Morgunblaðið - 30.09.1999, Side 4
4 C FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Verslunar- og
framleiðslufyrirtæki
til söíu
Til sölu er gamalgróið og traust fyrirtæki í fram-
leiðslu og sölu á keramikvörum. Fyrirtækið er vel
staðsett og markaðsleiðandi á sínu sviði. Hentar
vel sem fjölskyldufyrirtæki. 4—5 ársverk í vinnu.
Góð afkoma. Verðhugmynd 15 millj.
Allar nánari upplýsingar aðeins gefnar á skrifst.
Brynjólfur Jónsson,
fasteignasala, sími 511 1555.
VIÐSKIPTI
Símenntunarnám stjórnenda Landsslma íslands hjá
Stjórnunarskóla Landssimans
Metið til eininga
í háskólanámi
PÓSTURINN
www.postur.is/fjotpostur
UM 120 stjórnendur hjá Lands-
síma Islands hf. stunda nú nám hjá
Stjórnunarskóla Landssímans á
námskeiðum sem nefnast „Sterkt
samband“. Umsjón með námskeið-
unum hefur starfsþróunarfyrir-
tækið Skref fyrir skref ehf., sem
einnig skilgreinir sína starfsemi
sem stjórnendaþjálfun.
„Námskeiðin eru haldin í tveim-
ur hlutum sem nefnast „Sterkt
samband" I og II, og standa þau yf-
ir á 18 mánaða tímabili,“ segir Ket-
ill Berg Magnússon, starfsmaður
Skrefs fyrir skref og verkefnis-
stjóri Stjórnunarskóla Landssím-
ans. Mestöll kennsla fer fram í Við-
ey í formi fyrirlestra, verkefna og
umræðna og fer hún fram í vinnu-
tíma stjórnenda á virkum dögum,
en námskeiðin standa í heild yfir í
um 200 klukkustundir.
„Námsefni er útbúið sérstaklega
fyrir Stjórnunarskóla Landssímans
og eru leiðbeinendur sérfræðingar
Skref fyrir ski-ef ehf., auk utanað-
komandi ráðgjafa, meðal annars frá
Gallup," segir Ketill og bætir við að
setan á námskeiðunum muni ekki
verða metin til launahækkana hjá
stjórnendum Landssímans. Hins
vegar muni nemendur geta fengið
námið metið til eininga í háskóla-
námi, en prófað er í námsefninu á
tímabilinu. Það verður þó ekki met-
ið fyrr en eftir á til hve margra ein-
inga námið teljist gilt.
Vísir að fyrirtækis-
háskóla
Ketill segir að þetta sé í fyrsta
sinn sem svo viðamikið stjómunar-
námskeið sé haldið á vegum Lands-
síma íslands, og taldi að þetta hefði
ekki verið gert fyrr á Islandi. Hann
segir að líta megi á þetta sem vísi
að fyrirtækisháskóla, eða það sem á
ensku nefnist „corporate univers-
ity“.
„Við fórum af stað með tilrauna-
námskeið í lok janúar á þessu ári og
prófuðum námsefnið á hluta stjórn-
enda fyrirtækisins. Árangurinn var
það góður að í sumar var ákveðið að
allir stjómendur Landssímans
verði á þessum námskeiðum," segir
Ketill.
Aðspurður segist hann telja að
ávinningur Landssímans af þessum
námskeiðum sé sá að styrkja fyrir-
tækið í nýjum rekstraraðstæðum.
„Landssíminn er að fara í gegnum
geysilega miklar breytingai-, hugs-
anlega mestu breytingar sem nokk-
urt íslenskt fyrirtæki hefur farið í
gegn um. Með þessu nær fyrirtæk-
ið að þjappa stjórnendahópnum
saman og kenna ný vinnubrögð
sem nauðsynlegt er að beita í sam-
keppnisumhverfi," segir Ketill.
©
Áreiöanleg og skilvirk skjalageymsla er ekki
einungis tímasparandi heldur nýtir þú hús-
næðiö mun betur en ella. Skjöl og ýmis gögn
getur verið hentugt að nálgast fljótt og
örugglega og umfram allt á ódýran hátt því
leitin að einu skjali í óreiðunni getur verið
ærið kostnaðarsöm.
Með FLEXImobile® hjólaskápum geturðu
útvíkkað hið minnsta pláss margfaldlega og
komið skipulagi á skjala- og gagna-
geymsluna.
Hringdu, sendu fax eða tölvupóst og fáðu
bæklinginn sendan til þín.
Hvað viltu iá út úr hillukeriinu þínu?
• Flesta mögulega hillumetra á sem fæsta fermetra.
• Aö geta stækkaö kerfiö í lengd og breidd.
• Aö geta fengiö mismunandi dýpt, hæö og breidd.
• Aö hillukerfiö só öruggt og sé meö innbyggöu öryggiskerfi.
• Aö hillurnar sóu fallegar og passi ínní umhverfiö 6
þínum vinnustaö.
• Aö kerfiö só notendavænt.
• Aö hægt só aö setja kerfiö saman og flytja hillurnar án þess
aö gólfiö veröi fyrir skemmdum
• Allt þetta getur þú fengiö í FLEXImobile hjólaskápunum.
®?Ofnasmiöjan
Háteigsvegi 7 • 105 Reykjavík • Síml 5
il 511 1100
Fax 511 1110 •ofnasmidjan@ofn.is* www.ofn.ls
Að sögn Ketils er námsefnið tek-
ið fyrir í 13 skrefum. Þau eru
stjórnendaþjálfun I, þjónustu-
stjórnun I, starfsmannastjórnun I,
starfsmannasamtöl og frammi-
stöðumat, en sá hluti fer fram þessa
dagana, breytingastjórnun, stjórn-
endaþjálfun II, verkefnastjórnun,
starfsmannastjórnun II og gæða-
stjórnun.
Auk þessara 10 skrefa eru haldin
þrjú málþing, sem eru að sögn Ket-
ils mikilvægur hluti Stjómunar-
skólans.
„Þangað er boðið innlendum og
erlendum sérfræðingum sem halda
fyrirlestra og taka þátt í umræðum.
Nemendur Stjórnunarskólans
munu einnig taka þátt í málþingum
með því að hafa framsögu um efni
sem tengist náminu og starfi þeirra
sem stjómenda,“ segir Ketill.
„Gott samband"
hjá f ramlínufólki
Endurmenntun fyrir starfsmenn
Landssímans í heild er skipulögð í
þremur hlutum. Námskeið fyrir
stjómendur Landssímans nefnast
„Sterkt samband" eins og áður
sagði, og eru allir stjórnendur fyr-
irtækisins þátttakendur í því nám-
skeiði að forstjóra Landssímans
undanskildum. Hann er þó þátttak-
andi í námskeiðunum með þeim
hætti að hann tekur þátt í umræð-
um sem spinnast kring um náms-
efni hvers hluta.
„Traust samband" er nafnið á
námskeiðum sem haldin em íyrir
verk- og flokkstjóra Landssímans,
og em um 50 nemendur í þeim
hluta. Námskeiðin em haldin á 10
mánaða tímabili og eru 150
kennslustundir í þeim.
Loks eru haldin námskeið fyrir
starfsfólk sem á bein samskipti við
viðskiptavini Landssímans, og
nefnast þau „Gott samband". Þátt-
takendur á þeim sitja milli 4 og 12
tíma á þeim námskeiðum, og eru
þátttakendur á þeim að sögn Ketils
um 300 talsins. Annar hluti þessa
námskeiðs hófst nýlega og em þátt-
takendur um 100 af þessum 300
manna hópi, og mun sá hluti standa
yfir í um þrjá mánuði.
-------—
Vinnslu-
stöðin með
46% eftir
sameiningu
SKIPTING eignarhluta í nýju fé-
lagi, sem til verður við samruna Is-
félags Vestmannaeyja hf., Vinnslu-
stöðvarinnar hf., Krossaness hf. og
Oslands ehf., liggur ekki enn fyrir.
Skiptingin verður byggð á endur-
skoðuðum efnahagsreikningum fé-
laganna hinn 31. ágúst sl. sem gert
er ráð fyrir að liggi íýrir um miðjan
október nk., að því er fram kemur í
tilkynningu til Verðbréfaþings ís-
lands.
Miðað við forsendur viljayfirlýs-
ingar um samruna félaganna fjög-
urra frá 22. ágúst sl. verður skipt-
ing eignarhlutanna sem hér segir:
Vinnslustöðin um það bil 46%, ísfé-
lag Vestmannaeyja um það bil 40%,
Krossanes um það bil 8% og Ósland
um það bil 5%.
Þegar tekið hefur verið tillit til
hlutafjáreignar Isfélags Vest-
mannaeyja í Krossanesi hf. fá nú-
verandi hluthafar ísfélagsins í sinn
hiut um það bil 44% í hinu nýja fé-
lagi.