Morgunblaðið - 24.11.1999, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 24.11.1999, Qupperneq 47
■ FÖSTUDAGUR 3. desember SJÓNVARPiÐ drama Rauðliðar - Reds (’81) Tilraun stjömunnar Warrens Beatty að fást við stíl og breidd hinna sögulegu stór- mynda heppnast sómasam- lega. Frásögnin er hefðbundin og nassta gamaldags í lýsingu á síðasta árinu í lífi bandanska blaðamannsins John Reeds og ferð hans til Moskvu á tímum rússnesku byltingarinnar. Ástarævintýri hans og rithöfundarins Louise Bryant (Diane Keaton) gerð góð skil. Fjöldi traustra aukaleikara krydda framvinduna og viðtölin við samtímamenn Reeds í byrjun er snjallt skref. Ekkert hefur verið til spar- að við framleiðsluna; myndin lítur geysivel út í frábærri myndatöku Vitt- orio Storaro, sem hreppti Óskar ásamt Beatty fyrir leikstjómina og Maureen Stapleton fýrir leik í aukahlutverki. ■ LAUGARPAGUR 4. desember SJÓNVARPIB PRAMA Stálblóm - Steel Magnolias (’89) Sex konur í smábæ í Suður- ríkjunum hittast á hár- greiðslustofunni en bak- grunnur þeirra er geysiólík- ur. Áhorfandinn kynnist þeim í sorg og gleði, þlíðu og stríðu. Hnyttilega skrifuð blanda gamans og alvöru, byggð á kunnu leikhúsverki. Persónu- sköþunin og leikkvennablóminn (Sally Field, Dolly Parton, Shiriey McLaine, o.fl.) aðal myndarinnar, sem erfyrst og fremst hressileg og jákvæð. GAMANDRAMA Draugur - Ghost (’90) #Bankamaður (PatrickSwa- yze), kemst að óreiðu á bankareikningi og lætur lífið fyrir. Reynir sem draugur að forða ástinni sinni (Demi Moore), frá bófunum með hjálp miðils (Whoopi Goldberg). Best heppnaða drauga- myndin af mörgum sem gerðar voru við lok níunda áratugarins. Spenn- andi, hlægileg og rómantísk afþreying í áhrifaríkri leikstjórn Jerry Zuckers. Pottþétt afþreying sem blandar sam- an fantasíu, þriller og gamanmynd. SJONVARPfÐ SPENNA Umsátríð - Under Siege (’92) Harðhausinn Steven Seagal með kokkahúfu um borði í herskipi, leggurfrá sérsleif og steikarpönnu er hann kemst að því að hryðjuverkamenn eru um borð, sem hyggjast ræna kjarnorkuvopnum á skipsfjöl. Soð- greifinn sér um sína. Tommy Lee Jo- nes og Gary Buseyn (sem slæmu strákarmir), stela nánast senunni frá Seagal sem hefur þó aldrei verið brattari en í þessum hörkuspennandi trylli, sem varð stjörnunni lyftistöng um sinn og skipaði leikstjórann. Andrew Davis, á sess með bestu hasarmyndasmiðum dagsins. PRAMA Heima er verst - No Way Home (’96) Bretinn Tim Roth stelur ksenunni í mynd um fanga ' sem snýr heim eftir afplán- un til að finna að það er erfitt að fóta sig á einstigi réttvísinn- ar við ömurlegar aðstæður heima fyrir. Bróðir hans (James Russo), smákrimnmi og mágkonan (Deborah Unger) fatafella. Óvenjuleg og at- hyglisverð. ■ SUNNUDAGUR 5. desember VISINDASKALDSKAPUR Hingað og ekki lengra - Brainstorm (’83) Vísindamenn við sálarrann- > sóknir hyggjast taka upp ’ lífsreynslu manna. Hefði getað orðið með athyglis- verðari v.s.-myndum síðasta áratugar ef ólánið hefði ekki elt hana. Aðal- áfallið, sviplegt dauðsfall aðal- leikkonunnar, Natalie Wood, krafðist talsverðrar endurkvikmyndatöku og breytinga á handriti svo hægtværi að púsla myndinni saman. Cliff Robertson, Christopher Walken. ■ ÞRIÐJUDAGUR 7. desember GLÆPUR Litli Sesar - LitUe Caesar ('31) Einn af sígildu, gömlu i góðu Warner-krimmunum, ' sem neitar að eldast. Edward G. Robinson leikur titilpersónuna, vægðarlaust ómenni sem rís til valda um sinn í hverful- um glæpaheimi. Talin byggð á lífshlaupi Al Capone og Edwards leikur fólið af þvílíkri innlifun að hann var kenndurvið myndina uþp frá því. Douglas Fairbanks, Jr., leikur félaga hans sem snýr af glæpa- brautinni. Ómissandi. Leikstjóri Mervin LeRoy. Sæbjörn Valdlmarsson. Warren Beatty og stjórnmálin Leikarinn, leikstjórinn og framleiðandinn Wanren Beatty hefurlöngum þótt maður rammpólitískur. Ekki þarf annað en að líta yfir kvikmyndalistann sem hann á að baki til að fá sönnur á því. Sjálfsagt hefði hann lent í klónum á McCarthy og Óamerísku nefndinni ef hann hefði verið að fitla við gerð mynda á borð við Rauðliða - Reds (Sjónvarpið 3. des.), um miðja öldina. Þegar öldungardeildarþingmaðurinn fór mikinn í leit sinni að kommúnistum í kvikmyndaborginni hefði sá maður sem gerði mynd um kommann og Bandaríkjamanninn John Reed verið tafarlaust bannfærður. Beatty var vinstri sinnaður demókrati og hefur stutt dyggilega við bakið á hinum flölmörgu vonbiðlum krataflokksins til æðsta embættis Bandaríkjanna; McGovem, Dukakis, Ferrano, og hvað þau heita nú öll sem borið hafa afhroð fyrirfull- tníum repúblíkana undanfama áratugi. Ekki átt erindi sem erfiði. Um það má deila hvenær Beatty sýndi fyrst á sér pólitísku hliðina. Það má benda á The Parallax View (74), jafnvel Bonnle og Clyde (’67). A.m.k. geta menn verið sammála um að það hafi verið Shampoo, (75), sem leyndi ekki pólitísku hugarfarinu. Hinsvegarerfiaudf/ííar hans veigamesta mynd hvað snertir umfang og metnað og talsvert mikilfengieg fyrir augað og ánægjulegt að fá að endumýja við hana kynnin eftir tæp tuttugu ár, skoða hana í Ijósi hins nýja, pólitíska landslags þegar búið er að urða heimskommúnismann og afskrifa hugsjónir þeirra manna sem John Reed tníði á og veitti gagnrýnislausa hollustu. Um það fjallar myndin. Forvitnilegt efni Steven Seagal og Tommy Lee Jones Tíminn er hverfull. Ekki síst í Hollywood, þar sem hann er tæp- ast til og velferð manna aðeins mæld með einni mælistiku; velferð síðustu myndar viðkomandi. Þar skipast veður því fljótt í lofti, einsog Umsátrið - Under Siege (Sjónvarp- ið 4. des), er ágætt dæmi um. Fram að Umsátrinu (’92) var B- myndatöffarinn Steven Seagal að smábyggja uþp lítinn og tryggan aödáendahóp, en samt svo stóran að ekkert lát var á myndum hans og þegar hér var komið sögu hafði Warner veitt honum rýmra fjármagn til sinnar árvissu hasarmyndargerð- ar. Seagal brást ekki peningamönn- um Warner, fékk til liðs við sig Tommy Lee Jones, nánast útbrunna stjörnu sem hafði slegið í gegn 1980 í The Coal Miner’s Daught- er, og var kominn í vond mál. Seagal tókst ekki að fylgja eftir gæðum Umsátursins. Síðustu mynd hans. The Patriot (’99), dreifði Wamer beint á DVD-diska og myndbönd (var reyndar sýnd hérlendis í kvikmyndahúsi við dræma aðsókn). Hinsvegar varð velgengni Umsátursins til þess að augu framleiðenda fóru aftur að beinast að kjarnorkukariinum Jo- nes, sem hefur leikið í fjölmörgum aðsóknarmyndum síðan og nýjasta myndin hans, Double Jeopardy, var vinsælasta myndin vestan hafs fyrir örfáum vikum. 47

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.