Morgunblaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Líknarstarf undir- búið á aðventunni Morgunblaðið/Golli Aðventan er hafin og þar með undirbúningur jólahátíðarinnar. Einn mikilvægur liður jóla- undirbúningsins fer fram hjá líknarfélögum landsins. Reykjavík AÐVENTAN er hafín og þá má segja að undirbúningur jólahátíðarinnar sé einnig hafinn fyrir alvöru. Þessi undirbúningur er af ýmsu tagi og eru viðfangsefnin ólík eftir aðstæðum. Einn mikilvægur liður jólaundir- búningsins fer fram hjá hin- um mörgu Iíknarfélögum landsins og hafa þau nú flest hafist handa, því að mörgu er að huga í starfi þeirra. Hjálparstarf kirkjunnar aðstoðar tvöþúsund manns fyrir jólin „Nú stendur yfir aðal- fjársöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar og á árangri hennar byggist starf okkar á næsta ári,“ segir Anna Olafs- dóttir sem hefur umsjón með jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar. Jólasöfnunin er almenn söfnun og segir Anna pen- ingana bæði renna til þróun- ar- og neyðarstarfs erlendis og til aðstoðar innanlands. Þetta er stærsta cinstaka söfnun Hjálparstarfs kirkjunnar og í henni safnast um helmingur þeiri'a pen- inga sem safnast hjá þeim ár- lega. I fyrra söfnuðust um át- ján milljónir í jólasöfnuninni og fór hluti peninganna til verkefna erlendis, svo sem byggingar vatnsbrunna, uppbyggingar skóla og að- stoðar fólks í neyð. Innanlandsaðstoð Hjálpar- starfsins fer fram allt árið en fyrir jólin er veitt sérstök að- stoð, í samvinnu við Reykja- víkurdeild Rauða kross Is- lands. Fjölskyldum og einstaklingum sem búa við bág kjör er gefinn jólamatur og er tekið við umsóknum um þá aðstoð dagana 6. til 10. desember. Frá því að tek- ið er við umsóknum er unnið við að safna saman mat og er matarkörfum úthlutað síð- ustu dagana fyrir jól, eftir aðstæðum fólks og fjölskyld- ustærð. Sjálfboðaliðar, bæði frá Reykjavíkurdeild RKÍ og Hjálparstarfi Kirkjunnar, taka við umsóknum og ganga frá matnum þegar hann berst og setja í pakka. í fyrra komu um 30 sjálfboðaliðar að starfinu og segir Anna að öll aðstoð sé vel þegin og áhugasamir megi gjaman gefa sig fram á skrifstofu þeirra. „í fyrra bárust okkur um 900 umsóknir um aðstoð og um 2000 manns nutu góðs af henni, segir Anna, „ég hugsa að það verði svipað í ár.“ Hún segir að í fyrra hafi Hjálparstarf kirkjunnar var- ið um sjö milljónum króna til innanlandsaðstoðar, þar af hafí um tveimur og hálfri milljón verið veitt í aðstoð fyrir jólin, auk þess sem þau fái matvæli fyrir um sjö millj- ónir að gjöf frá matvæla- framleiðendum og -innflytj- endum. Haldið upp á jólin hjá Hjálpræðishernum Jólasöfnun Hjálpræðis- hersins er að fara af stað og verður byrjað að safna í potta Hjálpræðishersins, í miðbænum og í Kringlunni, innan skamms. Miriam Ósk- arsdóttir hefur umsjón með líknarstarfí Hjálpræðishers- ins fyrir jólin og segir hún söfnunarkassana kallaða potta því peningarnir sem safnist í þá séu aðalega not- aðir til að kaupa mat. Hjálpræðisherinn veitir fólki aðstoð, bæði með mat- argjöfum fyrir jólin og með því að bjóða til jólamáltíðar á aðfangadagskvöld í sam- vinnu við samtökin Vernd. Miriam segir að fólk komi til þeirra, sæki um zs og rétt fyrir jólin sé gjafakortum í matvöruverslanir útdeilt til þeirra sem á þurfi að halda. Sumir fái einnig matarpakka og aðrar gjafir sem berast Hjálpræðishernum á aðvent- unni og segir hún meira en tvöhundruð fjölskyldur hafa notið góðs af slíkum gjöfum um jólin í fyrra. Einnig er haldið upp á jól- in í húsi Hjálpræðishersins á aðfangadagskvöld með jóla- máltíð, gjöfum og öllu til- heyrandi og segir Miriam að Qöldi þeirra sem þangað konii fari vaxandi. „Jólahá- tíðin er haldin í samstarfi við samtökin Vernd, sem í mörg ár héldu jól með fyrrverandi föngum, en fyrir nokkrum árum var jólahaldi Verndar og Hjálpræðishersins á að- fangadagskvöld slegið sam- an.“ Hún segir að hópurinn sem þangað komi sé breiður, til dæmis komi nokkuð af fólki sem hefur lent í vímuefnum, einnig einstæðingar og gam- alt fólk og telur hún að um hundrað og tuttugu manns hafí borðað þarna saman á aðfangadagskvöld í fyrra. Þar eru meðtaldir sjálfboða- liðar sem koma til að útbúa matinn, bera fram og hjálpa til að öðru leyti. Hún segir einstaklega þægilegt og af- slappað andrúmsloft ríkja hjá þeim um jólin og að þar sé virkilega gott að vera. Um fimmtíu sjálfboðaliðar koma að starfí Hjálpræðis- hersins fyrir jólin. Þeir að- stoða við matarúthlutun og jólaundirbúninginn í húsi Hjálpræðishersins og einnig heimsækja þeir eldra fólk og þá sem kynnu að þurfa á ein- hverju sérstöku að halda fyr- ir jólin. Þeir pakka inn jóla- gjöfum sem berast Hjálp- ræðishernum og gefnar eru fólki sem þangað leitar og einnig útbúa þeir jólaglaðn- ing sem sendur er í fangels- in. Miriam segir að allir þeir sem vilji bjóða fram aðstoð sína megi gjarnan hafa sam- band við Hjálpræðisherinn Sífellt fleiri leita til Mæðrastyrksnefndar Mæðrastyrksnefnd er sem fyrr til húsa að Sólvallagötu 48. Þar er opið allt árið á miðvikudögum og föstudög- um frá klukkan tvö til fjögur, en frá 1. desember og fram að jólum er opið alla virka daga frá klukkan tvö til fimm. Asgerður J. Flosadóttir er nýr formaður Mæðrastyrks- nefndar og segir hún þá sem telja sig þurfa aðstoð mega koma til þeirra á Sólvalla- götuna og leggja inn um- sókn. Um miðjan desember er byijað að úthluta, mat, fötum og jólagjöfum. Um fimmtán sjálfboðaliðar skipt- ast á að vera við á Sólvalla- götunni á aðventunni. Þeir sjá um að taka við umsókn- um, útbúa matarpakka og flokka og úthluta þeim gjöf- um sem berast. Mæðrastyrksnefnd fær ár- lega einnar milljónar króna styrk frá Reykjavíkurborg fyrir föstum kostnaði. Sú fjárhæð sem veitt er í aðstoð og þær gjafir sem eru gefnar koma hinsvegar frá einstakl- ingum og fyrirtækjum sem gefa peninga, föt, mat, leik- fón£ og aðrar jólagjafir. Asgerður segir 1100 fjöl- skyldur hafa leitað til mæðrastyrksnefndar í fyrra sem sé nokkur aukning frá árinu áður. Hún segir þetta fyrst og fremst einstæðar mæður, en einnig sé rnikið um öryrkja og eldra fólk. „Ég er hrædd um að það verði einnig mikið að gera hjá okkur í ár. Það er þegar búið að vera töluvert að gera núna í lok október og í nó- vember.“ Hún segir auk þess vitað að það sé stór hópur í þjóðfélaginu sem þurfi á að- stoð að halda en leiti ekki eft- ir henni. Hinsvegar sé gleði- legj; að margir sem hafi þegið aðstoð þeirra í gegn um tíðina komi til þeirra þegar hagur þeirra hefur vænkast og gefi sjálfír. Móðir um niður- greidda dagvist Auka mis- réttið Hafnarfjörður ÞURÝ Axelsdóttir, sem er giftur námsmaður og móðir 13 mánaða bams, segir að Hafnarfjarðarbær auki það misrétti sem verið hafi við lýði í niðurgreiðslum á dagvist með samþykkt félagsmála- ráðs um að auka niðurgi'eiðsl- ur til foreldra yngri en 18 ára og til foreldra sem eiga börn eldri en tveggja ára. Samþykkt félagsmálaráðs felur í sér að foreldrar, sem eru yngri en 18 ára, fái niður- greiðslur eins og einstæðir foreldrar, hvort sem þeir eru í sambúð eða ekki og að for- eldrar, sem eiga börn eldri en tveggja ára og eru báðir í námi, fái sambærilegar niður- greiðslur á dagvist hjá dag- mæðrum og væru börn þeirra í leikskóla. Allir foreldrar barna eldri en tveggja ára í Hafnarfirði, sem eiga börn hjá dagmæðrum, fá um það bil 11 þúsund króna styrk á mánuði, miðað við heilsdags- vist. Þurý segist telja að það sé til góða að auka stuðning við foreldra en með þessu sé mis- réttið aukið. Hún segist ekki skilja hvað búi að baki því að miða við 18 ára aldur foreldra annars vegar og tveggja ára aldur barns hins vegar. „Ég er reiðust yfir því að Árni Þór Hilmarsson, for- stöðumaður fjölskyldusviðs Hafnarfjarðar, segir í Morg- unblaðinu að það sé verið að eyða óréttlæti en mér finnst að það sé verið að auka það með því að mismuna eftir fleiri atriðum en áður,“ segir Þurý, sem er eins og fyrr sagði námsmaður í hjóna- bandi með 13 mánaða gamla dóttur. Hún þarf að greiða fullt gjald fyrir dagvist hjá dagmóður þar til barnið nær tveggja ára aldri. Þurý varð til þess að vekja athygli á misrétti í niður- greiðslum á dagvist til náms- manna eftir hjúskaparstöðu og aldri barna í viðtali í Morg- unblaðinu fyrir nokkrum vik- um og kvaðst hafa fengið mik- il viðbrögð við því viðtali og í kjölfarið hafi fylgt yfirlýsing- ar frá bænum um að verið væri að vinna að leiðréttingu. „Ég skil ekki af hverju þeh* leiðrétta þetta misrétti svona,“ segir Þurý. Viðræður við Vega- gerð um hávaðavarnir Garðabær GARÐABÆR og Vegagerðin hafa átt viðræður um aðgerð- ir til hávaðavarna við Hafn- arfjarðarveg og Reykjanes- braut. Ingimundur Sig- urpálsson bæjarstjóri segir Garðabæ telja að Vegagerðin eigi að bera kostnað af að- gerðum en Jón Rögnvalds- son aðstoðarvegamálastjóri segir að samkvæmt vegalög- um beri sveitarstjórnir þann kostnað sem tilkominn er vegna þéttbýlis. Nokkrir íbúar í grennd við Hafnarfjarðarveg og Reykja- nesbraut hafa undanfarna mánuði sent bæjarstjórn Garðabæjar kvartanir vegna hávaða frá umferð. Bæjarstjórnin brást við með því að óska viðræðna við Vegagerðina um hávaðavarn- ir en hvorttveggja Hafnar- fjarðarvegur og Reykjanes- braut er þjóðvegur í þéttbýli. Ingimundur Sigurpálsson segir að rætt hafi verið við fulltrúa Vegagerðarinnar og væntanlega verði framhald á þeim viðræðum. „Menn eru með það í huga að finna ein- hverjar lausnir, sem yrðu kannski á kostnað Vegagerð- arinnar. Við lítum svo á að reglur um hávaðatakmarkan- ir séu komnar frá ríkinu og ríkið beri ábyrgð að því leyti gagnvart þeim stofnunum sem undir það heyra. Reglu- rnar eru tiltölulega nýjar og menn eru með nýjar viðmið- anir í þessum efnum.“ Ingimundur sagði að eng- ar patentalausnir væru til á þessu máli. Einn möguleiki sem hefði komið til tals væri að sett yrði þrefalt gler í glugga húsa þar sem hávaði er umfram mörk. Reykjavík- urborg hefur styrkt húseig- endur til slíkra aðgerða og annarra úrbóta á gluggum en Ingimundur sagði engar ákvarðanir hafa verið teknar í Garðabæ um að skapa slíkt fordæmi í þessu máli. Annar möguleiki er t.d. að reisa hljóðmanir. Ingimundur sagði að við- ræðum við Vegagerðina yrði haldið áfram og bærinn mundi reyna að þoka málinu áfram á þeim vettvangi. Vegalög Jón Rögnvaldsson aðstoð- arvegamálastjóri sagði að Garðabær hefði sett upp háv- aðavörn meðfram Reykjan- esbraut á síðasta ári. „Við höfum haldið því fram að þar sem byggð er skipulögð upp að vegi eftir að hann er lagð- ur beri viðkomandi sveitarfé- lag alla ábyrgð á þessum málum. Það er mjög tak- markað í vegalögum hvað Vegagerðin á að kosta af að- gerðum; talin upp nokkur at- riði í því sambandi. 1 20. grein laganna segir að þann kostnað, sem sérstaklega er til kominn vegna þéttbýlis, svo sem holræsi, færslur á lögnum, gangstíga og því um líkt,. skuli viðkomandi sveit- arfélag greiða. Það er að vísu ekki talað þarna um hávaða- girðingar en við höfum litið svo á að þetta væri sérstak- lega vegna þéttbýlisins og ætti að falla á sveitarfélagið. Ef hins vegar væri um það að ræða að nýr vegur kæmi þar sem byggð er fyrir lítum við svo á að það mundi horfa öðru vísi við; þá væri eðlilegt að veghaldari ætti að greiða kostnað," sagði Jón. „Hins vegar eru vafalaust mörg grá svæði.“ Það hvort Vegagerðin væri til tals um að taka þátt í kostnaði við þrefalt gler og endurbætur á gluggum sagði Jón órætt mál innan stofnun- arinnar. „Ég reikna með að við teldum að það væri mjög langsótt að Vegagerðin stæði að því ein en það þyrfti að meta það hvort ástæða væri til að hún tæki þátt í kostn- aði. Það hefur ekki verið gert, ég tek það fram,“ sagði hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.