Morgunblaðið - 24.11.1999, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.11.1999, Blaðsíða 5
Astin skammlíf í sjónvarpi • Þaö gengur á ýmsu í sápu- óperum sjónvarpsins; hræði- legir sjúkdómar herja, fólk finnur tvíburasystkini sín upp úr þurru, engir eru vinir í alvör- unni og skilnaðir eru daglegt brauð. Biskup nokkur í Bret- landi hefur fengið nóg af öll- um þessum skilnuðum og ákvað að láta til skarar skríða. Biskupinn heitir Allan Chester og heldur því fram að það sé mun meira um skiln- aði í sjónvarpsþáttum á borð við Coronation Street og East Enders heldur en í raunveru- leikanum. „Mér finnst að höf- undar þáttanna ættu að hampa hjónabandinu og lýsa hamingju hjóna í handritum sínum og góðum hlutum sem koma fýrir fólk,“ sagði Allan. „Það virðist sem eina leiðin til að halda áhorfinu sé aó láta fólk skilja sí og æ,“ bætti hann við. „Þaö væri gleðileg tilbreyting ef við fengjum að fylgjast með fólki sem vinnur úr sfnum málum og kemur hjónabandinu á réttan kjöl." Þess vegna er biskupinn svo hrifinn af hjónakornunum Jack og Veru úr þáttunum Coronation Street. „Þau rífast en þau eru alltaf aó reyna að leysa vandamálin," útskýrði hann. Allan sagði einnig að vissulega væri oft skrifað upp- byggilega um hjónaskilnaði í sjónvarpsþáttum og sá sárs- auki og angist sem fylgir skilnuðum ofttil umfjöllunar. Þættirnir Melrose Place sem sýndir eru í Sjónvarpinu eru gott dæmi um þátt fullan af undirferii og hjónaskilnuðum. Michael skildi við eiginkon- una Jane og flúði í faðm Megan en sá svo eftir öllu og fór aftur til Jane. Sófar • stólar • svefnsófar Alma Clara 184.000,- kr. Sófi og 2 stólar. höfðatúni 12 105 reykjavík sími 552 6200 552 5757 gogn 5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.