Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 22
Þornmr Þorbergsson og Tine B. Hanscn segja að ferskir
ávextir séu áberandi á brúðkaupstertum í sumar.
Jói Fel segir að pör velji óhefðbundnar kökur en þó er
frönsk súkkulaðiterta einna vinsælust.
Jóhannes Baldursson segir kampavínsfrómas hafa vakið
athygli að undanförnu.
Brúökaupstertur sumarsins
Styttur víkja
FYRIR RÓSUM OG RIFSBERJUM
Þormar Þorbergsson og Tine B. Hansen.
Hápunktur brúðkaups-
veislunnar var alltaf
þegar brúðhjónin komu
brosandi að borðinu og
tóku af brúðkaupstertunni plast-
styttu af brúðhjónum og skáru
svo saman fyrstu sneiðina. Þetta
var eitt af þeim augnablikum sem
alltaf var fest á filmu og allir biðu
eftir.
Sum brúðhjón halda enn í þessa
hefð og láta styttuna tróna á
toppnum. I auknum mæli fær hún
að víkja fyrir rósum og rifsberj-
um. Stundum mæta bakarar í full-
um skrúða og skeri kökusneiðar
handa brúðhjónum og gestum.
Ekki eru mörg ár síðan hægt
var að ganga að því vísu að undir
marsípaninu væru sígildir
„svampbotnar" með niðursoðn-
um ávöxtum og þeyttum rjóma á
milli nú eða þá góðu sérrífrómasi
að hætti mömmu.
En nú er öldin önnur og botn-
arnir orðnir brúnir, jafnvel blaut-
ir franskir súkkulaðibotnar með
líkjörs-, kampavíns- eða fersku
ávaxtafrómasi.
Ferskir ávextir áberandi
Þormar Þorbergsson og Tine
B. Hansen reka Kaffi Konditori
Copenhagen og þau sérhæfa sig í
kökugerð. Þormar er nýkominn
af sýningu í Lyon í Frakklandi og
segir að þar beri kökurnar svip
af árstímanum. „Núna var úrval
ávaxta fjölbreytt og því mjög vin-
sælt að nota jarðarber, brómber
og aðra ferska ávexti sem uppi-
stöðu í brúðkaupstertur.“
Hann segir að oft komi parið
með eigin óskir sem reynt sé að
útfæra. „Yfirleitt kemur parið í
pantaðan tíma hjá okkur og þá
get ég sýnt því myndir af tertum
svo það átti sig á því hvað hægt
er að gera.“
Það sama er reyndar uppi á
teningnum hjá Jóa Fel hjá bak-
aríi Jóa Fel og hjá Jóhannesi
Baldurssyni í Alfheimabakaríi.
Þeir setja iðulega upp fundi með
parinu, sýna því myndir og gefa
jafnvel að smakka á botnunum
um leið og farið er yfir hvernig
tertan á að líta út.
Súkkulaðitertur
Þormar bendir á að máli skipti
hvort kakan eigi að vera sem eft-
irréttur eða á kaffihlaðborði.
Hann segir að ef kakan sé hugs-
uð sem eftirréttur megi hún
gjaman vera létt og fersk. Hefð-
bundnari kökur henta á kaffi-
hlaðborð. Jói Fel er þó á því að
tertan á kaffihlaðborðinu megi
vera eins og konfektmoli, hún
eigi að skera sig úr.
Allir eru þeir sammála um að
fólk sé mjög hrifið af súkkulaði-
tertum í stað hvítra botna og
gjarnan vilji það fá botna með
ekta súkkulaði, blauta franska
súkkulaðiköku. Þormar segir að
mesta athygli hafi kökur með
ferskum ávöxtum hlotið í vor og
Jói Fel hefur verið að kynna þá
nýjung að láta marsípanið leggj-
ast á kökuna eins og dúk og vera
með rósir í sterkum litum sem
skraut. Slíkar kökur hafa fengið
mikla athygli hjá honum. Jó-
hannes segir að hjá sér hafi
kampavínsfrómasið vakið forvitni
og síðan sé fólki ekki sama
hvemig bakka það fær undir
kökuna. „Eg er óhræddur við að
fara ótroðnar slóðir fyrir þá sem
það kjósa. Ég er til dæmis stund-
um með sykurkrem (frosting) að
hluta til sem ég flambera ofan á
tertunni og það kemur skemmti-
lega út.“
Þeir benda á að það sé áber-
andi hvað fólk er tilbúið að
breyta til, hafa kökurnar óhefð-
bundnar. Hvað með parið á
toppnum? Em plaststytturnar á
undanhaldi?
Jói Fel
„Auðvitað era alltaf einhverjir
sem vilja halda í hefðir og nota
sígilda styttu en fóik er í auknum
mæli farið að vilja í staðinn
súkkulaðiskraut, eða ferska
ávexti," segir Jóhannes. Jói Fel
segist stundum búa til styttur úr
sykri og Þormar og Tine hafa bú-
ið til styttur úr marsípani. Þá
getur fólk ráðið háralit og fengið
litina á fótunum til að vera þann
sama og brúðhjónin klæðast á
brúðkaupsdaginn.
Jói Fel bendir á að súkkulað-
iskrautið sem hann búi til sé
hægt að fá í öllum hugsanlegum
litum og það sé vinsælt. Þá sé
líka fallegt að nota rósir og Jó-
hannes segist ekki hika við að
nota greinar og blóm úr náttúr-
unni.
- Hvað þurfa pör að panta
tertu með löngum fyrirvara?
Þeir eru sammála um að best
sé að hafa góðan fyrirvara og
segja að þegar sé farið að panta
kökur fyrir árið 2000. „Ef fólk vill
vera visst um að það fái bakar-
ann sem það vill til að gera kök-
una og geti valið um mismunandi
bakka þá borgar sig að hafa að
Jóhannes Baldursson
minnsta kosti hálfs árs fýrirvara
á pöntuninni."
Við báðum bakarana að lokum
að gefa lesendum uppskrift að
einhverju gómsætu sem ætti
heima í brúðkaupsveislu.
Dökkar truflur
með hunangi
600 g dökkt valhrona (56%)
súkkulaöi
75 g lynghunang
4 dl rjómi
60 g smjör
Hakkið súkkulaöiö og setjið í
skál. Setjiö hunang og rjóma í
pott og hitiö aö suöu. Helliö stö-
an yfir súkkulaðið og hrærið vel
í á meöan. Bætið í smjörinu
þegar þaö er oröiö mjúkt og
hræriö vel. Hellið þessum
massa í form og setjið plast yfir.
Kæliö. Rúllið massann í kúlur
og veltiö þeim uppúr kakói eða
hökkuðum heslihnetum. Þá má
einnig velta þeim uppúr bráönu
súkkulaði ef vill.
Þormar og Tine
Frábœrt úrvaí trúlofunar-
og giftmgarhringa.
Yfir 50 tegundir í 8 og 14 kt gulli.
VerS frá kr. 12.700,- 3 mm sléttir hringir.
Eiginhandaráletrun fáanleg inn í hringa!
Sendum myndalista.
Úr og Skartgripir, Strandgata 37,
220 Hafnarfjörður. Sími 565 0590.
22 D MORGUNBLAÐHD fimmtudagur 13. maí 1999