Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ Þetta myndarlega hús stendur við Háagerði 14. Það er á tveimur hæðum og alls um 350 ferm. Ásett verð er 27 millj. kr, en húsið er til sölu hjá Fold. Stórt hús í suðrænum stíl HJÁ fasteignasölunni Fold er til sölu tæplega 350 fermetra einbýlis- hús sem möguleiki er á að breyta í tvíbýli. Húsið stendur við Háagerði 14. Þetta er steinhús, byggt í áföng- um, sá fyrri var reistur árið 1956 en sá seinni árið 1980. Húsið er á tveimur hæðum og alls að flatarmáli um 350 fermetrar. „Þetta er fallegt hús I suðrænum stíl,“ sagði Ævar Dungal hjá Fold. „Nýir franskir gluggar eru í húsinu og eru gluggapóstar einnig nýir. Húsið er hið vandaðasta og hefur verið mikið endumýjað, en það skiptist í níu herbergi og tvær stof- ur. Náttúrusteinn og parket eru á gólfum og þarna er arinn, sauna, sólpallur og heitur pottur. I fremra húsinu er komið inn í forstofu með spænskri áferð á veggjum og innfelldum ljósum og innbyggðum. Forstofuherbergið er með parketi. Stofumar eru tvær og samliggjandi og með parketi á gólf- um. Eldhúsið er með náttúrastein- flísum á gólfi og dökkri fallegri inn- réttingu. Nýleg AEG-tæki era í eld- húsi og rúmgóður borðkrókur. Upp á aðra hæð er teppalagður stigi, en þar eru þrjú herbergi og hjónaherbergi með parketi á gólf- um. Baðherbergið er með flísum. Gangur er á milli húsanna með náttúraflísum á gólfí, en á þeim gangi er gengt inn í baðherbergi með nýjum tækjum. I bakhúsinu er svo stór stofa með náttúrasteinflís- um á gólfi og mjög fallegur og sér- stakur arinn. I stofunni era allar lagnir fyrir eldhús þannig að mjög auðvelt er að breyta þessu húsi í gott tvíbýli. Úr stofunni er gengt út á skjól- góðan sólpall, en þar er heitur pott- ur og garðurinn er í góðri rækt. Bfl- skúrinn er sérstæður og innangengt er í hann bæði úr garði og úr stofu. Fallegur stigi er upp á efri hæð bakhússins, en þar era tvö her- bergi. Úr stofu er einnig gengt nið- ur í kjallara, en þar era tvö mjög stór herbergi, sauna og sturta. Þetta er í alla staði hin vandað- asta eign á einum vinsælasta stað í Reykjavík. Ásettar era 27 millj. kr., en áhvílandi eru 14,4 millj. kr.“ Húsnæðið er alls 2450 fermetrar og er við Bakkabraut 2 í Kópavogi. Það skiptist í fjórar einingar og er til sölu hjá Ási. Atvinnuhúsnæði við Kópavogshöfn TALSVERÐ eftirspurn hefur verið eftir atvinnuhúsnæði að undanfomu og talsverð hreyfing. Fasteignasalan Ás er með til sölu atvinnuhúsnæði að Bakkabraut 2 í Kópavogi sem nýtt hefur verið undir matvælavinnslu. „Þetta hús var upphaflega byggt fyrir Síldarútvegsnefnd í tveimur áföngum, sá fyrri var reistur 1968 sem birgðaskemma, og er einangrað stálgrindarhús með mikilli lofthæð. Síðari áfanginn var byggður 1983 og er skrifstofur, matstofa og búnings- herbergi fyrir starfsfólk og svo vinnslusalur með viðurkenndu gólfi,“ sagði Kári Halldórsson hjá Ási. „Þetta er vandað húsnæði, alls 2450 fermetrar að stærð og er því eins og fyrr sagði skipt í einingar, 1. birgðageymslu, 2. skrifstofur-matsal og búningsherbergi, 3. vinnslusal og loks 4. verkstæðis- og tækjageymslu. Þess má geta að eignin er öll í góðu ástandi og vel við haldið. Plön era steypt og malbikuð og í húsunum er loftræsti- og öryggiskerfi. Frá- rennslislagnir era tengdar við nýtt frárennsliskerfi sveitarfélaganna. Umhverfi er allt hið snyrtilegasta og er húsið staðsett skammt frá nýrri höfn Kópavogsbæjar. Óskað er eftir tilboðum í eignina. Matur og Tómstundir Fatakaup Heilsugaasla Sími og Ýmislegt Samtals hreinlv. áskriftargjöld Einstakl. 23.036 1.071 2.357 2.143 3.600 1.071 33.278 Hjón 31.860 2.243 4.936 4.487 3.600 2.243 55.087 Hjón m. 1 bam 48.492 3.423 7.302 6.846 3.600 3.423 73.086 Hjón m. 2 börn 58.291 4.608 9.677 9.216 3.600 4.608 90.000 Hjón m. 3 böm 66.764 5.795 12.055 11.591 3.600 5.795 105.600 Hjón m. 4 börn 74.030 6.984 14.434 13.968 3.600 6.984 120.000 Einst. for. m. 1 bam 34.047 2.233 4.688 4.465 3.600 2.233 51.266 Einst. for. m. 2 böm 43.882 3.411 7.048 6.821 3.600 3.411 68.173 Einst. for. m. 3 böm 52.949 4.594 9.418 9.189 3.600 4.594 84.344 Einst. for. m. 4 böm 62.023 5.786 11.803 11.571 3.600 5.486 100.569 Lágmörk framfærslukostn- aðar í greiðslumatí hækka Markaðurinn Kaup á húsnæði eru fjárskuldbinding til langs tíma, segir Hallur Magnússon yfirmaður gæða- og markaðsmála Ibúðalánasjóðs. Því er mikilvægt að gæta að forsendur greiðslumatsins séu raunveralegar og gefi rétta mynd af eigin framfærslu. Þrátt fyrir það hafa of margir einungis miðað við lágmarksframfærslutölur í greiðslu- matinu sem hugsuð eru sem öryggis- mörk. Því var talið rétt að hækka lág- mörkin í ljósi reynslunnar. Öryggismörkin í greiðslu- matinu eru nú þannig :Sjá töflu til vinstri: Meðalfram- færslukostnaður Gott er að hafa til hlið- sjónar meðalframfærslu- kostnað samkvæmt neyslukönnunum Hagstofu Islands þegar raunveruleg- ur framfærslukostnaður er metinn við greiðslumatið. í meðalframfærslukostn- aði er tekið tillit til fleiri þátta en lagðir eru til grund- vallar í öryggismörkum íbúðalánasjóðs við greiðslu- mat. Meðalframfærslu- kostnaður samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar er eftirfarandi: Sjá töflu fyrir neðan: Eins og sjá má er veralegur munur á þeim öryggismörkum sem Ibúða- lánasjóður setur og þeim meðalfram- færslutölum sem fram koma í neyslukönnunum Hagstofu Islands. Því er brýnt að hafa í huga að lág- marksframfærslutölurnar eru ein- ungis öryggismörk en gefa ekki raunsanna mynd af framfærslukostm aði venjulegra íslenskra fjölskyldna. I ljósi þess að kaup á húsnæði er fjár- skuldbinding til langs tíma er mikil- vægt að gæta raunsæis við gerð greiðslumatsins og leggja raunvera- legan framfærslukostnað hvers og eins til grandvallar. raunsæis við gerð greiðslumats. LÁGMÖRK framfærslukostnaðar í greiðslumati vegna umsókna um íbúðalán Ibúðalánasjóðs hækk- uðu um 20% 1. desember 1999. Við greiðslumat vegna lána íbúða- lánasjóðs er gert ráð fyrir að greiðslumatið byggist á raunveru- legum framfærslukostnaði hvers umsækjanda fyrir sig. Þó gerir greiðslumatið ráð fyrir öryggismörk- um sem taka mið af lágmarksfram- færslukostnaði samkvæmt reynslu- tölum Ráðgjafarstofu heimilanna. Lántakandinn sjálfur ber ábyrgð á Alhliða matsþjónusta og ráðgjöf Alhliða mat á fasteitymim T.d. bnma-, vatnsskaða-, úttekt á leiguhúsnæði og sölu- húsnæði, verð-, kostnaðar-, markaðs- og jarðamat. Itaupendur og seljendur, leigutakar, leigusalar: Hafið ykkar mál á hreinu og látið matsmann losa ykkur við eftirmála. Ælmat. s. 567 6502T 893 1176 Einar S. Jónsson, Matsmannafélagi íslands. Tómstundir Fatakaup Heilsu- Ýmislegt Heimilis- kostn. búnaður o.fl. 14.182 7.025 2.694 10.241 6.538 22.715 12.271 5.192 14.580 9.641 31.103 14.143 10.219 26.708 9.861 36.939 16.648 7.324 24.086 20.081 31.595 17.059 7.204 26.705 15.296 30.674 23.222 8.957 26.980 15.009 20.839 10.041 6.131 20.298 7.889 24.749 11.820 4.394 18.305 6.065 21.168 12.112 4.323 20.296 2.237 20.552 16.487 5.374 20.504 12.007 Menntun Veitingar Áfengi Samtals Gisting Tóbak 471 7.227 5.191 72.054 1.208 11.129 5.718 112.873 3.516 12.385 7.477 155.766 2.437 11.587 6.459 172.817 2.612 11.754 7.252 174.448 2.009 14.732 5.141 181.804 2.286 9.041 4.935 105.274 1.584 8.460 4.263 117.374 1.698 8.580 4.786 117.436 1.306 10.755 3.393 122.727 Fasteignasölur í blaðinu ídag ÁS Berg Bifröst Borgir Brynjólfur Jónsson Eignamiðlun Fasteignamarkaðurinn Fasteignaland Fasteignamiðstöðin Fasteignasala íslands Fjárfesting Fold Frón Garður Gimli Híbýli Holt Hóll Hraunhamar Húsakaup Húsvangur Höfði Kjöreign Lundur Lyngvík Miðborg Séreign Skeifan Smárinn Valhöll bls. 23 bls. 19 bls. 19 bls. 6 bls. 17 bls. 10 bls. 14 bls. 5 bls. 11 bls. 18 bls. 17 bls. 9 bls. 8 bls. 15 bls. 4 bls. 5 bls. 20 bls. 24 bls. 7 bls. 8 bls. 5 bls. 22 bls. 3 bls. 21 bls. 16 bls. 18 bls. 5 bls. 13 bls. 15 bls. 12-13 Leiðandí félag í nútímalegum vinnubrögðum FELAGII FASTEIGNASALA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.