Morgunblaðið - 30.09.1999, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1999 C 11
Benedikt segir notendur PBS,
sem hann kýs að kalla GBS hérlend-
is (greiðslumiðlun banka og spari-
sjóða) munu aðallega skiptast í þrjá
hópa, kröfuhafa, skuldara og banka.
Til að skýra ferlið nánar senda fýrir-
tæki gögn yfir reglulegar greiðslur
til GBS á rafrænu formi. Reglulegar
greiðslur eru t.d. fasteignagjöld, hiti,
rafmagn, sími, áskriftargjöld, leigu-
greiðslur, kreditkortareikningar, af-
borganir lána, barnameðlög, ýmis fé-
lagsgjöld o.fl.
Þegar GBS hefur fengið allar kröf-
ur sendar tii sín frá kröfuhöfum, þá
sendir GBS viðeigandi kröfu á hvem
banka, þ.e. gjöld viðskiptamanna
hvers banka, þar sem reikningar
skuldara eru skuldfærðir. Allt ferlið
á sér stað án þess að mannshöndin
komi nokkurs staðar nálægt. GBS
sér einnig um að senda eitt reikn-
ingsyfírlit á hvert heimili, en hvert
yfírlit hefur að geyma upplýsingar
um alla þá reikninga sem teknir
verða út af bankareikningi skuldara í
næstkomandi mánuði. I stað þess að
öll fyrirtækin séu að senda gíróseðla
á hvert heimili, er einungis sent eitt
yfirlit með öllum skuldfærslum.
Líkt og tilkoma gíróseðla þótti
bylting í greiðslumiðlun hér á landi
fyrir nokkmm ámm þegar einstak-
lingar gátu greitt alla sína reikninga
á einum og sama stað, þ.e. í bönkum
eða sparisjóðum í stað þess að þurfa
að gera sér ferð í öll þau fyrirtæki og
stofnanir sem þeir áttu í viðskiptum
við, þá gætu menn verið að horfa
fram á hliðstæð tímamót með til-
komu GBS.
Tæknilega engar
fyrirstöður til staðar
Guðmundur Hauksson, sparisjóðs-
stjóri SPRON, sem vakti athygli
Benedikts á danska greiðslukerfínu
og var honum innan handar með efn-
isval og framsetningu skýrslunnar,
telur mikilvægt að einhver skriður
komist á hagræðingarmál innan ís-
lenska greiðslumiðlunarkerfísins.
„Menn hafa farið of hægt í þessum
efnum fyrst og fremst á kostnað við-
skiptavina. Þær hagræðingarleiðir
sem forsvarsmenn banka og spari-
sjóða hafa verið að grípa til, hver í
sínu horni, eru vissulega virðingar-
verðar, en þær breyta ekki því að
óhagkvæmni greiðslumiðlunarkerfis-
ins er óviðunandi í núverandi formi.“
Hann kveðst fullviss um að
reynsla Dana, sem Benedikt dregur
fram í rannsókn sinni, sé vel til þess
fallin að leysa vanda greiðslumiðlun-
arkerfisins hér á landi. „Það er ljóst
að tæknilega séð eru engar fýrir-
stöður til staðar. T.a.m. væri hæg-
lega unnt að reka hliðstætt kerfi inn-
an Reiknistofu bankanna og ef vilji
væri fyrir hendi um að ráðast í slíkar
framkvæmdir stöndum við það vel að
vígi tæknilega, að það tæki skamman
tíma að koma kerfinu í gagnið."
Hver bankagjaldkeri
kostar 4 m.kr.
En hvert yrði raunverulegt hag-
ræði af uppsetningu greiðslukerfis
banka og sparisjóða? Guðmundur
telur að fyrir utan allt það vinnuhag-
ræði sem breytingin hefði í för með
sér megi gera ráð fyrir að árlega
sparist samanlagt um einn milljarð-
ur króna. Þar vísar hann í rannsókn
Benedikts um fastan kostnað bank-
anna. Fram kemur að stærstu ein-
stöku kostnaðarliðirnir eru launa-
kostnaður og kostnaður vegna hús-
næðis, húsbúnaðar og tækja. Launa-
kostnaður á hvern starfsmann m.v.
launaflokk 122 og 11% aldursálag er
áætlaður 168.408 krónur, að með-
töldu 60% álagi vegna launatengdra
gjalda. Þannig er árlegur kostnaður
á hvern gjaldkera um tvær milljónir
króna. Gert er ráð fyrir að kostnaður
á gjaldkerastúku vegna húsbúnaðar,
tækja og hugbúnaðar sé 1.800
þús.kr. og afskrifist á 5 árum, þ.e.
360 þúsund á ári. Reikna má með að
ávöxtunarkrafa á fé bundið í rekstr-
arfjármunum sé 15% og meðalfjár-
binding í gjaldkerastúku sé helming-
ur stofnkostnaðar. Þannig er árlegur
kostnaður vegna fjárbindingar 135
þúsund krónur á ári. Árlegt viðhald
gjaldkerastúku, þar með talið hug-
búnaðar vegna afgreiðslukerfa, er
áætlað 130 þúsund. Jafnframt er
gert ráð fyrir að sérhverri gjaldker-
astúku tilheyri 20 fermetrar hús-
næðis. Af því greiðist 1.100 kr. leiga
á hvern fermetra auk 250 krónu
ræstingarkostnaðar á frn. Árlegur
húsnæðis- og tækjakostnaður er því
949 þúsund krónur.
Skýrsluhöfundur telur rétt að
bæta við 35% álagi vegna stjórnunar-
kostnaðar, en samkvæmt norskum
mælingum er húsnæðis- og launa-
kostnaður um helmingur heildar-
kostnaðar við hverja afgreiðslu en
stjórnunar-, tölvu- og annar utanað-
komandi kostnaður hinn helmingur-
inn. Þannig telur Benedikt raunhæft
að áætla að hver bankagjaldkeri
kosti um 4 milljónir króna á ári. Talið
er að af u.þ.b. 625 gjaldkerum sem
starfa í bankakerfinu í dag sinni 260
þeirra allri afgreiðslu vegna greiðslu-
seðla, gíróseðla, tékka og úttekta
með debetkorti. Gjaldkerarnir 260
kosta bankakerfið rúman milljarð
króna á ári, eða um 1.042 milljónir.
Mikið hagrsði
Guðmundur Hauksson bendir á að
sparnaðurinn sé ekki einungis mæld-
ur í krónum talið fyrir banka og
sparisjóði. „Fyrir einstaklinga hefúr
þetta þá breytingu í för með sér að
þeir þurfa mun sjaldnar að fara í
bankann til að ræða við þjónustufull-
trúa og fara yfir sín mál. Sú breyting
ein og sér hefði jafnframt mikinn
þjóðhagslegan sparnað í för með sér
því viðskiptavinir þurfa ekki lengur
að hlaupa úr vinnu til þess að komast
í bankann. í stað gíróseðla komi eitt
greiðsluyfirlit fyrir hver mánaðamót
með öllum útgjöldum heimilisins.
Eins og fram kemur að ofan yrði
hagræði bankanna mikið. Húsnæðis-
og starfsmannaþörf drægist stórlega
saman auk þess sem stórar upphæð-
ir kæmu til með að sparast í tækja-
búnaði. Annað atriði sem ekki má
gleymast er að áætlaður póstkostn-
aður bankakerfisins er í kringum
4-500 milljónir króna á hverju ári.
Með innleiðslu GBS kæmi sá kostn-
aður til með að lækka að minnsta
kosti um helming, eða 250 milljónir
þar sem ekki þarf lengur senda út
rukkanir vegna afborgana af útlán-
um bankanna.“
Guðmundur segist ekki í vafa um að
GBS fengi góðar viðtökur hér á landi
og bendir í því sambandi á að í dag
nota um 83% Dana greiðslukerfí PBS.
Ein leið til að stýra skuldurum inn í
GBS hér á landi að hans mati, væri að
taka upp þóknun íyrir að greiða
reikninga hjá gjaldkerum, líkt og hef-
ur t.a.m. tíðkast erlendis. Þannig yrði
fólk fljótara að tileinka sér hagræði
GBS, skuldurum, kröfuhöfum, bönk-
um og sparisjóðum til góða.
Aðspurður hvort kerfið hafi ekki
einhverja fyrirsjáanlega annmarka í
för með sér, svarar Guðmundur að
kostimir séu margfalt fleiri en gall-
arnir. Auðvitað komi hagræðingarað-
gerðir illa við einhverja en niðurstað-
an sé betri og ódýrari þjónusta við
neytendur. „Sameiginlegt greiðslu-
miðlunarkerfi af því tagi sem hér um
ræðir, ætti ekki að hafa nein áhrif á
markaðshlutdeild banka og spari-
sjóða hér á landi. Eins og nafnið gef-
ur til kynna, yrði kerfið í sameigin-
legri eigu allra banka og sparisjóða
en rekið af Reiknistofu bankanna eða
öðm félagi í eigu bankastofnana. AU-
ar þær hagræðingaraðgerðir sem ein-
stakar fjármálastofnanir hafa ráðist í
til að bæta greiðsluþjónustu við við-
skiptavini sína em góðra gjalda verð-
ar, en standast samt sem áður engan
vegin samanburð við hagræði af GBS.
Þvert á móti má færa rök fyrir því að
sóknarfæri banka og sparisjóða muni
aukast til muna með tilliti til þess að
þjónustufulltrúum kemur til með að
fjölga í kjölfarið á kostnað gjaldkera
sem gefur þessum fyrirtækjum færi á
að bæta þjónustustigið og þar með
styrkja samkeppnisstöðu sína gagn-
vart þeim fjölmörgu aðilum sem em
að sækja inn á þennan markað.
Kostnaður bankanna myndi lækka
sem er forsenda minni vaxtamunar
og meiri samkeppnishæfni út á við,“
sagði Guðmundur.
• • • • •
• * FJÖLPÓSTI
99.500 10.500
www.postur.is/fjolpostur. PÓSTURINN www.postur.is/fjolpostur
VÖRUSTJÚRNUN
Námskeiðið er ætlað: Innkaupa- og lagerstjórum, lagermönnum,
framleiðslustjórum, verkstjórum í framleiðslu, sölustjórum, stjórn-
endum í dreifingu, framkvæmdastjórum minni fyrirtækja, gæða-
stjórum og yfirmönnum tölvumála.
Helstu þættir: Vörustjórnun, birgða- og lagerstjórnun, fram-
leiðslustjórnun, vörudreifing, upplýsingatækni, strikamerkingar,
pappírslaus viðskipti og greining og lausn vandamála.
Námskeiðið verður haldið á Iðntæknistofnun 7. og 8. okt. 1999.
Upplýsingar og innritun í símum 570 7100
eða á vefsíðu Iðntæknistofnunnar http://www.iti.is
Iðntæknistofnun
Keldnaholti, 112 Reykjavík
Viltu komast í fremstu röð?
(slandsbanki - F&M leitar eftir kröftugum og hæfileikaríkum einstaklingum
í störf á spennandi vettvangi.
Viðskiptastjórn
Viðskiptastjórar bera ábyrgð á viðskiptatengslum, leita lausna á
fjármálaþörfum viðskiptavina og markhóps F&M, annast kynningu og sölu
á þjónustu, afla nýrra viðskipta og sjá um lánamál og áhættumat viðskipta.
Fjármögnun
Starfið felst í vinnu við lánsfjármögnun fyrirtækja og opinberra aðila,
fjárfestingarlán, verkefna- og einkafjármögnun.
Umbreyting fyrirtækja
Starfið felst í ráðgjöf og aðstoð við mótun stefnu varðandi samruna,
yfirtöku o.fl., mati á virði fyrirtækja og stuðningi með fjármögnun
eða kaupum á hlutum í félögum.
Leitaó er að einstaklingum með háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði,
verkfræði, eða með sambærilega menntun. Umsækjendur þurfa að hafa
góða samskiptahæfileika, frumkvæði og vera sjálfstæðir (vinnubrögðum.
Framhaldsmenntun æskileg. Um krefjandi störf er að ræða og laun verða
í samræmi við það.
Upplýsingar veitir Steinþór Pálsson hjá F&M i slma 560 8000
eða f tölvupósti; steinthor.palsson@isbank.is.
Umsóknir skilist til Guðmundar Eirlkssonar, starfsmannaþjónustu
íslandsbanka, Kirkjusandi 155, Reykjavík, eða í tölvupósti;
gudmundur.eiriksson@isbank.is, fyrir 8. október 1999.
islandsbanki - F&M er eitt fjögurra afkomusviða Islandsbanka. F&M er leiðandi
á sviði sérhæfðrar fjármálaþjónustu fyrir stærri fyrirtæki, stofnanir og sjóði.
Frekari upplýsingar er að finna á www.isbank.is/fm.