Morgunblaðið - 18.08.1999, Qupperneq 29
Þórey Edda Elísdóttir keppir einnig fyrsta mótsdaginn.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðrún Arnardóttir verður í sviðsljósinu á öðrum keppnlsdegi.
hún fyrst frjálsíþróttamanna
til þess.
Landi Jones, Maurice
Greene, heimsmethafi í 100
metra hlaupi, hefur titil að
verja í sinni grein og ætlar
eflaust ekki að gefa hann
eftir átakalaust, enda fótfrá-
astur manna í heimi á þessu
ári og spurning hvort hann
nær aö slá eigið heimsmet,
9,79 sekúndur, sem hann
setti í vor. Bruny Surin og
Frankie Fredericks svo fáein-
ir séu nefndir munu eflaust
halda Kansasbúanum fótfráa
við efniö.
BUBKA ER EINSTAKUR
Einn er sá íþróttamaður
sem hefur unnið einstakt af-
rek á heimsmeistaramótum
sem seint veröur ieikið eftir,
það er Úkraínumaöurinn
Sergei Bubka. Hann hefur
staöiö uþpi sem sigurvegari í
stangarstökki karla á öllum
sex heimsmeistaramótunum
sem haldin hafa verið. Sigur
hans í Aþenu fyrir tveimur ár-
um var ævintýralegur. Þá
hafði Bubka, sem einnig er
heimsmethafi f greininni, ekki
náó sér almennilega á flug
allt sumarið, en kom, sá og
sigraöi á HM. Sama er uppi á
teningnum þetta sumarið,
Bubka er fjarri sínu besta og
fáir reikna með að hinn 37
ára gamli meistari stangar-
stökksins láti mikið að sér
kveða í Sevilla. Engan bilbug
er hins vegar að finna á Bu-
bka og það kemur í Ijós síð-
degis fimmtudaginn 26.
ágúst hvort hann fagnar sjö-
unda heimsmeistaratitlinum.
Heimsmeistaramótið í
Sevilla verður átta daga
veisla fyrir alla unnendur
frjálsíþrótta. Nöfn þeirra
Maurice Green, Marion Jo-
nes, Michael Johnson, Cathy
Freeman, Wilson Kipketer,
Svetlönu Masterkova, Hicham
El Guerroj, Gabrielu Szabó,
Haile Gebrselassie, Astrid
Kumbernuss, Trinu
Hattestad, Hanne Hauglund,
Stacy Dragilu, Emmy George,
Jans Zelesny, Heike
Drechslers, Johns Gotina og
Tomas Dvoráks eiga eftir að
hljóma kunnuglega mótsdag-
ana. Þetta eru aðeins örfáir
þeirra íþróttamanna sem eru
kallaðir til leiks í frjáisíþrótta-
veislu ársins.
Keppnin hefst hjá Jóni Arnari Magnússyni á þriðjudeginum,
fjórða degi keppninnar.
29