Morgunblaðið - 30.05.1999, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 B 17
efni og bent á það til sanninda-
merkis að upptökur á fyrstu breið-
skífu hennar tóku þrjú ár. Þeir fé-
lagar hlæja mikið þegar þeir rifja
upp sögur um að þeir hafi setið í
hljóðverinu sólarhringum saman,
reykt hass og tekið upp, samfleytt í
þrjú ár.
„Víst tók það okkur þrjú ár að
taka plötuna upp, en það var bara
vegna þess að við höfðum ekki efni
á að kaupa okkur samfelldan tíma í
hljóðveri; keyptum okkur smá-
skammta þegar færi gafst,“ segja
þeir félagar. „Það byrjaði allt með
því að við hittum þann sem átti
hljóðverið Hvarf í Mosfellsbæ og
fórum að spjalla við hann. Hann
bauð okkur að mála húsið sitt fyrir
stúdíótíma og þannig byrjuðum við
að vinna. Eftir það áttum við ekki
pening í langan tíma og gátum því
ekki haldið áfram og svo fór Georg
út í kvikmyndaskóla og við vorum
mikið til í pásu á meðan.“
Þeir félagar segja að platan hafi
breyst mjög mikið á þessum tíma
sem vonlegt er, en þeir voru líka að
breyta henni fram á síðustu stundu
og til að mynda voru umfangsmikl-
ar breytingar gerðar á henni þegar
frumeintakið var gert. „Við vorum
búnir að ganga frá lögunum en
breyttum henni mikið í samsetn-
ingunni, bættum við allskyns hljóð-
um og breyttum stemmningunni ...
það er ekkert heilagt," segir Jón
Þór og Georg heldur áfram: „Það
hefði kannski verið skynsamlegt að
byrja upp á nýtt eftir svo sem tvö
ár, en það var samt gott að klára
þetta, að losa sig við lögin og byrja
alveg upp á nýtt. Okkur finnst
erfitt að gera sama hlutinn tvisvar
og þannig eigum við oft erfitt með
að æfa fyrir tónleika, eyðum æfing-
unum í að semja ný lög í stað þess
að æfa þau gömlu, og spilum því yf-
irleitt meira af nýjum lögum á tón-
leikum en gömlum."
„Það væri miklu skemmtilegra
að spila bara ný lög í Óperunni,"
segir Jón Þór hugsi. „Við erum
alltaf einu stigi á undan ... þegar
við vorum að kynna Von vorum við
aðallega að spila lög af þessari
plötu og það verður eins þegar við
fórum að kynna Ágætis byrjun."
Eilítið meiri tíma
Þeir félagar tóku sér skemmri
tíma í að taka upp Ágætis byrjun,
en lögin eiga sér sum langan að-
draganda, upp undir tveggja ára
gamlar hugmyndir. Þeir hófu upp-
tökur um síðustu verslunarmanna-
helgi og hugðust gefa plötuna út
fyrir jól, byrjuðu af krafti og luku
við alla grunna á skömmum tíma,
en sáu fljótt að þeim myndi ekki
auðnast að ljúka við plötuna á til-
settum tíma. „Við vitum hvenær
lögin eru tilbúin, finnum það,“ seg-
ir Jón Þór, „og þau voru ekki tilbú-
in.“ Kjartan tekur í sama streng og
segir að þó vinnan sé nú loks búin
og platan i framleiðslu ytra hefðu
þeir í sjálfu sér gjarnan viljað hafa
eilítið meiri tíma, því það sé erfitt
að sleppa hendi af lögunum.
Eitt af því sem tafði vinnuna var
að platan var tekin upp í tveimur
hljóðverum, annars vegar í hljóð-
veri sem Jón Þór og Kjartan eiga
með öðrum, en síðan var tekið upp
og hljóðblandað í Sýrlandi i erfið-
um næturlotum. „Vitanlega væri
best að geta tekið plötuna upp og
unnið í sama hljóðverinu, það er
hægt hér,“ segir hann og
bandar með hendinni, „en við
hefðum ekki orðið almenni
lega sáttir.“
Lög Sigur Rósar vaxa
eins og af sjálfu sér á tón-
leikum, byrja gjarnan með
stefi sem magnast í há-
reista hljómaborg. Þeir fé-
lagar segja að eins sé með
tilurð laganna í æfinga-
húsnæðinu, einhver spil-
ar stef, finnur stemmn-
ingu og síðan mótast
lagið smám saman með
innleggi frá hverjum og
einum. „Georg kemur
með einhv'erja eitraða
bassalínu," segir Jón
Þór og Kjartan held-
ur áfram: „Og svo kemur
Jón Þór með fiðlubogann, ég legg
mitt til og loks syngur Jón Þór lag-
línu. Við erum svo samstiga að við
vitum alltaf nákvæmlega hvað
Sigur Rósar
vaxa eins og af
sjálfu sér á tónleik-
um, byrja gjarnan
með stefi sem
magnast í háreista
hljómaborg.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
passar saman og hvað gengur
upp.“ „Lögin breytast líka hjá okk-
ur eftir að búið er að taka þau upp
og gefa út, við erum alltaf að móta
þau,“ segir Georg. Kjartan sam-
sinnir þessu og segir að mörg lag-
anna á Ágætis byrjun eigi eftir að
taka stakkaskiptum á tónleikum og
jafnvel aldrei hljóma eins.
Þóttu hippalegir
Þeir Sigur Rósarfélagar voru
framan af síðhærðir og síðskeggj-
aðir og þóttu hippalegir. Tónlistin
hefur og verið kölluð hippatónlist,
hægfara spuni og seigfljótandi lag-
línur. Þeir félagar hlæja að þeirri
samlíkingu, en segja svo af meiri al-
vöru: „Við lásum það í dönsku tón-
listartímariti að við værum ægilegir
hasshausar og heróínfíklar. Það er
kannski hægt að hlæja að þessu en
það er leiðinlegt að lesa svona bull
um sjálfan sig í útlöndum," segir
Georg og Kjartan heldur áfram:
„Við vorum að spila í framhalds-
skóla úti á landi fyrir stuttu og fór-
um meðal annars í útvarpsviðtal
þar sem við vorum bara eins og við
eigum að okkur að vera. Eftir við-
talið sá skólastjórinn ástæðu til að
koma til Jóns Þórs og vara hann við
því að vera ekki að neinum hass-
reykingum í skólanum. Vitanlega
er þetta afkáralegt, en það verður
víst ekki komist undan kjaftasög-
unum.“
Meðal sérkenna sveitarinnar og
eitt það fyrsta sem menn taka eftir
er að Jón Þór leikur á gítarinn með
boga, en í upphafi var enginn bogi,
bara hefðbundið gítarspil. Smám
saman náði boginn þó yfirhöndinni
og hefur öll völd í dag. Á plötunni
nýju eru þeir þó að mála með breið-
ara litaspjaldi og Jón Þór segist
telja að verklagið við gítarinn eigi
eftir að þróast enn um sinn; það sé
engin stefna að nota eitt umfram
annað, bara það sem hljómar rétt.
Sigur Rós vekur meðal annars
athygli fyrir að nota hefðbundin
hljóðfæri til að flytja tónlist sem oft
er kennd við tölvur, svonefnda um-
hverfishljóma, ambient-tóna. Jón
Þór segir gaman að vissu marki að
nota rafhljóðfæri, „það er persónu-
legra og gerir tónlistina timalausari
að skapa eitthvað nýtt með gömlum
hljóðfærum. Við notum vitanlega
líka tölvur við að vinna tónlistina,
setja plötuna saman og skjóta inn
hljóðum og svo notuðum við þær
líka í lagi af Von sem við endurunn-
um.“
Á plötunni brydda þeir félagar
upp á ýmsu fyrir stemmninguna,
kór, strengjum og blás-
arasveit, sem þeir segja
að hafi verið mjög
, skemmtilegt. Þeir út-
l( settu sjálfir strengina,
notuðu til þess tölvu-
forrit og prentuðu út
nóturnar sem þeir
sögðu lærdómsríkt,
„það hljómaði allt
öðruvísi en við héld-
um,“ segir Jón Þór
og flissar. Blásar-
---------arnir fengu aftur á
móti frjálsar
hendur, þeir voru
, beðnir um
I ákveðna
j stemmningu og
svo blésu þeir að
vild. Ekki verður gott að
endurskapa allt sem á plötunni er á
tónleikum, sem þeir virðast reynd-
ar taka létt, en þeir hyggjast þó
hafa strengi og blásara á útgáfu-
tónleikunum í Óperunni, helst þó
með þá högun á að þeir spili eftir
eyranu eða stemmningunni, en ekki
eftir nótum.
Heillar flesta
Sigur Rós heillar flesta sem í
hljómsveitinni heyra, ekki síst á
tónleikum, og virðist skipta einu
hvort menn eru dansboltar eða
hreinræktaðir rokkarar. Þeir segj-
ast og verða varir við það að fólki
finnist það heyra mjög mismunandi
hluti út úr tónlistinni; sumir heyri
gamalkunna hljóma, aðrir framúr-
stefnulega ambient-tónlist og enn
aðrir framúrstefnurokk eða ný-
bylgju. „Fyrir vikið getum við hitað
upp fyrir hvaða hljómsveit sem er,“
segja þeir félagar og bæta við að
þeim finnist gaman að leika á tón-
leikum, ekki síður en að vera í
skúrnum að semja. „Það fer auðvit-
að eftir stemmningunni, en vissu- *
lega þreytast menn á því að vera sí-
fellt að spila á stöðum þar sem
kerfið er ekki í lagi og enginn tími
er fyrir undirbúning og aðstaðan
slæm, eins og allar hljómsveitir
þurfa að ganga í gegnum þegar
þær eru að byrja. Það var til að
mynda gaman að spila á flugskýlis-
tónleikum Gus Gus um daginn fyrir
það hversu hljómurinn var magnað-
ur,“ segir Jón Þór en Kjartan er
ekki á sama máli, segist lítið muna
eftir þeim tónleikum, hann hafi
spilað eins og vélmenni. „Það er
mest gaman að spila á litlum stað
með góða stemmningu, að ná til
allra í salnum.“
Sigur Rós hefur helst verið rædd
manna á millum, lítið verið í fjöl-
miðlum og þeir félagar hafa að auki
verið tregir til að halda tónleika.
„Við kunnum því betur að aðrir leiti
tO okkar en að við séum sífellt að T
hampa okkur og leita eftir sam-
neyti við fjölmiðlafólk. Það verður
ekki hjá því komist að fara í viðtöl
og mæta í myndatökur þegar mað-
ur er að kynna eitthvað nýtt, en það
er best að hafa það í hófi. Við höf-
um líka verið latir við að spila á tón-
leikum en gefum þeim meira af
okkur þegar þar að kemur, það er
betra að láta langt líða á milli tón-
leikanna."
Eins og getið er í upphafi kemur
Ágætis byrjun út 12. júní næstkom-
andi og þann dag verða haldnir tón-
leikar í íslensku óperunni. Þeir fé-
lagar eru þegar teknir að undirbúa
þá tónleika, tryggja að sviðsumbún-
aður verði réttur, lýsing góð og
kerfi, enda verður mikið lagt í þá
tónleika. Þá hyggjast þeir helst
leika lög af plötunni, enda útgáfu-
tónleikar, en það fljóti nokkur ný
lög með.
Síðustu útgáfutónleikar sveitar-
innar voru haldnir á óvenjulegum
stað, í kapellu Valsmanna á Hlíðar-
enda, sem þeir segja hafa verið
mikla upplifun, þó ekki hafi hljóm-
ur í kapellunni verið góður. „Það
var svo góður andi þar inni,“ segir
Jón Þór, „að hljómurinn skipti ekki <
meginmáli.“ Georg tekur í sama
streng: „Það skiptir svo miklu máli
hvernig maður er sjálfur stemmdur
og ef við náum vel saman getum við
yfirstigið hljóminn.“
Lærðir fegurðarsmiðir
Þegar spilað er með boga á gítar
er verið að glíma við ólgandi óreiðu,
móta hana og skapa úr henni feg-
urð. Jón Þór segir að þeir séu að
temja dýrið og bætir við eftir stutta
umhugsun að þeir félagar pæli mik-
ið í hljómum og hljóðum. „Það er
kannski ekki rétt að segja að við
liggjum yfir hljóðum, en við erum
fljótir að meta hvort þau séu
„réttu“ hljóðin eða ekki og þá sam-
taka, kannski ómeðvitað." Von var
nánast samfelld plata, hvert lag
tengist næsta lagi á eftir með hljóð-
brú og eins verður með Ágætis
byrjun, þó platan hefur breyst
verulega á lokastigum og þeir fé-
lagar segja að þeir vilji helst vera
að breyta og fínpússa fram á síð-
ustu stundu, „á meðan við komumst
með puttana í hana,“ eins og Kjart-
an orðar það. í fyrstu samsetningu
plötunnar var mikið um aukahljóð
og fléttur á milli laga, en í lokagerð-
inni var mun minna um slíkt, enda
segjast þeir hafa áttað sig á þvi að
þeir voru að gera of mikið, meðal
annars fyrir ábendingu frá útgef-
anda plötunnar.
Ekki er bara að platan verði að
vera sem næst fullkomnun að nið-
urröðun og samsetningu, umslagið
skipti lítið minna máli að þeirra
mati. Líkt og þeir hanna hljóma- og
hljóðaheiminn á plötunni hanna
þeir umslagið, sem er víst óvenju
flókið í vinnslu. „Umbúðimar mega
ekki verða síðri en innihaldið, það
verður að vera samhljómur," segja
þeir. Þeir eru þó ekki lærðir grafík-
listamenn, Georg reyndar lærður í
kvikmyndagerð, en Ágúst, sem er
hættur í sveitinni eins og fram hef- "
ur komið, er sleipur í myndvinnslu í
tölvu og umslagið var mildð unnið
hjá honum. Þeir leggja heldur ekki
mikla áherslu á nám, eru lítt lærðir
í tónlist, utan Kjartan, en eins og
Jón Þór orðar það svo smekklega:
„Við erum lærðir fegurðarsmiðir.“
I