Morgunblaðið - 13.05.1999, Síða 6

Morgunblaðið - 13.05.1999, Síða 6
Undirbúningur fyrir hjónaband Öll pör ættu að gera FJÖLSKYLDUÁÆTLUN Þegar par ákveður að ganga í hjóna- band er hugsunin um skilnað víðsfjarri. Engu að síður sýna tölur svo ekki verður um villst að næstum því annað hvert hjónaband endar á þann veg. Guðbjörg R. Gudmundsdóttir spurði félagsráðgjafa hvort hægt sé að undirbúa sig fyrir hjónabandið. Félagsráðgjafarnir Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir, Sigríður Anna Einarsdóttir og Helga Sædís Rolfsdóttir ráðleggja pörum að ræða væntingar sínar til hjónabandsins. Félagsráðgj afamir Svein- björg Júlía Svavarsdóttir, Sigríður Anna Binarsdóttir og Helga Sædís Rolfsdóttir reka saman stofuna Aðgát og þar veita þær meðal annars hjónum ráðgjöf þegar komið er í óefni. Þær eru sammála um að það séu helst praktísk mál sem standi í veginum hjá hjónum sem eru í vanda. „Dæmigert par í hjónabandi er annaðhvort í námi eða stundar fulla vinnu. Auk þess eru margir komnir með böm og eru að koma yflr sig þaki. Þetta er allt gert í einu. I okkar þjóðfélagi verður allt að gerast hratt og kannski eru hjónin ekki tilbúin undir það álag sem þessu öllu fylgir," segir Svein- björg Júlía. Hún segir að þegar hjón séu farin að vinna langan vinnudag til að geta borgað skuldir og sinna svo börnum og heimili þess á milli gleymi þau oft að hugsa um sig sem persónur í parsambandi. „Þau hætta að tala saman um annað en rekstur heim- ilisins og bamauppeldi og missa sjónar á kjamanum eða því hvað leiddi þau saman í upphafi. Hætta er á að hjónin fjarlægist hvort ann- að og leiti annarra sambanda. Þeg- ar þessi staða er komin upp getur verið stutt í annan vanda eins og framhjáhald," segir Helga Sædís. Félagsráðgjafamir hjá Aðgát era þvi oft að vinna með hjónum í að tala saman á ný eins og þau gerðu í tilhugalífinu, það er verið að draga betur upp á yfirborðið þá vináttu og virðingu sem var. Hver á að gera hvað? Sigríður Anna er viss um að ef ung pör gerðu fjölskylduáætlun í upphafi mætti forðast mörg vandamálin síðar meir. „Ætli fólk að eyða saman lífinu er um að gera að setjast niður og finna út hvort hugmyndir þess um hjóna- band fara saman.“ Hún segir að æskilegt sé að pör spyrji sig hvemig þau komi til Verð 10.880 Brúðguminn Innifalið í öllum tilboðum eru pottar með ungverskum söltum, vatnsgufur með aroma olíum, ungverskur andlitsmaski og höfuð, háls og herðanudd í pottum. Brúðardraumurinn verður að veruleika Brúðurín Pakki 1 Andlitsbað Litun og plokkun Handsnyrting Fótsnyrting Vax að hné Pakki 2 Líkamsskrúbb Spirulínuinnpökkun Litun og plokkun Handsnyrting Verð 9.775 Pakki 3 Húðhreinsun Litun og plokkun Lökkun og þjölun Verð 4.840 Pakki 1 Líkamsskrúbb Spirulínuinnpökkun Hand- og fótsnyrting Verð 8.460 Pakki 2 Líkamsskrúbb 55 mínútna nudd Hand- og fótsnyrting Verð 7.950 Pakki 3 Húðhreinsun Hand- og fótsnyrting Verð 4.590 Planet Pulse • Hótel Esja • Sími: 5881 700 • Email: planetpulse@p lanetpulse.is með að skipta vinnu utan heimilis og innan. Hvenær er tími til kom- inn að kaupa húsnæði og á að safna fyrir útborguninni eða taka lán? Eigum við að leggja fyrir mánaðarlega og ætlum við að kaupa nýjan bíl á fimm ára fresti? Hvernig eigum við að umgangast kreditkort? Ætlum við að eignast börn og hvenær? Munum við hafa nægan tíma fyrir bömin? Allar þessar spurningar og aðr- ar á svipuðum nótum eru mikil- vægar og hún bendir á að oft komi upp í samtölum við hjón að annað þeirra segist alls ekki hafa verið tilbúið í bameignir, húsakaup eða annað slíkt þegar ráðist var í það á sínum tíma. Þær em þó allar sammála um það að mikill munur sé á hjónum um tvítugt í dag og þeim sem era að nálgast fertugsaldurinn hvað snertir fyrirhyggju í þessu sam- bandi. „Hugsunarhátturinn er að breytast og pör era farin að skipu- leggja líf sitt í auknum mæli.“ Það kemur reyndar á daginn að meðal- aldur hjóna sem til þeirra leita er um fertugt og algengara er að eig- inkonumar sýni frumkvæði og panti hjónaviðtal. Karlarnir era þó famir að panta hjónaviðtal oftar en þeir gerðu. Nauðsynlegt að byggja upp sjálfstraust Þær segja að pör þurfi líka að þekkja sig vel og hafa byggt upp eigið sjálfstraust áður en gengið er í hjónaband. Sveinbjörg Júlía segir reynsluna sýna að fólk sem búið er að gera upp við sig hvað það vill sé betur í stakk búið til að taka tillit og búa með annarri manneskju en manneskja sem ekki er búin að gefa sér tíma til sjálfsskoðunar. „En við megum ekki gleyma því að það er eins og sjálfstraustið aukist líka með aldr- inum,“ segir Sigríður Anna. Húsverkin rifrildisefni En era húsverkin og uppeldið eitt af algengustu ágreiningsefn- unum? „Já, tvímælalaust," segja þær. „Þama komum við aftur að upphaf- inu,“ segir Sigríður Anna. „Fólk er að gera svo mikið í einu og hjónin era bæði þreytt. Þá getur það orðið að stórmáli hver vaskar upp eða setur í þvottavélina. Það er mikil- vægt fyrii- pör að átta sig á hvar streituþröskuldurinn liggur og reyna að draga úr öllu heimatil- búnu álagi eins og hægt er.“ Þær segjast líka enn verða var- ar við að konan taki á sig ábyrgð heimilisins jafnvel þó hún vinni úti. „í þeim tilfellum sem konan vinnur kannski hlutastarf þykir sjálfsagt að hún sé svo fram á mið- nætti að sinna heimilinu á meðan karlmaðurinn hefur það kannski náðugt með bók eða fyrir framan sjónvarpið. Þetta er þó að breytast með yngri kynslóðinni." Sigríður Anna bendir á að verk- efnalisti hafi gefist mjög vel. „Ég hef iðulega útbúið verkefnalista með hjónum sem leita til mín. Þá er deilt niður verkefnum og hversu oft þau skuli unnin. Það er hjónum yfirleitt mikill léttir þegar þau eru farin að vinna eftir listanum.“ Koma viðhorf til heimilisstarfa ekki oft úr upprunafjölskyldum? „Jú, auðvitað. Hjónin era með mismunandi bakgrunn, þau hafa hlotið mismunandi uppeldi og hluti af undirbúningi fyrir hjónaband er auðvitað að kynnast uppranafjöl- skyldu makans,“ segir Helga Sæ- dís. „Hjónin geta síðan í samein- ingu ákveðið hvaða siði og venjur þau vilja taka með sér úr uppruna- fjölskyldunum og hvað þau vilja skilja eftir. „ Framhjáhald og áfengisnotkun Hvernig geta hjón komið í veg fyrir framhjáhald og þarf ekki líka að ræða atriði eins og áfengis- neyslu? Þær hugsa sig aðeins um en segja svo að ef kuldi sé kominn í hjónabandið sé framhjáhald al- gengara en ella. „Þegar ástin fer forgörðum í hjónabandinu, hjónin gleyma að hlú að sálinni og hversu mikilvægt það er að elska og vera elskaður þá fara hjón jafnvel að leita út fyrir hjónabandið," segir Sigríður Anna. „Ef ekki er ein- hugur um hversu mikil áfengis- notkunin á að vera geta hjónin staðið frammi fyrir stóram vanda,“ segir Sveinbjörg. „Þegar áfengisneysla annars aðila er vandamálið í hjónabandi er í raun erfitt að vera með fólkið í með- ferð. Það næst enginn árangur fyrr en makinn hefur tekist á við áfengisneyslu sína. Enginn ætti að ganga með það viðhorf í hjóna- (£pað sem pöt eettu að teeða um 'fjytit hjónabanðið Kif* (Zpjameiqnit og ■\tjúj)bövn Cjt’ rejp’jíinnáí og skutðasöfynun ^JJœnlmgar til tijónabandsim Pyitfjbminrjalí/j og vinálta C a ' <*§ameiginUg áhugamát CZs’ ©Jltvinna og heimilisstövf Cs’ ^JJiráinrj oj fytitqefning <§Jbfcnghnolkun CS“ ^btfjimnarfjpUkjida CS' (^Kjnlrf band að hann breyti maka sínum. Makinn verður að vilja það sjálf- ur.“ Kurteisi og fyrirgefning Hvað með svívirðingar og ljótan munnsöfnuð í hjónabandi? „Því miður er ljótur munnsöfn- uður alltof algengur meðal hjóna sem eru að fara útaf sporinu,“ seg- ir Sigríður Anna og hún segir að mjög oft litilsvirði hjón hvort ann- að og kurteisi og fyrirgefning séu löngu gleymd orð í hugum þeirra. „Það hjónanna sem oft notar ljót orð gagnvart maka sínum hef- ur oft vanmetakennd gagnvart honum,“ bætir Helga Sædís við og Sveinbjörg Júlía segir að virðing fyrir hvort öðra sé ekki sjálfgefin og misjafnt sé hvað hjón þoli mikið álag áður en vamirnar bresti og vaðið sé blint áfram. Þær era einhuga um að upprifj- un fyrri rifrilda sé slæm fyrir sam- bandið. „Hjón eru kannski að rifja upp átta til tíu ára gömul rifrildi og ágreiningsmál. Hvað hefur það upp á sig? Hvað varð um fyrirgefn- ingu, skilning og tillitssemi?“ Hvað með uppeldi? Veldur það ágreiningi? „Það getur verið álagsþáttur í hjónabandi,“ segir Helga Sædís. Hún telur að auk þess sem vinnan við uppeldi geti skapað togstreitu þá sé ekki síður ágreiningur um leiðir í uppeldi. „Hjónin koma með mismunandi bakgrunn og hafa því 6 D MORGUNBLAÐK) fimmtudagur 13. maí 1999

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.