Morgunblaðið - 19.11.1999, Page 20
Ua
Bond mynd er ekki Bond mynd
fyrir ekki neitt. Til þess að uppfylla
væntingar áhorfenda þarf að
sjálfsögðu kappann sjálfan, minnst
eina glæsipíu, verðugan
andstæðing sem hyggst sigra
heiminn og síðast en ekki síst
fullkomin tæki og tól sem aðeins
hörðustu leyniþjónustur búa yfir.
Ailar Bond myndirnar hafa státað
af fullkomnum tæknitólum sem
oftar en ekki bjarga lífi Bonds.
Tækin hafa á hverjum tíma þótt
framsækin og óraunhæf en hafa
jafnframt borið vitni um snilld
þeirra sem sjá um tæknibrellurnar.
Óskarinn fyrir tæknibrellur
Frá því aö fyrstu James Bond myndirnar
komu út hafa fjórir
tæknibrellusérfræðingar komið mest við
sögu. Einn þeirra ber þó höfuð og herðar
yfir hina. John Stears vann til
Óskarsverðlauna fyrir tæknibrellur í
myndinni Thunderball sem kom út árið
1965. Enn þann dag í dag er hann sá eini
sem hlotið hefur Óskar fyrir tæknibrellur í
James Bond mynd. Myndin státaöi enda
af tæknibrellum sem voru það flottasta
sem sést hafði á hvíta tjaldinu á þeim
tíma. Þar á meðal var snekkjan Disco
Volante meö öllum sínum eiginleikum,
stórkostlegar sprengingar og sérlega vel
búinn Aston Martin. Stears gerði síðar
garðinn frægan með vinnu sinni í Star
Wars sem hann hlaut sinn annan Óskar
fyrir. Fleiri Óskarsverðlaunahafar hafa
einnig komið við sögu við gerð tæknibrella
( Bond myndum s.s. John Richardson sem
hlaut sinn óskar fyrir myndina Aliens.
Nýjustu tækin
Nýjasta myndin um Bond, The World is
Not Enough, gefur fyrri myndunum ekkert
eftir. Spenntir aðdáendur geta átt von á að
sjá flottari tól og tæki en nokkru sinni
fyrr. óhætt er aö fullyrða að það verður
enginn fyrir vonbrigðum með uppátæki Q
og tækin sem hann færir Bond úr smiðju
sinni. Hér er litið á eftirminnileg tæki og
tól sem Bond hefur nú þegar notað í
myndum sínum.
Banvæn og nýstárleg úr
Það eru engin takmörk fyrir þeim
tæknibúnaöi sem Bond hefur nýtt við störf
sín. Einna frægust eru þó úrin sem hafa
verið af margvíslegum toga. Fyrsta sérbúna
úrið nýtti hann sér árið 1973 í myndinni
Live and Let Die. Það forláta Rolex úr hafði
þann eiginleika að geta bægt frá
byssukúlum sem skotið var í átt að Bond.
í Moonraker og Octopussy var Bond hins
vegar kominn með Seiko úr sem fyllt voru
sprengiefnum og gátu skotið banvænum
eiturörvum. Seiko úrið sem Bond bar í
myndinni The Spy who Loved Me gat tekið
við nokkurs konar tölvupósti þess tíma og
lét Bond vita þegar höfuðstöðvarnar þurftu
að ná í hann. Fullkomnasta úrið til þessa
notaði Bond í myndinni Goldeneye en það
gat gefiö frá sér öflugan leysigeisla sem
dugði á hvað stál sem er.
Lyklakippa að öllum hurðum
I myndinni The Living Daylights kom
lyklakippa Bonds að góðum notum. Lyklar
kippunnar gengu að 90% allra hurða og
lása t heiminum. Að auki var [ henni
eiturgas sem sett var at stað með þvl að
flauta lltinn lagstúf. Ef gasið dugði ekki til
þurfti einungis að flauta lltinn lagstúf til að
kippan springi.
Bond á BMW
Bíllinn sem Bond ekur í The World is Not
Enough er 400 hestafla tryllitæki frá
verksmiðjum BMW og er þetta í þriðja skiptið
sem BMW verður fyrir valinu í Bond mynd.
Það tekur nýja bílinn undir fimm sekúndum
að komast á hundrað kílómetra hraða og ef
þú botnar hann þá hættir hann ekki hraða
sér fyrr en 250 km hraða er náð. BMW nýtir
Bond til hins ítrasta við markaössetningu á
bílnum og er nú svo komið að
bílaframleiðendur keppast við að eiga Bond
bílana.
007~
Bíll á skíðum
Frægasti bíll í heimi.
Þessi glæsilegi bfll hefur oftar en ekki verið
nefndur frægasti blll I heimi. Hann er af
gerðinni Aston Martin DB5 og var notaður I
myndinni Goidfinger. Við gerð myndarinnar
höfðu framleiðendur ekki efni á að kaupa
bllinn en fengu hann lánaðan gegn þvl að
Aston Martin mætti nota hann I
kynningarskyni eftir að myndin kæmi út.
Bllnum var gjörhreytt og hann fylltur búnaði
sem nauðsynlegur var talinn fyrir Bond. M.a.
voru settar upp vélbyssur að baki
stefnuljósunum sem komu fram þegar ýtt var
á takka I mælaborðinu. Skotheld plata sem
varði afturrúðuna fyrir kúlnahrlð var sett
þannig að hún kæmi upp úr skottinu.
Númeraplðturnar voru settar á snúningsás
svo óvinirnir gætu ekki lesið á þær. Þá gat
blllinn sprautað ollu á veginn til að óvinirnir
misstu stjórn á bflum slnum og sérstakur
armur var á hlið hans til að sprengja dekk á
öðrum bllum.
Hér eru enn þá ótalin minni atriöi s.s.
sérstakt vopnabúr undir bllstjórasætinu,
bllaslmi falinn I bllstjórahurðinni og radar
sem gerir ökumanninum kleift að fylgjast
með annarri umferð. Sfðast en ekki síst býr
bfllinn yfir búnaði sem gerir bllstjóranum
mögulegt, með þvf að ýta á takka I
glrstönginni, að skjóta farþegasætinu og
óæskilegum farþega hátt upp I loft.
James Bond hefur ekki verið þekktur fyrir að aka á
venjulegum bllum. Þessi sérbúni Aston Martin nýttist
honum vel á flótta I Rússlandi. Hann var þeim eiginleikum
búinn að sklði komu undan honum þegar vegurinn var háll.
Framan af hélt Bond sig mest við nýjustu gerð hvers tlma
af Aston Martin en I seinni tlð hefur hann tlð verið að prófa
sig áfram með aörar tegundir.
Bíll og kafbátur
Með þvl að ýta á einn takka hverfa hjólbarðarnir inn I
hjólaskálarnar og I stað þeirra koma uggar. Undan
stuðaranum að aftan kemur skrúfa og Lotus glæsibifreiðin
hefur á augabragði breyst I vel vopnaðan kafbát sem reynist
Bond ómetanlegur við að útrýma óvininum og leysa verkefni
sitt. Bllinn var vel búinn neðansjávar eldflaugum gegn
öðrum kafbátum. Þá gat hann einnig skotið eldflaugum
neðansjávar sem skutust upp á yfirboðið og hæfðu skotmörk
á þurru landi. Ýmis konar búnaður var I bllnum til að villa
um fyrir óvininum. Þunghlaönar fallbyssur voru einnig I
bflnum til að nota á þurru land gegn óvinabllum.
Siglandi fallbyssa
Snekkjan Disco Volante var siglandi virki
óþokkans Largo. Á kili snekkjunnar var hleri
sem gerði þrjótunum kleift að koma stolnum
kjarnorksprengjum óséðum inn I skipið. Þá
var innbyggö I snekkjuna 50 feta fallbyssa
sem gat skotið sprengjunum. Tæknibrellurnar
I kringum Disco Volante þóttu hið mesta
þrekvirki á sviði tæknibrella þegar
Thunderball var gerð
Með þotuhreyfil á herðunum
Til þess að flýja óvinina I Thunderball notaði Bond nokkuð
óvenjulegt tæki sem ekki hefur sést I Bond mynd slðan.
Tækið samanstóð af þotuhreyfli sem spenntur var á bakið
eins og bakpoki og með þvl að þrýsta á handfangið tókst
hann á loft. Tæki þetta var engin hugarsmtð framleiðanda
myndarinnar heldur raunverulegt tæki sem þróað var fyrir
bandarlska herinn. Sean Connery var þó ekki treyst til að
fljúga með sjálfan sig heldur var alvöru flugmaður fenginn
til að leika I atriðinu.