Morgunblaðið - 31.10.1999, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1999 21
Fimm súmmarar
Ljósmyndastofa
Reykjavíkur
MYMDLIST
byður
l-innboga Mannosson
Ijósmyndara
velkominn til starfa
Ljósmyndastofa Reykjavíkur
Emil Þór og Finnbogi
Hverfisgötu 105
Sími 5621166
Opiðio.,7aí(a
Vita-A-Kombl
andlitslinan
Svissneska lækninum og vísindamann-
inum dr. Paul Herzog tókst eftir áratuga
rannsóknir að binda súrefni í fast form.
Eitthvað sem engum öðrum hefur enn
tekist að gera. Afraksturinn eru súrefnisvörur Karin
Herzog sem byggja á tveimur alheims einkaleyfum,
þar sem Vita-A-Kombi andlitskremin eru horn-
steinninn. Vita-A-Kombi andlitskremin hafa eigin-
leika sem eru óþekktir í öðrum snyrtivörum, því í
þeim er sameinað bundið súrefni og hlutlaust A-
vítamín sem gefur bylting-
pílfc arkenndan árangur í
uppbyggingu og vörn
húðarinnar. Uppfinn-
ji ingar dr. Paul Herzog
TCTkiv ■ gteina súrefnisvörur
•• 4É Karin Herzog frá öll-
jES um öðrum snyrtivör-
undir ná sínu
a besta fram.
ÝMSIR, BLANDAÐ EFNI
Safnið er opið frá klukkan 11 til 17
alla daga nema mánudaga.
í LISTASAFNI íslands hefur
nú verið opnuð sýning á verkum
fímm þeirra listamanna sem forð-
um tilheyrðu SUM-hópnum, þeirra
Jóns Gunnars Arnasonar, Krist-
jáns Guðmundssonar, Hreins Frið-
finnssonar, Sigurðar Guðmunds-
sonar og Magnúsar Tómassonar. A
sýningunni má sjá verk frá ýmsum
tímum, allt frá verkum sem unnin
voru á fyrsta starfsári SUM og að
nýjum verkum. Markmiðið með
sýningunni er greinilega fyrst og
fremst að kynna þessa fímm lista-
menn en þó er um leið leitast við að
veita nokkra innsýn í þann anda
sem ríkti meðal „súmmaranna".
SUM, sem staðið getur fyrir
Samband ungra listamanna, var
stofnað fyrir þrjátíu árum sem sýn-
ingar- og samstarfsvettvangur fyr-
ir konur og karla sem ekki áttu
kannski samleið með eldri lista-
mönnum í þeim efnum og vildu
kanna nýjar leiðir í listsköpun.
Hafði fordæmi Dieters Roth mikið
gildi íyrir marga þessara lista-
manna, enda flutti hann hingað til
lands ýmsar hugmyndir sem Is-
lendingar höfðu vart haft aðgang
að áður, hugmyndir fiúxus-hreyf-
ingarinnar og ýmiss konar hug-
mynda- og gjörningalistar.
í elstu verkunum á sýningunni
má greina sterk áhrif frá slíkum
stefnum, meðal annars í verki Kri-
stjáns frá 1969, Environmental
Sculpture, og í verkinu Drengur
eftir Sigurð frá sama ári. I báðum
tilfellum farið langt út fýrir ramma
þess sem viðurkennt taldist í ís-
lenskri höggmyndalist, unnið með
hversdagslegt og „ómerkilegt" efni
og reynt að vekja merkingu þess í
grófri og ágengri samsetningu.
En þótt áhrifin frá erlendum
listahræringum væru í upphafi
sterk fundu þessir listamenn allir
fljótlega sitt eigið myndmál og stfl,
og óhætt er að segja að list þessara
fimm beri afar sterk einstak-
lingseinkenni. Jón Gunnar Áma-
son, sá eini úr hópnum sem er lát-
inn, fór reyndar alltaf sínar eigin
leiðir og kemst kannski næst því að
geta talist einhvers konar náttúru-
barn í listinni. Verk hans voru oft
mjög ögrandi og jafnvel stórhættu-
leg, búin hnífum og hreyfanlegum
örmum, en hann gat líka unnið með
fínlegast efni, ljósið sjálft, og virkj-
að það í sólvagna og sólför, eins og
Reykvíkingar þekkja af sólfarinu
stóra sem stendur við sjóinn neðan
Skúlagötu.
Magnús Tómasson á verk á sýn-
ingunni sem sýna vel hvemig hann
vinnur úr hugmyndum. Herínn sig-
ursæli er heitið á flokki risavaxinna
flugna sem ganga með fánabera í
fararbroddi og eru vissulega mjög
ógnandi. Hins vegar var það
kannski fyrst og fremst áhugi
Magnúsar á flugi og þar með fljúg-
andi dýram sem hefur verið kveikj-
an að verkinu því hann átti eftir að
vinna mikla röð verka undir heitinu
Valsmenn, munið hið árlega herrakvöld félagsins
sem haldið verður föstudaginn 5. nóvember nk.
í hátíðarsal Vals á Hlíðarenda
Húsið opnað kl. 19.00
Skemmtileg dagskrá og góður matur
Verð kr. 3.500
Valsmenn fjölmennum Áfram Valur!
Blákoma frá 1989 eftir Hrein Friðfinnsson.
Saga flugsins, auk þess sem væng-
ir og flug birtast enn oft í högg-
myndum hans þótt þær séu nú oft-
ast gerðar úr grjóti eða eir.
Hreinn Friðfinnsson stendur
nokkuð sér á báti í hópnum því
verk hans byggja umfram allt á
fagurfræðinni og eru stundum svo
fínleg að þau virðast efnislaus og
svífandi. Gott dæmi um það er ný-
leg ljósmynd á sýningunni þar sem
sjá má listamanninn handfjatla
marglitað sólarljósið þar sem þar
skín gegnum margstrent gler. En
stærsta verkið á sýnigunni er jafn-
framt eftir Hrein, veggverkið Blá-
koma frá árinu 1989 og þar sést að
léttleikinn og hinn fagurfrræðilegi
einfaldleiki koma ekki í veg fyrir að
hann geti unnið í stóram skala
Miðað við þau áhrif sem þessir
listamenn urðu fvrir í upphafi er
nokkuð sérstakt hve rækilega list
þeirra hefur aðgreinst síðar á ferl-
inum og það kemur kannski hve
gleggst í ljós þegar skoðuð er list
þeirra bræðra Sigurðar og Krist-
jáns. Kristján hneigðist strax til
naumrar framsetningar og má
helst kenna verk hans við minimal-
isma, en Sigurður fann sinn eigin
stíl í hugmynda- og umhverfislist-
inni þar sem hann vann gjarnan
mjög táknsæ verk í Ijósmyndum og
gjörningum. Hin síðari ár hefur
hann hins vegar einkum fengist við
höggmyndir.
Sýningin í Listasafninu er auð-
vitað bara lítið ágrip af af list þess-
ara fimm listamanna sem allir eru
enda vel þekktir og meira að segja
hafa nýlega verið haldnar miklar
yfirlitssýningar á verkum þeirra
Sigurðar og Hreins með tilheyr-
andi útgáfu. Enn síður ber að líta
sýninguna sem einhvers konar út-
tekt á SUM-hópnum og mikilvægi
hans, enda er heldur ekki langt síð-
an slík sýning var haldin. En hér
gefst þó tækifæri til að sjá verk
þeirra fimm í góðu rými, í stærsta
sal Listasafns Islands, þar sem þau
njóta sín vel og sýningin er í alla
staði mjög vönduð og falleg og fær-
ir jafnframt til samhengið í list
þein-a, allt frá upphafinu í SÚM og
fram á þennan dag.
Jón Proppé
Tilboð á Karin Herzog snyrtistofu:
20% afsláttur af súrefnismeðferð fyrir reykingafólk. _
Tímapantanir í síma 698 0799 og 565 6520.
Súrefnisvöfur
|f «1*111 II , m wm gm m m
“§.nn B®fzo9
..ferskir vindar í umhirðu húðár
mam
Þriðjudagur 2. nóv. kl. 14—18:
Háaleitis Apótek,
Hagkaup Akureyri.
Miðvikudagur 3. nóv. kl. 14—18:
Lyf og heilsa — Apótek — Melhaga,
Hagkaup Akureyri.
Fimmtudagur 4. nóv. kl. 14—18:
Apótek Blönduóss, Blönduósi.
Föstudagur 5. nóv. kl. 14—18:
Lyf og heilsa — Apótek — Kringlunni,
Hagkaup Smáratorgi.
Laugardagur 6. nóv. kl. 13—17:
Hagkaup Smáratorgi,
Lyf og heilsa — Apótek — Kringiunni.
/
A
• SelfoxH
Blóðbankinn verður með blóðsöfnun
í Grænumörk 5 á Selfossi þriðjudaginn
2. nóvember kl. 10-18.
Blóðgjöf er lífgjöf!
dlBLÓÐBANKINN
^ - geföu meö hjartanu!
Menningar-
kvöld Klé-
bergsskóla
UNGLINGADEILD Klé-
bergsskóla stendur fyrir
menningakvöldi í tilefni útgáfu
ljóðabókar 8., 9. og 10. bekkjar
þriðjudagskvöld, kl. 20 í fé-
lagsheimilinu Fólkvangi.
Skemmtiatriði verða af
ýmsum toga, flutt af nemend-
um.