Morgunblaðið - 13.05.1999, Side 7

Morgunblaðið - 13.05.1999, Side 7
Þau ganga í hjónaband í ágúst Rómantíkin BLÓMSTRAÐI í PARÍS Hreiðar Örn Stefánsson og Sólveig Ragnarsdóttir ætla að hafa sól- blóm á hverju borði i brúðkaupsveislunni, enda minna þau á París. mismunandi sjónarmið uppi um leiðir í uppeldi. Sumir aðhyllast mjúkan aga, aðrir harðan." Svein- björg Júlía og Sigríður Anna segja að það eigi við hér að lengi búi að fyrstu gerð og þegar hjónin ræða siði úr upprunafjölskyldum ættu uppeldismál líka að vera uppi á borðinu. Hvað með stjúpbörn? „Þegar þannig aðstæður eru fyrir hendi þá krefst hjónaband mikils undirbúnings. Pör ættu endilega að vinna fyrirbyggjandi vinnu með því að leita sér aðstoðar strax' og þau finna að eitthvað sé í uppsiglingu. Þær telja að afbrýði á báða bóga sé mjög algeng. „For- eldrar eru í vörn fyrir börnin sín, bömin eru í vörn gagnvart nýjum maka foreldris og síðan getin- tog- streita myndast á milli þeirra bama sem koma í heimsókn um helgar og þeirra sem búa á heimil- inu. Þá hafa bömin upplifað sorg og missi þegar skilnaður við annað foreldri þeirra varð og allt eru þetta tilfinningar sem þarf að skoða og taka tillit til. Sá sem ekki býr með börnum sínum er ef til vill með samviskubit yfir því að búa ekki lengur hjá þeim en vera þess í stað hjá bömum sem hann á ekki. Það er staðfest að skilnaðar- tíðni er hærri meðal stjúpfjöl- skyldna." Er hann til, lykill að farsælu hjónabandi? „Hjónaband er sérlega flókið samband og það er ekki til neinn einn lykill sem gengur að þeim öll- um. Það er að minnsta kosti hægt að fullyrða að í slíku hjónabandi er ekki erfitt að segja fyrirgefðu og fyrirgefa. Fólk í góðu hjónabandi ber virðingu fyrir hvort öðra, það sýnir þörfum hvors annars skiln- ing og er tillitssamt og það getur leyst ágreining og jafnvel rifist án þess að skapa illdeilur.“ eirra huga er það engin spurning; í brúðkaupinu verða sólblóm hvert sem litið er og sr. Jón Þor- steinsson á að gefa þau saman. Hvers vegna? Jú, sólbómabreiður mættu þeim í Frakklandi þegar rómantíkin tók að blómstra hjá þeim í ágúst 1996 og það var sr. Jón sem fékk Sólveigu til að fara í þessa örlagaríku hópferð með ungu fólki úr Kjalamesprófasts- dæmi. Þau Hreiðar Örn Stefánsson og Sólveig Ragnarsdóttir vissu hvort af öðru fyrir Parísarferðina en það var ekki fyrr en komið var þangað sem þau fundu að eitthvað annað og meira en kunningsskapur var í gangi. Það varð ekki aftur snúið eftir ferðina og nú ætla þau að ganga í hjónaband hinn 21. ágúst næstkomandi. Fór á hnén Hreiðar segist hafa beðið Sól- veigar með viðeigandi hætti, farið á hnén og beðið um hönd hennar. „Þetta er alveg rétt hjá honum,“ segir hún og bætir við að sá kafli bónorðsins hafi vissulega verið mjög rómantískur. „En um leið og jáinu sleppti hjá mér og ég ætlaði að fara að segja eitthvað fallegt hringdi farsíminn og Hreiðar stökk á fætur til að svara. Þetta vora bara ósjálfráð viðbrögð hjá honum að svara í símann, því hann er alltaf með hann á sér.“ „Um leið og ég var búinn að svara í símann sá ég hversu fjarstæðukennt það var að vera að tala í símann um leið og ég var að biðja konunnar." -En hvernig ætla þau að hafa brúðkaupið? „Ég er úr Mosfellsbæ og það má kannski segja að brúðkaupið beri keim af því,“ segir Sólveig. Sóknarpresturinn okkar þar, sr. Jón Þorsteinsson, gefur okkur saman í Lágafellskirkju og síðan syngja félagar úr kór Bústaða- kirkju, þvi þar starfar Hreiðar sem umsjónarmaður safnaðar- starfsins. Veislan verður haldin í Hlégarði og þar sem ég vann í Mosfellsbak- aríi ætlar Hafliði Ragnarsson að baka brúðartertuna." Þau era ekki enn búin að gera upp hug sinn með veislufóngin en Hreiðar aðhyllist grillveislu ef veðrið verður gott. Þegar talið berst að fatnaði kemur í Ijós að Sólveig er þegar búin að máta tvo ólíka kjóla og á erfitt með að gera upp hug sinn. „I raun hef ég ekki fúndið neinn kjól sem ég féll alveg fyrir.“ Hreiðar vill vera með í ráðum. Hann hótar meira að segja að sjá þá alfarið um sinn klæðnað. Hún segir að það gæti endað með ósköpum. „Hann væri vís til að mæta í gömlum íslenskum sveitabúningi ef því væri að skipta.“ Hún segir að móðursystir henn- ar reki hárgreiðslustofuna Önnu á Selfossi og hún ætlar að sjá um hárgreiðsluna. Ást er ... Þegar Sólveig var unglingur klippti hún í mörg ár út úr Morg- unblaðinu litlu rammana sem bera heitið Ást er. Þessa ramma ætlar parið að nota á brúðkaupsdaginn. „Við erum að hugsa um að útbúa minningabók með þessum römm- um eða nota þá á einn eða annan hátt í veislunni." Systir Sólveigar, Anna Bima, ætlar að taka að sér veislustjómina en Hreiðar og Sól- veig bjóða á annað hundrað gest- um í brúðkaupið sitt. Þegar veisl- unni lýkur á að fara út að borða með nánasta skyldfólki. - En hvers vegna ákváðu þau að láta gifta sig? „Þegar við voram búin að taka þá ákvörðun að vera saman hvarfl- aði aldrei neitt annað að okkur en að láta gifta okkur,“ segir Hreiðar. „Frá upphafi höfum við haft öll mál uppi á borði, við eram í sam- búð og leysum málin um leið og þau koma upp. Hjá okkur era eng- in leyndarmál. Við ætlum ekki að ganga í hjónaband oftar á lífsleið- inni og þess vegna á þessi dagur að vera eftirminnilegur.“ - Á að fara í brúðkaupsferð? „Það getur vel verið að við skreppum í nokkra daga til London eða Parísar en við eram að minnsta kosti búin að ákveða að brúðkaupsnóttinni verður eytt í nýja húsinu okkar, sem verið er að reisa. Það verður fyrsta nóttin okkar þar.“ Væntanlegt i júní og jútí SjÓNVARPSSKÁPUR j Hæð: 180 cm Breidd: 90 cm Dýpt: 60 cm Verð kr. GLERSKÁPUR Hæð: 190 cm Breidd: 90 cm Dýpt: 45 cm .. SKAPUR „MATA HARi“ I hurð. Hæð: 184 cm Breidd: 94 cm Dýpt: 46 cm . Ysc&Jsl GLERSKÁPUR 4 hurðir (2 með gleri) Hæð: 185 cm Breidd: 102 cm Dýpt: 46 cm Verðkr. JU f} KOMMÓÐA Með 4 skúffum Hæð: 85 cm Breidd: 100 cm Verð kr. 39.000 SJÓNVARPSSKENKUR með 3 skúffum. Hæð: 74 cm Breidd: 55 cm ...Y£[SÁL SKÁPUR með 8 skúffum. Hæð: 151 cm Breidd: 48 cm Dýpt: 40 cm VerS kr. VEGGBORÐ OG STÓLL ÚR SMÍÐAJÁRN! Veggborð VcrgJcr, \22.000 Stóll með sessu YfíSÁÍ^ 7.9001 SKAPUR Með 6 skúffum. Hæð: 198 cm Breidd: 103 cm Dýpt: 43 cm Yerfkr., 00 ar brúðargjafir fyrir alla KOMMÓDA með 12 skúffum. Hæð: 108 cm Breidd: 61 cm ...YetSJu. KOMMOÐA með 6 skúffum. Hæð: 142 cm Breidd: 86 cm Qjafir í öllum verðftokkum. Qjqfakort, handunnin uara, listmunir og syeglar í miklu úrvali. GLERSKÁPUR með I skúffu. Hæð: 185 cm Breidd: 102 cm Dýpt: 46 cm XuMi. fify-í* 2ja sæta með sessi Lengd: 150 cm XslUl Með skúffu. Hæð: 76 cm Breidd: 80 cm Dýpt: 40 cm ____ 112.900 Opnunartimi: K!. 10-18 mán.-íös. K!. 10-16 lau. BÓKASKÁPUR „ALMARl" Hæð: 198 cm Breidd: 106 cm Dýpt: 31 cm Yerö.fo, Bæjarhrauni 14 135.P00 &$r)ekor220 "“Þor/Mi p ... sími 565 3 710 Freemanshusmu MORGUNBLAÐK) fimmtudagur 13. maí 1999 D 7

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.