Morgunblaðið - 13.05.1999, Síða 26

Morgunblaðið - 13.05.1999, Síða 26
Mynd/Bonni Birta finnur angan af vendi móður sinnar, Kolbrún- ar Gísladóttur, og Baldur Davíðsson hlær. Mynd/Þórir Sígild brúðkaupsmynd af Þórunni og Jónasi sem giftust ll.júh' 1998. "BKee _, r. \ IJf Ifí I /L ðtt SotR ’9g0 ■ GJAFABRÉF MORGUNBLAÐSINS Komdu brúðhjónunum á óvart og gefðu þeim áskrift að Morgunblaðinu. Gjafabréf með áskrift er tilvalin gjöf fyrir fólkið sem er að hefja búskap en einnig er tilvalið að láta gjafabréfið fylgja annarri gjöf. Áskriftin getur verið mánuður eða meira, allt eftir óskum hvers og eins. Hafðu samband eða komdu í Morgunblaðshúsiö, Kringlunni 1 og fáðu allar nánari upplýsingar um gjafabréf fyrir áskrift að Morgunblaðinu. ÁSKRIFTARDEILD Sfmi: 569 1122/800 6122 . Bréfsími: 569 1155 . Netfang: askrift@mbl.is Brúðkaups- myndir Ljósmynd er líklega besta leiðin til að varðveita augnablik, enda leggja flest brúðhjón áherslu á myndatökuna. Brúðkaupsmyndir eru margvíslegar og fjölbreyttar, en sígild mynd af ham- ingjusömu, nýgiftu fólki er alltaf falleg. órir H. Óskarsson ljós- myndari heldur upp á sextugsafmæli sitt í dag og á 40 ára starfsafmæli síðar á þessu ári. Hann hefur því langa reynslu af brúðkaups- myndatökum og segist hrifnast- ur af sígildum brúðarmyndum. „Mér finnst allt í lagi að bregða á leik og taka nokkrar öðruvísi myndir, en aðalbrúðarmyndin á að mínu mati ekki að vera hálf- gerð grínmynd eins og þær sem verið hafa áberandi á síðustu ár- um.“ Hann segir ljósmyndastíl sinn hafa breyst lítillega gegnum tíðina, en kveðst aldrei hafa elt tískustrauma. „Brúðarmyndir eru uppi við árum og áratugum saman og þær verða því að standast tímans tönn. Yfirleitt finnst mér persónulegast að brúðarmyndir séu teknar ná- lægt, þó þannig að brúðarvönd- urinn sjáist. Mér finnst ekki skipta öllu máli að fólk brosi, heldur að það sé afslappað og ánægt á svip.“ Þórir ráðleggur þeim sem hafa börn með á brúð- armynd að fá einhvem fullorðinn til að koma með bömunum á Ijósmyndastofuna og fara með þau um leið og búið er að taka myndir af hópnum. „Þá er hægt að einbeita sér að brúðhjónunum sjálfum, en þótt gaman sé að hafa böm með á myndum, finnst mér að aðalbrúðarmyndin eigi bara að vera af brúðhjónunum." Bonni: Reyni að fanga hamingju Ljósmyndarinn Bonni tekur talsvert af brúðarmyndum og segir smekk fólks afar misjafn- an, sumir vilji bara eina góða brúðarmynd, aðrir mjög margar og enn aðrir vilji myndir úr kirkju og veislu. „Ljósmynda- stofa er þjónustufyrirtæki sem á að mæta óskum viðskiptavina sinna. Sjálfum finnst mér heppi- legast að gert sé ráð fyrir myndatöku á stofu, en ef veður leyfir getur verið gaman að koma við á fallegum stað á leið í veisluna, til dæmis í skrúðgarði og taka nokkrar myndir þar.“ Hann segist aðallega reyna að fanga á mynd þá hamingju og gleði sem fylgir því að gifta sig. Gott sé að brúðhjón láti vita hvort þau hafa sérstakar óskir eða væntingar, en mestu máli skipti að ljósmyndari hafi auga fyrir stemmningu og góðum augnablikum til að festa á filmu. eðalskartgripir ... e i n s ta kl ega vel unnir og fallegir skartgripir -5Ámmd WATWtæs *inta Acacsssoftir* KRINGLUNNI 8-12 REYKJAVlK SÍMI: 588 7230 FAX: 588 7232 WWW.LEONARD.IS DUTY FREE STORE KEFLAVlK AIRPORT SlMI: 425 0800 FAX: 588 7232 WWW.LEONARD.IS 26 D MORGUNBLAÐIÐ fimmtudagur 13. maí 1999

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.