Morgunblaðið - 13.05.1999, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 13.05.1999, Qupperneq 28
Hvernig boröbúnaö velja brúðhjón? Stakir diskar EÐA TÓLFMANNA STELL? Fyrsta fína stellið sem fékkst hér á landi. llar stelpur fara einhvern tímann á stúfana og sanka að sér ósamstæð- um bollum og diskum frá frænkum sínum, mömmum og ömmum - og efna svo til veislu ein- hvers staðar úti í móa? Einbeittar á svip vanda þær sig við að leggja á borð; setja röndóttan disk hér, rósóttan bolla þar, kaffikannan er hvít og hankalaus, sykurkarið kol- svart og það vantar á það lokið. Veitingamar í þessu teiti eru hins- vegar meira fyrir augað en bragð- laukana; drullukökur með steinum í stað rúsína; en engu að síður fag- urlega skreyttar með fíflum, strá- um og sóleyjum. Sennilega er það einmitt úti í þessum móa sem draumurinn kviknar hjá flestum húsfreyjum framtíðarinnar; draumurinn um að eignast tólf manna matar- og kaffi- stell og þá allt í stíl. Sumar byrja jafnvel að safna fljótlega eftir fermingu meðan aðrar bíða fram yfír bónorðið - og biðja um bolla- pör og borðbúnað í brúðargjöf. Skrautlegir diskar En það eru ekki bara íslenskar brúðir sem viija eiga fallegan borð- búnað; úti um allan hinn vestræna heim dreymir konur um glæsileg „uppdekkuð“ borð. Ef marka má það virðist það hinsvegar fara vax- andi víða í Evrópu að konur safni ekki heilum stellum, heldur stök- um diskum, bollum og desertskál- um. Pær halda áfram að setja sam- an röndótta og rósótta diska eins og þær gerðu í móanum forðum daga. Sumar vilja þó hafa eitthvert „þema“ í postulíninu; safna t.d. bara diskum með fuglum eða rós- um á meðan aðrar vilja eingöngu bolla og skálar með bláu eða bleiku mynstri. Að sögn þeirra sem til þekkja liggur heilmikil hugsun á bak við þetta val. Stílhrein stell kalla á stílhreinar samræður og stundum svolítið yfirborðskennt kurteisishjal. Litríkir og skraut- legir diskar gefa gestunum hins- vegar ákveðið frelsi. Frelsi til að hafa dálítið skrautlegar skoðanir, losa um bindið og hlæja hátt, ef þannig liggur á þeim. Fáguð stell kalla fram fáguðu og formlegu hliðina á gestunum; skrautlegu diskarnir fjörugri og líflegri fram- komu. Gamaldags stell „Það er afskaplega sjaldgæft að konur búi til sín eigin „stell“ með því að blanda saman stökum disk- um en það er samt alltaf ein og ein sem kýs að hafa þann háttinn á,“ sagði Sædís Jónsdóttir hjá Hirti Nielsen er við bárum það undir hana hvort þetta væri að færast í aukana hérlendis. „Ætli það sé ekki svona 1 af hverjum 200,“ giskaði hún á. „Við erum líka með meira af „fínni“ stellum og trúlega er nú algengara að fólk geri þetta með hversdagsstellin sín. Við er- um t.d. að fá nýtt eldhússtell á næstunni og þar eru diskarnir hver með sínum lit.“ Að sögn Sæ- dísar er það mjög algengt að brúð- hjón leggi inn óskalista í verslun- inni og þeir listar eru vandlega varðveittir í mörg ár á eftir. „í sumum stellum eru kannski fjórar tegundir af súpuskálum, þrjár gerðir af kaffibollum o.s.frv.,“ út- skýrði hún, „með þessu móti er alltaf hægt að fletta upp nákvæm- lega hvaða kaffibollum konan safnar ef einhver vill t.d. gefa henni bolla í afmælisgjöf." - En hvað er í tísku í borðbún- aði í dag? „Það er alveg greinilegt að flest- ir vilja „gamaldags“ stell,“ upp- lýsti hún. „Þessi „antík-tíska“ er gegnum gangandi bæði í borðbún- aði og húsgögnum. Og svo eru te- bollamir óskaplega vinsælir, unga fólkið virðist drekka mun meira te en hinir sem eldri eru.“ „Off-white“ diskar með silfurrönd Gestrún Gestsdóttir hjá Kosta Boda segir að kannski sé það að- eins að aukast að fólk blandi sam- an ólíkum stellum en það heyrir þó til algjörra undantekninga. „Hins vegar erum við með stell sem heit- ir Bopla og nýtur mikilla vinsælda og þar er enginn diskur eins. Það eru þekktir hönnuðir sem hanna þetta stell sem er mjög sterkt og má setja bæði í uppþvottavél og örbylgjuofn," bætti hún við. Kosta Boda býður upp á „óska- listaþjónustu" fyrir brúðhjón eins og margar aðrar verslanir. „Og við geymum listana ár eftir ár svo það er alltaf hægt að fletta upp vilji menn gefa hjónunum glös, hnífa- pör eða diska t.d. í afmælis- eða jólagjafir,“ upplýsti hún. Aðspurð um strauma og stefnur í postulíni kvaðst Gestrún verða vör við það að margir vildu „off-white“ stell fremur en alhvít. „Ymist vill fólk hafa einhverja gyllingu á diskun- um eða platínurönd. Silfur virðist vera að sækja í sig veðrið og margir sem vilja hafa silfraða rönd á borðbúnaðinum í stað gylltrar,“ sagði hún að lokum. Mávastellið stöðutákn á íslandi Það stell sem lengst af hefur verið nokkurs konar stöðutákn á Islandi er mávastellið eða mávur- inn eins og það er gjarnan kallað. Flestir eiga einhverjar minningar tengdar þessu stelli, hafa drukkið heitt súkkulaði úr mávabollum hjá ömmu á jólum eða sötrað kaffi úr þeim í fermingarveislum hjá fjar- skyldum frænkum. Sigurveig Lúðvíksdóttir í Kúnígúnd hló þegar við rifjuðum þetta upp. „Já, mávurinn var nokkurs konar stöðutákn hér á ár- um áður,“ sagði hún, „enda var þetta fyrsta „fína“ stellið sem fékkst hér á landi. Það hefur verið framleitt í Danmörku frá árinu 1897 og kom hingað í kringum seinni heimsstyrjöldina þegar inn- flutningur var mjög takmarkaður. I þá daga þótti það afar fínt að vera „sigldur" og þeir sem fóru með Gullfossi til Kaupmannahafn- ar fjárfestu gjarnan í svona stelli. Samt framleiddi Bing og Gröndal fjöldann allan af öðrum gullfalleg- um stellum eins og brúnu rósina, 28 D MORGUNBLAÐK) fimmtudagur 13. maí 1999

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.