Morgunblaðið - 26.10.1999, Qupperneq 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Rúnar og
Tryggvi í
liði ársins |
RÚNAR Kristinsson, leik- |
maður Lilleström og Tryggvi I
Guðmundsson, leikmaður
Tromsö, voru valdir í lið árs-
ins hjá Nettavisen. Lokaum-
ferð norsku deildarinnar fór
fram um helgina.
Lið ársins var skipað eftir-
töldum (einkunnagjöf í
sviga):
Markvörður:
Frode Olsen, Stabæk (5,45).
Varnarmenn:
Erik Hoftun, Rosenborg (6,00)
Torgeir Bjarmann, Lilleström (5,66)
Per-Ove Ludvigsen, Brann (5,66)
Tommy Bemtsen, Lilleström (5,52)
Miðvallarleikmenn:
Oijan Berg, Rosenborg (6,90)
Magnus Svensson, Viking (5,76)
Rúnar Kristinsson, Lilleström (5,72)
Karl Oskar Fjörtoft, Molde (5,50)
Frandierjar:
Andreas Lund, Molde (5,62)
Tryggvi Guðmundsson, Tromsö
(6,28).
Rúnar var eini Islending- I
urinn í liði ársins hjá Verdens
Gang. Hann var þar í fimmta
sæti á lista yfir bestu leik-
menn deildarinnar að mati
norska blaðsins. Hann hlaut
5,65 stig í meðaleikun, en Sví-
inn Magnus Svensson, leik-
maður Viking, var stigahæst-
ur með 6,04 stig. Næstur
kom Erik Hoftun frá Rosen-
borg, sem var stigahæstur í
einkunnagjöf Nettavisen með
6,00 stig, Bjöm Johansen,
Tromsö, í þriðja sæti með
5,76 og sama stigafjölda hlaut
Frode Olsen, markvörður
Stabæk.
Pétur Marteinsson
Pétur með
að nýju
PÉTUR Marteinsson lék að nýju
með Stabæk sem vann Ríkharð
Daðason og Auðun Helgason í Vik-
ing 3:1 í Stavangri í lokaumferð
norsku úrvalsdeildarinnar. Pétur
hafði misst af tveimur leikjum liðsins
á undan vegna veikinda.
„Við urðum nauðsynlega að vinna
leikinn til þess að eiga möguleika á
Evrópusæti og tryggðum okkur
fimmta sæti og sæti í Intertoto-
keppni næsta sumar.“ Stabæk lenti í
þriðja sæti og bikarmeistari árið á
undan og Pétur sagði að leikmenn og
forsvarsmenn væru allt annað en
ánægðir með árangur liðsins í deild-
inni nú. „Við urðum fyrir nokkrum
skakkaföllum, einn meiddist og lék
lítið með, annar hætti og nokkrir
voru seldir til liða í Evrópu, svo sem
Helgi Sigurðsson.“ Pétur sagði að
Helgi reynst liðinu mikilvægur og
skorað mikið af mörkum fyrir liðið
og því skarð hans vandfyllt."
Pétur, sem gerði þriggja ára
samning við félagið síðasta vetur,
sagði að hann hefði misst af undir-
búningstímabili Stabæk vegna
meiðsla og það hefði háð honum í
sumar. „Þá fékk ég flensu eftir ferð
mína með landsliðinu til Parísar og
gat ekki verið með í næstu tveimur
leikjum. Nú stefni ég á að komast í
form í vetur og ætla mér að eiga gott
tímabil næsta sumar.“
Morgunblaðið/Golli
Ríkharður Daðason á hér í höggi við franska leikmanninn Alain Boghossian.
Heiðar átti
þátt í 25
mörkum
HEIÐAR Helguson, framherji Lii-
leström, var næst efstur á lista yfir
þá sem skora og leggja upp mörk í
norsku deildinni. Hann skoraði
sjálfur 16 mörk og átti níu
stoðsendingar, eða samtals 25
mörk. Rune Lange, framherji Ros-
enborgar, var stigahæstur, gerði 23
mörk og lagði upp níu eða 32 mörk.
Heiðar var í þriðja sæti yfir þá
leikmenn sem áttu flestar stoðsend-
ingar í deildinni. Þar var Bent
Skammesrud, Rosenborg, efstur
með 13 stoðsendingar og Jan Derek
Sörensen, Rosenborg, annar með 10
stoðsendingar.
Brynjar maður
leiksins og Har-
aldur skoraði
BRYNJAR Björn Gunnarsson átti
mjög góðan leik fyrir Örgryte er lið-
ið vann Norrköping, sem hafði unnið
8 leiki í röð, 3:1, í næstsíðustu um-
ferð sænsku úrvalsdeildarinnar í
Gautaborg um helgina. Hann var út-
nefndur maður leiksins af dagblað-
inu Aftonbladet annan leikinn í röð.
Örgryte hafnaði í 4. sæti deildarinn-
ar og er það besti árangur liðsins í 14
ár.
Malmö tapaði fyrir AIK 3:0 og er
fallið úr deildinni. Sverrir Sverrisson
lék allan leikinn með Malmö, sem er
með 22 stig. Djurgárden er í
næstneðsta sæti með 23 stig en þar
fyrir ofan er Hammerby með 26 stig.
Elfsburg tryggði sæti sitt í deild-
inni með því að vinna Örebro 3:1 á
heimavelli. Haraldur Ingólfsson átti
góðan leik og skoraði annað mark
liðsins og lagði upp það þriðja. Elfs-
burg er með 29 stig í 9. sæti.
Baráttan um sænska meistaratitil-
inn stendur á milli Helsingborg og
AIK, en aðeins eitt stig skilur liðin
að. Halmstad er öruggt með þriðja
sætið.
Árni Gautur Arason fékk á sig fimm mörk á lokadegi í Noregi
„Nær allt gekk á
afturfótunum"
ÁRNI Gautur Arason stóð í markinu hjá meisturum Rosenborg
sem fengu skell á heimavelli gegn Odd Grenland, 3:5. Rosen-
borg náði að jafna 3:3 eftir að Odd Grenland komst í 3:0 og
þannig var staðan í hálfleik. Árni Gautur átti ekki góðan dag að
sögn norsku blaðanna. Rosenborg var fyrir löngu búið að
tryggja sér norska meistaratitilinn þannig að tapíð breyttu
engu þar um. Molde hafnaði í öðru sæti og Brann í þriðja.
Eg átti ekki minn besta leik og
nær allt gekk á afturfótunum
hjá liðinu. Það er ekki gaman að fá á
sig fimm mörk þegar maður fær
tækifaeri í byrjunarliði lið.sins,“
sagði Árni Gautur Arason, sem lék í
marki Rosenborg sem tapaði 5:3
fyrir Odd Grenland í lokaumferð
norsku úrvalsdeildarinnar um helg-
ina.
Ami Gautur sagði að í lið Rosen-
borg hefði vantað nokkra lykilleik-
menn og ungir og óreyndari hefðu
fengið að spreyta sig. „Ég hefði get-
að komið í veg fyrir eitt mark og
hugsanlega getað komið í veg fyrir
fleiri mörk á góðum degi.“ Arni
Gautur á eitt ár eftir af samningi
sínum við félagið, sem er Noregs-
meistari annað árið í röð. Hann
sagðist ætla að skoða sín mál í vet-
ur, en félagið á enn tvo leiki eftir í
riðlakeppni meistaradeildar Evrópu
og góða möguleika á að komast
áfram í keppninni. „Það kemur til
greina að vera áfram en ég þarf að
velta því fyrir mér hvaða möguleika
ég hef á næsta tímabili," sagði Árni
Gautur sem oftast hefur setið á
bekknum á tímabilinu.
Skeid og Kongsvinger féllu í 2.
deild en sæti þeirra taka Hauga-
sund og Bryne. AIls voru 697 mörk
skoruð í deildinni og er það nýtt
met.
Stabæk hafnaði í fimmta sæti, á
eftir Lilleström sem varð í fjórða.
Pétur Marteinsson lék með Stabæk
sem heimsótti Viking heim í Stavan-
ger og hafði sigur, 3:2. Ríkharður
Daðason og Auðun Helgason léku
báðir með Viking og gerði Ríkharð-
ur síðara mark liðsins.
Tryggvi Guðmundsson skoraði
síðasta mark Tromsö sem vann
Strömsgodset 6:3 í ótrúlegum leik á
útivelli. Staðan í hálfleik var 3:1 fyr-
ir Strömsgodset, en Tryggvi og fé-
lagar gerðu fimm mörk á 20 mínút-
um í síðari hálfleik. Tryggvi byrjaði
leikinn sem bakvörður og var síðan
færður framar á völlinn í síðari hálf-
leik. Hann gerði markið úr víta-
spyi-nu. Strömsgodset, sem bræð-
urnir Valur Fannar og Stefán Gísla-
synir leika með, rétt slapp við fall
þrátt fyrir tapið.
Ríkharður skoraði í níu leikjum í röð
RÍKHARÐUR Daðason skoraði síðara mark Vik-
ing er liðið tapaði, 3:2, fyrir Stabæk í lokaumferð
norsku knattspyrnunnar um helgina. Þetta var
17. mark Ríkharðs í deildinni, en þess má geta að
hann skoraði í níu síðustu leikjunum í deildinni.
Hann var í Qórða sæti yfir markahæstu leik-
menn deildarinnar ásamt John Carew, Rosen-
borg. Þeir voru báðir með 17 mörk. Rune Lange,
Tromsö, var markahæstur með 23 mörk, Andre-
as Lund, Molde, kom næstur með 21 mark og
Jostein Flo, Strömgodset, í þriðja sæti með 18
mörk.
Heiðar Helguson var í sjötta sæti með 16 mörk
og Helgi Sigurðsson gerði 14 mörk í aðeins 18
leikjum með Stabæk. Þá var Tryggvi Guðmunds-
son með 13 mörk.