Morgunblaðið - 19.11.1999, Síða 4
í hverri Bond mynd er reynt
að gera jallt stærra og betra en
í þeirra síðustu og “TWINE”
er engin undantekning.
Þann ll.janúar 1999 hófust tökur á nýjasta ævintýri
007, “THE WORLD IS NOT ENOUGH” og er það í
nítjánda skipti sem EON fyrirtækið gerir kvikmynd um
þennan frægasta njósnara allra tíma.
I þetta skipti þarf Bond að berjast við hryöjuverkamann að nafni
Renard til að koma I veg fyrir mikla ollukreppu. Hann faer það
verkefni að vernda Elektru King, dóttur olfufursta sem nýbúið er
að ráða af dögum.
Sem fyrr feröast Bond vlða um heim ( verkefni sfnu og f þetta
skipti kemur hann við í Bretlandi, Tyrklandi, Azerbaijan, Spáni og
Frönsku ölpunum. Framandi tökustaðir hafa ávallt verið fastir
liöir í Bond syrpunní og hefur það gefið myndunum glæsilegra
yfirbragö en ella.
Mikið lá undir þegar Pierce Brosnan tók við hlutverki Bond I
myndinni “Goldeneye" fyrir nokkrum árum en hann hefur sýnt og
sannað að hann er réttur maður á réttum stað. Margir eru á þeirri
skoðun að hann sé besti Bond til þessa, þó vilja aðrir ekki taka
þann heiðurinn af Sean Connery sem gerði ofurnjósnaranum
fyrstur skil á hvíta tjaldinu árið 1962 I myndinni Dr.No.
Brosnan segist hafa hlakkað til þess að tökur hæfust á
“TWINE”. “Þetta er eins og að koma heim til fjölskyldunnar"
segir hann og vlsar til hinnar einstöku stemmningar sem myndast
ávallt við tökur á Bond myndunum. Brosnan er mjög ánægður
með ákvörðun leikstjórans, Michael Apted, að fá til samstarfs
leikara á borð við Robert Carlyle og Sophie Marceau. “Það gerir
mitt starf auöveldara og trúverðugara og þegar maöur blandar þvl
saman við stórt og mikiö Bond ævintýri þá kemur vonandi út úr
þvl ein heljarinnar góð mynd." sagði leikarinn (rski.
Eins og venjulega er mikið af sprengingum
og áhættuatriðum
og hefur Brosnan tekið virkan þátt I þeim. “Ég er hissa að ég hafi
bara lent I einu slysi" segir hann og þá á hann við þegar hann var
bakvið stýrið á kröftugum hraðbáti og þurfti að taka
augnabliksákvörðun um hvort hann ætti að fara milli brúar og
annars hraðbáts eða ekki. Or hvorugu varð þvl báturinn lenti á
brúnni. Svo fór um sjóferð þá en hann komst þó óskaddaður frá
þvl óhappi. Hann er feginn að vera umkringdur fagfólki þegar
kemur að slikum atriöum og segist þakklátur enda láti
áhættuleikararnir hann llta vel út. I hverri Bond mynd er reynt að
gera allt stærra og betra en I þeirra slðustu og “TWINE" er engin
undantekning. Nóg er af sprengingum og eltingaleikjum á
allskonar farartækjum I myndinni og til þess lágmarka llkurnar á
slysum er mikilvægt að hafa fagfólk I vinnu. ( Simon Crane sér
um útfærslu áhættuatriða I myndinni og hefur hann glfurlega
reynslu á slnu sviði, m.a úr "Cliffhanger”, "Aliens", "Alien3",
“Total Recall", "Batman", "Titanic" og fjölda Bond mynda.)
"Fólk spyr mig oft af hverju ég haldi að Bond myndirnar virki
jafnvel og þær geri og ég tel að það sé vegna þess að
áhorfendurnir viti við hverju má búast. Þetta er orðin hefð. Þú
ferð I bló og sérð glæsileg áhættuatriöi og fallegar stúlkur á
tjaldinu. Fólk kannast við þetta allt saman og slðan er undir
leikstjóranum, mér og hinum leikurunum komið hvernig myndinni
farnast" segir Brosnan. Hann bætir við að hann hafi nú meira
sjálfstraust en áður I hlutverki Bond og fulla trú á að “TWINE"
verði stærri og betri en slðustu tvær sem heppnuöust þó mjðg
vel.
Bond myndirnar hafa ailtaf státað
af fallegum aðalleikkonum
og í þetta skipti eru það Sophie Marcaeu í hlutverki
Elektru King og Denise Richards sem Dr.Christmas
Jones. Sú síðarnefnda segist ekki hafa gert sér
fyllilega grein fyrir hversu stór syrpan er þangað til
hún fékk hlutverkið. “Fjölmiðlar alls staðar að úr
heiminum voru fljótir að leita mig uppi og ég
uppgötvaði að það er alveg sérstakt að leika í Bond
mynd. Fólk segir að ég muni framvegis verða þekkt
sem Bond stúlka en það fer ekkert í taugarnar á mér.
Ég elska að vera Bond stúlka” sagði Richards. “Konur
í Bond myndum hafa breyst mikið í gegnum árin sem
gerir sögurnar áhugaverðari. Bæði ég og Sophie höfum
hlutverk sem tengjast söguþræðinum náið’’ hélt hin
unga bandaríska leikkona áfram og Marceau tekur I
sama streng. "Fyrir 40 árum hefði Bond ekki haft
kvenkyns yfirmann en myndirnar breytast meö
tímanum” segir Marceau og vísar til hlutverks M sem
Judi Dench hlotnaðist í “Goldeneye”. Það þótti
heppnast svo vel að hlutverk hennar hefur stækkað
meö hverri mynd og hefur aldrei veriö stærra en í
“TWINE”. "Ég elska hlutverk M og það er yndislega
skrifað. Ég hef fleiri senur með Pierce í þetta skipti.
Mér finnst hann vera alveg fullkominn Bond” sagði hin
margverðlaunaöa Dench.
Án óþokka væri engin Bond mynd
og þess vegna þarf aö vanda valiö þegar kemur að því að
velja leikara í hlutverk andstæöings 007. í þetta skipti varð
skoskur leikari að nafni Robert Carlyle fyrir valinu og
skemmti hann sér konunglega við að tökur á myndinni. “Ég
hefði gert þetta ókeypis. Ég leik hryðjuverkamanninn Renard
sem hefur byssukúlu í höfðinu þannig aö hann er að deyja
frá upphafi myndarinnar. Þó er mjög erfitt aö drepa hann því
hann hefur misst allt sársaukaskyn" sagði Carlyle. "Að leika
óþokka í Bond mynd hlýtur að vera það allra besta, er það
ekki! Maöur getur verið eins vondur og maöur vill. Það er
alltaf gaman að leika óþokka".
Framleiðendur myndarinnar sannfærðust um að Carlyle
væri rétti maðurinn í starfið eftir að hafa séð þátt úr
lögregluþáttunum "Cracker” þar sem hann lék geðsjúkling.
Það vill svo til að í leikaraliði "TWINE" er einmitt stjarna
"Cracker" þáttanna, Robbie Coltrane. Hann er í hlutverki
Valentin Zukovsky en sú persóna kom fyrst fram í
"Goldeneye". "Þaö eru ekki margir leikarar sem fá að birtast
aftur í syrpunni og ég er þakklátur fyrir það. Ég hef alltaf
dáð Bond myndirnar, þetta eins og að fá að keyra Formúlu 1
Grand Prix bíl." Sagöi Coltrane sem er sammála Carlyle um
að óþokkahlutverkiö í Bond sé með því skemmtilegasta sem
hægt er að leika. "Okkur Carlyle fannst það líka fyndið að
hann skuli leika Frakka og ég Rússa því viö erum báöir frá
Glasgow”.
Hann er þó ekki sá eini sem er beðinn um að birtast í fleiri
3
1