Morgunblaðið - 13.05.1999, Side 18

Morgunblaðið - 13.05.1999, Side 18
 Ragna segir að Margrét Ásta hafi verið með íráðum þegar kjóllinn var valinn þvíhöfuðmáii skipti að hún sé ánægð með brúðarkjólinn og finni sig í honum. Guðrún Sverrisdóttir og Þórunn Gunnarsdóttir sáu síðan um að farða oggreiða Margréti. Blómvöndinn sá Ingibjörg Guðnadóttir um. Þetta er í raun sama greiðslan en liöfuðskrautið er annað. Lifandi blóm eru notuð hér í stað brúðarslörs. Ef konan er ÁNÆGÐ GEISLAR HÚN f konan er sjálf ánægð með kjólinn þá geislar hún,“ segir Ragna Gísla- dóttir, eigandi Brúðar- kjólaleigu Efnalaugar Garða- bæjar, þegar hún er beðin að velja kjól á Margréti Ástu. „Ég var komin með nokkra kjóla sem ég sýndi henni og valið snerist í lokin um hennar smekk,“ segir hún. Ragna segist vera mjög ánægð með valið, kjóllinn hæfi útliti Margrétar Astu mjög vel en hann er kremlitaður og efri hlutinn gullbrókaður sem hún segir að sé mjög vinsælt um þessar mundir. „Kjólamir í ár eru rómantískir en einfaldir og mjög glæsilegir." Á Garðatorgi er auk brúðar- kjólaleigunnar starfrækt hár- greiðslustofan Cleó og Snyrti- höllin. I sameiningu sáu Ragna, Guðrún Sverrisdóttir hár- greiðslumeistari á Cleó og Þór- unn Gunnarsdóttir fórðunar- fræðingur um að finna út heild- arútlitið í samvinnu við Mar- gréti. Hanna María Jónsdóttir hjá Karin Herzog sem einnig er með aðstöðu á Garðatorgi plokk- aði Margréti Ástu og litaði. Klassísk og kvenleg greiðsla „Ég taldi að það hæfði per- sónu Margrétar Ástu að greiðsl- an væri klassísk og kvenleg. Margrét Ásta var með ljósar strípur þegar hún kom til okkar og við ákváðum að lita hárið í samræmi við húðlit hennar, í rauðgylltu," segir Guðrún. Þór- unn segir að litimir eigi að tóna við hárið og brúðarkjólinn og þar sem Margrét er með fallegar varir og hvítar tennur ákvað hún að draga það sérstaklega fram. „Það em engir sérstakir litir í tísku því það er afar mismunandi hvað fer hverjum og einum. Samvinna er lykilorðið og að reyna að ná fram persónu brúð- arinnar. Engar prufugreiðslur Guðrún segist helst ekki gera pmfugreiðslu og Þómnn er sama sinnis hvað snertir fórðun- ina. „Það er ekkert að marka slíkt því allt breytist þetta svo þegar komið er í kjólinn." En hvað um hárið, em sér- stakir tískustraumar ráðandi í brúðargreiðslum? „Nei það er ekki hægt að segja það,“ segir Guðrún. „Greiðslumar fara eftir aldri brúðar og síðan þarf til dæmis að gæta þess að brúðurin verði ekki stærri en tilvonandi eiginmað- ur.“ Guðrún segist gjaman nota lifandi blóm í hárið á sumrin en á vetuma perlur og kristalsteina sem minna á ís og snjó. Stundum býr sjálf til hárskrautið ef hún finnur ekkert sem hentar. „Mér finnst mjög gaman að aðstoða „ Við ákváðum að lita hárið í samræmi við húðlit hennar, í rauðgylltu og litimir sem notaðir eru í förðuninni taka mið af háralit og kjóln- um,“ segja Þómnn og Guðrún. konumar setjast niður með þeim og kynnast manngerðinni og velja útfrá því greiðsluna og hár- skrautið. Ungar konur em kannski til í að prófa meira en þær sem eldri em og velja klass- ískt útlit.“ Brúðarvöndinn sá Ingibjörg Guðnadóttir hjá Ráðhúsblómum um. Akveðið var að hafa brúðar- vöndinn lítinn. „Þetta er lítill og látlaus vöndur en aðeins öðravísi en gengur og gerist. í vöndinn valdi hún leonidas rósir í rauð- brúnu og sex mismunandi teg- undir safari greina. Það er svo bergflétta sem vefur sig eftir stilkunum. „Kjólarnir í ár em róm- antískir en einfaldir og rnjög glæsilegir", segir Ragna Gísladóttir. 18 D MORGUNBLAÐIÐ fimmtudagur 13. maí 1999 ðimiKgk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.