Morgunblaðið - 24.11.1999, Side 27
Vitavörðurinn Fellx Bergsson bendir Arnóri Frey
Guðmundssynf á hvernig hægt er að fá að vita
ýmlslegt um íþróttir á heimasíðu Vitans.
sagt en að viðtökurnar hafi
fariö framar öllum vonum."
- Hvaða aldurshópur er
mest áberandi á heimasíð-
unni?
„Það eru börn á öllum aldri.
Þau eru alveg frá fimm ára og
upp í þrettán ára og þau geta
alveg stjórnað því eftir hverju
þau eru að leita. Unglingarnir
eru aó leita eftir félögum og
svolítiö að spá í hitt kynið
meðan þessi fimm ára eru
bara að segja okkur litla og
skrýtna brandara og hvað
þeim finnst best að borða
eða bara til að segja: „Hæ!“.
Og svo er allt þarna á milli."
GAMAN AÐ VERA
VITAVÖRÐUR
- En finnurðu ekki svoiítið
til þín sem vitavörður?
„Jú, ég er mjög ánægður
með þennan fína titil. Ekki
síst í því Ijósi að vitinn varpar
Ijósi og vísar veginn."
- Ertu ekki búinn að koma
þér upp dágóðu bókasafni til
að bera nafn með rentu?
Nú skellir vitavöröurinn sér
á lær og skellihlær. „Ég veit
það nú ekki, en ég tek hlut-
verkinu alvarlega engu að síð-
ur. Það er mjög gaman hversu
krakkarnir eru dugleg að láta
okkur vitaverðina vita hvað
þeim finnst um þáttinn og
nýta sér þá möguleika sem
vefurinn býður upp á.“
- En hvernig finnst sjón-
varpsmanninum Felix að vera
kominn í útvarpið?
„Mér finnst það alveg frá-
bært. Að vissu leyti er ég í
Vitanum allt annar Felix en sá
sem krakkarnir þekkja úr
tvíeykinu Felix og Gunna í
Sjónvarpinu. Ég er að sumu
leyti meira ég sjálfur núna og
gaman aö finna hvaó krakk-
arnir skilja þá breytingu vel.
Sonju Guðmundsdóttur finnst skemmtilegast að
skoda Brandarabankann á heimasíðu Vitans.
Draumurinn er að vera með
þátt sem allir geta haft gam-
an af, bæði fullorónir og
börn. Galdurinn við það er að
sýna börnum og hugðarefnum
þeirra virðingu og sinna efn-
inu af áhuga. Það reynum við
Sigríður að gera því viö erum
að fjalla um líf barnanna í
þáttunum, skólann þeirra,
íþróttirnar sem þau stunda,
tónlistina sem þau hlusta á
og hvað er í boði fyrir börn í
menningarlífi landsmanna.
Við reynum að hafa þessa
umfjöllun á jafnræðisgrund-
velli og í rauninni er ég sjálfur
að uppgötva svo margt með-
an ég geri þættina og vil
endilega bjóða krökkunum að
taka þátt í þessari uppgötvun
með mér.“
frá
HAFNARFIRÐI
BÆJARLIND 6 200
Sími: 554 6300 Fax: 554 6303
ira.is
Á NETINU
27