Morgunblaðið - 18.08.1999, Síða 46
myndari (Clint
Brýrnar í Madison-
sýslu - The Bridges
Of Madison County
í'95)
^ Roskinn Ijós-
Eastwood) og að öllu jöfnu dagfar-
spníð bóndakona (Meryl Streep),
kynnast af tilviljun og verða ástfangin.
Njótast nokkra heita sumardaga á
meðan bóndinn er á landbúnaðarsýn-
ingu en Ijósmyndarinn heillast af
brúm og öðrum mjúkum formum
heima í héraði. Ástin er ekki ein-
göngu ætluð unglingunum! Sæt og
fín. Bíórásin, 19. ágúst.
Helreiðin - Paths of Glory ('57)
ii. Ómissandi stónnynd öllum Ku-
W brick aðdáendum, og þar með
öllum unnendum sígildra mynda. Kirk
Douglas magnþrunginn sem franskur
herforingi á tímum fyrri heimsstyrjald-
arinnar. Friðelskandi og fullur samúð-
ar með mönnum sínum - sem hann
verður að reka út á blóðvöllinn og
verja síðar þrjá þeirra í málaferlum
vegna hugleysis. Ein óvægnasta og
áhrifankasta stríðsádeila kvikmynda-
sögunnar. Ómissandi. Bíórásin, 28.
ágúst.
JFK ('91)
jj Oliver Stone fer offari í miklum
W langhundi þar sem hann reynir
að afsanna að Lee Harvey Oswald
hafi einn ráðið Kennedy bana á þeim
öriagaríka degi, 22. nóvember ’62.
Sagnfræðin að hætti hússins. For-
vitnilegust fyrir pottþéttan leikhóp þar
sem Kevin Costner fer mikinn í hlut-
verki saksóknarans Jims Garrison og
Tommy Lee Jones ámóta góður sem
sá grunaði. Joe Pesci, Gary Oldman.
Sissy Spacek, Kevin Bacon, Jack
Lemmon, o.fl. RÚV, 20. ágúst.
Málið gegn Larry Flynt -
The People vs Larry Flynt ('96)
ii Bandaríski draumurinn á röng-
& unni. Milos Forman á firna-
sterka endurkomu með áleitinni þjóð-
félagsádeilu byggðri á lífshlaupi
klámkóngsins sem vann sig upp úr
óuppdregnum dreifbýlisvarg í við-
skiptajöfur með því að skáka Play-
boy-veldi Hefners með Hustler. Úti-
stöðum hans við predikara og stjóm-
völd em gerð góð skil. Við erum þó
engu vísari hvort deilt var um prent-
Frumsýningar
í sjónuarpi
frelsið eða hvort þau voru helber
skripaleikur. Hvað um það. Frábær
mynd með Woody Harrelson, Courtn-
ey Love og Forman í banastuði.
Bíórásin, 26. ágúst.
Neðanjarðar - Underground
ii. Margslungin ádeila á stríðsbrölt
fp mannskepnunnar, hvarsem er í
heiminum þó hún gerist í fyrrverandi
Júgóslavíu. Hið margklofna föðurland
leikstjórans, Emirs Kusturica, og póli-
tískar væringar trúarhópa og þjóðar-
brota er kveikjan að þessari kald-
hæðnislegu satíru. Fylgst með vináttu
tveggja Belgrad-búa frá tímum síðari
heimsstyrjaldar fram á tíunda áratug-
inn. Kusturica beinir spjótum sínum
bæði að Sovétkrumlunni, valdaskeiði
kommúnista á eftirstrfðsárunum og
þeim blóðugu átökum sem fylgdu í
kjölfar sjálfstæðisins. Þar sem engin
lausn virðist í sjónmáli og framkoma
allra aðila er til skammar. Þrátt fyrir
allt skyggir líkingasagan hvorki á
dramatíkina né satíruna, gálgahúmor-
inn er hömlulaus í þeirri neðanjarðar-
veröld sem stendur fyrir föðuriandið
og kraftmikil og seiðandi tónlistin
dunar dátt þó allt sé uppnámi. Stöð
2, 29. ágúst.
Strætið - La Strada ('55)
ii. Hvað er minnisstæðast; gáfna-
fp sljóa stúlkan (Giulietta Masini),
aflraunamaðurinn sem kaupir hana
(Anthony Quinn), tónlistin hans Nino
Rota, syfjaðir, ftalskir sveitabæimir,
eða gatan, meginathvarf og bak-
grunnur meistara Fellinis f ofur Ijóð-
rænni mynd um grá og guggin öriög
fjölleikahússfólks í örbirgðinni eftir
seinna heimsstrfð? Masina er átakan-
lega brothætt í smæð sinni og óend-
urgoldinni ást á rustanum sem Quinn
gerir trúverðug skil. Óskarsverðlauna-
mynd sem kom Feilini á kortið. Mikil-
fengleg, þó ekki hans besta. Bíórásin,
25. ágúst.
Villuljós - St. Elmo's Fire ('85)
/ Hvar eru þau núna, Ally
0 Sheedy, Andrew McCarthy, Rob
Lowe, Judd Nelson, Mare Winning-
ham; rjómi unglingalandsliðs
Hollywood á öndverðum níunda árra-
tugnum? Hér skarta þau öllu sínu
skársta í snotru léttmeti um vanda-
mál vinahóps sem haldið hefursam-
an. Bíórásin, 28. ágúst.
Young Cassidy ('65)
Næstsíðasta mynd Johns Ford
minnir lítið á frægari verk meist-
arans. l'rska skáldið Sean O'Casey
(Rod Taylor), á yngri ámm í Dyflinni
er ekki sériega eftirminnilegur í með-
fömm Taylors, frekar nokkrir þunga-
viktarmenn í aukahlutverkum; Mich-
ael Redgrave, Julie Christie, Maggie
Smith, Flora Robson og Jack
McGowran. TNT, 27. ágúst.
IQAMANMYNDIR
Brostu - Smile
(75)
ii Rósin í hnappa-
W gati Michaels
Ritchie, snjalls en
mistæks leikstjóra, er meinfýndin
nærskoðun á fegurðarsamkeppni
ungpía í Kalifomíu. Nánast óaðfinn-
anleg blanda gamans, drama og
heimildarmyndar þar sem satíran er
efst á baugi og smáborgarar allra
landa fá óþægilega á baukinn. Bmce
Dern, Geoffrey Lewis og Michael
Kidd, allir óborganlegir. Bíórásin, 18.
ágúst.
Fló á skinni -
Flea in Her Ear ('68)
Franskættaður, frægur leiksviðs-
farsi um afbrýði og ótryggð fær
svona og svona meðhöndlun. Geor-
ges Feydeau týnist á leiðinni á tjald-
ið. Þrátt fyrir nærvem Rex Harrison,
Rachel Roberts og Louis Jordan. Sýn,
19. ágúst.
Grái fiðringurinn -
Seven Year Hch {'57)
Hver kannast ekki við atriðið er
pilsfaldur kynbombunnar Mari-
lyn Monroe lyftist í dásamlegar hæð-
ir? Billy Wilder leikstýrir og skrifar
handrit bestu myndar gyðjunnar, sem
skartar ekki aðeins fögmm fótleggjum
heldur ósviknu skopskyni. Fer með
hlutverk munúðarfulls nágranna
grasekkilsins Toms Ewell, sem reynir
að hagnýta sér aðstæður þegar kona
hans bregður sér af bæ. Faldafeykir
grasekkilsins lætur ekki glepjast svo
glatt. Besta mynd hinnar ógæfusömu
leikkonu. Sýn, 22. ágúst.
Hann var stríðsbrúður -
I Was a Male War Bride ('49)
Ósvikinn, víðfrægur farsi þar
sem Cary Grant fer á kostum
sem fransmaður sem giftist Banda-
rfkjakonu (Ann Sheridan) í herþjón-
ustunni í Þýskalandi eftir strfðið. Þeg-
ar hún er send heim beitir Grant öll-
um brögðum til að fylgja henni eftir í
drepfyndnum kafla. Leikstjóri Howard
Hawks. Sýn, 20. ágúst.
Jarðarber og súkkulaði-
Fresa y chocolate ('93)
Forvitnileg og fyndin mynd sem
segir frá samskiptum ung-
komma (Jorge Pemgorria) og homma
(Viadimir Cmz), á Kúbu Castrðs. Sá
fyrmefndi mikil kariremba, hinn frið-
elskandi Ijúfur sveinn. Milli þeirra
skapast óvænt vinátta. Kennslustund
í mannlegum samskiptum, umburðar-
lyndi og tillitssemi. Mætti vera
skylduáhorf í íslenskum ökuskólum.
Stöð 2, 22. ágúst.
Lestin brunar -
Silver Streak (76)
Blásaklaus farþegi (Gene Wild-
er) flækist inní slæma atburða-
rás þegar morð er framið í lest á leið
til Chicago. Gamansamur útúrsnún-
ingur á The Lady Vanlshes og inni-
heldur óborganlegan kafla með Wild-
er og Richard Pryor. Frammistaða
þess síðarnefnda skaut honum upp á
stjömuhimininn á Ijóshraða. Er í raun-
inni það besta sem sást til þessa
óiánsama afburðaleikara. Afþreying
sem óhætt er að mæla með fyrir alla
aldurshópa. Sýn, 23. ágúst.
Margfaldur - MuHiplicity ('96)
Lengst af hefur maður átt í
vandræðum með að meta raun-
verulega hæfileika Michaels Keaton,
sem hefur verið upp og ofan eins og
myndirnar hans. Nú tekur hann af all-
an vafa og sannar, í margföldu hlut-
verki margklónaðs einstaklings, að
hann getur haldið mynd gangandi og
ennfremur að hann er óvefengjanlegur
I
é
í
46