Morgunblaðið - 26.10.1999, Page 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Rúnar Kristinsson í baráttu við franska landsliðsmanninn Youri Djorkaeff á Stade de France á dögunum.
„Getum huggað okkur
við UEFA-sætið“
Ivar
eftir-
sóttur
ÍVAR Ingimarsson byijaði
vel hjá enska 3. deildar lið-
inu Torquay United þar
sem hann er í láni næsta
mánuðinn. Ivar skoraði
annað marka liðs síns í 2:1-
sigri á Barnet sem fyrir
leikinn hafði ekki beðið
lægri hlut á heimavelli á
þessari leiktíð.
Fjölmargir útsendarar
fylgdust með leiknum og
höfðu forráðamenn Brent-
ford, sem leikur í 2. deild,
samband við knattspyrnu-
deild ÍBV í gær og lýstu yf-
ir áhuga á því að kaupa ís-
lenska unglingalandsliðs-
manninn.
Frekari tíðindi höfðu ekki
borist af málinu í gær-
kvöldi, en talið er að Eyja-
menn vilji hið minnsta fá
20-30 milljónir krúna fyrir
ívar, sem þeir keyptu af
Valsmönnum fyrir tveimur
árum.
ívar hefur einnig verið
orðaður við Stoke í 2. deild
- er á óskalista íslenskra
íjárfesta sem gert hafa til-
boð í félagið og hyggjast
styrkja það með íslenskum
leikmönnum.
LILLESTRÖM rétt missti af verðlaunasæti í norsku knattspyrn-
unni með því að tapa fyrir Molde í síðustu umferðinni um helg-
ina. Fyrir lokaumferðina var Lilleström í 2. sæti og hefði nægt
jafntefli til að hljóta silfrið. „Já, það hefði verið gaman að ná í
verðlaun, en það kom smálægð í leik okkar í restina á tímabil-
inu. Við getum þó huggað okkur við að hafa náð UEFA-sæti og í
raun er árangurinn betri en menn þorðu að vona fyrir tímabilið,"
sagði Rúnar Kristinsson, leikmaður Lilleström. Heiðar Helguson
lék allan leikinn eins og Rúnar.
Rúnar sagðist ekki vita hvað tæki
við hjá sér nú að loknu tímabili,
en reiknaði ekki með að vera áfram
hjá Lilleström. Hann á eitt ár eftir
af samningi sínum við félagið og hef-
ur ekki viljað skrifa undir framleng-
ingu á honum. „Ef félagið ætlar að
fá peninga fyrir mig þarf það að
selja mig núna annars fær það ekk-
ert á næsta ári eftir að samningur-
inn er útrunninn. Eg reikna því
frekar með að ég fari eitthvað ann-
að. Umboðsmaður minn er að vinna
í málinu og skýrist vonandi fljótlega
hvað verður,“ sagði hann.
Rúnar stóð sig vel með Lil-
leström á tímabilinu og var fyrir
nokkrum vikum kosinn besti leik-
maður deildarinnar, fyrstur Islend-
inga, í kjöri sem norska knatt-
spymusambandið stóð að. „Það er
alltaf gaman að fá viðurkenningu og
ég get því verið mjög ánægður með
tímabilið. Eg átti gott ár.“
Viðtal er við Rúnar í norska
blaðinu Fotball sem kom út í síð-
ustu viku vegna tilnefningar hans
sem besti leikmaður ársins. Yfir-
skrift viðtalsins er „Kong Runar
av Norge“. Þar er m.a. rætt við
nokkra mótherja hans þar sem
þeir segja álit sitt á íslenska
landsliðsmanninum. Flestir eru á
því að Rúnar hafi átt það skilið að
vera útnefndur. Forsíðumynd
blaðsins er af Rúnari með verð-
launagripinn sem hann fékk fyrir
útnefninguna.
Leikmenn Lilleström mun æfa
næstu tvær vikumar, en síðan verð-
ur þriggja vikna frí áður en undir-
búningur fyrir næsta tímabil hefst í
lok nóvember. Þá bætast tveir Is-
lendingar í leikmannahópinn, Grét-
ar Hjartarson úr Grindavík og Ind-
riði Sigurðsson úr KR.
KNATTSPYRNUSAMBA
ND Evrópu, UEFA, hefur
úrskurðað að úrslit leiks
íslands og Úkraínu í und-
ankeppni EM f
kvennaknattspyrnu, skulu
standa óhögguð, 2:2. Áður
hafði UEFA breytt úrslit-
inum í 3:0, íslandi í hag, á
þeim forsendum að Úkra-
ína tefldi fram leikmanni
sem var í leikbanni í leikn-
um sem frma fór í Úkra-
ínu 22. ágúst sl. Hafði
UEFA, tilkynnt að sú
ákvörðun væri endanleg. I
tilkynningu sem Knatt-
spyrnusamband Islands
barst í gær frá UEFA seg-
ir að fyrri ákvörðun hafí
verið byggð á röngum for-
sendum og því var málið
tekið upp á nýjan leik og
ákveðið að úrslitin skyldu
standa óhögguð, 2:2.
Þar með hefur Island
hlotið tvö stig að loknum
þremur leikjum und-
ankeppninnar.
Örnggur
sigur
á Slóvakíu
LANDSLIÐ íslands, skip-
að stúlkum 18 ára og
yngri, vann í gær Slóvakíu
4:1, í fyrsta leik sinum í
milliriðli EM í knattspyrnu
sem fram fer í Sviss. ís-
land var 1:0 yfir í hálfleik
eftir að Rakel Logadóttir
skoraði á 10. mínútu.
Leikmenn Slóvaka jöfnuðu
á fimmtu mínútu síðari
hálfleiks en á síðustu
sautján mfnútum leiksins
gerði ísland út um hann
með þremur mörkum.
Fyrst skoraði Erla Hend-
riksdóttir á 73. mínútu.
Tveimur minútum síðar
bætti Laufey Jóhannsdótt-
ir um betur og Elín Anna
Steinarsdóttir innsiglaði
sigurinn á síðustu mínútu.
Næst leikur ísland við
Sviss á morgun og loks við
Spánveija á föstudag.
Tveir sterkir sóknarleikmenn ganga til liðs við ÍA
„Skagamenn eiga
heima í toppbaráttunni“
SKAGAMÖNNUM bættist
vænn liðsstyrkur um helgina
er færeyski landsliðsmaður-
inn Uni Arge gekk í raðir ÍA úr
Leiftri. Gerði hann tveggja ára
samning við Skagamenn.
Skagamenn hafa átt í nokkrum
vandræðum í framlínunni upp á
síðkastið og ekki getað státað af
jafn afgerandi markaskorurum og á
árum áður. A liðinni leiktíð skoraði
IA fæst mörk allra liða deildarinnar
ásamt Víkingum - 21 mark í 18
leikjum. Svar Skagamanna við
þessu er koma þriggja sterkra mið-
herja, því á dögunum gerðu þeir
samning við Hjört Hjartarson, sem
varð markakóngur 1. deildar í fyrra
með Skallagrími úr Borgarnesi og
Sumarliði Arnason, framherji Vík-
inga, hefur átt í viðræðum við IA og
er búist við að gangi saman á næst-
unni. Sumarliði mun reyndar samn-
ingsbundinn Víkingum og þurfa fé-
lögin því að komast að samkomu-
lagi um verð hans.
Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA,
segir að þörfin á sterkum framlínu-
mönnum hafi verið augljós. „Þessir
leikmenn hafa allir sýnt og sannað
hvað þeir geta og vonandi geta þeir
aðstoðað okkur við að berjast á
toppnum á næsta ári. Það lítur vel
út á pappírunum að semja við svo
sterka leikmenn, en svo er að vinna
úr því. Skagamenn eiga heima í
toppbaráttunni og ég set ekki
stefnuna á neitt annað,“ sagði Ólaf-
ur sem gert hefur þriggja ára
samning við IA um þjálfun liðsins.
Sigurður Jónsson
á heímleið?
Ólafur útilokaði ekki frekari
breytingar á leikmannahópi sínum,
en taldi fremur óliklegt að erlendir
leikmenn yrðu fengnir á vormánuð-
um. Fremur ólíklegt er talið að
Stefán Þór Þórðarson verði áfram,
en hann leikur með KFC
Uerdingen í Þýskalandi í vetur. Þá
hefur Heimir Guðjónsson ekki svar-
að tilboði IA um nýjan samning og
heyrst hefur að markvörðurinn
Þórður Þórðarson kunni að snúa úr
atvinnumennsku með Norrköping í
Svíþjóð, þar sem hann er ekki leng-
ur aðalmarkvörður sænska liðsins.
Ólafur segir ljóst að Skagamenn
muni fylgjast vel með málum Sig-
urðar Jónssonar, leikmanns Dundee
Utd. í Skotlandi, en ljóst er að hann
snýr heim í vor. „Sigurður er mað-
urinn sem við þyrftum á miðjuna
hjá okkur. Reyndar veit ég ekki
hvað meiðslum hans líður, en komi
hann heill heim munum við Skaga-
menn leggja áherslu á að fá hann
aftur til okkar. Eflaust munu fleiri
lið reyna að lokka hann til sín, en við
sjáum hvað setur,“ sagði Ólafur.
Lilleström rétt missti af verðlaunasæti í norsku knattspyrnunni
Stigin
gegn
Úkraínu
töpuð