Morgunblaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 62
MORGUNBLAÐIÐ 62 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 ÖOj ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra sdiM kt. 20.00 KRÍTARHRINGURINN í KÁKASUS eftir Bertolt Brecht. 6. sýn. í kvöid 1/12, örfá sæti laus, 7. sýn. fim. 2/12, örfá sæti laus, 8. sýn. fös. 3/12, örfá sæti laus, 9. sýn. lau. 4/12, örfá sæti laus, 10. sýn. 8/12, nokkur sæti laus, 11. sýn. 9/12, nokkursæti laus, 12. sýn. 10/12, nokkursæti laus. Síðasta sýning fyrir jól. GLANNI GLÆPUR í LATABÆ Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson. Sun. 5/12 kl. 14.00 uppselt, kl. 17.00 uppselt, aukasýning lau. 4/12 kl. 13.00 uppselt, fim. 30/12 kl. 14.00, nokkur sæti laus og kl. 17.00, nokkur sæti laus. Litta stfiðið kt. 20.00: ABEL SNORKO BÝR EINN - Eric-Emmanuel Schmitt Sun. 12/12, uppselt, mið. 15/12, örfá sæti laus, þri. 28/12, mið. 29/12, fim. 30/12. Ath. ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst. Miðasalan er opin mánud.-þriðjud. kl. 13-18, miðvikud.-sunnud. ki. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551-1200. Gjafakort i Þjóðteikhúsið — qjöfin sem lifnar Oið! Mannsröddin ópera eftir Francis Poulenc, texti eftir Jean Cocteau 6. sýn. mið. 1/12 kl. 12.15 7. sýn. 8/12 kl. 12.15 lokasýning. Sýn. hefst m/léttum málsverði kl. 11.30 SALKA á sta rsaga eftlr Halldór Laxness Fös. 3/12 kl. 20.00 Mið. 29/12 kl. 20.00 jólasýning Síðustu sýningar á árinu Munið gjafakortin 5 30 30 30 Mðasaia er opin trá kL 12-18, náHau og Irá kl. 11 þegar er hádegislJús. _____amsvan aian sotamiiwi.__ ÓSOnflB PflMTflMR SBJflB DflGUEGfl FRANKIE & JOHNNY Fös 3/12 kl. 20.30 nokkur sæti laus Fös 10/12 kl. 20.30 LEITUM AÐ UNGRI STÚLKU Rm 2/12 kl. 12.00 ÞJÓNN í SÚPUNNI mið 1/12 kl. 20 örfá sæti, síðast sýn. Gjafakort tilvalin jólagjöf! www.idno.is •• i -iimwiBiiniTMiiPr--—.t 11 , Myndir á sýningu Á morgun kl. 20.00 Leifur Þórarinsson: Haustspil Frands Poulenc Konsertfyrirtvö píanó Modest Mussorgsky: Myndir á sýningu Hljómsvertarstjóri: Zuohuang Chen Einleikarar Anna Guðný Guðmundsdóttir og Helga Bryndís Magnúsdóttir Áskriftartónleikar - Gula röðin Háskólabló v/Hagatorg Sími 562 2255 Míðasala alla daga kl. 9-17 www.sinfonia.is SINFÓNÍAN KðtfiLeihliú$i5 Vesturgötu 3 iiiiMiiaiM Ný revía eftir Karl Ágúst Úlfsson og Hjálmar H. Ragnarsson i leikstjóm Brynju Benediktsdóttur. fös. 3/12 kl. 21 laus sæti lau. 4/12 kl. 21 laus sæti fös. 10/12 kl. 21 örfá sæti laus Kvöldverður kl. 19.30 Ath.— Pantið tímanlega í kvöldverð Starfsmannafélög/hópar athugið — Jólahlaðborð i desember. MIÐAPANTANIR I S. 551 9055 Söngsveitin Fílharmonía Aðventutónleikar í Langholtskirkju sunnudaginn 5. desember kl. 20.30, þriðjudaginn 7. desember kl. 20.30, miðvikudaginn 8. desember kl. 20.30. Einsöngvari: Sigrán Hjálmtýsdóttir. Konsertmeistari: Rut Ingólfsdóttir. Stjórnandi: Bernharður Wilkinson. Miðasala í bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18 og við innganginn. 5 LEIKFELAG \ REYKJAVÍKUR BORGARLEIKHUSIÐ Ath. brevttur svninoartími um helaar Stóra svið: Elifið eftir David Hare, byggt á verki Art- hurs Schnitzler, Reigen (La Ronde) Þýðandi Veturliði Guðnason Leikarar BaldurTrausti Hreinsson og Marta Nordal Leikmynd Sigurjón Jóhannsson Búningar Helga Stefánsdóttir Ljós Lárus Bjomsson Hljóð Ólafur Öm Thoroddsen Leikstjóm María Sigurðardóttir Frumsýning fös. 3/12 kl. 19.00 2. sýn. sun. 5/12 kl. 20.00 grá kort örfá sæti laus 3. sýn. fös. 10/12 kl. 19.00 rauð kort 4. sýn. sun. 12/12 kl. 19.00 blá kort Að sýningu lokinni er framreitt gimilegt jólahlaðborð af meistara- kokkum Eldhússins - Veisla fyrir sál og líkama - Litíá lityMuufiíbúðui eftir Howard Ashman, tónlist eftir Alan Menken. Lau. 4/12 kl. 19.00, örfá sæti laus, fim. 9/12 kl. 20.00, lau. 11/12 kl. 19.00. U í svtn eftir Marc Camoletti. Sýningar hefjast aftur á nýju ári Stóra svið kl. 14.00: 610/J.M. Banie. Sun. 5/12, síðasti sýningardagur, örfá sæti laus. Litla svið: Fégurðardrottningin frá Línakri eftir Martin McDonagh. fim. 2/12 kl. 20.00, örfá sæti laus lau. 4/12 kl. 19.00. Sýningum fer fækkandi. Litla svið: Lefrir) aé v'ítsíviúnðTrf í alheltoínuM eftir Jane Wagner. Fös. 3/12 kl. 19.00, sun. 5/12 kl. 19.00. Miðasalan er opin virka daga frá kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga og sunnudaga og fram að sýn- ingu sýningardaga. Símapantanir virka daga frá kl. 10. Greiðslukortaþjónusta. Sími 568 8000, fax 568 0383. TUB0RG -LérröL- MULINN JAZZKLÚBBUR í REYKJAVÍK í kvöld kl. 21:00 LágmarksWesen. Andrés Gunnlaugsson leikur ieikur fönkkaflann úr gripabók Wes Montgomery. Siguröur Flosason ( as ), Birgir Baldursson ( tr ) og Þórir Baldursson (B3). Fimmtudaginn 02/12 Ómar Einarsson gítarleikari les salinn Símí 551 2666 FÓLK í FRÉTTUM Björt mey og mambó TOIVLIST Geisladiskur BJÖRT MEY OG MAMBÓ, GEISLADISKUR HLJÓM- SVEITARINNAR SIX PACK LATINO. Meðlimir sveitarinnar eru Aðal- heiður Þorsteinsdóttir: píanó, bak- raddir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir: söngur, Páll Torfi Önundarson: gít- ar, bakraddir, Tómas R. Einarsson: kontrabassi, bakraddir, Þorbjörn Magnússon: slagverk og Þórdís Claessen: slagverk. Þórir Baldurs- son stýrði upptökum, lék á bjöllu og söng bakrödd. Kjartan Kjartansson og Gunnar Sm i Helgason hljóðrit- uðu. Þórir og Gunnar Smári hljóð- blönduðu í samstarfí við hljómsveit- ina. Upptökur fóru fram í hljóðveri FIH og Hljóðsmáranum. títgefandi: Mál og menning. ÍSLENDINGAR hafa löngum heillast af suður-amerískn tónlist, dansvænni og glaðværri. Á þessum áratug má nefna dæmi um fjölmarga íslenska tónlistarmenn sem flutt hafa slíka tónlist fyrir landa sína. Þekkt dæmi eru hljómsveitir eins og Mill- jónamæringamir og Júpiters, en einnig má nefna poppsveitir á borð við Sniglabandið sem h'tillega hefur gælt við salsa og fleiri suðræn stíl- brigði. Six Pack Latino er ný hljóm- sveit sem nú hefur bæst í þennan hóp. Þótt sveitin sé ný af nálinni eru liðs- menn sveitarinnar margreyndir tón- listarmenn og má þar nefna kontra- bassaleikarann Tómas R. Einarsson og söngkonuna Jóhönnu V. Þórhalls- dóttur en hún var, ef mig minnir rétt, ásamt Páli Torfa Önundarsyni, gítar- leikara Six Pack, í hljómsveitinni Dia- boulus In Musica seint á áttunda ára- tugnum. Lögin á Björt mey og mambó eru fjórtán talsins og öll í suðrænum anda. Eins og titill plötunnar gefur til kynna þá er mambó-taktur áberandi en þó eru önnur suður-amerísk takt- afbrigði eins og rúmba, bóleró og cha cha cha einnig í heiðri höfð. Lögin eru flest gamlir standardar en frumsamin eru þó fjögur lög og yfirleitt lipurlega samansett. Textar eru ánægjulega margir á íslensku og þó ekki séu þeir hlaðnir boðskap eða speki einhvers konar þá falla þeir vel að tónlistinni. Tómas R. og Páll Torfi eiga frum- sömdu lögin, tvö hver, auk þess sem þeir semja sjö af íslensku textunum níu, Tómas á fjóra en Páll þrjá. Óli Gaukur og Þorsteinn Sveinsson eiga svo hver sinn texta. Leikgleði geislar af flutningi Six Pack Mambo í lögunum fjórtán. Heildin er sterk og enginn hljóðfæra- leikari sker sig sérstaklega úr enda h'tið um einleikskafla. Jóhanna Þór- hallsdóttir syngur einkar vel og fer oft á kostum í leikrænni túlkun, t.d. í Camarera de mi amor. Slagverkspæl- ingar eru einnig mjög skemmtilegar þó lítils háttar óöryggis og stirðleika gæti í lögum eins og Garðyrkjumann- inum, sem annars er eitt skemmtileg- asta lag plötunnai', létt og skemmti- Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson legt þar sem bakraddir gefa skemmtilega stemningu. Eins er skemmtileg stemning í Mambo del amor sem minnir mig eilítið á Dia- boulus In Musica sem og Garðyrkju- maðurinn gerir. Simba mundele er góð smíð Tómasar R. og prýðilegt er lag Páls Torfa, Habanera. Viðlag þess er þó æði fyrirsjáanlegt og sver sig í ætt við latínhefðina. Engu síður vel samið og textinn ekki síðri: „hljóm- fallið seiðir, vín blæs í glóð; og ómar habanera við næturljóð". Páll semur einnig Timbúktú, lag sem yh-kað hefði vel í Danslagakeppni Utvarpsins. Einhverra hluta vegna datt mér Skapti Ólafsson í hug er ég heyrði lagið fyrst. Ómar Ragnarsson kom einnig upp í hugann efth’ að ég hafði lesið textann. Eitthvað grallaralegt við þetta lag. Best heppnaði flutning- ur Six Pack Latino þykir mér vera á laginu Hjarta mitt þráir þig ein, sem er erlent lag við texta Tómasar R. Það er ekta suður-amerískur andi yf- ir því, þessi hiti sem einkennir fólkið, tónlistina og veður þeirra slóða. Jó- hanna syngur djúpri, seiðandi röddu og íslenski ullarsokkurinn er eins fjarri og hugsast getur. Hann er ekki eins fjarri í flutningi annari-a laga á plötunni. Platan er nefnilega og eðli- lega svolítið íslensk í sér. Six Pack-hópnum hefur tekist vel upp með val á eriendum lögum. Til þín, lag Luiz Bonfra með texta Óla Gauks, er frábært og smekklega flutt. Sömuleiðis er lag Pablo Beltrán Ruiz, í dansi með þér, afar vel samið. Texti þess lags skiptist til helminga í dönsku og íslensku og er íslenski hluti Þorsteins Sveinssonar vel ortur. Hins vegar fær Jóhanna ekki tíu í dönsk- uframburði þó hún syngi lagið geysi- lega vel. Mér þykir bai-a eitt lag bein- línis leiðinlegt, E1 Manisero, og verð ég bara að eiga það við sjálfan mig! Björt mey og mambó er í heild mjög vel heppnuð plata og laus við alla tilgerð. Tónninn er alþýðlegur og sannur. Fyrir utan stöku stirðleika- merki í píanóeinleik og annars skemmtilegum slagverksslætti þá er hljóðfæraleikur prýðilegur, látlaus og smekklegur. Þóri Baldurssyni tekst vel upp við upptökustjórn og yndis- legt er að heyra plötu sem laus er við vemmilegar hljómborðsmottur og of- hlaðnar útsetningar. Órafmögnuð hljóðfæri, þurr en mjúkur hljómur og heimilisleg nálægð. Eg vonast til þess að heyra og sjá Six Pack Latino á tón- leikum. Það er áreiðanlega þess virði. Orri Harðarson REUTERS Algjör api MIKIÐ hefur verið rætt um skaðsemi reykinga, en margt reykingafólk á í erfiðleikum með að losna undan tóbaks- fikninni. Á þessari mynd sést Namwan sem er tíu ára apaynja í Taflandi með vindling f munnviki. Namwan byijaði að reykja fyr- ir þremur árum eftir að eigendur hennar skildu hana eftir á götum Bangkok og ekki leið á löngu þar til hún var orðin þræll tóbaks- fíknarinnar. Núna situr Namwan á götum og betlar sígarett.ur af vegfarendum til að þjóna fíkn- inni. Af sögu hennar má ráða hversu lítið þarf til að lenda f feni tóbaksánauðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.