Morgunblaðið - 19.11.1999, Síða 17

Morgunblaðið - 19.11.1999, Síða 17
eWÆÁV7ÆZ/sMrf£17/71*00 007- The Man With the Golden Gun, Mary Goodnight Hin undurfagra Britt Ekland hóf feril sinn í tannkremsauglýsingu þegar hún var fimmtán ára og vann sig upp í að leika Bond stúlkuna í The Man With the Golden Gun. Mary Goodnight var kollegi Bonds í Hong Kong. Mikið var gagnrýnt hversu slök Mary var gerð í myndinni í samanburöi við bók Flemmings. The Spy Who loved me, Anya Amasova Anya Amasova, sem leikin var af Barböru Bach, ætlaði sér að drepa Bond í hefndarskyni fyrir að myrða elskhuga hennar. Anya gaf Bond ekkert eftir í myndinni og sýndi oft að hún er snjallari en hann. Það kom þó ekki í veg fyrir að hún félli fyrir honum. l í I i | I i Moonraker, Dr. Holly Goodhead Hún er af mörgum talin langbest menntaða og hæfileikaríkasta Bond stúlkan. Dr. Holly Goodhead var í senn stjarneðlisfræðingur, þrælþjálfaður geimfari og njósnari. Auk þess gaf hún Bond ekkert eftir í slagsmálum við vondu karlanna. Lois Chiles fékk hlutverkið fyrir tilviljun eftir að hafa vakið athygli leikstjórans þar sem hún sat við hliðina á honum í flugvél. For You Eyes Only, Melina Havelock Leiðir hennar og Bond lágu saman við leit þeirra að Kristatos, manninum sem varð foreldrum Melinu að bana. Hinni frönsku Carole Bouquet þótti takast vel upp með leik sinn í myndinni. Bond átti í þó nokkrum vandræðum með að ná ást Melinu og tókst ekki ætlunarverk sitt fyrr en í lok myndarinnar. Octopussy, Octopussy Maud Adams þykir ein besta leikkonan sem komið hefur fram í James Bond myndunum, enda er hún eina leikkonan sem leikið hefur stór hlutverk í tveimur þeirra. Auk þess að leika í Octopussy kom hún fram í The Man With the Golden Gun. Wiew To A Kill, May Day May Day þykir ein frumlegasta persónan sem litið hefur dagsins Ijós í Bond myndunum. Grace Jones, sem einnig hefur getið sér gott orð fyrir söng, fór með hlutverk hennar á eftirminnilegan hátt og lét aðrar stúlkur í myndinni líta út eins og máttlausar dúkkulísur. Glöggir muna að heista áhuga mál May Day var að kyrkja menn með lærunum á sér. The Living Daylights, Kara Milovy Kara Milovy telst ekki til hefðbundinna Bond stúlkna. Þrátt fyrir sakleysi sitt var hún meira í ætt við nútímakonur sem spjara sig sjálfar. Maryam D'Abo fór vel með hlutverk sitt og rímaði vel við alvarlega túlkun Timothys Dalton á Bond. Licence To Kill, Pam Bouvier Carey Pam þykir ein svalasta og flottasta Bond stúlkan í seinni tíð. Carey Lowell fór með hlutverk hennar og sannaði rækilega að Bond stúlkurnar gætu verið meira en skraut í myndunum. Golden Eye, Natalya Simonova Það vakti vonbrigði meðal fjölmargra dyggra áhorfenda Bond að hin undurfagra Izabella Scorupco skyldi ekki í einu einasta atriði klæðast fallegum og djörfum kjólum að hætti Bond stúlkna. Fyrir myndina hafði Izabella Scorupco öðlast frægð sem söng- og leikkona í Svíþjóð. Tomorrow Never Dies, Wai Lin Hún var sannkölluð kjarnakona, sjálfstæð og vel í stakk búin til þess aö sjá um sig sjálf án aðstoðar Bonds, sem ítrekað bauð fram þjónustu sína. Það sama má segja um leikkonuna Michelle Yeoh sem er ein vinsælasta leikkonan í Asíu og þekkt fyrir bardagaatriði í myndum sínum þar sem hún leikur öll áhættuatriði sjálf. T

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.