og eigendur þeirra. Mjög mörg
mál koma til kasta félagsins við-
víkjandi viðskiptum með fasteignir
og vanefndir á þeim.
Um fasteignakaup skortir baga-
lega, að mati félagsins, löggjöf,
sem kveði skýrt á um það hvernig
slík kaup skuli gerast og hver séu
réttindi og skyldur aðila og skil-
greining á vanefndum og hverju
þær varði.
Réttaróvissa
Um fasteignakaup er og hefur
verið beitt ákvæðum lausafjár-
kaupalaganna nr. 39/1922 með lög-
jöfnun og ýmsum ólögfestum regl-
um og sjónarmiðum og byggist
réttarstaða aðila slíkra viðskipta
ekki síst á dómafordæmum. Rétt-
arstaða aðila í fasteignakaupum
byggist ekki á skráðum og að-
gengilegum réttarreglum, sem al-
menningur getur kynnt sér og vís-
að til. Óskráðar reglur og dómafor-
dæmi eru óljósar og ótraustar rétt-
arheimildir og ekki kunnar nema
tiltölulega fáum sérfræðingum.
Mjög erfitt er fyrir venjulega
kaupendur og seljendur að gera
sér grein fyrir réttindum sínum og
skyldum og vanefndaúrræðum sín-
um á þessu sviði. Leiti aðilar til
lögfræðinga eru svörin og ráðlegg-
ingarnar oftar en ekki í véfrétta-
stíl. Það er t.d. mjög á huldu
hvenær fasteign telst gölluð og
hvenær ekki og til hverra úrræða
skal og má grípa og hvers þarf að
gæta í því efni.
Mikilvægir
samningar
Þjóðarauður okkar er að stórum
hluta í fasteignum falinn og oftast
er aleiga fólks undir í viðskiptum
um slíkar eignir. Samningar um
fasteignakaup eru algengustu og
þýðingarmestu samningarnir, sem
venjulegt fólk gerir sín á milli og
sætir í raun furðu að ekki skuli
íyrir löngu hafa verið sett lög á
þessu mikilvæga sviði. Flest
ágreinings- og álitamál vegna fast-
eignakaupa eru tilkomin vegna
þeirrar réttaróvissu, sem leiðir af
skorti á skráðum lagareglum og
eru því eftirmál og ágreiningsefni
mjög tíð í fasteignaviðskiptum.
Þess vegna telur Húseigendafé-
lagið brýna þörf á, að sett verði
sem allra fyrst hér á landi almenn
löggjöf um fasteignakaup eins og
gert hefur verið í sumum ná-
grannalöndum okkar. Er Félag
fasteignasala sammála félaginu um
löggjafarþörf á þessu sviði.
Afar brýnt er að viðskipti með
fasteignir hvíli á traustum grunni,
þannig að aðilar megi glöggt sjá
hver réttindi þeir eigi og hverjar
skyldur þeir beri og sama gildir um
aðra sem að slíkum viðskiptum
komi. Lögjöfnun frá lausafjár-
kaupalögunum og ólögfestar meg-
inreglur og dómafordæmi eru ekki
fullnægjandi, sem grundvöllur og
rammi um svo veigamikil viðskipti.
Öruggari viðskipti
Með skýrri og ítarlegri löggjöf
um fasteignakaup má gera þessi
viðskipti öryggari og fækka mjög
ágreiningsefnum og eftirmálum og
dómsmálum, sem er sá dilkur, sem
réttaróvissan á þessu sviði dregur
á eftir sér. Eru mörg sorgleg dæmi
um veruleg fjárhagsleg skakkaföll
aðila þegar slík mál hafa farið fyrir
dómstóla og gildir þá oft einu hvort
menn „vinna“ eða tapa máli. Má
e.t.v. hugsa sér, að í þessum málum
verði sett á laggimar úrskurðar-
eða álitsgjafí með líku sniði og
kærunefndir í fjöleignarhúsamál-
um og húsaleigumálum, sem hafa
ótvírætt sannað gildi sitt með af-
bragðsgóðu starfi og skilvirkum og
vönduðum vinnubrögðum.
Húseigendafélagið hefur lagt til
við dómsmálaráðuneytið að skipuð
verði nefnd eða starfshópur til að
kanna þetta og eftir atvikum að
semja frumvarp til slíkra laga.
Þetta er vissulega margslungið,
flókið og vandasamt viðfangsefni
og í mörg horn að líta og þyrftu
margir aðilar að koma að því með
sín sjónarmið. Hefur það mál verið
til athugunar í ráðuneytinu í nokk-
ur ár og verður vonandi settur
kraftur í það mál.