Morgunblaðið - 30.09.1999, Page 12
Viðskiptablað
Moreunblaðsins
Fimmtudagur
30. SEPTEMBER 1999
Fjölmenni á námsstefnu
Gunnars Andra Þórissonar
• A ÞRIÐJA hundraö manns komu í
Borgarleikhúsiö til aö taka þátt I
námstefnu undir yfirskriftinni
„Gæðasala á þjónustuöld", mánu-
dagskvöldið 27. september. Það var
Sölukennsla Gunnars Andra Þóris-
sonar sem stóö fyrir námstefnunni.
Söluferliö var tekiö fyrir í fimm
skrefum, þar sem Gunnar Andri fjall-
aöi um fyrstu kynnin við viöskipta-
vin, hvernig varan er kynnt, listina
aö loka sölu, mikilvægi ánægju við-
skiptavinanna og þjónustu frá upp-
hafi til enda.
Fjöldi erlendra fyrirlesara á
notendaráðstefnu Landsteina
• ARLEGA halda Land-
steinar notendaráð-
stefnu fyrir viöskiptavini
og samstarfsaðila. Að
þessu sinni mun ráö-
stefnan verða haldin á
íslandi dagana 30.
september og 1. októ-
ber á Hótel Loftleiöum.
Til aö tryggja að ráö-
stefnan uppfylli þarfir
viðskiptavina sinna hafa
Landsteinar fengiö til
sín fýrirlesara víöa að.
Jörgen Rahbek frá
Microsoft mun segja frá
SQL Server 7.00. Lars
Bo Jörgensen, Frank
Fugl og Lars Ström frá
Navision Software a/s
munu fjalla um stefnu,
áherslur og framtíöar-
þróun Navision Financi-
als. Þeir munu líka sýna
ráðstefnugestum vænt-
anlegar nýjungar í Na-
vision Financials svo
sem SQL og Sales
Management sem er
nýtt tól fyrir stjórnendur
til að skoöa lykilupplýs-
ingar. Katrín Olga Jó-
hannesdóttir, fram-
kvæmdastjóri Navision
Software íslands, mun
tala um Navision
Software á íslandi.
Ebba Þóra Hvannberg,
lektor viö Háskóla ís-
lands, kynnir Thin Cli-
ent. Að auki munu sér-
fræöingar frá Landstein-
um segja frá því helsta
sem er að gerast hjá
Landsteinum og kynna
nýjar lausnir, þar á
meöal tímaskráningu í
gegnum Netiö.
Nánari upplýsingar
um ráöstefnuna er aö
finna á heimsíðu Land-
steina, www.landstein-
ar.is.
Nýjung hjá Kauphöll
Landsbréfa
• NYVERIÐ tók Kaup-
höll Landsbréfa í notk-
un nýjung á Wall Street
hluta Kauphallarinnar.
Nýjung þessi felur í sér
að viöskiptavinum
Kauphallarinnar býöst
að fylgjast meö „lif-
andi“ rauntímagengi fé-
laga skráðum á Wall
Street.
Gengislisti þessi er
„lifandi" sem gerir þaö
að verkum að allar
gengisbreytingar birtast
jafnóðum og þær eiga
sér stað.
Þjónusta þessi er viö-
skiptavinum Kauphallar-
innar aö kostnaðar-
lausu.
Slóð Kauphallar
Landsbréfa er
www.kaupholl.is.
Tungumálið er ekkert mál
Navisíon Financials
Vinnuumhverfi Navision Financials er einfalt og lipurt
í notkun, ekki síst fyrir þær sakir að kerfið er íslenskað.
Kynntu þér málið hjá fyrirtækinu sem kynnti Navision
Financials fyrst á íslandi.
FOLK/Bernhard A. Petersen
Maður sér alltaf
eitthvað nýtt
Bemhard A. Peter-
sen var ráðinn
fr amkvæmdastj óri
útgáfu- og miðlunarfyrir-
tækisins Vöku-Helgafells
hf. í júní síðastliðinn, og
hóf störf 17. ágúst.
Hvað kom þér helst á
óvart varðandi nýja starf-
ið?
„Það kom mér kannski
helst á óvart hvað fyrir-
tækið er stórt, starfsemin
fjölbreytt og útgáfuefnið
margþætt.“
Pú ert orðinn fram-
kvæmdastjóri fyrirtækis
sem meðal annars gefur út
bækur. Hvað ert þú sjálfur
með á náttborðinu?
„Af því efni sem ég hef
gefið mér verulega góðan
tíma til að lesa las ég seinast
Heimsljós eftir Halldór Laxness.
En þar fyrir utan hef ég ekki lesið
mikið í sumar. Það hefur þá helst
verið efni um stangveiði og stjóm-
un íyrirtækja.“
Hver heldurðu að sé framtíð
bókarinnar?
„Ég held í rauninni að framtíð
bókarinnar sé björt. Maður sér t.d.
hvernig þróunin hefur orðið við til-
komu Netsins. Þó þar séu alls kyns
upplýsingar sem fólk getur sótt
sér hefur þ_að styrkt prentmiðlana
sem slíka. Ég er ekki hræddur við
slíka tækni, enda mun þetta íyrir-
tæki nýta sér þá miðlunarleið eins
og aðrar fyrir efni sitt.“
Þú ert áhugamaður um fótbolta.
Spilarðu sjálfur?
„Ég spila ekki lengur með
meistaraflokki, heldur með „old
boys“ hjá Gróttu. Þar er góður
hópur manna sem hefur spilað
saman í mörg ár.“
En hvað með enska boltann.
Heldurðu með sérstöku liði þar?
„Já, ég held með Liverpool.“
Þú ert einnig áhugasamur um
stangveiði. Er það nýlega tilkom-
ið?
„Nei, þegar ég var smástrákur
byrjaði ég að fara í stangveiði með
föður mínum og frænda. Við höfum
síðan heimsótt sömu ána nánast
hvert einasta sumar. Þetta er
Húsaeyjarkvísl í Skagafirði. Þar er
mjög falleg sveit og gaman að
stunda veiðiskap. Svo hefur það
undið upp á sig og í dag nota ég
Morgunblaöið/Golli
► Bernhard A. Petersen er
fæddur í Reykjavík árið 1964.
Hann útskrifaðist sem stúdent
frá Verslunarskóla íslands árið
1984 og varð viðskiptafræðingur
frá Háskóla íslands árið 1990.
Hann var ráðinn fiármálastjóri
Félagsstofnunar stúdenta árið
1990 og framkvæmdastjóri sama
fyrirtækis árið 1993. Þeirri stöðu
gegndi hann þar til hann var ráð-
inn framkvæmdastjóri Vöku-
Helgafells. Sambýliskona Bem-
hards er Eria Guðmundsdóttir,
sem starfar hjá lceland Review,
og á hún eina dóttur, Diljá Hebu.
stóran hluta af mínu orlofi til að
stunda stangveiði og renna fyrir sil-
ung og lax.“
Fékkst þú þann stóra?
„Ég bætti nú ekki metið í sumar.
Sá stærsti var líklega þrettán
pund. Þetta var mun rýrara sumar
en áður hefur verið. Þó fór að
ganga betur þegar leið á veiðitím-
ann.“
Þú ert útivistarmuður. Er það
íslensk náttúra sem heillar mest
eða hefurðu áhuga á að skoða þig
um á framandi slóðum?
„Ég hef farið nokkuð víða um
heiminn, en finnst hvergj skemmti-
legra að ferðast en á Islandi. Þó
svo að ég hafi komið á staði áður
og veðrið geti verið misjafnt hef ég
alltaf jafn gaman af því. Það er
alltaf eitthvað nýtt og spennandi
sem maður sér.“
Hvaö kostar
aö hringja til
ú tlanda?
LAND DAG- TAXTI KVÖLD- OG NffiTUR- TAXTI
Bandarikin 40 34
Belgía 38 33
Bretland 33 28,50
Chile 155 135
Danmörk 33 28,50
Frakkland 38 33
Holland 38 33
Ítalía 55 48
Japan 73 63
Noregur 33 28,50
Spánn 38 33
Svíþjóð 33 28,50
Þýskaland 33 28,50
dagtaxtx Krönur á minutu. Gíldir frá cS;oo i
tíi iQ:oo ti’ fc'vrópulanda. GLldir irá
o8:oo tU 25.00 tii ahiiaxca Janda. •
KVÖL0’ og Krónur á minútu.Gildir frá 59:00 ;
NÆTURTAXTI tii oS:OCtil Evrópuianria Gilrtirfrá
23:00 tii 08:00 tU armarra landa.
OO til útlcmda
auðvelt að muna
SÍMINN
www.simi.is
■
—
INNHERJI SKRIFAR. . .
STRÍNGíiR
ÁRMÚLA 7, 108 REYKJAVIK, SIMI 550 9000, www.strengur.is
VEÐURFRÆÐI VIÐSKIPTA-
LÍFSINS
• Veörabrigöin í viöskiptalífinu þessa
dagana eru slíkt aö sjálft veðurfar fs-
lenskrar náttúru með öllum sínum
ólfkindalátum, bliknar f samanburðin-
um. í vikunni hefur mátt lesa um
samruna 11 gamalgróinna apóteka í
nýja lyfjaverslanakeðju, Lyf og heilsu,
sem stefnir á skráningu á Verbréfa-
markaði íslands, og nokkur helstu
kjötvinnslufyrirtæki landsins noröan-
lands og austan ásamt Kjötumboðinu
í Reykjavík hafa tilkynnt aö þau muni
um áramótin næstu sameinast í nýj-
an kjötrisa, sem stefnir sömuleiðist á
hlutabréfamarkaði. Síöast en ekki
sfst er þaö síðan sameining SÍF og
ÍS í stærsta fýrirtæki landsins og eitt
stærsta sjávarútvegsfyrirtæki heims.
Þó að sameiningin sé undir nafni
SlF láta gárungarnir ekki sitt eftir
liggja og hafa stungiö upp á því aö úr
þvf aö hlutur SÍF f félaginu sé 2/3 og
hlutur ÍS 1/3, þá sé sanngjarnast aö
SÍF haldi tveimur fyrstu stöfunum og
Is hinum síöasta. Útkoman yröi því
SÍS!
En að slepptu öllu gamni er
kannski athyglisveröast aö sjá hvern-
ig taflið hefur snúist Friöriki Pálssyni í
vil. Hallarbyltingunni f stjórn SH fyrir
aöeins fáeinum misserum lyktaði á
þann veg að Friðrik hvarf úr forstjóra-
stólnum. Vegna reynslu sinnar á salt-
fiskframleiðslu frá þeim tíma er hann
var framkvæmdastjóri Sölusambands
ísl. fiskframleiðenda, var Friðrik litlu
síöar kjörinn stjórnarformaður SÍF.
Eftir sameiningu SÍF og ÍS er Friörik
Pálsson nú oröinn stjórnarformaður
þessa stærsta fyrirtækis landsins
hvaö veltu varöar, og er nú í forystu
fýrir mun öflugra fyrirtæki en því sem
hann veitti áður forystu, þ.e. SH,
sem hefur aftur á móti tekið þá
stefnu aö smækka fremur en
stækka.
Skjótt skipast veður í lofti.
VERÐMAT ÍS OF HÁTT?
• Við samruna SÍF og ÍS í SfF verður
hlutafé SÍF aukiö um 450 milljónir
króna, úr 1.050 milljónum króna í
1.500 milljónir króna, og verður því
hlutafé varið til skipta fyrir hlutafé t
ÍS að nafnviröi 1.100 milljónir króna.
Fá hluthafar í ÍS eingöngu hlutafé í
SÍF við samrunann.
Ef miðaö er viö lokagengi hluta-
bréfa í SÍF á Verðbréfaþingi íslands í
gær, 6,23, er markaðsvirði ÍS rúmir
2,8 milljarðar króna sem er heldur
meira en það var á mánudag þegar
viðskipti voru stöðvuö með hlutabréf
félagsins á Veröbréfaþingi þrátt fyrir
miklar verðhækkanir á bréfum ÍS t lið-
inni viku.
Ef litið er á markaðsviröi ÍS um síö-
ustu mánaöamót þá var þaö tæpir
tveir milljaröar króna. Markaðsviröi
félagsins hefur því aukist um rúmar
800 milljónir króna t mánuðinum eða
um tæp 42% sem þykir ekki slæmt.
Það er hins vegar spurning hvort eðli-
legt sé að meta ÍS á 2,8 milljaröa
miðað við að eigið fé félagsins er
tæpur milljarður og V/H hlutfalliö er
72,09.
HLUTHAFALISTI EIMSKIPS
• í síðustu viku birtist á viðskipta-
síöu Morgunblaösins listi yfir 10
stærstu hlutahafana í Eimskipafélagi
fslands hf. hinn 15. september sl.
Vakti þaö nokkra undrun aö Kaup-
þing skyldi ekki vera á meðal þeirra
en samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins á Kaupþing um 2,5% hlut f
Eimskip og aðilar sem tengjast Kaup-
þing um 1,5%. Kaupþing fer því meö
atkvæöisrétt fyrir 4% hlut í Eimskip
sem skipar þeim í fjórða sæti yfir
stærstu hluthafa félagsins.
Jafnframt sé hlutur einhverra sem
eru meðal tíu efstu samkvæmt upp-
lýsingum frá Eimskip mun minni nú
en hann er samkvæmt listanum. Það
verður því fróðlegt aö sjá hvernig list-
inn lítur út næst þegar hægt verður
að nálgast hann hjá félaginu.