Morgunblaðið - 01.02.2000, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.02.2000, Qupperneq 1
 2000 ■ ÞRIÐJUDAGUR1. FEBRUAR BLAÐ INTER' SPORT P4 INTER SPORT INTER SPORT Morgunblaðið/Kristinn Fjórir komnir með ÓL-sæti FJÓRIR íslenskir íþrótta- menn hafa tryggt sér keppnisrétt á Olympíuleik- unum í Sydney síðari hluta september á þessu ári. Þetta eru sundmennirnir Jakob Jóhann Sveinsson, Ægi, Orn Arnarson, SH, fijálsíþrótta- konan Vala Flosadóttir úr IR og Rúnar Alexandersson, fimleikamaður úr Gerplu. Nokkrir eru nærri lágmörk- um og t.d. vantar hástökk- varann Einar Karl Hjartar- son aðeins einn sentimetra upp á að ná B-lágmarki til þátttöku á leikunum. Guðjón skoðar leikmenn ALLMARGIR umboðsmenn nota tækifærið og skoða leik- menn á Norðurlandamótinu í knattspyrnu og hér koma líka þjálfarar og má þar fyrstan telja Guðjón Þórðarson, fyrr- verandi landsiiðsþjálfara, þjálfara Stoke í Englandi. Guðjón kom hingað á sunnu- dagskvöldið við annan mann frá Englandi, John Rodge. Fjórir nýliðar á La Manga Fjórir knattspyrnumenn léku sinn fyrsta landsleik á Norðurlandamótinu á La Manga, þar sem ís- land og Noregur gerðu jafntefii í fyrsta landsleiknum undir stjórn Atla Eðvaldssonar, 0:0. Nýlið- arnir fjórir léku allir með íslands- og bikarmeisturum KR sl. keppnistímabil. Þeir eru Sigþór Júl- íusson, Þórhallur Hinriksson, Indriði Sigurðsson, sem er orðinn leikmaður hjá Lilleström, og Bjarni Þorsteinsson. Indriði var í byrjunarliðinu, hinir komu inn á sem varamenn. 600 til Spánar og Portúgals Um 600 íslenskir knattspyrnu- menn, dómarar og forráða- menn félaga eru á leið til Portú- gals og Spánar til æfinga og keppni um miðjan apríl til undir- búnings fyrir íslandsmótið í knatt- spyrnu. Bæði karl- og kvennalið og yngri flokkar liða halda til Portúgals 11. og 12. apríl í tveimur vélum á veg- um ferðaskrifstofunnar Úrvals-Út- sýnar. Kvennalið KR, Breiðabliks og ÍBV, karlalið ÍBV, Breiðabliks, ÍR, FH og 2. flokkur FH fara til Montechoro á Aibufeira. Leiftur, Fjölnir, HK og kvennalið FH fara til Alfamar. Þá fara Dalvíkingar til Albufeira og 2. flokkur Fylkis til Montegurdo. Auk þess að æfa koma liðin til með að leika gegn portúgölskum félagsliðum. Þá fara að öllum líkindum nokkrir íslensk- ir dómarar með liðunum, að sögn Þóris Jónssonar hjá Úrvali-Útsýn. Lúkas Kostic hjá Samvinnuferð- um-Landssýn sagði að rúmlega 300 knattspyrnumenn og -konur færu á vegum skrifstofunnar til Novo Santctri Petri á Suður-Spáni 11.-18 apríl til æfinga og keppni. Þau lið sem fara til Spánar eru: Grindavík, Tindastóll, Sindri, Fram, kvennalið Stjörnunnar, Þróttur, ÍA, Valur, Þór, Víðir, Vík- ingur og 2. flokkur hjá Víkingi og KR. Fylkir gegn finnskum meisturum KNATTSPYRNULIÐ Fylkis mætir sænskuin, finnskum og rússneskum liðum á æfingamóti á Kýpur í mars. Fylkismenn halda til Kýpur 7. mars og dvelja þar í viku og leika gegn Landskrona og úrvalsdeildar- liði Elfsborg, sem Haraldur Ingólfsson leikur með, Haka Valkeakoski, sem er finnskur meistari, og HJK Helsinki, sem er bikarmeistari í Finnlandi. Þá fara Vestmannaeyingar til Kýpur 22. febrúar til æfinga og hyggjast mæta annaðhvort rússneskum eða kýpverskum liðum á meðan dvöl þeirra stendur yfir. ISLAND MÆTIR MAKEDONIU I HM-BARATTU/B6

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.