Morgunblaðið - 29.10.1999, Page 6

Morgunblaðið - 29.10.1999, Page 6
6 B FÖSTUDÁGlJR 29. OKTÓBER 1999 MORGUNBLÁÐIÐ DAGLEGT LIF Fleiri börn en hermenn eru fórnarlömb í stríðsátökum Lífsskilyrði barna eru víða bág vegna vaxandi fátæktar stríðs- átaka og sjúkdóma eins og alnæmis. Burkhard Gnaer- ig, framkvæmdastjóri Interna- tional Save the Children Alliance sagði Hildi Einars- dóttur með hvaða hætti sam- tökin leituðust við að gera heiminn eilítið betri. Norðurlöndunum og í Mið- og Suður-Evrópu búi böm yfirleitt við ágæt kjör. Hins vegar fjölgi fátækum börnum í Afríku, Asíu og Suð- ur-Ameríku og fátæktin sé nú meiri en hún var fyrir til dæmis 50 árum. „Á síðustu árum hefur fátækt líka aukist í löndum eins og Bretlandi þar sem 30% barna lifa við fátækt- armörk,“ segir hann. Þegar ég var í heimsókn í Svíþjóð ekki alls fyrir löngu var mér sagt að tala þeirra sem teldust fátækir þar í landi færi hækkandi. Ástæðan er sú að þótt hagsæld hafi aukist hefur bilið milli ríkra og fátækra breikkað í þessum löndum á undanfomum áratugum sem segir okkur að auðnum sé mis- skipt.“ Morgunblaðið/Ásdís Burkhard Gnaerig, framkvæmdastjóri International Save the Children Alliance. Börnin skotmörk í stríði INTERNATIONAL Save the Children All- iance em alþjóðleg samtök sem hafa innan vébanda sinna hagsmunafélög bama í 26 löndum. Samtökin starfa í 110 löndum víðs- vegar í heiminum og markmið þeirra er að bæta kjör bama og varðveita réttindi þeirra. Samtökin vora upphaflega stofnuð í Bret- landi upp úr seinni heimsstyrjöldinni af konu að nafni Eglantyne Jebb. Rann henni til rifja þær hörmungar sem styrjöldin hafði leitt yfir bömin sem voru mörg hver heimilislaus. Það varð einnig hluti af lífsstarfi hennar að vinna að því að réttindi bama yrðu skilgreind á al- þjóðlegum vettvangi og beitti hún sér fyrir gerð Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hérlendis er staddur Burkhard Gnaerig, framkvæmdastjóri samtakanna í tilefni af 10 ára afmæli Bamaheilla sem era aðili að sam- tökunum. Aðspurður hvort lífsskilyrði barna hafi breyst mikið til batnaðar síðan Eglan- tyne Jebb stofnaði samtök sín segir hann að á Gnaerig nefnir fleiri dæmi um það hvernig lífsskilyrði barna hafa breyst til hins ven-a og segir að á síðustu öld hafi þeir sem féllu í stríði einkum verið hermenn. Á síðustu tveim til þrem áratugunum séu börnin orðin aðal- skotmörkin í stríðsátökum eða 90% fómar- lambanna en hermenn 10% þeirra. Þar sem fari fram markvissar þjóðernishreinsanir samfara átökunum sé börnunum ekki hlíft. „Þátttaka barna í hernaði hefur einnig auk- ist,“ segir hann. „Áætlað er að um 300 þúsund börn yngri en 18 ára taki þátt í hemaði víðs vegar í heiminum. Það færast einnig í vöxt að hermenn láti ung stúlkubörn ferðast með sér meðan á stríðinu stendur og misnoti þær kyn- ferðislega. Barnavændi er aldagamalt vandamál sem færist í aukana. Það sem hefur breyst er að nú er starfsemin þrælskipulögð. Börn frá Kína og Burma era seld til Taílands og Ind- lands þar sem vændi er algengt en þar bíða þeirra evrópskir, amerískir og japanskir við- skiptavinir.“ Hann segir alnæmi skapa margþættan vanda og þá sérstaklega í Afríku og hann fari vaxandi í Suður- Ameríku og Asíu. „Börnum, sem smitast af alnæmi í móðurkviði, fjölgar og lífslíkur þeirra eru litlar. Mæðumar deyja venjulega fljótlega eftir að börnin fæðast og feðumir líka. Samfélagsþjónusta er nánast engin í þessum löndum og, fólkið þarf að treysta á stórfjölskylduna. Á þeim svæðum þar sem alnæmi er útbreitt geta allir meðlim- ir fjölskyldunnar verið látnir. Það eru því fáir tO að sjá um bömin. Önnur afleiðing er sú að á þessum svæðum er aðeins að finna börn og gamalmenni. Kynslóðin sem á að yrkja jörð- ina hefur orðið alnæminu að bráð en lyf sem verka á sjúkdóminn og geta aukið líf- slík- umar era af skomum skammti í Kanna réttindi barna i ýmsum löndum löndunum. Það eru því fáir eft- ir til að halda uppi atvinnuveg- unum sem leiðir af sér meiri fátækt. Vaxandi út- breiðsla alnæmis tengist einmitt fátækt og van- þekkingu." „International Save the Children Alliance eru fijáls félagasamtök sem er fátt óviðkom: andi þegar böm eiga í hlut,“ segir Gnaerig. „í samstarfi við löndin 26 höfum við verið að byggja upp bamaheimili í þróunarlöndunum. I Perú eram við með starfsemi til að hjálpa götubörnum. í Vestur-Afríku er verið að vinna að því að tryggja íbúum á ákveðnum svæðum gott drykkjan/atn. Við eram að byggja skóla á Haiti. I Bandaríkjunum er ver- ið að vinna með börnum indíána að því að finna fótfestu í samfélaginu, svo dæmi séu tekin.“ Gnaerig segir samtökin sinna bæði lang- tímaverkefnum og neyðaraðstoð. „Fljótlega eftir að stríðið í Kosovo hófst fórum við að vinna í flóttamannabúðum nágr- annalandanna. Stai'f okkar miðaðist að því að skapa bömunum reglulega dag- FRYSTIKISTAN og bakar- ofninn skiptast á fróðleiksmol- um um bökunartímann, öiygg- is- og hitakerfið ráða ráðum sínum um frítímann og þvotta- vélin kvartar yfir leka við um- boðsmanninn. í þessum dúr geta samskipti heimilistækj- anna orðið innan tíðar ef kenn- ingar Magnus Melander, markaðs- stjói-a 3Com í Evrópu, ganga eftir. „Mjög fljótlega," spáir hann og upp- lýsti The WaJl Street Joumal um að breiðbandstenging í hús verði kveikj- an að slíkum „samræðum". 3Com, sem framleiðir tölvubúnað, er ásamt fleiri tækni- og íjarskipta- íyrirtækjum að búa sig undir að setja netkerfi fyrir heimilistæki á markað í Evrópu. Intel Corp., 3Com, France Telecom SA og British Telecommun- ications PLC era innblásin af örri þróun og auknum hraða í tölvutækni og hvergi bangin þrátt fyrir fyrri reynslu af markaðssetningu slíkra heimilistækja. Á næsta ári hyggjast þau selja Evrópubúum tæki, sem •hönnuð eru til að sannfæra neytend- ur um hversu brýnt sé að eiga „við- ræðugóð" heimilistæki. Heimilistækj í hrókasamræðum Fregnir hafa borist af ísskápum sem endur- nýja birgðir sínar með því að panta sjálfír frá smásöluvef. Líka af þvottavélum sem kvarta beint við umboðsmenn sína. Yalgerður Þ. Jónsdóttir las um hæfíleika- rík heimilistæki og spurðist fyrir í nokkrum heimilistækj averslunum. Teikning'Ingi Jensson ísskápurinn endurnýjar birgdirnar Fyrr í þessum mánuði köstuðu sænski heimilistækjaframleiðandinn Electrolux AB og farsímaframleiða- ndinn Telefon AB Ericsson sér í slag- inn og settu á laggimar sameiginlegt áhættufyrirtæki til að þróa samteng- ingu innan veggja heimilisins. Ætl- unin er að búa til örgjörva sem geri samskipti heimilistækja möguleg gegnum miðlægan miðlara, sem tengist Netinu. Þannig gæti ísskáp- urinn til dæmis endumýjað birgðir sínar með því að panta matvörur frá smásöluvef. Fyrsta framleiðslan á að koma á markaðinn innan árs. Ymis Ijón eru þó í veginum við há- tæknivæðingu heimilanna. Kostnað- ur, skortur á nothæfum hugbúnaði og almennt áhugaleysi neytenda, sem fyiTÍ tilraunir strönduðu einmitt á, er helst nefnt til sögunnar. A.m.k. þykir ólíklegt að markaðurinn taki við sér á morgun eða hinn. Framleið- endur láta allar hrakspár sem vind um eyra þjóta og segja að vegna lækkandi verðs sé rétti tíminn núna til að grípa gæsina. Intel hyggst markaðssetja netkerfi fyrir heimilist- æki í Evrópu á næsta ári og er áætlað að tenging á hvert tæki kosti um tíu þúsund krónur í smásölu. Veigamikið atriði fyrir neytendur þykir að þeir þurfa ekki að kljást við alls konar tengikapla því kerfin frá Intei og öðr- um tæknifyrirtækjum verða þráð- laus. Talsmaður British Telecom- munications giskar á að meira en fimm miUjónir neytenda muni eiga slíkan búnað innan fimm ára. Til að ná takmarkinu í Bretlandi segir The Wali Street Joumal að fyrst verði að sannfæra landann um ágæti slíkrar tæknivæðingar. Lítil eftirspurn Sérfræðingar eru sammála um að í rauninni sé eftirspumin mjög lítil. Og markaðsstjóri 3Com viðurkennii- að neytendur geri sér sjálfir ekki grein fyrir þörfinni. Aðalsérfræðingur ráð- gjafarfyiirtækisins ARC Group seg- ir eftirspumina takmarkast við þau fáu heimili sem hafi yfir fleiri en einni heimilistölvu að ráða. Eins og sakir standa er mál manna að aðalþörfin fyrir samtengingu tækja á heimilum birtist í að tveir á sama heimilinu geti vaírað á vefnum á sama tíma. Sóknin verður því fyrst í stað á heimili þar sem margar tölvur era til húsa. Talsmenn The Yankee Group, sem er rannsóknar- og ráðgjafarfyrirtæki á sviði tækni og iðnaðar, telja að 9%, eða níu og hálf milljón heimila í Bandaríkjunum, verði nettengd árið 2003, í stað 650 þúsund árið 1999. Karana Uppal, einn aðalráðgjafinn þar á bæ, segir að mun fleiri heimili í Bandaríkjunum séu með tvær eða fleiri heimilistölvur heldur en í Evrópu. Samt telur Uppal Evrópu- búa senn kjósa að tengja annað en PC tölvur við Netið, t.d. netsíma, lófatölvur og farsíma. Og hjá British Telecommunications era menn nógu bjartsýnir til að spá sölu nettengdra heimilistækja fyrir 35 milljónir sterl- ingspunda í Bretlandi einu á næsta ári. Ef nettenging á heimilum verður almenn þurfa tæki sem flestir eiga, eins og þvottavél og sjónvarp, að vera með í leiknum. Innan tveggja ára sér Uppal fyrir sér að sjónvarpið, myndbandstækið og DVD spilarinn eigi sér sameiginlega stjómstöð á heimilinu. „Krafan um skemmtun verður driffjöður slíkrar tengingar," segir hún. Með myndbandsupptökutæki tengt í stjórnstöðina getur heimilis- fólkið verið víðsfjarri og tekið upp með þráðlausum síma. Sama máli gegnir með þvottavélina, ef hún bilar sér hún sjálf um að tilkynna umboð- inu um krankleikann. Markaðsstjóri 3Com telm' líklegast að flestir muni setja upp nettengingu á heimilum sínum af öryggisástæðum. Þannig fái þeir viðvöran og geti haft heimilið undir eftii'liti séu þeir ekki á staðn- Útvarpsbylgjur Framtæknin, sem líklegt er að verði notuð við samtengingu raf- . magnstækjanna, nefnist Bluetooth og felst aðferðin í notkun útvarps- bylgju. Að sögn sérfræðings ARC Group þurfa framleiðendur einungis að verja 5 dölum, eða um 350 kr., í þann útbúnað á hvert rafmagnstæki. Vegna hagstæðs verðs telur hann að fólk kaupi fremur Bluetooth-vædd raflnagnstæki en önnur. Fleiri sér- fræðingar, ráðgjafar og rannsóknar- menn taka í sama streng. Hins vegar benda þeir á að endumýjun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.