Morgunblaðið - 13.05.1999, Side 16
Bað hennar
í Hrísey
Hann sótti hana í vinnuna
og sagðist ætla með hana
í óvissuferð um helgina.
Hún var gjörsamlega
grandalaus og vissi ekki fyrr en
þau voru lögð af stað yfir fjöll og
fimindi. Leiðin lá út í Hrísey og
þegar þau voru búin að koma sér
fyrir á gistiheimili fór hann með
hana í gönguferð. í sjávarmálinu
dró hann upp kampavínsflösku og
hringlaga öskju með trúlofunar-
hringum.
„Eg stóðst þetta ekki,“ segir
Ingibjörg Dungal og brosir sínu
blíðasta þegar hún er beðin að
rifja upp hvernig bónorðið bar að
en síðastliðinn laugardag, hinn 8.
maí, vora hún og Pór Amarson
gefin saman í Háteigskirkju.
Ferðin til Hríseyjar var farin
fyrir tæpum tveimur árum en þau
segjast bara hafa verið að bíða
eftir rétta tækifærinu til að taka
skrefið til fulls.
Athöfnin fór fram í Háteigs-
kirkju sl. laugardag og það var sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir sem
gaf þau saman. Reynir Jónasson
lék á orgel, Hrönn Geirlaugsdótt-
ir á fiðlu og Valgerður Guðna-
dóttir söng einsöng. Lögin völdu
Þór og Ingibjörg í sameiningu.
Veislan var haldin í félagsheim-
ili kirkjunnar og eftir að hafa
skálað í kampavini fyrir brúð-
hjónunum var gestum boðið til
kvöldverðar. Fram eftir kvöldi
fengu gestir síðan að njóta nær-
veru brúðhjónanna sem eftir mið-
nætti létu sig hverfa í svítuna á
Hótel Esju. Daginn eftir héldu
Ingibjörg og Þór í brúðkaupsferð
til Taílands þar sem þau dvelja
um þessar mundir.
„Ég og Hildur systir múi fundum
mynd af kjól á Netinu og ég fór
síðan með þessa mynd til hönn-
uðanna Ásu Láru Axelsdóttur og
Melenu Daggar Þorsteinsdóttur
hjá Eðalklæðum sem útfærðu
hugmyndina og saumuðu kjól-
inn." Ingibjörg segir að kjóllinn
sé í raun mjög breyttur frá upp-
runalegu myndinni en hann er
einfaldur og ytra efnið er flauels-
blúnda sem var pöntuð frá París.
Bæði Þór og Ingibjörg voru grátt leikin af nánustu vinum helgamar
fyrir stóra daginn. Það kom Þór gjörsamlega í opna skjöldu þegar rúta
sótti hann og félagamir færðu hann í gamla lopapeysu. Þór var síðan
látinn standa fyrir utan þar sem Sjálfstæðisflokkurinn var með mót-
töku fyrir Ólaf G. Einarsson og krefjast úrsagnar íslands úr Nato. Eins
og sést á myndinni veit Geir H. Haarde vart hvað hann á að halda.
Vinkonur Ingibjargar klæddu hana upp sem Dolly Parton og létu
hana m.a. troða upp íKaffivagninum og kynna plötu sína íBlómavali.
Ingibjörg tók daginn snemma og fór í hárgreiðslu til Erlu á Prima-
donnu og Kristín Stefánsdóttir sá um að farða.
Móðir brúðarinnar, Áslaug Katrin Pálsdóttir, skálar hér í kampavíni
við dóttur sína Ingibjörgu áður en hún klæðist brúðarkjólnum.
Stóra stundin er að renna upp. Hildur Dungal, systir Ingibjargar, er
að aðstoða hana við að klæðast brúðarkjólnum.
Foreldrar Þórs, Örn Marinósson og Ragnheiður Þorgeirsdóttir, að-
stoða brúðgumann við að klæðast smókingnum.
Brúðhjónin In
Brúðhjónin Þór Arnarson og Ingil
Dungal voru gefin saman í Háteigskirl
Sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur.
Best að láta brúðarvöndinn í vatn.
Aðeins að púðra brúðgumann fyrir myndatöku
16 D MORGUNBLAÐIÐ fimmtudagur 13. maí 1999