Morgunblaðið - 26.10.1999, Blaðsíða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Kanu
kaffærði
Chelsea
NÍGERÍUMAÐURINN Nwankwo Kanu, framherji Arsenal, stal
senunni í ensku knattspyrnunni um helgina. Chelsea var nánast
með unninn leik þegar 15 mínútur voru eftir af leiknum á Stam-
ford Bridge. En þá tók Nígeríumaðurinn sig til og gerði þrennu
og síðasta markið hans var ævintýri líkast. Manchester United
fékk að finna til tevatnsins hjá Tottenham á White Hart Lane,
tapaði 3:1. Leeds er áfram í toppsæti deildarinnar eftir jafntefli
við Everton í miklum markaleik á sunnudag, 4:4.
Tore Andre Flo og Dan Petrescu
skoruðu fyrir Chelsea og var
ekkert sem gaf til kynna annað en
að Chelsea færi með sigur af hólmi
þegar líða tók á síðari hálfleikinn
gegn Arsenal, enda hafði liðið ekki
fengið á sig mark á heimavelli á
þessari leiktíð. Vialli knattspyrnu-
stjóri var greinilega öruggur um
sigur og ákvað að skipta leikmönn-
um út af og þar á meðal Norðmann-
inum Flo sem hafði verið mjög ógn-
andi frammi. Þegar 15 mínútur voru
eftir hófst þáttur Nígeríumannsins,
Kanu. Hann sýndi hversu frábær
leikmaður hann er með því að skora
þrjú mörk á þessum stutta tíma sem
eftir lifði af leik og stuðningsmenn
Cheisea trúðu ekki sínum eigin aug-
um. Ahangendur Arsenal kættust
hins vegar og gátu tekið gleði sína á
ný eftir slæma útreið gegn
Barcelona í meistaradeildinni í síð-
ustu viku.
„Við þurftum smáheppni og snilld-
artakta til að sigra Chelsea," sagði
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri
Arsenal, sem fékk óvænta afmælisjöf
á fímmtugsafmælinu. „Kanu er frá-
bær leikmaður. Hann gefst aldrei
upp og hefur rétta hugarfarið fyrir
Arsenal. Hann er leggjalangur, held-
ur bolta vel og mjög skynsamur leik-
maður. Hann er frábær framherji og
sýndi það og sannaði í þessum leik,“
sagði Wenger.
Þriðja markið hans á lokamínút-
unni er sérstaklega minnisstætt.
Hann vann boltann við hliðarlínuna
vinstra megin á móts við vítateig-
inn. Lék upp að endamörkum og
þar mætti hann markverðinum Ed
de Gouy, sem var kominn í skógar-
ferð útifyrir vítateiginn. Hann lék á
hann og skoraði með því að skrúfa
boltann efst í fjærhornið úr þröngri
stöðu.
Markaregn á
Goodison Park
Leeds, sem hafði unnið tíu leiki í
röð fyrir leikinn gegn Everton á
sunnudaginn, gerði 4:4-jafntefli á
Goodison Park. Leikurinn var
skemmtilegur og mörkin öll glæsi-
leg. Everton hafði 3:2 yfir í hálfleik,
en síðan náði Leeds að jafna og kom-
ast yfír í fyrsta sinn, 3:4, þegar langt
var liðið á leik. David Weir jafnaði
' fyrir heimamenn á lokamínútu leiks-
ins og þar með var tíu leikja sigur-
ganga Leeds rofín. „Ég var ekki ör-
uggur með sigurinn í stöðunni 4:3,“
sagði David O’Leary, stjóri Leeds,
eftir leikinn. „Ég náði ekki að slaka á
spennunni fyrr en flautað var af. Ég
get verið sáttur við árangurinn því
við erum í efsta sæti deildarinnar og
það skiptir öllu máli,“ sagði O’Leary.
Everton er ósigrað á heimavelli á
þessari leiktíð.
Meistararnir
heillum horfnlr
Manchester United er heillum
horfíð þessa dagana, er komið niður í
fjórða sæti deildarinnar eftir tapið
gegn Tottenham, 3:1. Það gekk allt á
afturfótunum hjá meisturunum þrátt
fyrir óskabyrjun er Ryan Giggs kom
liðinu yfir á 24. mínútu. Steffen Iver-
son jafnaði tíu mínútum síðar eftir
misskilning varnarmannsins Mickael
‘‘Silvestre og Marks Bosnichs, mark-
varðar. Síðan gerði Paul Scholes
sjálfsmark og staðan í leikhléi var
2:1 fyrir Tottenham. Um miðjan síð-
ari hálfleik innsiglaði Steve Carr sig-
ur Tottenham.
„Þetta var einn af þessum leikjum
þar sem heppnin er hliðholl öðru lið-
inu,“ sagði Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri United. „Stundum hef-
ur maður heppnina með sér en
stundum á móti. Ég get ekki álasað
leikmönnum mínum fyrir slakan leik
því liðið var sérstaklega óheppið í
þessum leik.“ George Graham, þjálf-
ari Tottenham, sagði að United væri
með besta lið Englands og það væri
því gott að sigra það.
Sunderland átti möguleika á að
komast í efsta sæti með sigri á West
Ham, en liðið varð að sætta sig við
Reuters
Nígeríumaðurinn Kanu fór á kostum á Brúnni, þar sem hann
tryggði Arsenal sigur með þremur glæsimörkum á lokamínútun-
um gegn Chelsea.
ENGLAND
hélt að við næðum að
halda þessu út leik-
inn,“ sagði Peter
Leeds heldur toppsætinu, en Reid, þjálfari Sund-
erland. „Strákarnir
mínir léku frábær-
lega og ég hefði ekki
getað beðið um
meira frá þeim.“
Middlesbrough sigraði Watford
nokkuð sannfærandi 3:1 á útivelli á
meistarar Manchester United
fengu skell á White Hart Lane
l:l-jafntefli. Trevor Sinclair jafnaði
fyrir West Ham þegar ein mínúta
var eftir, en Kevin Phillips hafði
komið heimamönnum yfir. Sunder-
land lék einum leikmanni færri
lengst af vegna þess að Steve Bold
var rekinn út af á 19. mínútu. „Ég
sunnudag. Fyrsta markið var sjálfs-
mark Mark Williams, en síðan skorð-
aði Brasilíumaðurinn Juninho 2:0 og
fyrrverandi fyrirliði Liverpool, Paul
Ince, gerði þriðja markið undir lok
leiks eftir að Watford hafði minnkað
muninn í 2:1.
Liverpool náði að jafna, 1:1, gegn
Southampton á útivelli eftir að hafa
lent undir 1:0. Heimamenn sóttu
mun meira í fyrri hálfleik og það
var ekki gegn gangi leiksins er Égil
Soltvedt kom liðinu yfír með skalla
eftir fyrirgjöf Matt Le Tissier. Titi
Camara jafnaði fyrir Liverpool
þegar aðeins níu mínútur voru eftir.
En þá hafði Michael Owen farið út
af meiddur, stuttu eftir að hann
kom inn á sem varmaður. Liverpool
var því einum færri þegar Camara
jafnaði.
Trapatonni
bauðst til
að hætta
GIOVANNI Trapattoni,
þjálfari Fiorentina í 1. deild
ítölsku knattspyrnunnar,
bauðst til að hætta í starfi í
kjölfar taps fyrir lágt skrif-
uðu liði Piacenza, 2:0, á
sunnudag. Það var þriðja
tap liðsins í röð í deildar-
keppninni. „Þetta gæti
reynst lán í óláni fyrir liðið,
svo fremi sem félagið kann
skýringar á þessu og getur
leyst málið,“ sagði þjálfar-
inn, en Fiorentina mætir Ar-
senal í Meistaradeild Evrópu
annað kvöld.
Innan þriggja klukku-
stunda frá tilkynningu
Trapattonis lýsti Luciano
Luna, stjórnarformaður fé-
Iagsins, því yfír að það vildi
ekki að hann færi, hafnaði
boði þjálfarans um að segja
stöðu sinni lausri. Fiorentina
verður að leggja Arsenal að
velli á Wembley til að kom-
ast áfram úr riðlakeppni
Meistaradeildarinnar.
Owen
meiddist
MICHAEL Owen, framheiji
Liverpool, kom inn á sem
varamaður í leik liðsins í
ensku deildinni á móti Sout-
hampton á laugardaginn. En
haltraði af leikvelli áður en
flautað var af, hafði tognað
á vinstri fæti.
Hann segist þó verða til-
búinn fyrir landsleikina
gegn Skotum 13. og 17. nóv-
ember. „Ég lenti í svipuðum
meiðslum í fyrra og þá var
ég frá í tíu daga. Eg verð ör-
ugglega búinn að ná mér í
byijun nóvember, það er al-
veg öruggt," sagði hann.
Ronaldo rekinn af velli í sigri AC Milan á nágrönnum sínum í Internazionale
Innkoma Shevshenkos
skipti sköpum á San Siro
AC MILAN hafði betur í magnþrungnum nágrannaslag við
Internazionale á San Siro-leikvanginum í Mílanóborg á
laugardag, 2:1, með sigurmarki Líberíumannsins Georges
Weahs. Markið gerði Weah, knattspyrnumaður ársins 1997,
með skalla eftir að knattspyrnumaður ársins í fyrra, Brasii-
íumaðurinn Ronaldo í liði Internazionale, hafði verið rekinn
af leikvelli skömmu eftir að hafa gert eina mark liðs síns.
Leikurinn bauð upp á það besta
og versta í ítölsku knattspym-
unni. Ástríðufullur leikur manna
smitaði út frá sér til áhorfenda -
eða öfugt. Ronaldo kom Intern-
azionale yflr með marki úr víta-
spymu á tuttugustu mínútu.
Hann fékk vítaspymuna sjálfur
eftir að argentínskur varnarmað-
ur AC Milan, Roberto Ayala,
hafði verið dæmdur brotlegur.
Ronaldo gat ekki tekið spymuna
strax, því hlé var gert á leiknum í
rúmar tvær mínútur vegna óláta
áhorfenda, en nokkrir þeirra
vörpuðu reyksprengjum inn á
völlinn.
Aftur dró til tíðinda í viðskipt-
um þeirra Ronaldos og Ayalas,
erkifjendanna jafnt með félagslið-
um sínum í Mílanóborg og lands-
liðum sínum í Suður-Ameríku, á
32. mínútu. Þeir börðust um bolt-
ann og Ayala féll til jarðar og hélt
um andlit sér. Eftir að hafa ráð-
fært sig við aðstoðardómara ákvað
dómari leiksins, Gennaro Borri-
ello, að vísa Ronaldo af leikvelli
fyrir að slá Argentínumanninn.
Þjálfari Internazionale,
Marcelo Lippi, var illur út í leik-
mann sinn fyrir vikið. „Það er
vítavert kæruleysi að láta reka sig
út af fyrir eitthvað þessu líkt,“
sagði hann.
Þótt leikmenn Internazionale
væm einum færri, vom þeir ekki
langt frá því að bæta um betur,
auka muninn í tvö mörk, er fimm
mínútur vom liðnar af síðari hálf-
leik, en viðstöðulaust skot Christi-
ans Vieris þaut rétt framhjá
markinu. Skömmu síðar skaut
Oliver Bierhoff yfir í fyrsta opna
færi AC Milan. Hann fór af velli á
67. mínútu og í hans stað kom
Úkraínumaðurinn Andryi
Shevchenko. Þessi skipting Al-
berto Zaccheronis skipti sköpum.
Innan sex mínútna hafði
Shevchenko jafnað metin með sjö-
unda marki sínu á tímabilinu.
Skömmu síðar var hann nærri því
að koma liði sínu yfir, en Pemzzi
markvörður sá við honum og aftur
er Weah fylgdi á eftir.
Þegar átta mínútur vom eftir
fékk Ayala sjálfur reisupassann og
því var aftur jafnt í liðum. Það
breytti þó litlu um gang mála og
Weah skoraði sigurmarkið áður en
yfir lauk eftir homspymu frá
Króatanum Zvonimir Boban. „Við
megum ekki láta þennan sigur
stíga okkur til höfuðs. Við lékum
lengst af manni fleiri,“ sagði
Zaccheroni þjálfari. Með ummæl-
unum reynir hann að tryggja rétt
hugarástand leikmanna sinna fyrir
leikinn við enska liðið Chelsea í
Meistaradeild Evrópu á miðviku-
dag, en Mílanóliðið mátti þola tap
fyrir Eyjólfi Sverrissyni og félögum
í Hertha Berlín í síðustu umferð.
Júgóslavinn Dejan Stankovie
skoraði tvö mörk á jafnmörgum
mínútum er efsta lið ítölsku
deildarinnar, Lazio frá Róm,
vann 4:2-sigur á Lecce á Ólymp-
íuleikvanginum eftir að hafa lent
marki undir. Þar sem Juventus,
liðið í öðru sæti, varð af sigri á
Bari eftir síðbúið jöfnunarmark
gestanna, tók Rómarliðið þriggja
stiga forystu. „Tölum ekki um
forystuna núna. Næst leikum við
gegn Internazionale,“ sagði Sví-
inn Sven-Göran Eriksson, þjálf-
ari Lazio.
AS Roma átti möguleika á að
komast upp að hlið Juventus, en
gerði jafnteíli í Tórínó, 1:1. Róm-
arbúar hafa ekki sótt sigur til
Tórínó í þrettán ár og engin
breyting varð á því um helgina.
Eusebio Di Fransesco jafnaði fyr-
ir Roma eftir að Slessio Scarchilli
hafði komið Tórínó yfir á 21. mín-
útu. Þá skoruðu ungmennalands-
liðsstjörnur ítala, Roberto Baron-
io og Andrea Pirlo, fyrir Reggina,
sem jafnaði tvívegis eftir mörk
Hernans Crespo hjá Parma.
Lokatölur urðu 2:2.