Morgunblaðið - 23.07.1999, Side 4
4 C FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Pétur Pétursson
tekur við Keflavík
Stjórn knattspyrnudeildai'
Keflavíkur ákvað í gærkvöld
að leysa Sigurð Björgvinsson og
Gunnar Oddsson, þjáifara liðsins,
frá störfum. Pétur Pétursson hef-
ur verið ráðinn í stað þeirra, að
sögn Rúnars Amarsonar, for-
manns knattspymudeildar.
Rúnar sagði að gengi Keflavík-
urliðsins hefði valdið miklum von-
brigðum og það væri skoðun
stjómar deildarinnar að liðið gæti
gert mun betur en það hefði sýnt í
ieikjum í sumar. „Við emm engan
veginn sáttir við framgang liðsins
og það virðist ekki ætla að rífa sig
upp úr þeirri lægð sem það er í
þrátt fyrir sigur gegn Víkingum í
kvöld,“ sagð Rúnar. Hann sagði að
ákvörðun stjómar deildarinnar
hefði verið erfíð enda hefðu Gunn-
ar [Oddsson] og Sigurður [Björg-
vinsson] unnið gott starf fyrir fé-
lagið og hann vildi nota tækifæri
og þakka þeim fyrir samstarfíð.
Sigurður er hættur störfum hjá
félaginu en Gunnar ætlar að spila
áfram með liðinu, að sögn Rúnars.
Rúnar sagði að ákvörðun um að
ráða nýjan þjálfara hefði ekki leg-
ið lengi í loftinu. „Við töldum að
ekki væri hægt að bíða lengur
með að ráða nýjan þjálfara og von-
umst til að Pétur [Pétursson] geti
fleytt liðinu ofar í deildinni," sagði
Rúnar. Pétur Pétursson hefur áð-
ur þjálfað Keflavík. Hann tók við
liðinu í júlí 1994 í kjölfar þess að
Ian Ross hætti.
Ekkert fær
stöðvað KR
KR-ingar unnu afar þýðingarmikinn sigur í heimsókn sinni upp á
Akranes, 2:0, og þótt þeir hafi verið einum leikmanni fleiri meiri-
hluta leiktímans þá var sigurinn fyllilega sanngjarn og rökrétt
framhald af leik liðsins á íslandsmótinu. Skagamenn eru aftur á
móti í slæmri stöðu og verða greinilega að skoða gang sinn
gaumgæfiiega og af fyllstu alvöru ef ekki á illa að fara.
Ivar
Benediktsson
skrifar
Skagamenn byrjuðu leikinn þó af
nokkrum krafti og áðm- en kom
að vendipunkti leiksins á 13. mínútu
höfðu þeir fengið
dauðafæri. Kári Steinn
Reynisson fékk send-
ingu frá Stefáni Þórð-
arsyni og var einn á
móti markverðinum en hitti knöttinn
illa og færið fór út um þúfur. Aðeins
tveimur mínútum síðar átti sér stað
atvik sem vó þungt. Þá var Stefán
Þórðarson rekinn af leikvelli fyrir að
slá eða dangla hendinni til Kristjáns
Finnbogasonar, markvarðar KR.
Áður hafði þeim lent saman í baráttu
um sendingu sem barst inn á teiginn.
I framhaldinu hitnaði Stefáni í hamsi
með fyrrgreindum afleiðingum.
Mörgum þótti dómur Ólafs Ragnars-
sonar, dómara, strangur en hann átti
ekki um annað að velja.
Fyrst eftir brottreksturinn höfðu
heimamenn í fullu tré við KR-inga
og átti Gunnlaugur Jónsson m.a.
skalla í slá eftir homspymu og til
Kristjáns markvarðar aðeins þremur
mínútum síðar. Eftir þetta tók að
halla undan fæti og KR-ingar sóttu í
sig veðrið. Þeir vora hins vegar
nokkuð staðir í sóknarleik sínum og
kom það að mestu í veg fyrir að þeim
tækist að færa sér liðsmuninn í nyt.
Guðmundur Benediktsson skoraði
Fj. leikja U J T Mörk Stig
Kfí 10 7 2 1 23:8 23
fBV 9 5 3 1 14:6 18
FfíAM 10 3 5 2 13:11 14
LEIFTUfí 9 3 4 2 8:10 13
GRINDAVÍK 10 3 2 5 11:12 11
VALUfí 9 2 5 2 12:16 11
BREIÐABLIK 9 2 4 3 9:9 10
KEFLAVÍK 10 3 1 6 13:18 10
lA 8 1 4 3 3:7 7
VlKINGUR 10 1 4 5 10:19 7
Markahæstir
7 - Steingrímur Jóhannesson, ÍBV
6 - Bjarki Gunnlaugsson, KR
5 - Kristján Brooks, Keflavík
4 - Grétar Ó. Hjartarson, Grindavík
4 - Guðmundur Benediktsson, KR
4 - Sumarliði Árnason, Víkingi
4 - Uni Arge, Leiftri
2. deild karla:
Völsungur - Tindastóll ..........0:7
Leiknir R. - Selfoss.............0:3
KS - Þór A.......................2:1
3. deild:
Einherji - Huginn/Höttur.........1:3
Leiknir F. - Þróttur N...........1:2
reyndar á 34. mínútu en markið var
dæmt af vegna rangstöðu.
KR-ingar tóku hins vegar öll völd í
upphafi síðari hálfleiks, nú skyldi
láta kné fylgja kviði. Leikmenn vora
mun hreyfanlegri en áður og eyddu
einnig meira púðri í að leika knettin-
um í stað þess að vera í þeim harða
slag manna á milli sem var nokkurt
einkenni á fyrri hálfleiknum.
Enda kom það fljótlega í ljós að
vöm IA tók að bregðast bogalistin. Á
55. mínútu braut KR ísinn með
marki Guðmundar Benediktssonar
eftir góðan undirbúning Bjarka
Gunnlaugssonar. I framhaldinu buldi
hver sóknin eftir aðra á marki
Skagamanna og m.a. fengu Guð-
mundur og Bjarki afbragðsfæri sem
Ólafur Þór Gunnarsson gerði vel
með að verja þeim vegina að mark-
inu. Eina færi Skagamanna sem
kvað eitthvað að var skot Kenneths
Matijane úr vinstri helmingi víta-
teigsins sem Kristján varði vel.
Skagamenn virtust ráðalausir í
leik sínum og þjálfarinn sá ekki
ástæðu til þess að gera breytingar á
liðinu sínu strax við fyrsta mark KR
eins og e.t.v hefði verið ástæða til
þar sem hann var hvort eð er með
tapaðan leik í höndum. Þess í stað
hertu KR-ingar tökin. Engu breytti
fyrir þá að missa David Winnie út af
með rautt spjald á 64. mínútu fyrir
brot á Matijane, til þess vora yfir-
burðir þeirra of miklir.
Engum á óvart bætti Bjarki
Gunnlaugsson öðra marki KR við á
76. mínútu og þar með innsiglaði
hann sigurinn. Skagamenn reyndu
að klóra í bakkann með skiptingum á
síðustu tíu mínútunum en þær
breyttu engu - komu of seint til þess
að bjarga einhverju.
Skagamenn era í veralega slæmri
stöðu og geta ekki lengur vonast eft-
ir því að einhverjar heilladísir gangi í
þeirra raðir, til þess er of mikið í
húfí. Oft á tíðum era leikmenn sjálf-
um sér verstir og er fjöldi rauðra
spjalda sem liðið hefur fengið í sum-
ar eitt dæmi þess.
Ef fram heldur sem horfir fær
ekkert stöðvað KR-inga á leið þeirra
að meistaratitlinum nema þeir sjálf-
ir. Liðið leikur vel, leikmenn era þol-
inmóðir og lengstum skynsamir, það
færði þeim sigur að þessu sinni,
hvers vegna ætti það að þurfa að
breytast?
ÍA
0:2
KR
4-4-2
Ólafur Þór G.
Sturlaugur H.
Guðmundur B. (55.).
Bjarki G. (76.).
4-4-2
Alexander H.
Gunnlaugur J.
Reynir L.
(Ragnar H. 83.)
Pálmi H.
(Unnar V. 80.)
Jóhannes H.
Akranesvötlur fimmtudag-
inn 22. júlí.
Aöstæður: Austan andvari,
hékk þurr. Völlurinn blaut-
ur og mjög þungur.
Áhorfendur: 1.200.
Dómarl: Ólafur Ragnars-
son, Hamrl, 8.
Aðstoðard.: Einar Guð-
mundsson og Ari Þórðar-
son.
Gult spjald: ÍA: Sturlaugur
H. (29.) - brot, K. Mateja-
ne (44.) - brot, Alexander
H. (53.), tuð, Gunnlaugur
J. (86.) - brot. KR: Sigur-
steinn G. (43.) - brot.
Rautt spjald: ÍA: Stefán Þ.
(13.) - sló til markvaröar
KR. KR: D. Winnie (64.) -
brot á Matejane.
Markskot: ÍA 8 - KR 14.
Rangstaöa: ÍA 3 - KR 2.
Horn: (A 3 - KR 3.
0:1 (55.). Bjarki Gunnlaugsson vinnur boltann hægra megin, rétt innan vallar-
helmings ÍA. Sækir hann hratt upp að marki Skagamanna og sendir inn á mark-
teig þar sem Guðmundur Benediktsson var staddur og skoraði af öryggi.
0:2 (76.). Einar Þór Daníelsson vinnur boltann á miöjunni, sendir laglega í gegn-
um flata vörn ÍA þar sem Bjarki Gunnlaugsson kemur á sprettinum og sækir
upp að markinu, leikur hægra megin við Ólaf Þór markvörð og skorar í autt mark-
ið.
Heimir G.
Kári Steinn G.
(Ragnar Á. 80.)
K. Matijane
Stefán Þ.
Sigurður Öm J. Þormóður E. D. Winnie Bjami Þ. m
Sigþór J.
(Arnar Jón S. 73.)
Þórhallur H.
Sigursteinn G. m
Einar Þór D. m
Bjarki G. m
(Indriði S. 78.)
Guðmundur B. m
(Edilon H. 89.)
jjPjl . ■ ■ .
§ i ■B'
í. . ■ ,
m r f/ 1
r áÆW
GUÐMUNDUR Benediktsson fagnar Bjarka Gunnlaugssyni, eftir að li
Guðmundur skoraði fyrra markið eftir sendingi
Sprungin b
Við fengum þrjú stig og það er allt
sem skiptir máli,“ sagði KR-ingurinn
Sigursteinn Gíslason, sem lék í fjölda-
mörg ár með ÍA. „Þeir
Eftir stefán hefðu getað skorað tvisvar
Stefánsson í byrjun en þá skoram við.
Þeir halda áfram að berj-
ast en þegar við svo skorum annað mark
vora þeir eins og sprangin blaðra. Ann-
ars var þetta baráttuleikur, ég sá Skaga-
menn spila við við ÍBV og vera óheppna
að vinna ekki svo að ég vissi á hverju við
áttum von.“
Sigurinn kemur KR-ingum vel fyrir á
toppi deildarinnar. „Sigurinn var mikil-
vægur því nú er pressa á Vestmannaey-
ingum og ég sé ekki að þeim muni reyn-
ast auðvelt að sækja stig á Ólafsfjörð,“
sagði Sigursteinn. „Við höldum áfram að
taka einn leik fyrir í einu og gera okkar
besta því það má ekki misstíga sig neitt
eins og úrslit í leikjum deildarinnar bera
með sér.“
En hvernig var að leika á gamla vellin-
um? „Ég hélt að það yrði ekkert mál en
ég fékk samt smá fíðring fyrir leikinn og
það hefur ekki gerst í mörg ár,“ sagði
Sigursteinn.
„Mér finnst slæmt að þegar við erum
komnir inn í leikinn og búnir að fá tvö
góð færi til að skora að missa mann útaf
- ég skil ekki dóminn, Kristján Finn-
bogason markvörður KR heldur Stefáni
Þórðarsyni og þegar hann, eftir að hafa
þrívegis beðið Kristján að sleppa sér,
hrifsar sig lausan fær hann rautt spjald -
þetta skil ég ekki,“ sagði Logi Ólafsson
þjálfari Skagamanna eftir leikinn. „Eftir
það var tímaspursmál hvenær þeir
myndu skora og það er erfítt að spila
einum leikmanni færri. Þegar þeir missa
líka mann útaf voru þeir komnir með eitt
mark svo að við urðum að taka áhættu
en uppskeram ekkert, heldur fáum á
okkur mark. Staða okkar er því slæm en
stefnan er áfram sú að fara í hvern leik
til að vinna. Ég veit ekki hvað framtíðin
ber í skauti sér en mér finnst ljóst að
slagurinn um fslandsmeistaratitilinn
verði á milli ÍBV og KR.“
Logi skipti inná tveimur sóknarmönn-
um fyrir tvo aðra sóknarmenn á 80. mín-
útu og síðan sóknarmanni fyrir varnar-
mann á 83. mínútu. Spekingar á vellinum
vildu að Logi myndi skipta mun fyrr
inná sóknarmönnum þar sem KR hafði
náð forystu og fríska upp á sóknarleik-
inn. „Ég ætlaði að skipta fljótari manni