Morgunblaðið - 11.05.1999, Síða 18

Morgunblaðið - 11.05.1999, Síða 18
18 C ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÍBÚÐIRNAR eru alls tíu. Þær standa tvær og tvær saman með stigahúsi á milli, nema í fímmta húsinu lengst til vinstri, sem stendur sér. fbúðirnar eru allar jafn stórar eða 117 ferm. Ibúðirnar á jarðhæð hafa sérlóð, en íbúðirnar á efri hæð eru með svölum. Ásett verð er 10,7 millj. kr. á íbúðirnar á efri hæð en 10,5 millj. kr. á íbúðimar á neðri hæð. Helgi Hjálmarsson arkitekt hefur hannað húsin. Eftirspurn sjaldan verið meiri eftir nýjum íbúðum í Mosfellsbæ Mikil uppbygging á sér -* nú stað í Mosfellsbæ. Við Hjallahlíð er bygg- ingafyrirtækið Tré hf. að reisa tíu íbúðir í litlum sambýlishús- um, sem mikill áhugi er á. Magnús Signrðs- son kynnti sér fram- kvæmdirnar. IBÚUM í Mosfellsbæ hefur fjölgað __ verulega á undanfömum árum, en þeir eru nú um 5.500. Lengst af hef- ur fjölgunin verið um 3% milli ára eða talsvert fyrir ofan landsmeðal- lag og í fyrra var hún tæp 5%, sem er mjög hátt hlutfall. Mikil fólks- fjölgun kallar á miklar nýbyggingar, en allir þurfa jú þak yfír höfuðið. Talsvert hefur því verið byggt í Mosfellsbæ að undanfórnu og þá að- allega í vesturhluta bæjarins. Bygg- ingafyrirtækið Álftárós hefur fengið þar stórt svæði úthlutað í alverk- töku og þar á sér stað mikil upp- bygging. Aðrir byggingaraðilar hafa einnig verið atkvæðamiklir, einkum við götumar Blikahöfða og Fálkahöfða, syðst í svonefndu Höfðahverfi. Mosfellsbær er að mörgu leyti all frábmgðinn öðra þéttbýli á höfuð- borgarsvæðinu. Bærinn nær yflr af- ar víðlent svæði með mörg hundrað sumarbústöðum. Atvinnuhættir í bænum mótast mjög af nálægðinni við Reykjavík og hinum sameigin- lega vinnumarkaði á höfuðborgar- svæðinu, en flestir bæjarbúar sækja atvinnu út fyrir bæjarfélagið. I bæn- um era engu að síður nokkrir stórir atvinnuveitendur, eins og Reykja- lundur, Alftárós, flugfélagið Atlanta, Istex og Reykjagarður og svo auð- t vitað bæjarfélagið sjálft, vegna þeirrar þjónustu sem það veitir. Miklir útivistarmöguleikar Óvíða era útivistarmöguleikar meiri en í Mosfellsbæ. Aðstaða fyrir hestamenn þykir þar afar góð, enda eru þeir margir í bænum. Upp í Skálafell, eitt bezta skíðasvæði landsins, er ekki nema stundar- HORFT yfir byggingasvæðið og umhverfi þess, en þaðan er víðsýnt og gott útsýni til fjalla. Afhendingartími íbúðanna verður í lok þessa árs, en sökklar eru komnir og verið að steypa upp fyrstu íbúðina. fjórðungs akstur og aðstaða fyrir golfáhugamenn er líka mjög góð, en í bænum era fyeir golfvellir, sem margir sækja. í Mosfellsbæ er líka gott íþróttahús, sundlaug og stór íþróttaleikvangur. Frábær árangur Aftureldingar, íþróttafélags Mos- fellsbæjar, í handknattleik í vetur, er óræk sönnun um öflugt íþróttalíf í bænum. Á Tungubökkum er svo flugvöllur fyrir sportflug. Enda þótt Mosfellsbær hafi alltaf haft yfir sér yfirbragð dreifbýlisins, þá er miðbærin orðinn ólíkt svip- meiri en var, en þar er stórhýsi, sem setur mikinn svip á umhverfi sitt og gefur því sterkan miðbæjar- blæ. I þessari byggingu era bæjar- skrifstofur Mosfellsbæjar og auk þess verzlunar-og þjónustumiðstöð með aðstöðu fyrir margs konar fyr- irtæki. I sama húsi er stórverzlun Nýkaups og á næstu lóð við hliðina er Nóatúnsverzlun. í næsta ná- grenni er svo verið að innrétta áfengisútsölu, sem opnar á næstu vikum. íbúar Mosfellsbæjar þurfa því ekki lengur að fara til Reykja- víkur til þess að verzla eða til að leita eftir margvíslegri þjónustu. íbúðir í fjölbýlishúsum hafa verið Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Ólafur Blöndal, sölustjóri hjá fasteignasölunni Gimli, þar sem íbúðim- ar við Hjallahlíð 19-25 em til sölu og Jón Bjargmundsson, fram- kvæmdastjóri Trés hf., sem byggir íbúðirnar. að sækja á í Mosfellsbæ, en áður fyrr vora þær í miklum minni hluta og sérbýlið þá alls ráðandi. Eftir- spurn eftir íbúðum í fjölbýlishúsum í bænum hefur hins vegar farið vax- andi og því hafa risið nokkur slík hús á undanfömum áram og sala á íbúðum í þeim yfirleitt gengið vel. í bænum eru samt engin háhýsi með blokkaríbúðum. Verð á fasteignum í bænum er mjög svipað og annars staðar á höfiiðborgarsvæðinu, en verð á stóram einbýlishúsum kannski verið ívið lægra. Mikið er um lítil raðhús á bilinu 65-100 ferm. án bílskúrs og hefur verð á þeim haldizt hátt. Við Hjallahlíð 19-25 í vesturhluta bæjarins er byggingafyrirtækið Tré hf. að reisa tíu íbúðir, sem mikill áhugi er á. Hönnuður er Helgi Hjálmarsson arkitekt hjá Teikni- stofunni, Oðinstorgi. íbúðirnar standa tvær og tvær saman með stigahúsi á milli, nema í fimmta hús- inu, sem stendur sér. íbúðimar eru allar jafn stórar eða 117 ferm. íbúð- irnar á jarðhæð hafa sérlóð, en íbúðimar á efri hæð era með svöl- um. Bílskúrar fylgja íbúðunum og era þeir 19,5-21,5 ferm. að stærð. Þeir era annars vegar í lengju, átta bílskúrar saman og hins vegar tveir bílskúrar saman. Afhendingartími íbúðanna verður í lok þessa árs, en sökklar og plötur era komnar og verið að steypa upp fyrstu íbúðina. Húsin afliendast fullbúin að utan og máluð með lit- uðu þakstáli, en íbúðimar tilbúnar til innréttinga með öllum milliveggj- um og útveggjum sandspörsluðum. Milliveggir aðrir en burðarveggir verða mátveggir með gipsklæðn- ingu og steypt plata verður yfir efri hæðinni. Sameignin verður fullfrá- gengin að innan og lóðin grófjöfnuð. Hægt er að fá íbúðirnar lengra komnar og jafnvel fullbúnar ef vill. Hentugt svæði fyrir íbúðabyggingar „Þetta svæði er að mörgu leyti hentugt til íbúðabygginga," segir Jón Bjargmundsson, aðaleigandi og framkvæmdastjóri Trés hf. sem byggir húsin. „Svæðið stendur ekki hátt og er að mestu sléttlendi. Jarð- vegur er yfirleitt moldarjarðvegur, en nokkuð misjafnt, hversu djúpt er ofan á fast eins og kallað er, það er burðarhæfan botn. Útsýni er gott og þá einkum til norðurs og nálægð- in við gott útivistarsvæði niður við ströndina gefur byggðinni aukið gildi.“ Jón Bjargmundsson er enginn nýgræðingur í húsbyggingum. „Fram að þessu hef ég byggt mest í borginni, aðllega parhús, bæði í Grafarvogi og í Seláshverfi, nú síð- ast í Viðarási, en þau era öll seld,“ segir hann. „En það verður að segj- ast eins og er, að núna eru lóðir ekki fáanlegar hjá borginni. En það er ekki slæmur kostur að byggja í Mosfellsbæ, því að sá bær hefur ávallt haft mikið aðdráttarafl." íbúðirnar við Hjallahlíð era Iíka á þeim stað í Mosfellsbæ, þar sem hvað stytzt er til borgarinnar. Þama er því hægt að sameina kosti dreifbýlisins og nálægðina við Reykjavík. Mikil uppbygging á sér stað á þessu svæði í bænum, en í næsta nágrenni við íbúðimar er verið að byggja leikskóla, sem á að taka í notkun í haust og bamaskóli á að rísa þar á næstu áram. íbúðiraar era allar 117 ferm. að stærð fyrir utan bflskúr, eins og að framan greinir. Þær skiptast í þrjú herbergi, stofu, geymslu og þvotta- hús, sem er inni í íbúðinni, þannig að sameign er engin nema stigahús og lóð. „Þetta eru góðar 4ra herb. íbúðir,“ segir Jón. „Stærð þeirra er mjög aðgengileg stærð og sú íbúð- arstærð, sem er hvað eftirsóttust í dag. Inngangur er sameiginlegur fyrir fjórar íbúðir, en hann er að mestu úr gleri, þannig að hann er bjartur og sólríkur. Þessi glerskáli tengir húsin saman.“ Að fráskildum innganginum er engin sameign í þessum húsum. „Stór sameign er mjög vafasamur ávinningur," segir Jón. „Hún nýtist illa en kostar sitt og gerir því íbúð- irnar dýrari. Sameignin hefur því verið að minnka í fjölbýlishúsum á síðustu árum, sem kemur fram í hagkvæmara verði fyrir kaupendur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.